Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 8
Helgarblað 27.–30. júní 20148 Fréttir Arðvis heldur áfram: „Það er að forrita“ n Dularfulla gróðavélin er enn þá sögð starfandi n Eigandinn ákærður F élagið er bara í sömu starf- semi og það hefur verið,“ seg- ir Jónas Jónsson, lögmaður fyrirtækisins Arðvis. DV hafði samband við Bjarna Þór Júl- íusson, einn af eigendum og fram- kvæmdastjóra Arðvis, til að spyrjast fyrir um ákæru sem sérstakur sak- sóknari hefur gefið út á hendur hon- um og Úlfari Guðmundssyni tann- lækni. Bjarni vildi hins vegar ekki tjá sig við blaðamann og rétti lögmanni Arðvis símann. Sá gat hins vegar ekki tjáð sig um ákæruna gegn Bjarna þar sem hann gæti ekki hagsmuna hans í máli sérstaks saksóknara. Í ákærunni er Bjarni meðal annars ákærður fyrir fjárdrátt en Arð- vis, eða félög sem tengdust því, fengu greiddar rúmar 200 milljónir króna frá meira en 100 einstaklingum inn á reikninga sína á árunum 2010 til 2012. Eins og rakið er í ákærunni fór stór hluti þessara fjármuna í einkaneyslu. Bjarni notaði fjármun- ina til dæmis til að leigja undir sig einbýlishús, hann borðaði mikið á skyndibitastöðum, keypti bíómiða, áfengi og fór á knattspyrnuleiki. Þá voru fjármunirnir notaðir til að greiða fyrir reikninga Bjarna frá Visa og til að greiða fyrir alls kyns vörur og þjónustu. Ákæran í málinu er í skrautlegri kantinum verður að segj- ast. Peningarnir fóru í raun að hluta til frá fólkinu sem lagði peninga í Arðvis og í daglega neyslu Bjarna. Þróar enn tölvuforrit Eftir að Bjarni hefur rétt lögmanni sínum símann segir hann: „Nei, ég er ekki lögmaður Bjarna. Ég er lögmað- ur Arðvis hf.“ Blaðamaður: „Er Arðvis enn þá starfandi í dag?“ Jónas: „Já, já […] Það er ekkert mál á Arðvis. Það er mikilvægt að menn átti sig á því. Það er ekki verið að ákæra félagið held- ur er verið að ákæra já, eigendur að hluta til. Félagið er bara í sömu starf- semi og það hefur verið. Það er að forrita hérna ákveðna afurð.“ Engar tekjur, engir starfsmenn og engin skrifstofa Blaðamaður: „Og er að koma inn nýtt hlutafé?“ Jónas: „Koma nýtt hlutafé? Nei, það er engin hluta- fjársöfnun í gangi.“ Blaðamaður: „Hvernig er reksturinn þá fjármagn- aður?“ […] Jónas: „Það hefur engin hlutafjársöfnun farið fram umfram það sem var gert hérna 2011.“ Blaða- maður: „Eru margir í vinnu hjá Arð- vis?“ Jónas: „Nei, enginn á launaskrá hjá Arðvis.“ Blaðamaður: „Hvern- ig fer starfsemin þá fram?“ Jónas: „Félagið hefur verið að vinna með það sem það átti fyrir og eigend- urnir hafa verið að vinna að þessu félagi og ýmsir í sjálfboðavinnu.“ Blaðamaður: „Hvar er starfseminni haldið úti?“ Jónas: „Félagið er ekki með skrifstofu í dag.“ Blaðamað- ur: „Það eru engar tekjur, það eru engir starfsmenn og það er engin skrifstofa. Hvernig fer starfsemin þá fram?“ Jónas: „Félagið á ákveðna af- urð sem það er að vinna við.“ Miðað við orð Jónasar er Arðvis því enn þá starfandi, að minnsta kosti að hluta þótt umfangið sé ekki mikið, en nýju hlutafé hefur ekki verið safnað ný- lega. Arður til fjárfesta og fátækra Líkt og DV hefur greint frá þá snýst starfsemi Arðvis í stuttu máli um að þróa forrit á internetinu, Corpus Vitalis, sem á að gera fólki kleift að fjárfesta í vörum og þjónustu á netinu og án þess að versla beint við aðra en Arðvis. Hug- myndin átti þá að vera sú að Arðvis hafi komið sér upp samn- ingum við birgja sem geri notend- um forritsins kleift að fá vörurnar á hagstæðu verði. Mikill arður átti að verða til í þessum viðskiptum sem á að renna til hluthafa í Arðvis sem og fátækra í heiminum. Í viðtali við DV í lok árs 2010 sagði Bjarni Þór að Arð- vis gengi fyrst og fremst út á að hjálpa fólki. „Þetta geng- ur mest út á að hjálpa fólki. Þetta er sett upp þannig að það eru rík- ir sem eiga eitthvert lausafé sem fjármagna þetta, af því að við fengum ekki fyrirgreiðslu í bankakerfinu. Fjárfestarnir geta sjálfir haft eitthvað upp úr þessu en þeir eru fyrst og fremst að fjármagna hjálparstarf, deila peningum til fólksins sem þarf aðstoð [...] Þetta er áhættufjárfesting en við teljum þetta vera það mikilvægt að við erum reiðubúnir að leggja þetta á okk- ur.