Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Qupperneq 62
Helgarblað 2.–5. maí 201462 Fólk
Víkingur og
Kolbrún eiga
von á barni
Leikarinn Víkingur Kristjáns-
son og unnusta hans Kolbrún
Schmidt eiga von á stúlkubarni.
Fyrir á Víkingur þrjú börn, svo
barnalánið leikur við hann.
Þetta er fyrsta barn Víkings og
Kolbrúnar. Víkingur flutti vestur
á firði fyrir nokkru til að vinna í
fiski, nánar tiltekið á Suðureyri.
Hann hafði setið þar við skriftir
í nokkrar vikur áður en hann
heillaðist af bænum, bæjarlífinu
og unnustunni Kolbrúnu.
Erfitt að leika
í kynlífssenu
S
erbinn Zlatko Krickic leikur
í eldheitri kynlífssenu í kvik-
myndinni Borgríki 2 – Blóð
hraustra manna ásamt þeim
Þórunni Antoníu Magn-
úsdóttur og fyrrverandi Playboy-
fyrirsætunni Ernu Gunnþórsdóttur.
Hann segir það hafa verið erfitt ver-
kefni og þó hefur hann unnið við
firnalangar bardaga senur þar sem
hann hefur nánast legið óvígur dag-
ana eftir.
Erfiðasta senan
„Leikstjórinn, Ólafur Fleur, sagði
mér ekki frá þessari senu fyrr en
fjórum dögum áður en hún var á
dagskrá. Hann sagði mér að annars
hefði ég orðið of stressaður. Það var
alveg rétt hjá honum,“ segir hann
og hlær. „Þær Þórunn og Erna voru
hins vegar fagmenn út í gegn og
virkilega góðar stelpur. Okkur tókst
að komast í gegnum senuna af
virðingu og vinsemd. Ég var mjög
meðvitaður um það allan tímann að
sýna þeim virðingu. Þetta er án efa
erfiðasta senan sem ég hef leikið í,
og eru þær margar erfiðar.“
Fjölskyldan kom sem
flóttamenn
Zlatko hefur vakið mikla og verð-
skuldaða athygli fyrir frammistöðu
sína í glæpamyndinni Borgríki, og
í framhaldsmyndinni fylgjumst við
áfram með framgangi hans í hlut-
verki Sergej, serbnesks bifvélavirkja
sem nær tökum á undirheimum
Reykjavíkurborgar. Sergej er harm-
rænt hörkutól sem hefur snúið vörn
í sókn eftir að eiginkona hans miss-
ir fóstur í árás íslensks handrukkara.
Færri vita að Zlatko kom hingað
til lands fyrir nærri fimmtán árum.
Móðir hans og fjölskylda höfðu þá
dvalist hér í tvö ár sem flóttamenn
frá Júgóslavíu sem var. „Ég er fædd-
ur í Króatíu og þegar fjölskyldan
flúði til Íslands, fór ég til Belgrad í
háskólanám. Þegar fjölskyldan hafði
komið sér hér fyrir vestan fluttist ég
til þeirra. Ég vildi vera með þeim og
spila fótbolta. Fór til Hornafjarðar
og spilaði fótbolta á Fáskrúðsfirði
með Leikni.“
Sonurinn vill verða frægur
eins og pabbi
Nú er nærri öll fjölskyldan flutt til
Noregs en Zlatko býr hér enn ásamt
konu og börnum og rak bifreiða-
verkstæði eins og söguhetja Borg-
ríkis, Sergej. Þótt hann sinni bif-
reiðaviðgerðum í dag hefði hann
meira gaman af því að fá að sinna
leiklistargyðjunni sem oftast. „Ég
hefði gaman af því að fá að starfa
sem leikari og slæ alltaf til þegar haft
er samband við mig. Sonur minn,
átta ára, fylgist grannt með ferlinum
og langar að verða frægur eins og
pabbi. Honum varð að ósk sinni, því
hann fer með hlutverk í myndinni.
Leikur lítinn dreng í afmælisveislu
og er hæstánægður með að vera
eins og pabbi.
