Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Page 31
Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Sport 31
Bestu vinir í dag
Ár: 2005-2009
Góðir félagar geta slegist og rifist en síðan grafið stríðsöxina
og verið bestu vinir. Þetta á við um þá Mourinho og Sir Alex
Ferguson þegar þeir kollegar börðust hatrammri baráttu á
Englandi. Mourinho skaut jafnan föstum skotum að Sir Alex og
lærisveinum hans hjá Manchester United og svaraði
Ferguson ávallt í sömu mynt. Mourinho sagði til
dæmis þegar hann var stjóri Chelsea að það væri
lífsins ómögulegt að fá vítaspyrnu gegn United.
Þegar Mourinho tók við Inter mættust liðin í
8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2009.
United henti Inter úr keppni og ákvað Mourinho
að sleppa því að taka í höndina á Sir Alex eftir
síðari leikinn. Síðar sagði Mourinho að hann hefði
ekki meint neitt illt með því.
Mourinho og Ferguson eru góðir vinir í dag og hafa margoft
látið hafa það eftir sér að þeir beri ómælda virðingu fyrir hvor
öðrum.
n Sá einstaki lendir iðulega í deilum n Arsene Wenger „sérfræðingur í að mistakast“
Stríð Mourinho
Sérfræðingur í að mistakast
Ár: 2014
„Kjánalegt, ókurteist og vandræðalegt fyrir bæði hann og klúbb-
inn.“ Svona hljómuðu viðbrögð Arsene Wenger við nýjustu
ummælum Jose Mourinho. Knattspyrnustjórinn lét hafa eftir
sér á dögunum að Wenger væri sérfræðingur í því að mistakast.
„ Félagið hafi ekki unnið bikar í háa herrans tíð. Ef hann myndi
ekki skila titli hjá Chelsea átta ár í röð myndi hann fara frá London
og aldrei stíga fæti þangað aftur. Ummæli Mourinho hafa valdið
fjaðrafoki, eins og stundum áður. Arsenal goðsögnin Bob Wilson, sem varði mark
liðsins um árabil, hefur sagt að ummælin séu fyrirlitleg. „Hann er virkilega hæfileikaríkur
og frábær knattspyrnustjóri, en akkúrat núna þykir mér hann leiðinlegur fauti.
„Hann þarf ekki reiknivél“
Ár: 2014
Mourinho og Manuel Pellegrini hafa stundum tekist
á á hliðarlínunni; fyrst þegar þeir stýrðu Real Madrid og
Malaga í spænsku deildinni en einnig nú eftir að þeir tóku
við Chelsea og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
Pellegrini gagnrýndi nýlega kaup Chelsea í félaga-
skiptaglugganum í janúar. Mourinho svaraði því til að
Chelsea hafi virt reglur UEFA, ólíkt við það sem
City hafi gert undanfarin ár og að Pellegrini, sem
væri viðskiptafræðimenntaður, ætti ekki að þurfa reiknivél
til að finna út að Chelsea hafi hagnast um 23 milljónir punda
í glugganum. Juan Mata og Kevin de Bruyne hafi verið seldir fyrir 55
milljónir punda. Nemanja Matic og Mohamed Salah hafi verið keyptir
fyrir 32 milljónir. „Svo að 55 milljónir punda mínus 32 eru 23 milljónir.
Í þessum glugga græddum við 23 milljónir, hann þarf ekki á reiknivél
til þess að reikna þetta út.“Að gagnrýna réttar
ákvarðanir
Ár: 2011
Mourinho og Pep Guardiola stýrðu í
nokkur ár tveimur af allra bestu félögum heims,
andstæðingunum Real Madrid og Barcelona. Fyrir
hverja viðureign liðanna stal Portúgalinn fyrirsögn-
unum með skoðunum sínum á andstæðingunum eða túlkun sinni á
sannleikanum. Guardiola lét sér yfirleitt fátt um finnast og stóðst
þá freistingu að svara fyrir sig. Eftir viðureign liðanna í bikarn-
um í apríl 2011, þar sem Real vann 1–0, sagði Guardiola að
Real hafi unnið á sentímetraspursmáli – og gaf þar í
skyn að mark Real hefði lyktað af rangstöðu.
