Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 17
Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Fréttir Erlent 17
n Umsátur staðið yfir frá 2011 n Ástandinu líkt við Stalíngrad n Jarðýtur rústa heilu hverfunum
Á leið í öryggi Óbreyttir
borgarar flýja hina sundur-
spengdu borg Homs í Sýrlandi.
Hér sjást meðal annars börn
á leið til fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna, sem aðstoðuðu við
að koma þeim úr umsátrinu í
Homs. Harðir bardagar hafa
staðið þar yfir í hátt í þrjú ár.
U
msátrinu hefur verið líkt við
umsátrið við Stalíngrad í
seinni heimsstyrjöldinni. Það
var eitt skelfilegasta umsátur
sem þekkst hefur, stóð yfir í
um hálft ár og kostaði fleiri hundruð
þúsund manns lífið, bæði Rússa og
Þjóðverja. Orrustan um Stalíngrad
sneri við stríðsgæfu Þriðja ríkisins og
markaði upphafið að endalokum Ad-
olfs Hitlers.
Líkt við Stalíngrad
Ástandinu í sýrlensku borginni Homs,
hefur verið líkt við Stalíngrad í seinni
heimsstyrjöldinni. Borgin er sú þriðja
stærsta í Sýrlandi og á undanförnum
mánuðum hafa þúsundir manna verið
innilokaðar í borginni, sem hefur ver-
ið vettvangur nær látlausra bardaga og
fallbyssuárása frá vordögum 2011.
Borgin hefur verið í fréttum að
undanförnu vegna brottflutnings
borgarbúa undir verndarhendi Sam-
einuðu þjóðanna. Nokkur hundruð
manns hafa verið flutt á brott síðustu
daga og af myndum sem birst hafa í
fjölmiðlum má sjá að borgin er nánast
rústir einar. Minna myndir frá Homs á
myndir frá borgum eins og Dresden í
seinni heimsstyrjöld, eftir sprengju-
herferð Bandamanna gegn Þriðja
ríki Hitlers eða Grozní, höfuðborg
Tsjetsjeníu, eftir aðfarir Rússa í fyrra
stríði þeirra við Tsjetsjena í Kákasus
á árunum 1994–1999. Báðar þessar
borgir voru nánast lagðar í rúst.
Áður en stríðið í Sýrlandi braust
út á vormánuðum 2011 bjuggu tæp-
lega 700.000 manns í Homs og var
borgin þekkt sem iðnaðarborg. Hún
er um 100 kílómetra norður af höfuð-
borginni Damaskus og liggur hún ná-
lægt landamærum Líbanon, sem ligg-
ur að Miðjarðarhafinu.
Fólk deyr hér!
Dagblaðið The Australian komst í
samband við lækni – sem ekki vildi
koma fram undir nafni – í Homs í sept-
ember í fyrra og í gegnum Skype sagði
hann: „Veikt fólk deyr hér vegna skorts
á læknishjálp, hungurs, vannær-
ingar og skorts á grundvallarþjón-
ustu, vegna smására sem ekki gróa.
Við erum um 3.000 manns hér og um
1.000 þeirra eru særðir, þar af fjöldi
kvenna og barna.“ Hann bætti við að
allar tilraunir til samninga við ríkis-
stjórn Bashar Al Assad, forseta Sýr-
lands, hefðu mistekist. Það er sem sagt
ekki fyrr en nú, um hálfu ári síðar, sem
íbúar eru fluttir úr borginni með ör-
uggum hætti.
Bardagarnir um borgina eru mjög
miklir vegna mikilvægrar legu henn-
ar og hernaðarþýðingar. Sá sem ræð-
ur Homs, borginni sem hefur verið
kölluð höfuðborg byltingarinnar,
ræður einnig yfir mikilvægum sam-
gönguleiðum til Damaskus og Aleppo,
annarrar borgar sem mikið hefur verið
barist í. Damaskus er höfuð borg Sýr-
lands og ein sögufrægasta borg Mið-
Austurlanda.
Miðstöð andspyrnu
Homs skiptist í nokkra hluta; „gamla
bæinn“, sem er hjarta og miðja borgar-
innar, og nokkur hverfi í kringum þann
hluta. Í Homs eru þrír meginhópar
íbúa; súnní-múslimar, alawítar, sem
eru tengdir sjíta-múslimum, og kristn-
ir, sem eru í minnihluta. Borgin var
hertekin af múslimum á sjöundu öld
og varð hún síðan hluti af múslimska
Ottóman-heimsveldinu, sem stóð frá
1293–1923. Á meðan Frakkar höfðu
svo tögl og hagldir í Sýrlandi á árun-
um 1924–1958, varð Homs að miðstöð
andspyrnunnar gegn þeim. Logn-
molla er því eitthvað sem ekki hef-
ur einkennt borgarlífið í Homs, sem
var fræg fyrir mikla baðmullarrækt á
síðustu öld. Í nágrenni við borgina er
einnig að finna einn best varðveitta
miðaldakastala í heimi. Homs er hluti
af Homs-héraðinu, sem þekur í raun
miðhluta Sýrlands.
