Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir
B
ankaráð Landsbankans
veitti heimild sína til
að kaupa umboðið fyrir
tryggingamiðlunina Swiss
Life af þingmanninum Guðlaugi
Þór Þórðarsyni um sumarið 2003.
Guðlaugur Þór var þá nýbyrjaður á
Alþingi en hafði áður verið starfs-
maður Búnaðarbanka Íslands.
Þetta kemur fram í fundargerð frá
bankaráði Landsbanka Íslands
sem DV hefur undir höndum.
Kaupverðið var 33 milljónir króna
sem var það með eignarhaldsfé-
lag Guðlaugs, Bogmaðurinn ehf.,
sem tók við greiðslunni.
DV hefur áður fjallað um við-
skipti bankans við Guðlaug Þór
en hafði starfað með nýráðn-
um bankastjóra Landsbank-
ans, Sigur jóni Árnasyni, í Bún-
aðarbankanum. Guðlaugur
Þór hafði tryggt sér um-
boðið fyrir svissnesku líf-
tryggingarnar þegar hann
var starfsmaður Búnaðar-
bankans.
Eftir að Landsbankinn
seldi líftryggingafélagið
LÍFÍS til S-hópsins var talið að
bankinn þyrfti að selja aðrar líf-
tryggingar. Swiss Life varð fyrir
valinu. Orðrétt segir um þetta í
fundargerðinni: „Í framhaldi
af sölu LÍFÍS er lagt til að
hafin verði sala trygginga
frá Swiss Life. Bankaráð
samþykkti samhljóða
heimild til bankastjórn-
ar til að ganga frá sölu
á hlutum Landsbankans í LÍFÍS.
Bankaráð samþykkti
einnig samhljóða heim-
ild til bankastjórnar til
að kaupa Swiss life um-
boðið.“
Þessi bankaráðsfund-
ur var haldinn þann 6.
júní 2011. Fimm dögum síð-
ar, þann 11. júní, stofnaði
Guðlaugur Þór Bogmann-
inn ehf. og tveimur dögum
síðar fékk eignarhaldsfélag
hans greiddar 33 milljón-
ir inn á reikning sinn fyrir
tryggingaumboðið. Greiðslan var
ekki tekin fram í ársreikningi Bog-
mannsins fyrir árið 2003.
Í viðtali við DV í febrúar 2012
ræddi Guðlaugur Þor um kaup-
in á tryggingafélaginu við DV.
Eitt af því sem hann sagði, þegar
hann útskýrði söluna á trygginga-
félaginu, var: „Í örstuttu máli er
þetta svona: Þetta var mál sem ég
var búinn að vinna að ógeðslega
lengi og loksins kominn með í
land. Ég grátbað Kaupþing um að
taka þessa vöru, þar sem Kaup-
þing faktískt tók yfir Búnaðar-
bankann. Þeir skildu mín rök en
vildu ekki halda þessu umboði.
Ég tók því bara umboðið yfir. Aft-
ur á móti hafði ég enga möguleika
á því að fara að reka þetta, ég var
Helgarblað 2.–5. maí 2014
Veitti heimild fyrir viðskiptum við Guðlaug Þór
Björgólfur spurðist fyrir um Swiss Life.
Fengu lán fyrir VÍS
í Landsbankanum
n Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga með lán í ríkisbankanum
E
ignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar skuldaði Lands-
banka Íslands tæplega þrjá
milljarða króna í byrjun árs
2005, tveimur árum eftir
einkavæðingu bankanna. Lands-
banki Íslands átti þá veð í eignum
sem Samvinnutryggingar áttu eft-
ir tvær umdeildar einkavæðingar,
sölu á Búnaðarbankanum og Vá-
tryggingafélaginu VÍS, sem verð-
metnar voru á rúmlega fimm millj-
arða króna. Þetta kemur fram í
fundargerð lánanefndar Landsbanka
Íslands frá því í byrjun febrúar sem
DV hefur undir höndum.
Í fundargerðinni kemur fram
hversu góður viðskiptavinur bank-
ans Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar var og hversu mjög bank-
inn hafði félagið, og önnur tengd
félög, í hávegum á þessum árum.
Samvinnutryggingar áttu þá
hlutabréf í KB Banka, sem áður hét
Búnaðarbanki Íslands fyrir samein-
inguna við Kaupþing um vorið 2003,
fyrir þrjá milljarða króna og hluta-
bréf í VÍS fyrir rúma tvo milljarða
króna. Eignarhaldsfélagið var stofn-
að á grunni eigna tryggingafélags-
ins Samvinnutrygginga og stóð til
að slíta félaginu og láta eignir þess
renna til tryggingataka Samvinnu-
trygginga sem áttu fjármuni inni hjá
félaginu. Þetta var hins vegar ekki
gert og hóf félagið stórfelldar fjár-
festingar í hlutabréfum. Árið 2007
var búið til fjárfestingarfélag, Gift, á
grunni eigna Eignarhaldsfélags Sam-
vinnutrygginga og hélt fjárfestingar-
starfsemi félagsins í hlutabréfum þá
áfram, meðal annars kaup á stórum
hlut í Kaupþingi banka.
Eignir tryggingataka Samvinnu-
trygginga töpuðustu í þessum við-
skiptum félagsins en til hafði staðið
að greiða þeim fjármunina út.
Rekstur félagsins
snerist um hlutabréfaviðskipti
Orðrétt segir í fundargerð lánanefnd-
ar Landsbankans um beiðni félagsins
um lán upp á 2.750 milljónir króna til
að endurfjármagna annað eldra lán
í Landsbanka Íslands: „…beiðni fé-
lagsins um allt að 2750 m.kr. lán til að
endurfjármagna lán í LÍ (nú ca. 2.725
m.kr.). Félagið varð til 1989 er Sam-
vinnutryggingar GT og Brunabóta-
félag Íslands sameinuðust og til varð
Vátryggingafélag Íslands. Eftir stóðu
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag
Íslands og Eignarhaldsfélagið Sam-
vinnutryggingar svf. Stærstu eign-
ir félagsins hafa verið 30% hlutur í
VÍS (nýverið aukið úr 25%), ríflega
50% í Eignarhaldsfélaginu Andvöku
(sem á 25% í LÍFÍS líftryggingafé-
laginu á móti 75% eignarhluta í VÍS)
og nú einnig stór hlutur í KB banka.
Efnahagur er mjög sterkur og hefur
reksturinn gengið vel. Rekstur félags-
ins snýst um fjárfestingar í hlutabréf-
um og skiptir því veðandlag bankans
mestu máli við lánveitingu.“
Framsóknarfélagið eignaðist
hlutina eftir einkavæðingu
Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar, sem stýrt var af fulltrúa-
ráði sem í sátu meðal annars nokkr-
ir þekktir framsóknarmenn eins og
Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guð-
mundsson og Valgerður Sverris dóttir,
tengdist því eignarhaldi á tveimur
fyrirtækjum sem voru einkavædd
árin 2002 og 2003. Báðar þessar
einkavæðingar, annars vegar sala
Landsbankans á bréfum sínum í VÍS
árið 2002 og salan á Búnaðarbank-
anum árið 2003, eru mjög umdeild-
ar og hefur verið sýnt fram á pólitísk
afskipti Framsóknarflokksins af þeim
báðum. Halldór Ásgrímsson beitti
sér til dæmis fyrir því að Landsbank-
inn seldi hlutabréf sín í VÍS árið 2002
áður en eignarhaldsfélagið Samson
keypti bankann.
Eignarhaldsfélag Samvinnu-
trygginga, sem að hluta til var stýrt af
forystumönnum í Framsóknarflokkn-
um, eignaðist hlutabréf í báðum fyrir-
tækjunum og var með lán í banka
sem hafði verið í eigu íslenska ríkis-
ins. Landsbanki Íslands fjármagnaði
yfirtöku S-hópsins svokallaða, meðal
annars Eignarhaldsfélags Samvinnu-
trygginga á VÍS, árið 2002. Fundar-
gerðir lánanefndar Landsbanka Ís-
lands sýna hversu sterka stöðu þessi
fyrirtæki sem tengdust Framsóknar-
flokknum höfðu í bankanum.
Fjölskyldufyrirtæki
Halldórs með í viðskiptunum
Auk þess þá hefur komið fram að fjöl-
skyldufyrirtæki Halldórs Ásgríms-
sonar, Skinney-Þinganes, var einn af
kaupendum hlutabréfanna í VÍS árið
2002. Halldór beitti sér því fyrir því
að ríkisbankinn Landsbankinn seldi
hlutabréf í tryggingafélaginu og röt-
uðu bréfin svo meðal annars til félags
sem hann átti sjálfur lítinn hlut í og
ættingjar hans stýrðu og áttu að stóru
leyti. Viðskipti Skinneyjar-Þinganess
með hlutabréfin í VÍS áttu sér stað í
gegnum eignarhaldsfélag sem heitir
Hesteyri.
Í fundargerð lánanefndar Lands-
bankans kemur fram að í lok árs hafi
2004 hafi Eignarhaldsfélag Samvinnu-
trygginga skipt á hlutabréfum í KB
Banka og Hesteyri. Aðrir eigendur He-
steyrar voru meðal annars Kaupfélag
Skagfirðinga á Sauðárkróki. Þannig átti
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga,
sem stýrt var af framsóknarmönnum
að hluta, í viðskiptum við fjölskyldu-
fyrirtæki formanns flokksins vegna
eigna sem Framsóknarflokkurinn
hafði komið
að því að selja
í ríkisstjórnar-
samstarfinu
við Sjálfstæð-
isflokkinn.
