Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Blaðsíða 27
Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Lífsstíll 27
Harpa fallegust
2–6 Stykkishólmskirkja
Arkitekt: Jón Haraldsson
n „Alltaf truflað fegurðarskyn undirritaðs. Einhver óræð
barátta milli strangra reglufastra flata (geómetríu) sem arki-
tektinn var þekktur fyrir og frjálsra forma. Að mínu mati ræður
hann ekki við þessa baráttu/samsetningu.“
n „Lítur út eins og sitjandi hundur eða Sfinx.“
2–6 Ráðhús Reykjavíkur
Arkitekt: StudioGrandi
n „Stendur á fallegum stað umkringt gömlum sjarmerandi
húsum. Byggingin sjálf er ekki ófögur en hún er kuldaleg og
klunnaleg á þeim stað sem hún stendur. Ef steinninn yrði málað-
ur í gamaldags lit myndi það lífga upp á svæðið.“
n „Ljótur og kaldur steypuklumpur sem gerir ekkert fyrir Tjörnina
og það fallega svæði þar í kring – kalt og án allrar sálar.“
2–6 Breiðholtskirkja
Arkitekt: Guðmundur Kr. Kristinsson, Ferdinand
Alfreðsson og Hörður Björnsson
n „Kirkjan er eins og tjald.“
n „Indjánatjald eða Barbie-dúkka sem vantar helm-
inginn á. Skil ekki hvað arkitektinn var að fara.“
2–6 Harpan
Arkitekt: Teiknistofa Henning Larsen
n „Afburða minnisvarði um hvernig ekki á
að standa að uppbyggingu menningarhúss
hérlendis. Eyðileggur afstöðuna og
heildarupplifun hafnarinnar. Lokar gamalli
gönguleið milli hafnargarðanna tveggja.
Snýr afturendanum í mikilvægasta
umhverfismómentið – útsýn að Esjunni og
Sundunum bláu. Einsleitt og vont efnisval
m.t.t. staðsetningar – stál og gler (sjór og
selta). Hálfklárað. Afkáralegt. Gæði húss
felast einnig í skynsemi er varðar umfang
og kostnað – þar er Harpan yfirgengilega í
mínus. Eitt risastórt BLING.“
n „Glæsilegt og tignarlegt en þó með svo
stórum vanköntum. Fegurðin er fyrst og
fremst fólgin í starfseminni. Útlitið er ekk-
ert. Bara nokkrir fletir sem settir eru saman
á skakk og skjön. Ópersónulegt og kalt. Snýr
öfugt. Minnir mig á býflugnabú. Diskó-sjóið
er algjört prump. Það teiknar enginn Hörpu-
na í Pictionary til að tákna Reykjavík.“
2–6 Lækjartorgsbygging SVR
Arkitekt: Bjarni Marteinsson
n „Afspyrnu ljótur klumpur sem er eins og kýr þarna innan um aðrar fallegar byggingar, ekki hjálpar til
að hafa það svart og drungalegt og því enn síður að hýsa þar háspennu.“
n „Þótt miklar endurbætur hafi verið gerðar á þessu húsi og toppurinn á því orðinn alveg ágætur,
minnkar útlit hússins lífsviljann – það er svo ljótt. Það er fyrirbæri. Það er áminning um að stundum er
betra að snúa frá því sem gert hefur verið og byrja upp á nýtt.“
8–18
Norræna húsið
Arkitekt: Alvar Aalto
n „Tímalaus hönnun af bestu gerð. Alvar Aalto alltaf
klassískur.“
8–18
Sundhöll Reykjavíkur
Arkitekt: Guðjón Samúelsson
n „Eitt aðal kennileiti Reykja-
víkurborgar, stórbrotin bygging,
klassísk hönnun að innan og utan.“
8–18
Ægissíða 80
Arkitekt: Sigvaldi Thordarson
n „Hreint ótrúlega fallegt hús. Litirnir og formið er ein-
kennandi fyrir hans stíl og innanhússhönnunin er einnig
stórkostleg. Húsið er byggt 1959, en Húsafriðunarnefnd
friðaði það hús 1999. Þá var það aðeins rétt 40 ára gam-
alt – bara sú staðreynd segir allt sem segja þarf.“
8–18
Lönguhlíðarblokkin
Arkitekt: Einar Sveinsson
n „Hefur elst einstaklega vel og er enn með fallegri
og vinalegri fjölbýlishúsum bæjarins. Byggingin nýtur
sín vel í umhverfinu og er látlaus þrátt fyrir sterk
karaktereinkenni – skásett útskot í bland við bogaform
og glugga sem setja svip á húsið. Valmaþakið rammar
svo húsið inn.“
8–18
Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg
Arkitekt: Einar Sveinsson
n „Eftirminnileg bygging þar sem brúin setur sterkan
svip á húsið og umhverfi þess.“
8–18
Íslenski torfbærinn
Arkitekt: Hinn íslenski alþýðumaður og bóndi
n „Af jörðu ertu kominn og að jörðu skaltu aftur verða
segir allt um þessa húsagerð. Merkilegasta framlag
okkar til alheims byggingalistasögunnar. Þetta er þó sú
byggingararfleið sem við lengst af skömm-
uðumst okkar fyrir og eyddum nær af
yfirborði jarðar hérlendis.“
8–18
Bakkaflöt 1
Arkitekt: Högna Sigurðardóttir
n „Einbýlishús hannað 1963. Fangar
kjarnann í íslenskri byggingarhefð í nútímanum.
