Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 41
Skrýtið Sakamál 41Helgarblað 2.–5. maí 2014 Ekki farið fram á dauðadóm Megan Huntsman, konan sem grunuð er um að hafa myrt sex nýfædd börn sín, var formlega ákærð vegna morðanna í vik- unni. Huntsman eignaðist börnin á um tíu ára tímabili, frá 1996 til 2006, en er talin hafa deytt þau strax eftir fæðingu. Líkamsleifar barnanna fundust vel innpakkað- ar í kössum í bílskúr við heimili hennar fyrr í þessum mánuði. New York Post greinir frá því að ekki verði farið fram á dauða- dóm yfir Huntsman. Ástæðan er sú að árið 1997, eða ári eftir að hún varð yngsta barni sínu að bana, var lögum breytt á þá leið að þá fyrst var hægt að fara fram á dauðarefsingu vegna morðs á barni undir fjórtán ára aldri í Utah-ríki þar sem Huntsman býr. Ekki er búið að finna hver dánarorsök barnanna var en bandaríska alríkislögreglan, FBI, kemur meðal annars að rann- sókn málsins. Verði hún fundin sek bíður hennar lífstíðarfang- elsisvist. T ara Correa-McMullen var 16 ára að marka sín fyrstu spor í leiklist árið 2005 og hafði landað hlutverki í sjón- varpsþáttunum bandarísku Judging Amy. Í þáttunum lék hún fyrrverandi meðlim gengis, Graciela Reyes, sem hafði átt erfiða æsku og lítið lært með árunum. Að sögn sumra var nánast hægt að heimfæra hlutverkið upp á raun- veruleikann hvað Töru varðaði. Tara fékk sitt fyrsta hlutverk, og eina, í kvikmyndinni Rebound árið 2005, fyrir tilstuðlan móður sinnar sem þá vann hjá umboðsskrifstofu og mælti með dóttur sinni í hlutverk í myndinni. Fyrir bjó Tara ekki að nokkurri leiklistarreynslu, en fékk þó síð- ar, sem fyrr segir, hlutverk Gracielu í Judging Amy og birtist þar reglulega. Í slagtogi með gengisgaur Tekjur Töru af leiklist gerðu henni kleift að festa kaup á eigin íbúð, sem hún gerði snemma árs 2005, í Inglewood í kaliforníu. Hún lét sem vind um eyru þjóta ráð ættingja og vina um að ljúka skólagöngu og ákvað að tímanum yrði betur varið í annað. Tara tók saman við gengisgaur, sem var tíu árum eldri en hún og segir ekki frekar af því sambandi sem olli þó umboðsmanni hennar svo miklum áhyggjum að hann tók upp þann hátt að senda bíl eftir henni til að tryggja að hún mætti í tökur. Sú ráðstöfun bar ekki árangur og að lok- um rifti umboðsskrifstofan samningi við Töru. Í eldlínunni Að kvöldi dags 21. október, 2005, dró til tíðinda. Það kvöld stóð Tara í fé- lagsskap tveggja karlmanna fyrir utan íbúðablokk við East Plymouth-stræti í Inglewood í Los Angeles. Það kvöld var tara skotin til bana í því sem lög- reglan lýsti sem gengjastríði. Félagar hennar tveir særðust en lifðu af. Nú skal nefndur til sögunnar Damien nokkur Watts, tvítugur pörupiltur sem var viðloðandi glæpagengi og gott betur. Fyrir einhverra hluta sakir beindust grunsemdir lögreglunnar að Damien og á endanum, 1. mars 2006, var hann ákærður fyrir eitt morð og tvær morðtilraunir. Reynd- ar var Damien þá á bak við lás og slá vegna annarrar skotárásar sem gerð hafði verið daginn áður en Tara var drepin. Önnum kafinn við skotárásir Daginn fyrir morðið á Töru hafði Damien, að því er talið var, í félagi við Joseph Wayne Jones skotið til bana Thomas Sanders, 31 árs mann sem var í mestu makindum að setja þvott inn í bifreið sína. Þeir skutu enn fremur að þremur öðrum mönn- um og Damien hélt því fram að hann hefði bara viljað senda keppinaut- um sínum tóninn. Enginn umræddra manna tengdist glæpaklíkum yfir- höfuð, en það er önnur saga. Dómur fellur Lyktir fengust á þessi mál 23. janúar, 2009, þegar Damien Watts var sak- felldur fyrir tvö morð; á Töru Correa- McMullen og Thomas Sanders, og hlaut fyrir vikið fimmfaldan lífstíðar- dóm á möguleika á