Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Side 19
Skrýtið 19Vikublað 25.–27. febrúar 2014
Skrýtnir siðir afreksfólks
n Jafnvel þeir allra bestu eru haldnir hjátrú sem þeir fylgja í einu og öllu
Ferðu ekki út fyrir hússins dyr 13. dag hvers mánaðar og þakkar þú lukkunni með því að banka þrisvar sinnum í nálægan hlut þegar þú
rétt forðaðir þér frá slysi? Hafðu ekki áhyggjur, þú ert ekki einn um þetta. Jafnvel þeir allra bestu í sínum greinum þakka ekki einungis
þrotlausum æfingum sinn árangur heldur einnig sérkennilegum siðum.
n Alltaf sömu stuttbuxurnar
Nafn: Michael Jordan
Íþrótt: Körfubolti
Félag: Chicago Bulls
Einn besti íþróttamaður allra tíma, Michael
Jordan, var með fremur einfalda hjátrú.
Jordan leiddi lið sitt, Chicago Bulls, til sex
meistaratitla í NBA-deildinni á glæstum
ferli. Áður en hann var valinn í nýliðavalinu
af Bulls spilaði hann fyrir háskólann í
Norður-Karólínu. Eftir að hann gekk til liðs
við Bulls hafði hann þann sið á að klæðast
ávallt stuttbuxum búningi liðs Norður-Kar-
ólínu-háskólans undir Chicago Bulls-stutt-
buxunum.
n Ekki snerta
Nafn: Kevin Rhomberg
Íþrótt: Hafnabolti
Félag: Cleveland Indians
Kevin Rhomberg var haldinn hjátrú, jafnvel
áráttu, sem reyndist honum fremur erfið. Ef
einhver snerti Rhomberg þurfti hann að snerta
viðkomandi. Þessi árátta Rhombergs spurðist
út á meðal andstæðinga hans sem nýttu sér
hana sér í vil. Þeir snertu Rhomberg og hlupu
síðan í burtur til þess eins að koma honum úr
stöðu sinni. Einu sinni þurfti dómari að gera
hlé á leik Cleveland Indians, liði Rhombergs,
og New York Yankees því leikmenn Yankees
neituð að hætta að snerta Rhomberg.
n Happaskeggið
Nafn: Björn Borg
Íþrótt: Tennis
Sænski tenniskappinn Björn Borg var aðeins
hjátrúafullur þegar kom að Wimbledon-
mótinu. Borg hafði þann sið að safna skeggi
fyrir Wimbledon-mótið og klæddist ávallt
sömu Fila-treyjunni. Það má segja að þessi
siður hafi á einhvern hátt aukið sjálfstraust
hans á þessu móti því hann vann mótið
fimm sinnum í röð á árunum 1976 til 1980.
n Vanaföst
Nafn: Serena Williams
Íþrótt: Tennis
Serena Williams er ein öflugasta tenniskona
söguna en hún hefur þakkað aga og vana
í daglegu lífi árangur sinn. Á meðal tiktúra
hennar er að mæta með sandala á tennis-
völlinn og að reima skóna sína ávallt á sama
máta. Hún skoppar einnig tennisboltanum
fimm sinnum fyrir fyrri uppgjöf og tvisvar
fyrir seinni uppgjöfina. Hún hefur einnig
gengið svo langt að ganga í sömu sokkunum
yfir heilt tennismót. Þegar hún hefur verið
slegin úr leik á mótum hefur hún stundum
kennt því um að hún fylgdi ekki þessum
siðum sínum.
n Óvenjulegar svefnvenjur
Nafn: Jason Terry
Íþrótt: Körfubolti
Félag: Sacramento Kings
Jason Terry er sagður haldinn mestu þráhyggj-
unni í NBA-deildinni. Hann borðar kjúkling
fyrir hvern leik og er í fimm pörum af sokkum á
meðan hann spilar. Ein einkennilegasta hjátrú-
in hans varðar þó svefnvenjur hans fyrir leiki,
og munið að NBA-leikmenn þurfa sumir að
spila hátt í hundrað leiki á hverri leiktíð. Terry
tekur nefnilega ekki annað í mál en að sofa
í stuttbuxum þess liðs sem hann á að mæta
næst. Þessi árátta hefur orðið þess valdandi
að hann hefur leitað í mikilli örvæntingu að
stuttbuxum andstæðinga daginn fyrir leiki.
n Alltaf eins
Nafn: Wade Boggs
Íþrótt: Hafnabolti
Félag: Boston Red Sox og New York Yankees
Hafnaboltaleikmaðurinn Wade Boggs var
með rútínu sem hann fylgdi daglega og
harðneitaði að breyta henni sama hversu
mikið hún þvældist fyrir honum. Á meðal
þess sem hann varð að gera var að borða
kjúkling fyrir hvern leik. Hann var afskap-
lega nákvæmur á tímasetningu og æfði
sveifluna ávallt klukkan 05.17. Sprettina
æfði hann klukkan 07.17. Þá ritað hann
ávallt orðið Chai, sem á hebresku þýðir líf, í
moldina þegar röðin var komin að honum að
slá í leikjum.
n Í hrókasamræðum við markið
Nafn: Patrick Roy
Íþrótt: Íshokkí
Félag: Montreal Canadien
Patrick Roy er talinn einn af bestu markvörðum
NHL-íshokkídeildarinnar. Fyrir hvern leik með
Montreal Canadien skautaði hann aftur á bak
í átt að markinu sem hann átti að verja. Rétt
áður en hann kom að markinu sneri hann sér
við. Hann trúði því að þessi aðferð minnkaði
markið. Meðan á leikjunum stóð átti hann í inni-
haldsríkum samræðum við markstangirnar og
þakkaði þeim fyrir ef knötturinn hafnaði á þeim.
n Í gylltum þveng
Nafn: Jason Giambi
Íþrótt: Hafnabolti
Félag: Cleveland Indians
Hafnaboltakappinn Jason Giambi var versta
martröð kastara þegar hann var upp á sitt
besta. Hann fór þó í gegnum nokkra öldudali
þegar hann var upp á sitt besta en hann hafði
ákveðna lausn á slæmu gengi. Hann tók sig til
og klæddi sig í gylltan þveng. Þetta virtist hafa
jákvæð áhrif á kauða og voru liðsfélagar hans
svo hrifnir af þessu að þeir fengu þvenginn
lánaðan ef þeim gekk illa.
n Drekkur eigið þvag
Nafn: Lyoto Machida
Íþrótt: Blandaðar bardagaíþróttir
Bardagakappinn Lyoto Machida er með
sið sem óhætt er að fullyrða að ekki sé
allra. Þessi Brasilíubúi drekkur nefnilega
eigið hland á hverjum morgni. Hann gaf
það upp að hann hefði lært þetta af föður
sínum en sjálfur telur Machida þvagið vera
náttúrulyf sem hreinsar líkama hans. Ekki
fylgir sögunni hvort hann kæli það niður eða
drekki þvagið volgt.
n Tannburstun milli lota
Nafn: Turk Wendell
Íþrótt: Hafnabolti
Félag: New York Mets
Turk Wendell, kastari New York Mets, var
haldinn brjálæðislegri áráttu sem hann
taldi verða sér til framdráttar í íþróttinni.
Hann tuggði lakkrís á meðan hann kastaði
í leikjum og burstaði tennurnar á milli lota.
Hann gekk með hálsfesti sem skreytt var
með tönnum úr villtum dýrum sem hann
hafði drepið.