Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 2.–5. maí 201416 Fréttir Missti átján kíló á viku n Ghasem hættur í hungurverkfallinu n Fleiri hælisleitendur hafa reynt það sama á síðustu árum G hasem Mohamadi, tvítug­ ur hælisleitandi frá Afganistan, missti rúmlega fjórðung líkamsþyngdar sinnar meðan á hungur­ verkfalli hans stóð dagana 21. til 30. apríl. Hann vó 65 kíló þegar hann hætti að borða og drekka en var kominn niður í 47 kíló þriðjudaginn 29. apríl. Eins og sjá má á mynd sem ljósmyndari DV tók af Ghasem á þriðjudag brá honum heldur betur í brún þegar hann klæddi sig í buxur sínar en þær voru eins og gefur að skilja allt of stórar. Ghasem var tvisvar sinnum lagður inn á spítala á tímabilinu en þar fékk hann blóðvökva í æð. Hann byrjaði að drekka vatn á áttunda degi hungurverkfallsins. Á miðviku­ dag fékk hann loforð um fund í innan ríkisráðuneytinu í næstu viku og í tilefni af því fékk hann sér súpu og hætti þannig í hungurverk­ fallinu. Ghasem bað um það eitt að hælisumsókn hans fengi efnis­ lega meðferð hér á landi en hvort sú verður raunin á ennþá eftir að koma í ljós. Hanna Birna Kristjáns­ dóttir innanríkisráðherra sagði á fundi með mótmælendum á mánu­ dag að hún hefði ekki vald til þess að skipta sér persónulega af málum einstaka hælisleitenda. Ráðuneytið hefur þó gefið út að málið fái ein­ hvers konar flýtimeðferð. Flúðu talíbana Í þau tvö ár sem Ghasem hefur dvalið á Íslandi og beðið eftir svör­ um hefur hann einungis farið í eitt viðtal hjá Útlendingastofnun. Hann óttast að verða sendur til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðar­ innar en þar hefur honum þegar verið synjað um hæli. Ghasem kom til Svíþjóðar árið 2010 en þar áður hafði hann verið í Tyrklandi með föður sínum og móður. Þau hurfu sporlaust fyrir tilstilli smyglara sem sjá um að koma flóttafólki á milli landa í Evrópu. Hann hefur hvorki heyrt né séð frá þeim síðan og veit ekki hvort þau eru lífs eða liðin. Ástæða þess að fjölskylda Ghasems flúði Afganistan var sú að faðir hans hafði tekið þátt í bar­ áttunni gegn talíbönum í Maidan Wardak­héraði. Árið 2008 hríð­ versnaði ástandið í héraðinu og talíbanar létu sífellt meira til sín taka. Faðir Ghasems óttaðist að þeir myndu hefna sín á honum með því að ráðast á fjölskyldu hans en slíkt er ekki óalgengt. Hann sá enga aðra leið en að flýja með fjölskyldu sína, fyrst til Írans þaðan sem þau fóru til Tyrklands með fyrrgreindum afleiðingum. Ghasem var sextán ára og aleinn í ókunnu landi þegar hann ákvað að reyna að komast til Svíþjóðar. Það gekk eftir en þar var honum síðar synjað um hæli eins og svo mörgum öðrum. Líkaminn étur eigin lifur Ghasem er orðinn langþreyttur á því að bíða eftir svari frá íslenskum yfirvöldum. Hann biður um það eitt að þau skoði mál hans, opni möppuna svo að segja, en hér á landi er mjög algengt að hælisum­ sóknir þeirra sem hafa sótt um hæli í öðru Evrópuríki séu ekki skoðaðar efnislega og það þrátt fyrir að menn bíði hér í fleiri ár. Hann er orðinn ansi veiklulegur enda hefur hann þegar misst heil átján kíló. Á meðan innbyrðir vökva get­ ur það lifað án matar í einn til tvo mánuði. Þegar liðið er á aðra viku eins og tilviki Ghasems er fólk þó orðið mjög máttlítið, svimagjarnt og á erfitt með að standa upprétt. Ástandið verður hættulegra eftir því sem lengri tími líður og þá getur meira að segja verið hættulegt fyrir fólk að byrja að borða aftur og því þarf að gera slíkt í samráði við lækni. Félagar Ghasems segja að hann hafi farið hægt af stað þegar hann byrjaði að borða aftur. Næringarleysið hefur einnig sín áhrif á heilann sem er orkufrekur. Á Vísindavefnum er fjallað ítarlega um áhrif hungurverkfalls á líkamann. Þar kemur fram að eldsneytisgjafi heilans og miðtaugakerfisins sé að