Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Page 16
Vikublað 25.–27. febrúar 201416 Fréttir Erlent
Barnabækur
einræðisherra
n Doktorsnemi greinir barnabækur Norður-Kóreu n Endurspeglar hugmyndafræðina
S
vo virðist sem fyrri leiðtogar
Norður-Kóreu hafi gefið sér
tíma til að skrifa barnabæk-
ur. Barnabókatitlar eftir bæði
Kim Jong-il og föður hans,
Kim Il-sung, sýna vel hugmyndafræði
einræðisríkisins í sinni einföldustu
mynd. Doktorsnemi sem skrifar nú
ritgerð um barnabækur landsins segir
þær í raun ekki harla ólíkar barnabók-
um annarra landa. Flóttamaður frá
landinu efast um að einræðisherrarn-
ir hafi í reynd skrifað bækurnar.
„Drengir útrýma bófum“
„Að lokum sprakk vinstri blaðran
með tilheyrandi eldhafi og höfuðs-
maðurinn féll þungbúinn niður á
kylfu sína. Á því augnabliki heyrðist
hátt baráttuhróp fyrir utan; þorps-
búarnir höfðu drepið alla stigamenn-
ina.“ Svo hljómar útdráttur úr barna-
bókinni Drengir útrýma bófum úr
smiðju einræðisherrans Kim Jong-
il sem lést árið 2011. Í sinni smæstu
mynd þá fjallar sagan um hugrökk
ungmenni sem rísa upp gegn ofríki
bófa. „Þetta er í raun ótrúlega of-
beldisfull og upprifin saga,“ segir
Christopher Richardson, sem vinnur
að doktorsritgerð um norðurkóreskar
barnabækur við Háskólann í Sydney,
í samtali við BBC. Hann segir söguna
vera dæmigerða fyrir barnabók í ein-
ræðisríkinu. „Þetta er saga sem fjall-
ar um afturhaldsseggi, stigamenn og
menn sem aldrei fá nóg, sem ræna
og mergsjúga heiðarlega og dyggðum
prýdda þorpsbúa. Þetta er í raun hug-
myndafræði ríkisins í sinni einföld-
ustu mynd,“ segir Richardson. Mót-
stöðumenn sögunnar eru þeir sem
hugsa ekki um samfélagið og eru ekki
í tengslum við byltinguna.
Endurspeglar hugmyndafræðina
Hugmyndafræði norðurkóreska rík-
isins nefnist Juche. Í einföldu máli
gengur Juche út á að maðurinn sé
drottnari alls og að það sé í höndum
hans að byltingin haldi velli. Niður-
staðan er að lögð er áhersla á sjálf-
stæði og að Norður-Kóreumenn
geti ekki treyst neinum nema sjálf-
um sér. Flestar barnabækur landsins
endurspegla þessa hugmyndafræði í
dæmisöguformi. Gott dæmi um það
er bókin Fiðrildið og haninn sem sögð
er vera skrifuð af stofnanda ríkisins,
Kim Il-sung. Sagan segir frá hana –
sem táknar Bandaríkin – sem fer illa
með fallegan garð og kúgar hin dýr-
in þar. Að lokum kemur þó hugrakkt
fiðrildi – sem táknar Norður-Kóreu –
til sögunnar. Fiðrildið stendur uppi í
hárinu á hananum og stöðvar hann
að lokum.
Ekki hreinræktaður áróður
Richardson varar við því að bækurnar
verði afskrifaðar sem hreinræktaðan
áróður. „Þær eru oft mjög skemmti-
legar aflesturs og nokkuð vel skrifað-
ar sem slíkar. Ég get vel ímyndað mér
það að börnin sem lesa bókina séu
ekki meðvituð um hugmyndafræðina
bak við verkin. Ef það væri gerð teikni-
mynd byggð á til dæmis Drengir út-
rýma bófum og hún sýnd vestrænum
börnum þá væri ég ekki hissa ef þau
hefðu gaman af henni,“ segir Richard-
son. Hann segir að í raun eigi bókin
meira sameiginlegt en ósameiginlegt
með vestrænum bókum ætluðum
drengjum. „Þetta er í raun kjánalegt
ofbeldi sem flestir drengir hafa gam-
an af, óháð uppruna,“ segir hann.
Eins og guð
Richardson segist vera á báðum átt-
um um hvort feðgarnir Kim hafi skrif-
að bækurnar sjálfir. Lee Hyeon-seo
sem ólst upp í Norður-Kóreu en flúði
land sautján ára gömul segist þó hall-
ast að því að einhver annar hafi skrif-
að bækurnar. Hún segist muna vel
eftir bókunum sem er að hennar sögn
dreift til grunnskólabarna. „Mér eru
þó minnisstæðastar fáránlegar sögur
um Kim Jong-il, eins og sagan þegar
hann skaut niður nokkra Japana
fimm ára gamall. Það er augljósleg
ómögulegt en við trúðum því því fyr-
ir okkur var hann ekki eins ég og þú
– hann var eins og guð,“ segir hún. n
„Þetta er í raun
kjánalegt ofbeldi
sem flestir drengir hafa
gaman af, óháð uppruna.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Feðgar Bæði Kim Il-sung og Kim Jong-il eru sagðir hafa skrifað barnabækur. Þeir voru báðir
um tíma einræðisherrar Norður-Kóreu.
Myndskreyting
Hér má sjá stigamann
áður en hann fær
makleg málagjöld í
barnabókinni Drengir
útrýma bófum.
