Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Page 22
Vikublað 25.–27. febrúar 201422 Umræða
Umsjón: Henry Þór Baldursson
Könnun
E
vrópa þarf ekki Svarthöfða og
Svarthöfði þarf ekki Evrópu. Þess
vegna fagnaði Svarthöfði ákaf
lega þegar ríkisstjórnarflokkarn
ir boðuðu loks að þeir ætli að slíta að
ildarviðræðum við Evrópusambandið.
Ísland þarfnast ekki Evrópu, frekar en
Ísland þarfnast Bandaríkjanna eða
Asíu. Hér er allt til alls og við getum
slitið samskiptum við öll lönd. Við
höfum fiskinn, íslensku sauðkindina,
jarðvarmann, fallorkuna og okkar
heimsfræga búfénað. Hrossaræktin
er sú besta í heimi. Og ekki þurfum
við olíuna til að knýja sjávarútveg og
landbúnað frekar en áður fyrr. Við get
um keyrt skipaflotann á lýsi eða raf
orku. Möguleikarnir eru endalausir og
við förum ekki að láta svona smámuni
stöðva okkar. Ef við þurfum korn þá
bara ræktum við korn ofan í þessar
hræður sem búa hérna.
Ef okkur leiðist þá höfum við
skemmtikrafta hér á landi sem jafn
ast á við þá heimsins bestu. Enginn
þarf að efast um kímni Steinda Jr. eða
Sögu Garðars sem koma Íslending
um sífellt á óvart með kynjóttu gríni.
Jafnfætis þeim standa fágætir lista
menn á borð við Magna í Á móti sól
og Jónsa í Í svörtum fötum. Hvað þurf
um við mögulega meira? Tölvuleiki?
Svarthöfði veit ekki betur en á Íslandi
hafi verið hannaður heill alheimur
af gáfuðustu mönnum heims í CCP
sem vinna jafnfætis sjómönnum við
Reykjavíkurhöfn. Leitið ekki lengra. Ís
land er land þitt. n
Við höfum allt til alls!
Sjá blámann í austri
Eldri borgarar styðja lífeyrissjóðina
E
ldri borgarar styðja lífeyris
sjóðina. Það er sótt að lífeyris
sjóðunum um þessar mund
ir. Þeir sæta mikilli gagnrýni.
Margt af þeirri gagnrýni byggist á
misskilningi svo sem, að það sé líf
eyrissjóðunum að kenna, að lífeyrir
frá almannatryggingum sæti mik
illi skerðinga vegna greiðslna úr
lífeyris sjóði. Þar er ekki við lífeyris
sjóðina að sakast heldur stjórn
völd. Það er Alþingi og ríkisstjórn,
sem hefur samþykkt þá miklu
skerðingu á lífeyri frá TR, sem á sér
stað um þessar mundir. Lífeyris
sjóðirnir hafa ekki samþykkt þessa
skerðingu.
Stöðva verður skerðinguna strax
Fjallað var um þessi mál á nýaf
stöðnum aðalfundi Félags eldri
borgara í Reykjavík. Þar var eftir
farandi ályktun samþykkt: „Að
alfundurinn fer fram á það, að
ríkisstjórnin stöðvi þegar í stað
skerðingu lífeyris aldraðra frá al
mannatryggingum vegna greiðslna
úr lífeyrissjóði. Þessi skerðing er
svo mikil í dag, að hún eyðir með
öllu ávinningi margra ellilífeyris
þega af því að hafa greitt í lífeyris
sjóð. Aðalfundurinn lýsir yfir full
um stuðningi við lífeyrissjóðina.
Aðalfundurinn áréttar, að lífeyris
sjóðirnir eru eign sjóðfélaga enda
þar um að ræða mikilvægasta þátt
inn í ævisparnaði þeirra.“
Aðalfundurinn samþykkti að
stofna ætti embætti umboðsmanns
aldraðra og skoraði á ríkisstjórn og
Alþingi að koma því máli í höfn.
Verkefni umboðsmannsins á að
vera að gæta hagsmuna aldraðra í
hvívetna. Aldraðir eru varnarlaus
ir gagnvart stjórnvöldum. Lög eru
brotin á öldruðum hvað eftir ann
að; jafnvel mannréttindi eru brot
in á eldri borgurum. Verkefni um
boðsmanns aldraðra eru því ærin.
