Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Síða 26
Vikublað 25.–27. febrúar 201426 Lífsstíll
Harpa fallegust
DV leitaði til málsmetandi álitsgjafa í leitinni að
fallegustu og miður fallegum byggingum landsins.
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík, Harpa, situr
á toppnum yfir fallegustu byggingarnar en skorar
einnig hátt á lista yfir ljótustu byggingarnar. Kirkjur
landsins eru mönnum greinilega hugleiknar þegar
kemur að byggingarlist.
indiana@dv.is
Fallegar byggingar
1 Harpa
Arkitekt: Teiknistofa Henning Larsen
n „Ég verð alltaf pínu stolt þegar ég horfi á þá byggingu. Það
má auðvitað deila endalaust um kostnaðinn og allt það en
byggingin er komin upp og í gagnið og hún er ótrúlega vel
heppnuð og er flott kennileiti fyrir borgina okkar.“
n „Tónlistarhúsið er nýjasta kennileiti borgarinnar og
feiknafagurt. Staðsetningin er einstök og þessar andstæður,
sjórinn og glerhjúpurinn, skapa mögnuð hughrif. Glerið sem
minnir á stuðlaberg sem er gróft og harðgert en er samt svo
viðkvæmt og fíngert finnst mér það fallegasta við Hörpu.“
n „Hreinlega ein fallegasta bygging sem ég hef séð.“
n „Geislar svo fallega á ólíkan hátt eftir birtunni úti. Falleg-
asta nýbyggingin að mínu mati.“
n „Sjúklega falleg og síbreytileg eftir birtu, veðri og að-
stæðum. Ólýsanlegt að sitja í Eldborgarsalnum og hlusta á
tónlist, gaman að ganga um inni í byggingunni og endalaust
hægt að dást að henni utan frá – úr öllum áttum.“
2–4 Kópavogskirkja
Arkitekt: Ragnar Emilsson/Hörður Bjarnason
n „Fellur vel að umhverfinu sínu
með hvítum tignarlegum bogalínum
sem mynda skemmtilegt mótspil við
jarðlitina í Kópavogsholtinu. Steindir
gluggarnir eftir Gerði Helgadóttur setja
sterkan svip á hana.“
n „Látlaus stílhrein bygging – gríðarlega
vel staðsett. Kirkjurýmið skemmti-
lega blanda af klassísku krossforma
skipulagi – en í nútíma útfærslu. Vel
heppnuð aðkoma listamanna að fág-
uðum skreytingum. Kópavogi til sóma
– enda hluti af merki bæjarins.“
n „Fallegasta kirkjan.“
2–4 Listasafn Einars Jónssonar
Arkitekt: Einar Erlendsson
n „Það næsta sem við komumst því að
eiga kastala. Falleg bygging að utan og
enn skemmtilegri að innan.“
n „Falleg og reisuleg bygging sem minnir á
lítinn kastala – bygging sem ber af á hæð-
inni, með sína fallegu glugga og mikla reisn.“
n „Ótrúlega ævintýraleg. Hefur sín
tengsl við evrópska byggingarlist í upp-
hafi tuttugustu aldar og er minnisvarði
um þá staðreynd að hér á landi risu
reisuleg hús seint og um síðir.“
5–7 Dómkirkjan í Rvk.
Arkitekt: A. Kirkerups
n „Svona eiga allar kirkjur að líta út. Glæsileg bygging, íhalds-
söm og virðuleg en líka notaleg.“
n „Býr yfir einhverjum sjarma og þegar sólin skín er hún eins
og ljósklædd fögur álfkona í miðbænum sem engin tekur neitt
sérstaklega eftir en er þarna samt svo undurfögur og í senn
fíngerð og harðgerð.“
2–4 Akureyrarkirkja
Arkitekt: Guðjón Samúelsson
n „Alls ekkert slæm og kartöflugeymslan er
mjög frumleg.“
n „Táknmynd Akureyrar sem stendur svo
falleg með sína tvo turna eins og verndari
yfir miðbæ Akureyrar. Guðjón Samúelsson
upp á sitt besta.“
n „Tignarlegt og byggt í íslenskri útgáfu af
gömlum evrópskum stíl. Breiðir út faðminn
á móti kirkjugestum, frábær staðsetning.
Vakir yfir bæjarbúum. Segir við gesti: Það
er þess virði að ganga yfir hundrað tröppur
til að koma til mín. Innrammar útsýnið til
fjalla, með bæinn og brekkuna í baksýn,
ásamt Súlum og Hlíðarfjalli. Séð úr gamla
hluta bæjarins ber hún við himin og setur
punktinn yfir i-ið á prófílmynd bæjarins,
tákn bæjarins.“
5–7 Háskólabíó
Arkitekt: Guðmundur Kr. Kristinsson
n „Hús sem stendur reisulega og miðlægt
í vel útfærðu bæjarskipulagi sem Melarnir
eru. Þægilegt og fallegt hús með falleg
hlutföll og myndrænt minni (myndavél-
in) í útliti salarins. Uppbrotið með léttri
lágreistri þjónustu/aðkomubyggingu sem
gefur byggingunni góðan mannlegan
skala. Lágreist vinaleg aðkoman inn gerir
upplifunina af því að koma inn í stílhreinan
háreistan salinn mikilfenglegan. Salurinn að
innan endurspeglar utanhúss útlit hans.“
n „Ber vott um stórhug og fagmennsku.“
5–7 Borgarbókasafnið
Arkitekt: Guðjón Samúelsson/Hörður Bjarnason/Sigvaldi Thordar-
son/Teiknistofan Óðinstorg sf. og Helgi Hjálmarsson
n „Myndi vilja búa þar. Stórfenglegt hús!“
n „Eitt fallegasta og virðulegasta hús landsins. Loksins lítur það út
eins og það átti alltaf að gera.“
Álitsgjafar
Nadia Katrín Banine fjölmiðlakona
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir stílisti
Sindri Sindrason fjölmiðlamaður
Guðrún Atladóttir innanhússarkitekt
Sigríður Elín Ásmundsdóttir ritstjóri Húsa
og híbýla
Sesselja Thorberg innanhússhönnuður
Baldur Ó. Svavarsson arkitekt
Helga Bragadóttir arkitekt
Hannes Steindórsson fasteignasali
Elísabet Gunnarsdóttir stílisti
Rakel Garðarsdóttir framleiðandi
Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi
Harpa Hjarðar markaðsfulltrúi
Geir Kr. Aðalsteinsson forseti
bæjarstjórnar Akureyrar
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
fjölmiðlafulltrúi
Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi