Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 19
Helgarblað 2.–5. maí 2014 Fréttir 19 Betri Borg fyrir Börn? V ið viljum leita allra leiða til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leik­ skóla. Við erum talsmenn þess að fæðingarorlof sé lengt og berjumst fyrir því á þingi. Hér í borginni þá viljum við styðja áfram við dagforeldrakerfið og byggja á ungbarnaleikskóla, ásamt því að byggja upp yngri barna deildir við starfandi leik­ skóla með það að markmiði að tryggja börnum vist haustið sem þau eru orðin 18 mánaða.“ Hann segir sanngjarnt verð á mikilvægri þjónustu kappsmál. „Við erum með góða þjónustu á lægra verði en önnur sveitar­ félög, ríkulega systkinaafslætti og tökum gott tillit til námsmanna og einstæðra foreldra. Ef foreldr­ ar yrðu spurðir hvort væri mikil­ vægara að efla leikskólastarfið á allan hátt, taka börn inn yngri á leikskólana, standa vörð um góð­ ar starfsaðstæður og kjör starfs­ fólks leikskóla – eða gera allt gjaldfrjálst, þá held ég að foreldr­ ar vilji frekar efla leikskólana sem frábærar menntastofnanir, með góðan aðbúnað og ánægt starfs­ fólk. VG veit eins og aðrir að þrír milljarðar eru ekki auðfundnir í rekstri þar sem við höfum þurft að horfa í hverja krónu. Þetta er eins og með skattalækkunarloforð. Eigum við ekki að bíða eftir áætl­ un þeirra um hvar eigi að skera niður á móti áður en við tökum afstöðu til þessara hugmynda.“ Styðja við dag- foreldrakerfið Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar S igurður segir Bjarta framtíð vilja hafa áherslur í málefnum barna; skapandi, skemmti­ legar, fræðandi og nærandi án þess þó að tiltaka sérstaklega hvaða leiðir séu farnar til þess að skapa þeim þær aðstæður að öðru leyti en að koma til móts við kennara þeirra og dagforeldra. „Börn eru okkar við­ kvæmustu borgarar og koma þarf til móts við þeirra mismunandi þarfir. Á sama máta þarf að koma til móts við kennara þeirra og dagforeldra, svo þeir hafi tólin til að skapa þeim og sjálfum sér fullnægjandi starfs­ umhverfi.“ Raunhæf loforð – Skjóta sig ekki í fótinn Þá segir hann Bjarta framtíð stíga varlega til jarðar hvað varðar lof­ orð til foreldra sem eru að koma úr fæðingarorlofi en hafi opinn huga gagnvart hugmyndum. Í flokknum sé ríkur vilji til að leysa vanda yngstu þegna borgarinnar og raunhæf lausn gæti falist í að auka framlag borg­ arinnar í daggæslu 18–20 mánaða gamalla barna. „Þó við vonumst til að komast í stöðu til að gera úrbætur, þá má svo auðveldlega skjóta sig í fótinn fyr­ irfram með of niður njörvaðar úr­ lausnir. Aftur á móti gerum við okkur fylli­ lega grein fyrir þeim vanda sem snýr að yngstu þegnum borgarinnar og við setjum okkur skýrt markmið að taka algerlega til í dagvistarstiginu á kjörtímabilinu, fáum við tækifæri til þess. Og það má algerlega kalla það skýrt loforð sem má rukka okkur um. Meðal raunhæfra lausna til skamms tíma má meðal annars nefna aukið framlag borgarinnar til daggæslu 18–20 mánaða gamalla barna og eldri. Og til langtíma að taka börn fyrr inn í leikskóla. Á Al­ þingi tala svo þingmenn Bjartrar framtíðar fyrir lengingu fæðingaror­ lofs.“ Gjaldfrelsi ekki efst á forgangslista Hann segir hugmynd Vinstri grænna fallega og ekki óraunhæfa í sjálfu sér. „En auðvitað er ekkert til sem heit­ ir gjaldfrjáls leikskóli eða frístunda­ vistun. Ekki frekar en að það sé til eitthvað sem heitir gjaldfrjáls grunn­ skóli, þótt hann sé það á blaði. Leik­ skólagjaldið í Reykjavík er nú þegar niðurgreitt um 85% og er það lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Við gerum okkur samt sem áður grein fyrir því að þetta gjald tekur í budduna hjá mörgum, en afnám gjaldsins er ekki efst á forgangslista okkar. Ekki í samanburði við vandamál eins og til dæmis bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla sem og starfsumhverfi þeirra.“ Vilja hlusta á börnin líka Þá nefnir Sigurður að koma þurfi til móts við kennara og foreldra þegar kemur að kostum og göllum skóla­ kerfisins og ekki megi gleyma að hlusta á börnin. „Aldrei má gleyma þeim sem kerfið á fyrst og fremst að vera hannað fyrir: Börnin sjálf. Því þó þau séu mörg ómálga, þá þýðir það ekki að við eigum ekki hlusta á þau.“ Skemmtilegt, fræðandi og nærandi Sigurður B. Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar Börn í lausu lofti Kosningaloforð flokk- anna til barna borg- arinnar eru misjöfn. Lengst ganga Vinstri Græn sem setja málefni barna á oddinn og boða gjaldfrjálsa leikskóla og vist fyrir börn að loknu fæðingarorlofi foreldra. mynd eyþóR áRnaSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.