Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Side 30
Helgarblað 2.–5. maí 201430 Umræða
Umsjón: Henry Þór Baldursson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
S
varthöfði var lengi í vel
í fararbroddi framfara á
stjórnmálaferli sínum. Hann
leysti meðal annars vanda-
mál sem hafði plagað lýðveldið –
síðar keisaraveldið – frá örófi alda:
Vandinn með helvítis unglingana.
Það er ástæða fyrir því að það menn
hafa á öllum tímabilum – alltaf –
kvartað yfir æskunni: Unglingar
eru plága. Sérstaklega nú árið 2014,
með „snjallsímana“ sína, „geisla-
spilarana“ og „RÚV“-ið sitt.
Nú hafa þeir nefnilega ótal-
marga möguleika til að pirra fólk.
Með aldrinum hafa augu
Svarthöfða opnast og hann veit að
Íslendingar þurfa að ganga skrefi
lengra en hann gerði á sínum tíma.
Það er ekki nóg að klóna bara her-
menn. Það þarf að klóna almenn-
ing líka.
Besta leiðin til þess að gera þetta
er þessi. Finnum genatískt fram-
úrskarandi einstaklinga af báðum
kynjum. Það er nóg að finna einn
karl og eina konu. Svarthöfði legg-
ur til að sótt verði í kostum hlað-
ið genamengi Heimdallar í þessu
skyni.
Klónum þau svo bara og njótum
þess að horfa upp á stillta og prúða
unglinga, sem drekka ekki kók og
hanga í sjoppum heldur klæða sig
pent og ræða frelsi og skipulags-
mál, þótt þau viti reyndar ekki rass-
gat um þau.
Hvað hina – hvimleiðu ungling-
ana – varðar, þá bendir Svarthöfði
á fordæmi í stjórnvaldsskipun 66.
Eða eins og þið jarðarbúar seg-
ið um litlu hvuttana, þá getum við
„farið með þau í sveitina“. n
Leynilegar kosningar
„Í sveitina“ með þau!
É
g man þegar ég flutti til Wash-
ington, höfuðborgar Banda-
ríkjanna, fyrir bráðum 40
árum. Þá héngu þar víða
uppi í skóvinnustofum, efna-
laugum og öðrum vinnustöðum
myndir af John F. Kennedy forseta,
sem hafði verið myrtur í Dallas fá-
einum árum fyrr. Fátækt blökku-
fólk heiðraði minningu fallins for-
seta. Nær hefði verið að hafa þarna
heldur uppi hangandi myndir af
mér, var haft eftir Lyndon B. John-
son, sem tók við forsetaembættinu
eftir Kennedy. Johnson kom lang-
þráðri mannréttindalöggjöf í gegn-
um Bandaríkjaþing 1964 gegn
harðri andstöðu repúblikana og
einnig demókrata frá suðurríkjun-
um. Kennedy kom fáum frumvörp-
um gegnum þingið, en þar var John-
son öllum hnútum kunnugur.
Lyndon Johnson
Nú gengur fyrir fullu húsi á Broad-
way nýtt leikrit, All the Way, eftir
bandaríska leikskáldið Robert
Schenkkan. Leikritið segir söguna
af fyrsta ári Johnsons í Hvíta hús-
inu, 1964. Johnson lagði allt kapp
á að koma mannréttindafrumvarpi
Kennedys gegnum þingið og tryggja
þannig sjálfum sér endurkjör 1964.
Bryan Cranston leikur LBJ af því-
líkri list, að ég hef sjaldan séð ann-
að eins á sviði. Cranston varð fræg-
ur í hlutverki efnafræðikennarans,
sem lendir í fjárþröng og snýr sér
að eitur lyfjaframleiðslu í sjónvarps-
þáttunum Breaking bad, 60 tíma
stím, hvergi dautt augnablik.