Ég nýt lífsins, ég sinni því að búa
til tónlist, hef mikinn áhuga á því, en
úti var ég í hljómsveit. Ég spila enn
fótbolta að einhverju ráði og þótt að
hér sé kalt þá líður mér vel hér.“
Gat varla gengið eða
dregið andann
Zlatko segir bardagasenurnar enn
blóðugri í framhaldsmyndinni. Sú
allra harðasta tók fimm klukku-
stundir í tökum. „Við vorum í tök-
um í fimm klukkutíma og í þessari
senu er ráðist á Sergej og hann bar-
inn sundur og saman. Þetta var því
fremur erfið taka og ég gat varla
gengið eða dregið andann daginn
eftir,“ segir Zlatko og lofar miklum
hasar á hvíta tjaldinu þegar myndin
verður frumsýnd í haust. n
n Tókst með virðingu og vinsemd n Illa farinn eftir bardagasenu
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
„Ég gat varla
gengið eða
dregið andann
daginn eftir
Erfitt Zlatko fékk ekki
að vita af kynlífssenunni
fyrr en fjórum dögum fyrir
tökur. Leikstjórinn Ólafur
Fleur vildi ekki valda
honum óþarfa streitu.
Mummi orðinn dagskrárstjóri
Opna sjónvarpsstöð með „rammíslensku“ efni
Þ
etta verður rammíslensk
stöð með skemmtiefni,“
segir Guðmundur Þórarins-
son eða Mummi í Götu-
smiðjunni eins og hann er
gjarnan kallaður. Mummi er dag-
skrárstjóri á nýrri íslenskri sjón-
varpsstöð sem fer í loftið á þjóðhá-
tíðardaginn sjálfan, 17. júní, og ber
nafnið iSTV. „Við ætlum að frum-
sýna 2–3 klukkustundir af íslensku
efni á hverju kvöldi. Það verður fullt
af skemmtilegu efni. Ekki eitthvað
Ísland Got Talent heldur fólkið í
landinu,“ segir Mummi.
Með honum að stöðinni standa
Jón Emilsson, sem er sjónvarps-
stjóri, og Bonni ljósmyndari. Þeir
félagar eiga þó ekki stöðina en reka
hana að sögn Mumma. Hann segir
þá hafa verið að undirbúa opnunina
undanfarna daga, kaupa tæki og tól
og semja við þáttastjórnendur.
„Við ákváðum að leita ekki til
gömlu stjarnanna heldur viljum
við uppgötva ný andlit. Við ætlum
að vera útungunarstöð fyrir stóru
stöðvarnar og gefa nýju þáttagerðar-
fólki tækifæri til þess að spreyta sig.“
Mummi segir þau munu verða
með fjölbreytta dagskrá. Meðal
þáttastjórnenda verður bloggar-
inn Guðrún Veiga sem heldur úti
blogginu gveiga85.blogspot.com.
„Hún er alveg ótrúlega skemmtileg
og verður með þátt hjá okkur. Síðan
verðum við með allt frá pólitík upp
í bíladellugæjann yfir í skrýtna gæj-
ann úti á landi. Þetta verður bara
alls konar,“ segir Mummi spenntur
fyrir framhaldinu. n
viktoria@dv.is Íslenskt Dagskráin verður fjölbreytt.
Áslaug „lands-
byggðartútta“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
formaður Heimdallar, hefur vak-
ið athygli fyrir dug og hreinskipt-
ar skoðanir sínar í stjórnmálum.
Fræg urðu til að mynda ummæli
hennar um hvítvín og humar
þegar hún sagði það tímaskekkju
að selja vín í Vínbúðum ríkisins. Ef
fólk vildi fá sér rauðvín með steik
eða hvítvín með humri ætti það að
geta farið út í búð, sama á hvaða
tíma dags, og keypt sér vín.
Ummælin urðu að feiknastormi
í vatnsglasi á vefnum en Áslaug
Arna lét það ekki á sig fá. Hún
stefnir á skemmtilegt sumar og
ætlar að búa um tíma á Hvolsvelli.
„Ég sem elska Reykjavík, miðbæ-
inn og allt lífið hér á sumrin, ætla
að gerast landsbyggðartútta í sum-
ar,“ greindi Áslaug Arna frá á sam-
skiptavefnum Twitter nýlega.
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla
GLEÐILEGT SUMAR
MEÐ