Skynsamlegt hús að stærð og umfangi hið ytra sem
innra. Innhússskipulag ótrúlega sveigjanlegt. Kosið eitt
ef hundrað merkilegustu einbýlishúsum s.l. aldar (á
heimsvísu).“
8–18
Nýbygging Hæstaréttar
Arkitekt: StudioGrandi
n „Skynsamlegt hús að stærð
og umfangi. Efnisval utanhúss
minnir á eldri byggingar og
stofnanir í samræmi við
aðliggjandi umhverfi en er
samtímis nútímalegt. Gefur
húsinu fágað yfirbragð og reisn
í samræmi við hlutverkið. Ákaflega
vel heppnuð innanhússhönnun – spennandi og nútíma-
leg, en samtímis virðuleg í takt við starfsemina.“
8–18
Melaskóli
Arkitekt: Einar Sveinsson
n „Falleg bygging að innan
sem utan, enda eru þar inni
listaverk eftir Ásmund Sveins-
son og Barböru Árnason. Það
eru forréttindi fyrir nemendur
Melaskóla að hljóta menntun í svo
fagurri byggingu og ekki síður að læra að umgangast
ómetanleg listaverk í daglegu amstri.“
8–18
Nýja Blönduósskirkjan
Arkitekt: Dr. Maggi Jónsson
n „Kirkja byggð 1993, fær
mann til að trúa á nýjunga-
girni, vekur forvitni og
viðheldur víðsýni og það ýtir
undir þessa tilfinningu að
hún stendur við þjóðveginn á
Blönduósi.“
8–18
Verkamannabústaðirnir Hringbraut
Arkitekt: Guðjón Samúelsson
n „Ekki bara falleg hús, heldur er nýting lóðarinnar til
fyrirmyndar. Gert ráð fyrir fólki í inngarði en ekki
bílum á bílastæðum.“
Ljótustu byggingarnar
7–10
Vídalínskirkja
Arkitekt: Skúli Norðdahl
n „Samsett bygging sem einkennist af form- og
stílleysi. Kirkjurýmið sjálft er ákaflega „vont“ rými.“
7–10
IKEA í Garðabæ
Arkitekt: IKEA og Arkís
n „Yfirgengilegt í bæjar-
myndinni. Misskilinn áhrifa-
máttur lita og lógóa. Hér hefði lát-
leysi og uppbrot stærða, funksjóna
og efna gagnast öllum. Sérstaklega
þeim sem neyðast til að horfa á þetta gul/bláa ferlíki.“
7–10
Hallgrímskirkja
Arkitekt: Guðjón Samúelsson
n „Grá og hörð og allt of stór
og klossuð fyrir umhverfi
sitt.“
7–10
Grand hótel
Arkitekt: Gunnar Hansson/
Guðjón Magnússon
n „„Plein“ ósmekklegt í alla staði.“
1 Turninn
Arkitekt: Arkís
n „Alltof stór og athyglisfrek bygging.“
n „Vond hlutföll. Sökkulbyggingin hlýtur að vera einhver misskiln-
ingur. Umhverfi, akstursleiðir, bílastæði og rampar umhverfis húsið
hjálpa því alls ekki. Ekki samanburðarhæfur við Turninn á Höfðatorgi.“
n „Fáránleg hugmynd að byggja turn ofan í dal.“