Mourinho hafði svör á reiðum hönd-
um. Hann
sagði að
fæstir
knattspyrnustjórar létu það ógert að gagnrýna dómara.
Stærri hópur, þar á meðal hann sjálfur, gagnrýndi þá fyrir
lélega frammistöðu en hrósaði þeim stundum fyrir góða. „Eftir um-
mæli Pep um daginn er kominn nýr hópur, sem einungis hann tilheyrir í
augnablikinu, en það eru þjálfarar sem gagnrýna réttar ákvarðanir hjá
dómurum. Það er eitthvað sem ég hef aldrei séð í fótboltaheiminum,“
sagði Mourinho. Þetta hleypti illu blóði í Guardiaola.
Potaði í auga Vilanova
Ár: 2011
Áður en Tito Vilanova tók við starfi knattspyrnu-
stjóra af Pep Guardiola hjá Barcelona var hann tiltölu-
lega óþekktur aðstoðarmaður hans hjá félaginu.
Vilanova komst heldur betur í sviðsljósið í ágúst
2011 þegar
Barcelona og
Real Madrid
kepptu um
titilinn
meist-
ari
meistar-
anna á Spáni.
Mourinho var þá sem kunnugt
er stjóri Real Madrid. Allt ætl-
aði um koll að keyra í leiknum og litu þrjú
rauð spjöld dagsins ljós. Steininn tók
þó úr þegar Mourinho potaði viljandi í
auga Vilanova og sýndi Mourinho hlið
sem hann hafði ekki sýnt áður. Þrátt
fyrir augljósan brotavilja var Mourinho
ekki refsað sérstaklega fyrir fautaskapinn.
Eins og í tölvuleik
Ár: 2009
Þeir sem spila tölvuleikinn Football Manager
vita eflaust að hægt er að láta ýmislegt
flakka um erkifjendur sína og starfsbræður
hjá öðrum liðum. Eitt af því er að segja við
fjölmiðla að maður „sé ekki sérstakur aðdá-
andi viðkomandi.“ Það er nákvæmlega leikurinn
sem Mourinho og Carlo Ancelotti léku árið 2009,
þegar Mourinho var stjóri Inter en Ancelotti nýtekinn við
Chelsea eftir að hafa stýrt erkifjendum Inter í Milano, AC Milan.
Það var víst Mourinho sem sagði fyrst að Ancelotti væri ekki „sér-
stakur vinur“ hans en sá síðarnefndi svaraði í sömu mynt og sagði
að hann væri ekki heldur „aðdáandi Mourinho“ hvort sem var.
Tókust ekki í hendur
Ár: 2005 og 2006
José Mourinho og Rafa Benitez hafa lengið
eldað grátt silfur saman. Þetta byrjaði allt
saman þegar Benitez var stjóri Liverpool og
Mourinho stjóri Chelsea. Í apríl 2005 mættust
liðin í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Eins og Mourinho er von og vísa gagnrýndi hann
Benitez og sagði að það væri engu líkara en Liver-
pool-liðið væri að spila góðgerðarleiki í úrvalsdeildinni
í aðdraganda einvígisins. Liverpool var í langt því frá í
titilbaráttu ólíkt Chelsea. Benitez svaraði í sömu mynt og
sagði að Mourinho væri að klúðra málunum hjá Chelsea
með því að hringla með byrjunarliðið. Orðaskak þeirra
hélt áfram og náði hámarki þegar liðin mættust í undan-
úrslitum enska bikarsins árið 2006. Sáu þeir kollegar enga
ástæðu til að takast í hendur eftir einvígið sem Liverpool
vann 2–1.
Þjálfaraferill Mourinho
Ár Félag Vinningshlutfall
2000 Benfica 54,55%
2001-2002 Uniao de Leiria 51,72%
2002-2004 Porto 72,58%
2004-2007 Chelsea 67,03%
2008-2010 Inter 62,04%
2010-2013 Real Madrid 71,91%
2013- Chelsea 64,10%
Titlar:
Meistaradeild: 2 titlar
Evrópudeild: 1 titill
Deild: 7 titlar
Bikar: 9 titlar
baldur@dv.is og einar@dv.is