Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Side 38
Vikublað 25.–27. febrúar 201438 Fólk
Steinþór Helgi
ráðinn til CCP
Steinþór Helgi Arnsteinsson,
dómari og spurningahöfundur
í Gettu betur, var á dögunum
ráðinn sem viðburðastjóri hjá
tölvuleikjaframleiðandanum
CCP. Frá þessu greinir Steinþór á
Facebook-síðu sinni.
„Á föstudaginn fékk ég
starfstilboð. Það tók mig ca. mín-
útu að ákveða mig og segja já,“
skrifar hann.
„Á mánudaginn byrjaði ég
síðan sem Event Lead hjá hinu
kynngimagnaða fyrirtæki, CCP.
Eins og maðurinn sagði: „„This
is a new year. A new beginning.
And things will change.“ – Taylor
Swift.“
Steinþór er enginn ný-
græðingur á þessu sviði, en hann
vann meðal annars að skipulagn-
ingu tónlistarhátíðarinnar Sónar
sem fram fór fyrir skemmstu.
V
iðbrögðin hafa verið lyginni
líkust. Það er eiginlega ekki
hægt að lýsa því hvernig
það er að finna fyrir svona
stuðningi. Ég verð bara feimin
og kjánaleg,“ segir baráttukonan
Hildur Lilliendahl sem hefur ósk-
að eftir stuðningi til þess að kom-
ast á ráðstefnuna Nordisk Forum
sem haldin er af kvennahreyfing-
um Norðurlandanna í Malmö í
Svíþjóð í júní. Ráðstefnan var síð-
ast haldin í Turku árið 1994 og þar
á undan í Ósló 1988.
„Ég fékk kynningu á ráðstefn-
unni hjá stéttarfélaginu mínu fyrir
kannski einum og hálfum mánuði.
Þar kom fram að Íslandi hefði ver-
ið úthlutað þemanu „Ný tækni og
fjölmiðlar“ og að íslenska undir-
búningsnefndin hefði verið starf-
andi í marga mánuði og hefði
boðið allnokkrum valdamiklum
stjórnmálakonum að taka þátt. Ég
furðaði mig dálítið á því að ekki
hefði verið haft samband við mig,
þetta smellpassar við mína bar-
áttu. En ég ákvað að bíða og sjá.
Nú eru bara rúmir þrír mánuðir í
þetta og ég verð að fara að skipu-
leggja mig ef ég ætla að fara. Ég
ákvað þess vegna í gær að kanna
hvort það væri stemming fyrir því
meðal stuðningsfólksins míns að
styrkja mig. Það var frekar erfið
ákvörðun, konur eins og ég hafa
sannarlega fengið yfir sig holskefl-
ur ofbeldis á netinu fyrir minna.
En svo reyndist fólk auðvitað bara
algjörlega frábært,“ segir Hildur en
þegar aðeins um sólarhringur var
liðinn af söfnun hennar var hún
komin með nóg fyrir flugmiða og
var að vonum glöð með svo góð
viðbrögð.
Söfnun Hildar fer fram á vefsíð-
unni: indiegogo.com þar sem má
lesa nánar um hana. n viktoria@dv.is
„Viðbrögðin hafa verið lyginni líkust“
Hildur safnar til þess að komast á stóra kvennaráðstefnu
Klassalausar
í glasi
„Þegar íslenskar konur og stelp-
ur fá sér að drekka þá missa þær
allan klassa. Það er það fyrsta
sem fer,“ sagði söngvarinn Páll
Óskar Hjálmtýsson í viðtali hjá
Síðdegisútvarpinu. Þar talaði
hann meðal annars um ölvun Ís-
lendinga. „Það skiptir ekki máli
hvort að það sé karl, kona, gay,
straight, bi eða trans. Það er
genetískt í Íslendingum að þeir
breytast í einhverja púka. Ís-
lenskar konur og íslenskar stelp-
ur eru þar ekki undanskildar,“
sagði Palli í viðtalinu.
Sterkar systur
úr sveitinni
É
g held að þær séu bara nokk-
uð stoltar af mér,“ segir frjáls-
íþróttakonan Hafdís Sig-
urðardóttir um eldri systur
sínar, Heiðrúnu og Hrönn, en
systurnar hafa allar náð langt í sinni
íþrótt.
Frjálsar frekar en vaxtarrækt
Heiðrún var um árabil á með-
al fremstu fitnesskvenna landsins,
Hrönn á glæsilegan feril í vaxtarrækt
og ekkert virðist stöðva sigurgöngu
Hafdísar sem hefur slegið hvert
metið á fætur öðru en um helgina
bætti hún eigið Íslandsmet í lang-
stökki innanhúss um 5 sentimetra.
