Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 60
Helgarblað 2.–5. maí 201460 Fólk Brad Pitt og george Clooney Tveir myndarlegustu menn Hollywood eru líka bestu vinir. Þeir eru báðir harðir náttúruvernda- sinnar. „Við skemmtum okkur vel saman,“ sagði Pitt í samtali við Entertainment Weekly árið 2004 um vinskap þeirra. Bestu vinir í Hollywood Matt daMon og Ben affleCk Leikararnir hafa verið vinir frá því þeir voru átta ára og léku sér saman á götum Boston-borgar. Þeir fetuðu frægðarbrautina saman og unnu til Óskarsverðlauna fyrir myndina Good Will Hunting. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur í Hollywood. Það getur reynst vel að eiga góðan vin sem þekkir frægðina jafn vel. Hér má sjá nokkra fræga vini sem gengið hafa í gegnum súrt og sætt saman í henni Hollywood. Jennifer aniston og Courtney Cox Þær hafa verið bestu vinkonur síðan þær byrjuðu að leika saman í þáttunum Friends. Þær hafa staðið með hvor annarri í gegnum súrt og sætt og alltaf helst vináttan jafn sterk. Jennifer er guð- móðir dóttur Courtney. CaMeron diaz og drew BarryMore Þær kynntust við tökur á myndinni Charlie's Angels árið 2000 og hafa verið óaðskilj- anlegar síðan. „Cameron Diaz er einn besti vinur sem nokkur gæti átt,“ sagði Drew um vin- konu sína í samtali við Britain's Look-tímaritið. „Mér hefur alltaf liðið eins og hún sé stóra systir mín, en á sama tíma veit ég að stundum er ég gáfaðri og aðeins minna barnaleg en hún. Við eyðum svo miklum tíma saman, hlæjandi að hafa gaman. Það er það sem alvöru vinátta snýst um.“ kate Perry og riHanna Í stað þess að vera keppi- nautar ákváðu þær að vera bestu vinkonur. Báðar með magnaðan tónlistarferil og eiga margt sameiginlegt. Rihanna skipulagði meðal annars gæsap- artí fyrir vinkonu sína og sagði í viðtali við Access Hollywood að það hefði tekið meiri tíma en tónleikaferðalagið hennar. ryan reynolds og sandra BulloCk Vináttusamband þeirra Söndru og Ryans hefur varað í um 10 ár. Þau hjálpuðu hvort öðru að takast á við erfiða skilnaði. Á tímabili var því haldið fram að þau væru að draga sig saman en þau hafa alltaf haldið því fram að þau séu bara mjög nánir vinir. „Hann hefur bara verið ótrúlega góður vinur minn í 10 ár.“ will sMitH og toM Cruise Þeir virðast kannski eiga í samkeppni út á við en bak við tjöldin eru þeir bestu vinir. Will hefur varið Tom opinberlega þegar hann var gagnrýndur fyrir veru sína í Vísindakirkjunni. „Þegar ég sit með Tom og spjalla þá er hann einn besti persónuleiki sem ég hef kynnst – hann vill gera heiminn að betri stað.“ skellti sér á djammið Ofurfyrirsætunni Kate Moss finnst ekki leiðinlegt að skella sér á djammið. Kate fagnaði nýrri fatalínu sinni fyrir tískuris- ann Topshop á Con naugt- hótelinu í London á þriðjudag. Kate leit út fyrir að vera búin að fá sér aðeins of mörg glös þegar hún yfirgaf hótelið eftir gleð- skapinn. Dagurinn hafði ver- ið langur hjá henni enda hafði lína hennar verið kynnt fyrr um daginn og meðal þeirra sem sýndu línuna voru Cara Del- evingne, Suki Waterhouse og Naomi Campbell. Paltrow söng bakraddir Gestir á tónleikum Jason Is- bell á The Roxy í Hollywood á mánudag, fengu aðeins meira en þeir borguðu fyrir. Óskars- verðlaunaleikkonan Gwyneth Paltrow steig nefnilega óvænt á svið og tók lagið með Holly Williams sem kom fram á tón- leikunum. „Hún söng mjög vel og af mikilli innlifun og hélt al- veg lagi,“ sagði tónleikagestur í samtali við US Weekly. Gwyneth var fagnað af áhorf- endum sem bjuggust ekki við að sjá leikkonuna troða upp. Í dúndurformi Sharon Stone heldur sér í góðu formi líkt og sjá má framan á nýjasta tölublaði ítalska GQ- tímaritsins. Þar er hún í gegn- særri samfellu sem hylur lítið af vel stæltum líkama hennar. Þrátt fyrir að vera orðin 56 ára slær hún ekki slöku við enda ekki þekkt fyrir annað en að ganga alla leið. Hún getur líka vel við unað enda lítur hún mun betur út en mörg ungstirnin í Hollywood.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.