N
orðmaðurinn Joshua French
var í síðustu viku dæmdur í
lífstíðarfangelsi fyrir morð í
Afríkuríkinu Kongó. French
var sakfelldur fyrir að verða klefa-
félaga sínum og landa, Tjostolv
Moland, að bana en lík hans fannst
í Ndolo-fangelsinu í Kinshasha
þann 18. ágúst síðastliðinn. French
og Moland höfðu verið í fangelsi í
Kongó frá árinu 2009 eftir að þeir
voru handteknir grunaðir um
morð á kongóskum bílstjóra. Voru
þeir dæmdir til dauða fyrir morðið.
French og Moland neituðu stað-
fastlega sök og sögðu að ræningjar
hefðu orðið bílstjóranum að bana.
Þeir voru um tíma saman í norska
hernum og sögðust þeir hafa farið
til Kongó til að koma á fót öryggis-
fyrirtæki.
Sem fyrr segir fannst Moland
látinn í klefa sínum í fyrra. French
neitaði að hafa orðið honum að
bana og sagði hann að Moland
hefði svipt sig lífi.
Norsk yfirvöld höfðu lengi reynt
að fá mennina til Noregs þar sem
þeir gætu afplánað dóm sinn, en
töluðu fyrir daufum eyrum yfir-
valda í Kongó. Verjandi French,
Marie-André Mwila, segir í samtali
við AFP-fréttastofuna að rannsókn-
in á andláti Molands hefði ekki leitt
neitt í ljós sem benti til að honum
hefði verið ráðinn bani og dómur
yfir French hefði verið felldur án
nægjanlegra sannana.
AFP greinir frá því að enginn
fangi á dauðadeild hafi verið tekinn
af lífi í Kongó síðan núverandi for-
seti, Joseph Kabila, tók við völdum
árið 2001. Er slíkum refsingum jafn-
an breytt í lífstíðarfangelsi. Fangelsi
í landinu eru sögð yfirfull af föng-
um og mörg hver í niðurníðslu. Þá
segir AFP frá því að smitsjúkdómar
séu algengir og þess séu dæmi séu
að fangar hafi dáið úr hungri eða
vegna barsmíða fangavarða. n
Lífstíðardómur ofan á dauðarefsinguna
Norðmaðurinn Joshua French dæmdur fyrir að verða klefafélaga að bana í Kongó
Lífstíðarfangelsi French, til hægri, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að verða
Moland, til vinstri, að bana.
Hringja stöðugt
Slökkviliðsmenn í Berlín, höfuð-
borg Þýskalands, eru orðnir afar
þreyttir á að fá símhringingar frá
sama húsinu í vesturhluta borgar-
innar. Frá því í nóvember síðast-
liðnum hefur slökkviliðið verið
kallað að húsinu 200 sinnum. 45
útköll bárust í janúar og virðist
símhringingum fjölga dag frá degi.
Enginn virðist þó skilja hvers
vegna hringingarnar berast og fyr-
ir þeim er engin ástæða. Líklega
er um tæknibilun í símakerfi að
ræða, en þá grunar slökkviliðs-
menn að um sé að ræða hóp af
mönnum sem vilja losna við hæl-
isleitendur úr húsinu og séu til-
búnir að beita ýmsum brögðum til
þess. Börn gætu að auki staðið að
baki ónæðinu.
Málið er mjög alvarlegt, enda
þýðir útkall án tilefnis að slökkvi-
lið er vant við látið þegar um raun-
verulegt útkall er að ræða, auk þess
sem slökkviliðsmenn geta orðið
tregir til að fara að húsinu ef eldur
skyldi koma upp þar.
Refsað fyrir
mótmæli
Sjö aðgerðarsinnar voru af dóm-
stóli í Moskvu á mánudag dæmdir
í allt að fjögurra ára fangelsi. Þeir
höfðu sér það til saka unnið að
hafa tekið þátt í mótmælum gegn
Vladimír Pútín forseta árið 2012.
Einn til viðbótar var dæmdur til
skilorðsbundinnar fangelsisvistar.
Óeirðalögreglan var við dóm-
húsið þegar dómurinn var kveðinn
upp og handtók nokkra sem létu
óánægju sína með dóminn í ljós.
Úlfur á hóteli
Myndband sem bandaríski
ólympíufarinn Kate Hansen birti
af úlfi á rölti fyrir utan hótelher-
bergi fór sem eldur í sinu um fjöl-
miðla vestanhafs um helgina. Í
myndbandinu var úlfurinn mynd-
aður í gegn um litla rifu á hurð.
Myndbandinu fylgdu skilaboðin
„Epic #SochiFail: Wolf in my hall“.
Misjafn aðbúnaður íþrótta-
manna var til umræðu meðan
á leikunum í Sochi stóð. Úlfur-
inn á stigaganginum féll sem flís
við rass við þá mynd sem mál-
uð hafði verið af aðstæðunum
og sögðu allir helstu fjölmiðlar
frá myndbandinu, svo sem CNN,
FOX og NBC. Eftir nokkuð fár
kom í ljós að myndbandið, sem
vissulega var af úlfi, var sviðsett
af þáttastjórnandanum Jimmy
Kimmel. Tilgangurinn var að
blekkja fjölmiðla. Taminn úlfur
var fenginn til verksins og það var
í raun tekið upp í Bandaríkjunum.
Fréttinni um fölsunina, sem birtist
meðal annars á rt.com, fylgja þær
upplýsingar að Rússum sé ekki
skemmt.