mestu leyti glúkósi og að þegar hann klárist sé líkamanum vandi á höndum. Amínósýrur eða grunn­ einingar prótína geta hins vegar nýst sem hráefni í glúkósaframleiðslu og því byrjar líkaminn að ganga á eig­ in prótín, til dæmis í vöðvum og lifur, til að framleiða glúkósa fyrir heilann. Vari ástandið of lengi, er dauðinn vís. Fleiri hungurverkföll hælisleitenda Ghasem er ekki fyrsti hælisleit­ andinn á Íslandi sem grípur til þess örþrifaráðs sem hungurverkfall sannarlega er. DV ræddi við fyrrver­ andi blaðamann frá Balkanskaga sem fór í sextán daga hungurverk­ fall á meðan hann dvaldi á gisti­ heimilinu Fit á vormánuðum 2009. Hann segir viðbrögð yfirvalda hafa verið lítil sem engin. „Það eina sem stóð eftir voru langvarandi veikindi mín.“ Fjallað var um málið í Morgun­ blaðinu þann 1. apríl 2009. „Þetta tekur auðvitað á hann og við höfum miklar áhyggjur af honum,“ sagði Atli Viðar Thorstensen hjá Rauða krossi Íslands í samtali við blaðið. Maðurinn segir að hungurverkfall­ ið hafi verið farið að taka verulega á eftir tvær vikur: „Ég var algjör­ lega uppgefinn, þetta var virkilega ömur legt.“ Hann segir að það hafi verið erfitt að byrja að borða á nýj­ an leik. „Á þeim tíma var ég lítið annað en skinn og bein og ég fékk hryllilega magaverki þegar ég borð­ aði.“ Þá segist hann hafa þurft á að­ stoð læknis að halda þegar hann borðaði fyrst um sinn. Beðinn að hafna læknisaðstoð Maðurinn var að mótmæla því að hann fékk ekki atvinnuleyfi þrátt fyrir að vera kominn með vinnu hjá fiskvinnslufyrirtæki. Skilaboðin sem hann fékk voru á þá leið að hann gæti ekki fengið atvinnuleyfi vegna efnahagsástandsins. Honum þóttu skýringarnar ekki sannfærandi enda var um að ræða vinnu sem margir Íslendingar fúlsa við. „Ég var ekki að biðja um mikið en það virtist engin leið fyrir þau að koma til móts við mig,“ segir hann. Síðar fékk hann dvalarleyfi af mannúðar ástæðum en hann býr og starfar á Íslandi í dag. Hann segir afskipta­ og sinnu­ leysi stjórnvalda í málefnum hæl­ isleitenda hrópandi mikið. „Það er eins og öllum sé sama.“ Mansri Hichem frá Alsír fór í hungurverkfall á svipuðum tíma. Morgunblaðið greindi frá máli hans þann 11. maí 2009 en þá hafði hann verið í hungurverkfalli í nítján daga. Hann vildi að ósk hans um hæli yrði afgreidd en hann hafði þá þegar beðið hér á landi í tvö ár. Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur hjá Rauða Krossinum, sagði mann­ inn mjög kvalinn og ástand hans alvarlegt. Þá vakti sérstaka athygli þegar fulltrúar félagsmálayfirvalda í Reykjanesbæ báðu Mansri um að hafna allri læknisaðstoð, þegar honum var sagt að skrifa undir eft­ irfarandi plagg: „[É]g/undirritað­ ur Hitchen Mansrif f.d. 16.12.1976 staðfesti hér með að ef ég verð meðvitundarlaus í hungurverkfall­ inu þá hafna ég allri læknisaðstoð.“ Í Samtali við Morgunblaðið sagði sálfræðingur Rauða krossins að þetta væri óneitanlega kuldalegt. n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Brugðið Ghasem var brugðið þegar hann sá svart á hvítu hversu mikið hann hefur lést á síðustu dögum en hann hefur misst átján kíló. Myndir Sigtryggur Ari Útskýrði stöðuna Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og aðstoðamaður hennar, Þórey Vilhjálmsdóttir, ræddu við mótmælendur í innanríkisráðuneytinu í vikunni. Þar sagði Hanna Birna að hún gæti ekkert gert í einstaka málum hælisleitenda. „Á þeim tíma var ég lítið annað en skinn og bein og ég fékk hryllilega magaverki þegar ég borðaði. Átján kíló Ghasem var 65 kíló þegar hungurverkfallið hófst en var kominn niður í 47 kíló á þriðjudag. Þreyttur Ghasem hefur meira og minna haldið sig í rúminu í íbúð í vesturbæ Reykjavíkur. „Það eina sem stóð eftir voru langvarandi veikindi mín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.