Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Page 32
Helgarblað 2.–5. maí 201432 Fólk Viðtal
Ó
færð heitir ný sjónvarpssería
sem Kjartan er að vinna að.
Það er óþægilega viðeigandi
að skipst hafa á skini, skúr
ir og stórskotaárás haglélja
síðasta klukkutímann. Svona mætir
veturinn vorinu þetta árið, við biðj
um um betri tíð, en nú er ómögu
legt að vita hverju þú átt von á þegar
þú ferð út. Heppnin er ekki með Sig
urjóni sem kemur askvaðandi inn,
veðurbarinn og blautur eftir haglið,
heilsar með því að spyrja hvumsa
„ertu að naglalakka þig?“ hengir
blauta úlpuna á stólbakið og sækir
sér kaffi.
Fleiri flúðu veðrið hingað inn.
Við barinn kennir hann útlending
um í gulum og rauðum regnstökk
um að heilsa á íslensku: „góðan
daginn,“ segir hann hægt og skýrt, og
endurtekur nokkrum sinnum. Kem
ur svo hlæjandi og sest niður með
einn ameríkanó.
Var aldrei í klíkunni
Hér á litla kaffihúsinu í gömlu grænu
verbúðunum komum við okkur fyrir
í horninu, í ljósum sófa og sebra
klæddum stól, og ræðum upp
runann. Sigurjón bjó í Reykholti í
Borgarfirði þar til hann varð sjö ára.
Þá flutti hann vestur á Ísafjörð þar
sem hann bjó næstu tíu árin áður
en hann flutti suður í Kópavoginn.
Þrátt fyrir að hann hafi búið þar á
sínum helstu mótunarárum er hann
ekki samþykktur Ísfirðingur, eða svo
segir hann. „Ég tek eftir því þegar ég
fer í vestfirsku búðina sem selur að
eins vörur Ísfirðinga. Einu sinni sá ég
HAMplötu þar og gladdist því það er
ákveðin viðurkenning. Næst þegar ég
kom var hún ekki lengur þar. Svo ég sá
að ég er ekki samþykktur,“ segir hann.
„Menn hafa líka reynt að spyrða mig
saman við Kópavoginn en ég til
heyri ekki þar heldur. Ég er ekki gam
all Kópavogspönkari eins og margir
halda.
Í hreinskilni sagt held ég að
grunnurinn að því að ég geri það sem
ég er að gera, og ég held að ég eigi það
sammerkt með mörgum sem hafa
látið að sér kveða í skapandi greinum,
að ég var aldrei beðinn um að bjóða
mig fram sem formaður nemenda
félagsins. Ég var aldrei í klíkunni,
hvorki í gagnfræðaskólanum á Ísa
firði né í menntaskólanum í Kópa
vogi. Ég var alltaf utanveltu. Átti
fáa en góða vini sem sameinuðust í
pönkinu en voru ekki viðurkenndir.
Allt sem ég hef gert síðan hefur verið
ákveðin hefnd,“ segir hann hlæjandi.
Tvítugur stofnaði hann hljómsveit,
„til að hefna mín.“
Enda ástæða til. Á unglingsárun
um var honum aldrei boðið í afmæli
hjá stelpum, bara strákum. „Strákum
var oft boðið í stelpuafmæli en það
var ekki litið við mér á þessum tíma.
Ég átti aldrei kærustu,“ segir hann
með áherslu á aldrei og hlær kald
hæðnislega. Þegar ég spyr hvort hann
sé að grínast segir hann: „Nei, þetta
er alveg rétt. Ekki fyrr en seint og um
síðir. Það var ekki fyrr en ég stofnaði
hljómsveit sem það fór eitthvað að
gerast. Þá var ég orðinn vanur þessu
og hættur að hafa áhyggjur af því eða
pæla mikið í því.“
Dramafíknin
Hann dæsir þungt þegar ég spyr
hvort hann sé rómantískur. Þetta var
spurning úr sal, kollegi minn vildi vita
hvort Sigurjón Kjartansson væri róm
antískur – þessi maður sem er þekkt
ur fyrir þungarokk, svartan húmor
og myrkar glæpaseríur. „Ég veit það
ekki. Nei, ætli það,“ er einfalda svarið,
stutta útgáfan.