“ Þeir sem fjár- festu í Arðvis fengu hins vegar ekki arð af fjárfestingu sinni og sáu ekki peningana sína aftur. Einn þeirra var Ólafur Stefáns- son handboltamaður, sem setti um tíu millj- ónir króna í verkefnið. Ólafur sagði hins vegar að hann teldi litlar líkur á að Arðvis myndi ganga upp en að hann hefði litlar áhyggjur af því. „Það eru 99 prósent líkur á að þetta sé rugl,“ sagði Ólafur. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Félagið á ákveðna afurð sem það er að vinna við Setti peninga í Arðvis Ólafur Stefánsson handboltakappi setti peninga í Arðvis, ásamt meira en 100 öðrum Íslendingum. Hann sagði þó 99 prósent líkur á að starfsemin væri rugl. Mynd SIgtryggur ArI Arðvis enn starfandi Lögmaður Arðvis, og Bjarna Þórs Júlíussonar, segir að fyrirtækið sé enn þá starfandi. Bjarni Þór var ákærður fyrir fjárdrátt í lok maí. Hrottaleg árás á barnsmóður 29 ára gamall maður ákærður fyrir stórfellda árás R íkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 29 ára göml- um manni fyrir sérstaklega hættulega, stórfellda líkams- árás, en honum er gefið að sök að hafa ráðist hrottalega á barnsmóður sína og fyrrverandi sambýliskonu. Konan er 38 ára og varð fyrir árás á bílastæði norðan við Perluna að- faranótt þriðjudagsins 7. maí í fyrra. Hún sat í farþegasæti á gráum Volkswagen Passat þegar veist var að henni, en manninum er gefið að sök að hafa, að því er í ákæru seg- ir, „brotið framrúðu bifreiðarinnar farþegamegin og slegið [konuna] ít- rekað í andlitið“. Í kjölfarið er hann sakaður um að hafa opnað dyrnar bílstjóramegin, dregið konuna úr bílnum og ýtt henni upp að honum, þar sem hann sló hana ítrekað í and- lit og höfuð. Lét hann ekki þar við sitja sam- kvæmt ákæru, heldur hrinti henni í jörðina og sparkaði „ítrekað í höfuð hennar og líkama“ þar sem hún lá í jörðinni. Alvarlegir áverkar Áverkar konunnar voru miklir eftir árásina. Hún hlaut mar og blæðingu við hvirfil og aftan á hnakka, sprung- ur á efri og neðri vör, bólgur og eymsli yfir nefi, eymsli undir vinstri kinnboga og yfir hægri kjálkalið. Þá var hún með punktblæðingar á baki, mar við vinstra herðablað, á hægri síðu og framan á vinstri sköflungi, og eymsli yfir vinstri ökkla og á hægra læri. Allt að sextán ára fangelsi er við brotum af þessu tagi. Konan gerir einnig einkaréttarkröfu í málinu og krefst þess að maðurinn greiði sér 800 þúsund krónur í miskabætur. n Stórfelld árás Árásin átti sér stað á bílastæði norðan við Perluna. Mynd SIgtryggur ArI Ræningjar á vespu Um miðnætti í nótt var kona rænd veski sínu af pari sem ók á vespu framhjá henni. Greip ann- að þeirra í veskið og hélt kon- an fast í það sem olli því að hún dróst eftir gangstéttinni í nokkra stund. Í kjölfarið sleppti hún tak- inu. Gerendur hafa ekki verið fundnir og konunni var ekið á slysadeild til aðhlynningar, sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Féll milli skips og bryggju Neyðarlínunni barst tilkynning á fimmtudag vegna manns sem hafði fallið milli skips og bryggju í Reykjavíkurhöfn. Að sögn vitnis sem ræddi við DV ætlaði maður- inn, sem var ölvaður, að fara um borð í skip þegar hann hrasaði í þrepi neðst í landganginum, með þeim afleiðingum að hann féll í sjóinn. Fallið var töluvert þar sem fjara var þegar atvikið átti sér stað. Að sögn vitnisins var mað- urinn með gat á höfði og sár á handlegg. Manninum var bjarg- að mjög fljótlega eftir fallið og var hann fluttur í sjúkrabíl á slysa- deild. Þær upplýsingar fengust hjá slökkviliðinu á höfuðborgar- svæðinu að maðurinn hefði ekki slasast alvarlega „en væri eitt- hvað lemstraður“. Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.