Her Sýrlands hefur staðið fyrir
nokkrum meirháttar aðgerðum gegn
andstæðingum sínum í borginni síð-
an borgarastríðið í landinu braust út.
Mannfall í Homs hefur verið gríðar-
legt, talið er að það hlaupi á þúsund-
um. Erfitt er að fá tölur staðfestar,
þar sem bæði Sýrlandsher Assads og
Her hins frjálsa Sýrlands (Free Syrian
Army), sem berst gegn stjórn Assads,
gefa sjálfir upp allar tölur. Mjög erfitt
er fyrir hlutlausa aðila að vinna á
svæðinu.
Pyntingar og mannshvörf
Samtökin Human Rights Watch
(HRW) gáfu út skýrslu upp á tugi blað-
síðna um ástandið í Homs í nóvember
2011 og þá komust samtökin að þeirri
niðurstöðu að um 3.100 manns hafi þá
þegar verið myrtir í borginni. Síðan þá
hafa tugir þúsunda bæst við og talið er
að yfir 100.000 manns hafi nú þegar
látist í styrjöldinni. Hún hefur einnig
leitt af sér versta flóttamannavanda-
mál sögunnar í Mið-Austur löndum,
en talið er að á bilinu 5–7 milljóna
manna séu á flótta vegna átakanna í
Sýrlandi.
Samtökin telja upp í skýrslunni
fjölda tegunda mannréttindabrota;
pyntingar, mannshvörf, handahófs-
kenndar handtökur, andlát í gæslu-
varðhaldi og fleira í þeim dúr. Í skýrsl-
unni er skorað á sýrlensk stjórnvöld
að láta af þessum aðferðum og einnig
er skorað á alþjóðasamfélagið að
bregðast með einbeittum hætti við
ástandinu í landinu. Enn sem komið
er hefur það lítinn árangur borið og
allar friðarumleitanir hafa farið út um
þúfur, nú síðast í Genf í þessari viku.
Heilu hverfin lögð í rúst
Þá hafa samtökin einnig gagnrýnt
harðlega niðurrifsherferðir sýrlenskra
stjórnvalda í nokkrum borgum lands-
ins. Í nýrri skýrslu kemur fram að yfir-
völd hafi notað jarðýtur og sprengi-
efni til þess að jafna heilu hverfin við
jörðu: „Frá því í júlí árið 2011 hafa sýr-
lensk stjórnvöld lagt þúsundir íbúða-
bygginga – og stundum heilu hverfin
í borgunum Damaskus og Hama –
í rúst, með því að nota jarðýtur og
sprengiefni,“ segir orðrétt í skýrslunni
sem ber heitið Razed to the Ground,
eða Jöfnuð við jörðu.
Haldið eftir í yfirheyrslum
Í kjölfar þeirrar aðgerðar sem fólst í að
flytja almenna borgara frá Homs í byrj-
un vikunnar, hefur um 300 mönnum
verið haldið eftir og þeir yfirheyrðir af
sýrlenskum yfirvöldum. Þau hafa lof-
að fulltrúum Sameinuðu þjóðanna að
vel verði farið með þá. Fréttakona BBC,
Lyse Doucet, fékk sérstakan aðgang að
þessum mönnum og gat rætt við nokkra
þeirra. Í samtölum lýsa þeir skotárás-
um á þá inni í borginni og ræddi Lyse
við nokkra unga karlmenn sem voru
særðir, m.a. vegna skothríðar frá leyni-
skyttum inni í borginni. Í samtölun-
um var það staðfest að enn væri fjöldi
uppreisnarmanna innilokaður í mið-
borg Homs. Í fréttinni kom einnig fram
spurningin um það hvort þessi mann-
úðaraðgerð SÞ væri að hluta til upplýs-
ingaraðgerð fyrir sýrlensk stjórnvöld?
Margir karlmannanna sem fréttakon-
an ræddi við sögðu að þeir hefðu ver-
ið spurðir fjölda spurninga um hvað
þeir hefðu aðhafst inni í borginni. Þá
sést einnig í fréttinni hvernig héraðs-
stjóri Homs ræðir við fangana og reyn-
ir að „endurmennta“ þá með boðskap á
borð við að „þeir séu allir Sýrlendingar
og í sama liði.“
Staðan í Sýrlandi er með þeim hætti
að fátt bendir til þess að á næstu vikum
dragi úr bardögum eða að friðarsamn-
ingar náist í gegn. Ekki er heldur ólík-
legt að átökin færist í aukana, nú þegar
vorar og sumarið nálgast. Því mun það
líklegast verða þannig að daglega ber-
ist grimmilegar fréttir frá landinu; um
mannfall, bardaga og skelfingu. Sem
yfirleitt bitnar harðast á almennum
borgurum, konum, börnum og gamal-
mennum. n
Hryllingur í Homs
Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson
Stalíngrad Ástandinu í Homs í Sýrlandi hefur verið líkt við umsátrið um Stalíngrad í seinni
heimsstyrjöldinni. Kannski ekkert skrýtið, þegar myndirnar með greininni eru bornar saman.
„Frá því í júlí árið
2011 hafa sýrlensk
stjórnvöld lagt þúsundir
íbúðabygginga í rúst.