„Hvað er rómantík?“ spyr hann
svo, áður en hægt er að ræða þetta
af einhverri alvöru. „Ég held að hug
myndir fólks um rómantík komi fyrst
og fremst úr poppkúltúr. Við þekkjum
þessar klisjur, „you complete me, þú
fullkomnar mig, ég er ekkert án þín“,“
segir hann með tilþrifum. Í raun er
mjög sorglegt að segja það við ein
hvern.
Þegar ég var yngri fann ég fyrir því
að ég var nettur dramafíkill. Ég sótti
mikið í drama og bjó það til, mikið
og markvisst en ómeðvitað. Dramað
var oft af þessum toga – „you com
plete me, ég er ekkert án þín“. Alltaf
eitthvert helvítis drama,“ segir hann
hlæjandi.
En eftir því sem hann hefur
þroskast hefur honum tekist að nýta
dramafíknina í listina en skilja við
hana að öðru leyti. „Ég skrifa drama
og held mig við það.“
Fimmtán ára innst inni
Hann lærði að sleppa tökunum. Að
spurður segist hann ekki vera neitt
sérstaklega trúaður. Fyrir honum er
æðri máttur bara lífið, örlögin eða
hvað sem þú vilt kalla það. Hann þarf
ekki að skilgreina það frekar. „Ég þarf
engan karl á himnum. Því þroskaðri
sem ég verð því minni verður trúin á
Guð. Ég held að það sé eitthvað sem
gerist þegar þú nærð betur utan um
lífið og hamingjuna.“
Og já, hann er hamingjusamur,
segir hann. Flissar svo þegar ég spyr
af hverju. En er mjög einlægur þegar
hann útskýrir af hverju hann flissar
svona. „Ég er svo komplexaður að
mér finnst erfitt að svara spurningum
um tilfinningar. Ég er svo mikill ung
lingur. Innst inni er ég fimmtán ára og
alltaf að hugsa um álit annarra. Það
er ákveðin þversögn í því að aðhyll
ast pönk og gera það sem manni sýn
ist en vera alltaf meðvitaður um álit
annarra. Ég er sem betur fer að frels
ast undan því, en hlátur og húmor
eru mín varnarviðbrögð.“
Berskjaldaður í réttarsal
Ekki skilja það sem svo að húmorinn
sé slæmur. Hann getur verið hreins
andi og er heiðarlegt listform. Því
fylgdi mikið frelsi að fara frá tón
listinni yfir í húmorinn. „Ég gat ávarp
að fleiri hluti í gegnum húmorinn.
Samt var stundum slegið á puttana
á okkur, hneykslunarraddir heyrðust
og við vorum mikið í réttarsölum.“
Aðspurður hvort hann hafi ekki
farið fyrir dóm fyrir guðlast biður
hann mig vinsamlegast um að rugla
sér ekki saman við Spaugstofuna. „Ég
er mjög viðkvæmur fyrir því þegar
fólk heldur að ég sé Siggi Sigurjóns.
Eða Hafnfirðingur,“ segir hann hlæj
andi.
Nei, það var ekki guðlast. Í eitt
skiptið sendu þeir mann í beinni út
sendingu Tvíhöfða í útvarpinu á Al
þingi og hann truflaði störf þingsins.
Í annan stað létu þeir einhvern
mann selja tölvur á Lækjartorgi. „Ég
man ekki hvernig það var. Við vor
um alltaf að gera eitthvert rugl í
beinni útsendingu.“ Þriðja málið var
samningamál, þeir hættu á einni
Frægðin
sætasta
hefndin
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Sigurjón Kjartansson sló í gegn sem
grínisti. Það þýðir ekki að hann hafi hlegið sig í gegn-
um lífið. Í raun var hann hálfgerður dramafíkill þar til
áföllin dundu yfir. Sonarmissir og kraftaverkabarn
breyttu öllu og hann lærði að meta hamingjuna í
hversdagsleikanum. Dramað fylgir þó enn, en nú í
gegnum listina, sjónvarpsseríurnar sem hann skrifar
og tónlistina sem hann semur. Frægðin er sæt hefnd
fyrir árin sem hann var utangarðs, einn af fáum
pönkurum í bænum.
„Nýburar
eiga það
til að gleyma
að anda. Það
gerðist oft hjá
henni. Þá blán-
aði hún upp.