Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 2.–5. maí 201418 Fréttir Betri Borg fyrir Börn? n Vg boðar gjaldfrelsi n Píratar vilja fella niður skuldir n Deilt um tryggingu DV tók púlsinn á áherslum flokkanna hvað varðar dagvistun barna, kannaði sérúrræði á málefnaskrá þeirra fyrir foreldra barna sem vantar dagvistun eftir fæðingarorlof. Þá er spurt um raunhæfi kosn- ingaloforða Vinstri grænna sem lofa gjaldfrjálsri dagvistun barna í borginni. kristjana@dv.is P íratar mæta fólki þar sem það er statt. Grunnstefna okkar er skýr þegar kemur að persónufrelsi. Við teljum að val og aðstæður foreldra eigi að ráða. Að niðurgreiðsla til dagfor- eldra og leikskóla valdi ójöfnuði er óréttlætanlegt. Þjónustan skal vera jafn dýr fyrir foreldra, enda væri þá jafnvel um töluverðan sparnað að ræða fyrir borgina þar sem niður- greiðsluhlutfall til leikskóla er um- talsvert hærra en til dagforeldra. Það mætti því beita fjárhagslegum rökum til að styðja þessa áherslu fyrir þá sem hana kjósa.“ Hvar á að spara á móti? „Við söknum ítarlegri umræðu um hvar Vinstri græn myndu vilja spara á móti. Einnig veltum við fyr- ir okkur varðandi leikskólana hvort VG væru til í að stíga skrefið til fulls og lögfesta leikskólana sem fyrsta skólastigið sem öllum börnum sé skylt og hafi rétt á að sækja. Okkur þykir skjóta ögn skökku við að setja í forgang að gera ólögbundna þjón- ustu gjaldfrjálsa og teljum að þetta þyrfti að skoðast mjög heildstætt. Óháð því hversu raunhæfar þessar áherslur eru þá snúast okkar eigin áherslur í þessum efnum um að koma frekar til móts við það fólk sem minnst hefur milli handa og þarf mest á þjónustuniðurgreiðslu að halda. Þar teljum við að for- gangurinn ætti að vera.“ Vilja fella niður skuldir foreldra Halldór segir Pírata í velferðar- stefnu sinni leita eftir mannúð- legum leiðum til að hjálpa fólki að greiða niður eða fella niður skuldir vegna dagvistunar. „Í þessu myndi meðal annars felast að börn væru ekki látin líða fyrir skuldir foreldra sinna með því að þeim yrði til að mynda neit- að um þjónustu. Einnig segir í stefnunni að gerð verði úttekt á úrræðum fyrir börn og ungmenni í vanda og fjölskyldur þeirra til að samræma upplýsingar og þjónustu og efla stuðning, sem og að aðkoma fjölskyldna að mótun úrræða skuli efld. Í skólamálum styðjum við líka við aukna aðkomu foreldra að skólaumhverfinu og náminu og við aukið sjálfstæði skólanna sjálfra.“ S óley Tómasdóttir segir áherslu lagða á að öllum börnum standi borgarrekin leikskólamenntun til boða um leið og fæðingarorlofi lýkur. „Við teljum brýnt að samfélagið axli ábyrgð á börnum á öllum aldri í samvinnu við foreldra. Þannig má í raun segja að þessar áhersl- ur snúist ekki um dagvistun, held- ur menntun barna, enda er leik- skólinn fyrsta skólastigið.“ Hún segir óásættanlegt að stjórnvöld skilji börn eftir í tómarúmi og axli ekki ábyrgð á úr- ræðum fyrir þau frá því fæðingaror- lofi lýkur fram til tveggja ára aldurs. „Vinstri græn hafa ætíð lagt ríka áherslu á lengra fæðingarorlof og að borgarrekinn leikskóli taki við að því loknu. Í ríkisstjórnartíð Vinstri grænna var fæðingarorlofið lengt í 12 mánuði með lagasetningu. Nýr meirihluti á Alþingi afnam hins vegar lögin. Í dag hafa foreldrar val um að senda börn sín til dagforeldra eða á einkarekna ungbarnaleikskóla. Vinstri græn hafa engin sérstök áform um að afnema þá valkosti – heldur axla samfélagslega ábyrgð og auka val foreldra.