Sagan frá 1964 á erindi við nútím-
ann. Þá voru innan við 100 ár liðin frá
lokum borgarastríðsins, sem kost-
aði 600.000 Bandaríkjamenn lífið,
einnig Abraham Lincoln, merkasta
forseta landsins fyrr og síðar. Borg-
arastyrjöldin snerist í reyndinni
um rétt meiri hluta landsmanna
til að skerða rétt minni hlutans í
suðurríkjunum til þrælahalds. Sig-
ur norðurríkjanna leiddi til afnáms
þrælahalds 1865, en með því lauk þó
ekki baráttunni fyrir fullum réttind-
um blökkumanna.
Lyndon Johnson einsetti sér að
feta slóð Lincolns og fá þingið til
að samþykkja mannréttindalög til
að girða fyrir mismunun á grund-
velli kynþáttar, litarháttar, trúar-
bragða, kynferðis eða ætternis.
Þetta þóttu sjálfsögð mannréttindi
víða í Vestur- Evrópu, en ekki í
Bandaríkjunum. Johnson þurfti að
vaða eld og reyk, svo hörð var and-
staðan af hálfu þeirra, sem töldu sér
ógnað, fengju svartir menn og hvít-
ir að sitja við sama borð. Johnson
beitti ýmsum brögðum til að koma
frumvarpinu í gegnum báðar deildir
þingsins. Hann skirrðist ekki við að
hræða líftóruna úr andstæðingum
sínum og hikandi samherjum eða
jafnvel múta þeim, m.a. með því að
lofa stuðningi við lítilmótlegt kjör-
dæmapot.
Blökkumenn undir forustu dr.
Martins Luther King voru viðkvæm-
ir fyrir málamiðlunum, sem John-
son hugleiddi til að koma málinu í
höfn, og hótuðu fjöldamótmælum.
Þeir brugðust ókvæða við, þegar
Johnson féllst á að veikja ákvæði
um jafnan kosningarétt svartra og
hvítra í frumvarpinu. En Johnson
sagði: Tökum eitt skref í einu, jöfn-
un kosningaréttarins er næst á dag-
skrá. Klukkan gekk. Johnson varð að
koma frumvarpinu fram í tæka tíð
fyrir forsetakjörið í nóvember 1964.
Hann barðist eins og ljón. Hann
þurfti 67 atkvæði af 100 í öldunga-
deildinni til að stöðva nær tveggja
mánaða málþóf andstæðinganna.
Það tókst, með herkjum. Hubert
Humphrey, síðar varaforseti, átti
sinn þátt í því. Frumvarpið var sam-
þykkt í báðum þingdeildum með
70% atkvæða gegn 30%. Vitað var,
að meiri hluti kjósenda studdi frum-
varpið.
Hvað gerðist næst? Norska
Nóbelsverðlaunanefndin tilkynnti
í október, mánuði fyrir kosningar,
að Martin Luther King skyldi hljóta
friðarverðlaun Nóbels, 35 ára að
aldri. Ég man ekki viðbrögðin,
sem verðlaunin vöktu meðal and-
stæðinga Johnsons í aðdraganda
kosninganna, en víst má telja, að
viðurkenningin hafi sefað blökku-
menn og blásið þeim kjark og sig-
urvon í brjóst. Mánuði síðar sigr-
aði Johnson keppinaut sinn, Barry
Goldwater, frambjóðanda repúblik-
ana, með 61% atkvæða gegn 39%,
og 95% blökkumanna kusu John-
son. Árið eftir, 1965, efndi Johnson
heit sitt og keyrði jafnan kosninga-
rétt hvítra og svartra í gegnum þing-
ið með miklum brag.
Að standast próf
Átti Johnson að gefast upp fyrir
þeim, sem sögðust hafa heilagan
rétt til endalauss málþófs? Átti hann
að gefast upp fyrir þeim, sem sögðu
jafnan rétt hvítra og svartra brjóta
gegn stjórnarskránni? Átti hann að
gefast upp fyrir þeim, sem sögðu, að
um viðkvæm lög, sem snerta stjórn-
arskrána, þurfi að ríkja víðtæk sátt í
þinginu?