Hest eyri átti
svo meðal annars líka hlut í Skinney-
Þinganesi, 16 prósent. Viðskipti
Eignarhalds félags Samvinnutrygginga
og Hesteyrar snerust um valdabaráttu
um vátryggingafélagið VÍS.
Spegluðu viðskiptin við Skinney
Í fundargerð lánanefndarinnar
kemur fram að samþykkt hafi ver-
ið að Eignarhaldsfélagi Samvinnu-
trygginga kúlulán upp á 2.750 millj-
ónir króna. Sterk staða félagsins
innan bankans kom svo fram í því
að talið var ólíklegt að Landsbank-
inn gæti samið við forsvarsmenn fé-
lagsins um lántökugjald. „Samþykkt
var að bjóða félaginu allt að 2.750
m.kr. kúlulán til allt að 3ja ára, vaxta-
gjalddagar á 6. mán. fresti. Kjör verði
Reibor/Libor + 1,23%. Uppgreiðslu-
þóknun verði 0,10% pr. ár eftir. Mjög
hæpið að takist verði að kreista út
lántokugjald, rætt verði um 0,05% pr.
ár en heimilt að fella það niður.“
Svipaða sögu var að segja um skoð-
anir bankans á Skinney-Þinganesi en
fjallað var um útgerðarfélagið á sama
tíma og fjallað var um Eignarhalds-
félag Samvinnutrygginga, í ljósi þess
að félagið Hesteyri átti 16 prósenta
hlut í Skinney-Þinganesi. Athygli
vekur að starfsmenn Lands-
bankans virðast hafa spyrt
Samvinnutryggingum, Hest-
eyri og Skinney-Þinganesi
saman og ekki gert mikinn
greinarmun á þessum félög-
um. Orðin sem renna stoðum
undir þetta eru eftirfarandi: „Fé-
lagið [Skinney-Þinganes] hefur
verið traustur viðskiptavinur
LÍ og á mjög góðum
kjörum, síðustu
lán hafa verið á
Reibor/Libor +
1,25 og án lán-
tökugjalds,
stjórnend-
ur félagsins
eiga von á
sambærilegum
kjörum nú.“
Þannig byggði lánveitingin
til Eignarhaldsfélags Samvinnu-
trygginga á svipuðum forsendum á
lánveitingin til Skinneyjar-Þinganess,
fjölskyldufyrirtækis formanns Fram-
sóknarflokksins, sem átti í viðskipt-
um við Samvinnutryggingar og var
meðal annars stýrt af þingmönnum
Framsóknarflokksins. Viðskiptin við
Samvinnutryggingar spegluðu því
viðskiptin við Skinney-Þinganes.
Banki Framsóknarflokksins
Stundum hefur verið sagt að hugsun-
in á bak við einkavæðinguna hafi ver-
ið sú að ríkisstjórnarflokkarnir hafi
viljað skipta ríkisbönkunum upp á
milli aðila sem voru þeim þóknanleg-
ir, að Björgólfsfeðgar hefðu fengið að
kaupa Landsbankann fyrir tilstuðlan
Sjálfstæðisflokksins og að S-hópur-
inn hefði fengið að kaupa Búnaðar-
bankann fyrir tilstuðlan Framsóknar-
flokksins. Sú kenning er líklega ekki
langt frá sannleikanum.
Hins vegar þá liggur líka ljóst fyr-
ir að aðgengi fyrirtækja
tengdum Framsóknar-
flokknum að lánsfé
var mikið í Lands-
bankanum, bæði
fyrir einkavæðingu
bankanna og eins
eftir hana. Fyrir-
tæki tengd Fram-
sóknarflokknum
voru því með góða
stöðu í báðum bönk-
unum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Gott aðgengi Félög tengd Framsókn,
þar á meðal Kaupfélag Skagfirðinga, sem
stýrt er af Þórólfi Gíslasyni, voru með gott
aðgengi að lánsfé í Landsbankanum.
„Mjög hæpið að
takist verði að
kreista út lántokugjald.
Traustir viðskiptavinir
Eignarhaldsfélag Samvinnu-
trygginga naut svipaðra lána-
kjara og Skinney-Þinganes,
fjölskyldufyrirtæki Halldórs
Ásgrímssonar, í Landsbank-
anum og voru félögin tengd
saman í bankanum.
„Ég vildi bara vera
„on the safe side“
og bara lokaði þessu
dæmi.
leynigögn úr Landsbankanum– 2. hluti –