Þá samþykkti aðalfundurinn að
hækka ætti skattleysismörkin
myndarlega. Í dag hækka þau að
eins í samræmi við hækkun neyslu
vísitölu. En þau þurfa að hækka
miklu meira. Rífleg hækkun skatt
leysismarka er besta kjarabót eldri
borgara.
Hækka þarf lífeyri um 20%
Félag eldri borgara í Reykjavík
skorar á ríkisstjórnina að leiðrétta
strax lífeyri aldraðra frá almanna
tryggingum vegna kjaragliðnun
ar á krepputímanum (sl. 4–5 ár).
Til þess að leiðrétta þessa gliðnun
þarf af hækka lífeyri aldraðra um
20 prósent strax. Með kjaragliðnun
er átt við að kaup láglaunafólks
hefur hækkað miklu meira en líf
eyrir. Bæði landsfundur Sjálf
stæðisflokksins og flokksþing
Framsóknarflokksins samþykktu
að leiðrétta ætti þessa kjaragliðnun
strax eftir kosningar. Það verður að
efna þetta kosningaloforð. Og það
verður að efna það strax.
Aðalfundurinn fagnaði því, að
ríkisstjórnin hafi afturkallað mikið
af kjaraskerðingunni frá 2009. Hún
hefur afturkallað skerðingu frí
tekjumarks vegna atvinnutekna
og skerðingu grunnlífeyris. Út
reikningur grunnlífeyris hefur ver
ið færður til fyrra horfs og greiðsl
ur úr lífeyrissjóði því ekki reiknaðar
með tekjum við útreikning grunn
lífeyris. Þetta var hvort tveggja
samþykkt á sumarþinginu. Hins
vegar leiðrétti ríkisstjórnin ekki
sl. sumar skerðingarhlutfall tekju
tryggingar, sem var hækkað 2009.
Við hækkun á skerðingarhlutfalli
tekjutryggingar urðu 19.000 eldri
borgarar fyrir kjaraskerðingu. Ríkis
stjórnin ákvað að láta þennan hóp
bíða í hálft ár eftir kjaraleiðréttingu
og öryrkjar máttu einnig bíða. En
lögin um hækkað skerðingarhlut
fall tekjutryggingar voru tímabund
in og giltu út árið 2013. Þessi
kjaraskerðing féll því sjálfvirkt úr
gildi. Ríkisstjórnin þurfti ekkert að
gera annað en að bíða og það gerði
hún. Hún beið og lét aldraða og ör
yrkja líka bíða í hálft ár eftir kjara
bót, sem lofað var í kosningunum
að kæmi strax eftir kosningar.
Aðalfundur FEB samþykkti einnig
að afnema ætti strax skerðingu
tryggingabóta aldraðra vegna at
vinnutekna. Það á ekki að refsa eldri
borgurum fyrir að vinna. n
Björgvin Guðmundsson
form. kjaranefndar Félags eldri borgara
Aðsent
„Rífleg hækkun
skattleysismarka
er besta kjarabót eldri
borgara.
Svarthöfði
1 Hreindýrabóndi ósáttur við yfirvöld Stefán Hrafn
Magnússon vill rækta hreindýr hér á
landi en segir að yfirvöld hér hafi ítrekað
lagt stein í götu hans og svari vart beiðn-
um hans. Stefán hefur ræktað hreindýr
með góðum árangri á Grænlandi.
7.435 hafa lesið
2 „Íslendingar búa að því láni að geta valið hvern
þeir elska“ Í helgarblaði DV var
fjallað um herferð Amnesty er við kemur
kyn- og frjósemisréttindum einstaklinga
sem víða eru brotin.
6.578 hafa lesið
3 „Beita sér fyrir grímu-lausum svikum við
kjósendur“ Helgi Magnússon, fyrr-
verandi formaður Samtaka iðnaðarins,
gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega. Hann
segir hana hafa staðið við fá mikilvæg
mál sem hún lofaði úrlausnum í í kosn-
ingabaráttunni síðastliðið vor.
5.490 hafa lesið
4 „Loftur var einstakur fyrir vinsemd“ Gísli Hol-
gersson málaði mynd af útigangsmann-
inum Lofti Gunnarssyni sem lést fyrir
aldur fram þann 20. janúar 2012.
4.913 hafa lesið
5 Atli Fannar hættur í pólitík Atli Fannar Bjarkason er hættur sem
aðstoðarmaður Guðmundar Steingríms-
sonar, formanns Bjartrar framtíðar.
4.566 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is
„Hrossaræktin er
sú besta í heimi.
n Nei n Já
71%
29%
Kemst Ísland á EM?