Hafdís, sem er 27 ára, segist
nokkrum sinnum hafa verið beðin
um að leggja líkamsrækt fyrir sig líkt
og stóru systur. „Ég hef alltaf neit-
að því staðfastlega og sé ekki eftir
því. Að mínu mati eru frjálsar meira
krefjandi og spennandi,“ segir Hafdís
sem segir sveitaloftið hafa hjálpað
þeim systrum að ná langt í íþróttum.
„Við erum aldar upp á Ljósavatns-
skarði í Þingeyjarsveit og eins og all-
ir í sveitinni byrjuðum við allar að
æfa frjálsar íþróttir ungar. Ætli ár-
angurinn megi ekki þakka genunum
og svo sveitinni og metnaðnum fyrir
góðri heilsu. Við ólumst upp í þessu
umhverfi og vorum allar mjög virkar
sem börn. Þetta var oft erfiðisvinna,
við vorum að smala og hlaupa á eft-
ir kindunum, ná í kýrnar og moka
flórinn. Maður gekk bara í öll þessi
venjulegu sveitastörf og tók á því.“
Barneignir bíða
Hafdís er á fyrsta ári í iðjuþjálfun í
Háskólanum á Akureyri og er auk
þess að vinna með skólanum í
66°Norður. „Ég viðurkenni að þetta
er dálítið mikið með æfingunum en
ég æfi á hverjum degi, allt upp í fjóra
tíma á dag, með hléum. Svo eru mót
um helgar og ferðalög á milli staða.
Sem betur fer er ég með góðan yfir-
mann í vinnunni sem skilur að ég
þarf reglulega að fá frí til að keppa.
Það getur verið ansi erfitt að púsla
þessu öllu saman.“
Hafdís segist ekki hafa mikinn
tíma til að fara út á lífið en hefur þó
tíma fyrir kærastann, Guðjón Pál.
„Ég gæti alveg haft tíma fyrir djamm
en hef bara lítinn áhuga á því. Oftast
er ég alveg búin á því eftir vikuna og
finnst þá betra að leggjast í sófann og
horfa á kvikmynd. Ég drekk líka ekki
áfengi og hef aldrei gert. Það á ekki
samleið með þessu.“
Hafdís og Guðjón Páll kynntust
í sveitinni. Þau búa saman en eru
barnlaus. „Barneignir eru bara á
„hold“. Það er enginn tími fyrir slíkt
strax,“ segir Hafdís en Guðjón Páll
var einnig á kafi í frjálsum þegar
þau kynntust. „Hann er hættur að
æfa en ég er alltaf að pota eitthvað í
hann og reyna að fá hann til að kasta
kúlu. Hann var í júdó og ætli það sé
ekki líklegra að hann byrji á því aft-
ur,“ segir Hafdís sem er tveimur árum
eldri en kærastinn. „Ég er gamla
konan í sambandinu og fæ oft að
heyra það.“ n
Hafdís Sigurðardóttir, afrekskona í frjálsum íþróttum, er litla systir Heiðrúnar fitnessstjörnu
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Sveitastelpur
Systurnar eru þrjár en
Hrönn býr í Reykjavík en
hinar tvær á Akureyri.
Mynd BjarnI EIríkSSon
„Ég er gamla
konan í sam-
bandinu og fæ oft
að heyra það
Heilbrigðar systur Heiðrún og Hafdís eru
báðar á fullu í íþróttum. Mynd BjarnI EIríkSSon
Vill komast á ráð-
stefnu Hildur safnar
til þess að komast á
ráðstefnu í júní í sum-
ar. Viðbrögðin hafa
komið henni á óvart
en fjölmargir hafa lagt
henni lið nú þegar.
Ásgeir Trausti
þotuþreyttur
Ásgeir Trausti er nýlentur á Ís-
landi eftir tónleikaferð um Asíu.
Að sögn umboðsmanns Ásgeirs
Trausta þarf hann sólarhring til
þess að jafna sig eftir um tuttugu
klukkustunda langt ferðalag og
vegna tímamismunarins. Landaði
hann á dögunum samningi við út-
gáfurisann Columbia Records og
hljóðar samningurinn upp á þrjár
plötur. Það er því ekki að undra
að kappinn sé þreyttur, nóg er um
að vera hjá honum, en hann flýg-
ur til Bandaríkjanna þann 8. mars
þar sem hann mun meðal annars
koma fram á tónlistarhátíðinni
South By Southwest í Texas.