Nei, auðvitað ekki. Johnson bauð
þrjótunum byrginn. Hann taldi, að
málþóf í þágu rangs málstaðar og
mannréttindabrota verði réttsýnir
menn að stöðva eins og lögin leyfa.
Hann taldi það fjarstæðu, að jafnrétti
kynþáttanna brjóti gegn stjórnar-
skránni. Og hann taldi fráleitt, að um
framför mannréttinda þurfi að ríkja
víðtæk sátt á þingi, því að minni hlut-
inn, sem nærist á ranglæti og mis-
munun, mun ævinlega berjast gegn
jafnrétti og verður því að lúta í lægra
haldi skv. leikreglum lýðræðisins.
Johnson stóðst prófið 1964 með
miklum brag. Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Árni
Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir
og Guðmundur Steingrímsson kol-
féllu á sama prófi 2013, þegar þau
heyktust á að neyta aflsmunar á Al-
þingi fyrir samþykkt nýrrar stjórnar-
skrár í samræmi við skriflegar yfir-
lýsingar meiri hluta þingmanna og í
samræmi við vilja kjósenda eins og
hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 2012. n
Frá Broadway til Alþingis„ Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Steingrímur
J. Sigfússon, Árni Páll
Árnason og Katrín
Jakobsdóttir kolféllu á
sama prófi 2013.
„Eitt má þó segja
um Breta. Þeir
veita níðingum
makleg málagjöld. Hvenær
hafa barnaníðingar verið
dæmdir í 18 ára fangelsi á
Íslandi?“
Segir Jón M. Ívarsson í athuga-
semd við frétt um breskan
barnaníðing sem nauðgaði barni
árið 1975. Maðurinn, William Jordan, var
dæmdur í 18 ára fangelsi á miðvikudag.
12
„Finnst nú bara
hálf kjánalegt að
þetta er búið að
vera svona í mörg ár, og núna
fyrst á að banna þetta af því
að einn lítill vesalingur gat
ekki haft stjórn á sér í hvorki
drykkju né hegðun.“
Þetta segir Húni Hlér Einars-
son í athugasemd við frétt
sem segir frá útskriftarnemum
í Verkmenntaskólanum á Akureyri sem
verða allir látnir blása í áfengismæla á
dimisjón í dag, föstudag. Hjalti Jón Sveins-
son skólameistari tilkynnti nemendum
á miðvikudag að gerðar yrðu ráðstafanir
svo nemendur færu ekki inn í skólann
undir áhrifum áfengis þennan dag.
5
„Svo hræðilegt
… en samt svo
fallegt á einhvern
hátt líka.“
Segir Jón Kristjánsson um eldri
hjón sem frömdu sjálfsvíg í New
York eftir erfið veikindi.
19
„Oh en rómó
og næs, one
big happy
Vísis-familý, vinna saman
myrkranna á milli og búa svo
saman líka; 24-7 samvera
alla leið og alltaf... ;)“
Þetta skrifar Hjördís
Vilhjálmsdóttir við frétt þess
efnis að öllum starfsmönnum
Vísis hf. á Djúpavogi og Húsavík hafi verið
boðið í kynningarferð til Grindavíkur.
Sem kunnugt er ætlar Vísir hf. að flytja
alla starfsemi fyrirtækisins til Grinda-
víkur og hefur boðið starfsfólki sínu að
vinnu þar. Meðal þess sem þeir skoðuðu
var blokk í Grindavík sem Vísir ætlar
undir búsetu starfsmanna sinna.
14
„Vona sannarlega
að hann komi heill
frá þessu og að
sannleikurinn sigri. Hann var
farin að trampa óþægilega á
aumum tám.“
Segir Baldur Bjarnason í frétt
þar sem fjallað er um fyrirtöku
á máli ákæruvaldsins gegn
Gunnari Andersen. Gunnar er sakaður um
að hafa brotið þagnarskyldu í starfi sýnu
sem forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
14
Þorvaldur Gylfason
skrifar
Kjallari
Svarthöfði
Könnun
Hefur þú séð kakka-
lakka á Íslandi?
88,8% 11,2%
n Já n Nei 216 ATKVÆÐI