reynslulausn. Joseph Wayne Jones, sem tókst að lauma sér inn í þessa frásögn, fékk það sem honum bar, en slapp þó bet- ur en Damien, og var dæmdur til lífs- tíðardóms – einfalds – án möguleika á reynslulausn. n Sextán ára SmáStirni myrt Tara Correa-McMullen Lenti í eldlínunni í skotárás sem gerð var, að sögn, til að kenna glæpagengi lexíuna. Tara, sem náði 16 ára aldri, var að feta sín fyrstu skref á leið til frægðar og frama. „Félagar hennar tveir særðust en lifðu af Hvað gerðist í Hinterkaifeck? Dularfyllsta morðmál í sögu Þýskalands E itt alræmdasta og dular- fyllsta morðmál í sögu Þýskalands átti sér stað á afskekktu bújörðinni Hinterkaifeck í Bæjaralandi fyrir rúmlega níutíu og tveimur árum. Að kvöldi 31. mars árið 1922 voru allir sex ábúendur Hinterkai- feck myrtir með haka; hjónin And- reas og Cäzilia Gruber, Viktoria dóttir þeirra, börn hennar, Cäziliu, sjö ára, og Josef, tveggja ára, og þernan Maria Baumgartner. Ýmis atriði sem komu í ljós við rannsókn glæpsins gera málið aðeins ískyggi- legra. Fáeinum dögum fyrir morðin hafði Andreas sagt nágranna sínum að hann hefði séð fótspor, í snjón- um, sem áttu upptök sín í skógi við mörk eignarinnar og leiddu að bænum, hann fann engin spor frá bænum. Auk þess sagðist hann hafa fundið dagblað sem enginn á bænum kannaðist við að hafa keypt. Hann tjáði nágranna sín- um auk þess frá því að lyklar hefðu týnst. Lögreglumenn sem rannsökuðu málið á sínum tíma töldu að ábú- endur hefðu með einhverjum hætti verið laðaðir einn af öðrum inn í hlöðuna þar sem þeir voru svo myrtir. Morðinginn virðist því næst hafa farið inn í húsið og myrt tveggja ára son Viktoriu í vöggu. Líkin fundust nokkrum dögum síð- ar er nágrannar fór að hafa áhyggj- ur þar sem ekkert hafði sést til Gru- ber-fjölskyldunnar. Við krufningu kom í ljós að sjö ára dóttir Viktor- iu hafði ekki látist undir eins, hún hafði rifið hár af höfði sér með- an hún lá við hliðina á líkum fjöl- skyldu sinnar. Þrátt fyrir umfangs- mikla rannsókn var málið aldrei leyst. Allt að hundrað manns voru yfirheyrðir, sá seinasti árið 1986. n hjalmar@dv.is Stórskuldugur eftir gabb Danik Kumer, 21 árs karlmaður frá Ohio í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og til að greiða banda- rísku og kanadísku strandgæsl- unni hálfa milljón dala, 56 millj- ónir króna. Ástæðan er sú að fyrir tveimur árum sagðist hann hafa komið auga á bát á Erie-vatni sem í voru fjórir einstaklingar. Tilkynningunni fylgdi að hann hefði séð neyðarblys og augljóst væri að báturinn ætti í vand- ræðum. Eins og vera ber var til- kynningin tekin alvarlega og tóku bandaríska og kanadíska strand- gæslan þátt í leit. 70 manns tóku þátt í aðgerðum sem tóku tæpan sólarhring. Eftir að aðgerðum lauk viður- kenndi Kumer að hann hefði ekki séð neinn bát en þó talið sig hafa séð neyðarblys. Nú er komin niðurstaða í dómsmál sem höfð- að var á hendur honum. Lög- maður Kumers segir að dómnum verði áfrýjað. Bóndabærinn Líkin fundust í hlöðunni sem sjá má til vinstri. Drepinn með hamri Kviðdómur í Bandaríkjunum hef- ur fundið Marissu Devault seka um morð á eiginmanni sínum. Devault gekk illilega í skrokk á Dale Harrell í Phoenix í Arizona árið 2009. Ekki var farið fram á dauðarefsingu yfir Devault en dómari mun tilkynna um refs- inguna þann 6. júní, líklega lífs- tíðarfangelsi. Ástæða morðsins mun hafa verið sú að Devault vildi fá líftryggingu eiginmanns síns greidda, en sjálf sagðist hún hafa framið verknaðinn í sjálfsvörn, Dale hefði beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi um árabil. n Í sjónvarpinu tengdist Tara glæpagengjum n Í raun var það ekki fjarri sanni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.