“ Þjónustutrygging stuðlar að misskiptingu Sjálfstæðisflokkur hefur lagt til að teknar verði upp þjónustu- tryggingar. Þeim úrræðum hafna Vinstri græn alfarið enda stuðli þær að aukinni misskiptingu. „Í nágrannalöndunum hafa slík- ar greiðslur reynst stuðla að auk- inni misskiptingu, börn innflytj- enda og fólks með lægstu laun hafa síður notið leikskólamenntun- ar auk þess sem greiðslurnar hafa dregið úr atvinnuþátttöku kvenna. Reykjavíkurborg á að bjóða upp á menntun fyrir öll börn óháð efna- hag og kerfið á í heild sinni að stuðla að auknu jafnrétti og jöfnuði.“ Börnin framar einkabílnum Hún segir kosningaloforðin raun- hæf og snúist um að fjárfesta í hag- sæld og jöfnuði barna og barnafjöl- skyldna. „Í stað hefðbundinna fjár- festinga eða framkvæmda á borð við virkjanir og mislæg gatnamót í þágu einkabíls eða stóriðju. Okkur þykir bæði raunsærra og brýnna að borgin forgangsraði í þágu barna í stað einkabíla.“ Óréttlát, flöt skattheimta Hún rökstyður mál sitt og segir Vinstri græn hafa gert áætlun til fjögurra ára til að innleiða gjald- frelsið. „Með auknu fjárframlagi upp á 750 milljónir á ári getum við lækkað gjaldskrárnar um 25% ár- lega og afnumið innheimtu alveg árið 2018. Í samhengi hlutanna eru 750 milljónir ekki há upphæð og á hverju ári eru færðar miklu hærri upphæðir fram og til baka innan borgarkerfisins án þess að nokkur verði þess var eða spurt sé hvort það sé „raunhæft“. Rammi skóla- og frístundasviðs jókst um 1.400 milljónir milli áranna 2013 og 2014 af ýmsum ástæðum án þess að nokkur hafi efast um raunsæi eða rekstrarhæfi borgar- sjóðs. Stefna Vinstri grænna er fyrst og fremst ábyrg. Afnám óréttlátrar og flatrar skattheimtu í formi gjaldheimtu fyrir leikskóla, grunn- skóla og frístundaheimili mun leiða til sanngjarnara samfélags, minni fátæktar og aukins jöfnuð- ar. Það er löngu tímabært.“ Vilja uppbyggingu eftir niðurskurð Stefnuskrá Vinstri grænna varðar að stærstum hluta börn og barna- fjölskyldur. Sóley segir tíma til kominn að þjónusta og rekstur borgarinnar taki aukið mið af þörf- um og vilja barna, sama hvort um er að ræða almenningssamgöng- ur, stígakerfi, menningarstofnanir, velferðar- eða húsnæðismál. „Eftir erfitt kjörtímabil niður- skurðar og sameininga á skóla- og frístundasviði þarf sérstaklega að hlúa að starfsfólki, skapa frelsi, kjör og starfsaðstæður til skólaþró- unar og tilraunaverkefna og raun- verulegt samráð um stefnumót- un. Við verðum að fara í sérstaka stefnumótun um frítímaþjónustu borgarinnar og gæta þar sérstak- lega að starfi fyrir 10–12 ára börn og 16–18 ára ungmenni sem lengi hafa setið á hakanum.“ Stjórnvöld skilja börn eftir í tómarúmi Sóley Tómasdóttir, oddviti VG Ójöfnuður er óréttlætanlegur Halldór Auðar Svansson, oddviti Pírata Þjónustutrygging jafnar o kkar helstu áherslur í þessum málaflokki er að bjóða barna- fjölskyldum í Reykjavík upp á fjölbreytt úrræði eft- ir að fæðingarorlofi lýkur. Sum- ar fjölskyldur fá góða þjónustu, aðr- ar enga. Þessu viljum við breyta með þjónustutryggingu sem gefur foreldr- um frelsi til að velja það sem börnun- um er fyrir bestu hvort sem það er val á dagforeldri, ungbarnaleikskóla eða til dæmis nánustu fjölskyldumeðlimum. Þjónustutrygging mun jafna kostnað foreldra og auka valfrelsi. Biðlistar eftir plássi á leikskóla eru vandamál sem verður ekki leyst með því að gera leikskólann gjaldfrjálsan. Það þarf að fjölga úrræðum fyrir for- eldra sem eru að ljúka fæðingar orlofi, og það ætlum við að gera. Það teljum við að hægt sé að gera með öflugri þjónustu dagforeldra, ungbarnaleik- skóla og ungbarnadeildum á leikskól- um. Það verður að jafna muninn á milli þess sem fólk borgar fyrir dagfor- eldri og leikskólann. Með þjónustu- tryggingu búum við til raunverulegt val. Þess ber að geta að hlutur foreldra í leikskólagjöldum lækkaði í stjórnar- tíð Sjálfstæðisflokksins.“ Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.