Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Síða 10
Helgarblað 27.–30. júní 201410 Fréttir
Bóndi ákærður vegna
lamba á hans eign
n Lögreglan fann lömbin á landareigninni n Þjófnaði ekki lýst í kæru
F
rístundabóndi frá Akra-
nesi var ákærður síðasta
haust fyrir stuld á lamb-
hrút og tveimur lömbum
frá tveimur bændum í ná-
grenninu. Ákæran sem mannin-
um barst er undarlega orðuð, því
ekki er tilgreint nákvæmlega með
hvaða hætti maðurinn á að hafa
stolið kindunum eða nákvæmlega
hvenær. Kindurnar fundust í beit-
arhólfi sem maðurinn hefur til um-
ráða fyrir utan Akranes, en í báð-
um tilvikum fundu lögregluþjónar
kindurnar eftir ábendingar sem
þeim bárust. Í kærunni er því hins
vegar ekkert lýst hvernig verknað-
urinn á að hafa verið framinn.
Svo virðist sem lögreglan áætli
að þar sem kindurnar fundust á
landareign mannsins þá hafi hann
stolið þeim. Samkvæmt heimildum
DV þvertók maðurinn fyrir að hann
hefði stolið lömbunum við skýr-
slutöku hjá lögreglunni og sagði
greinilegt að einhver væri að koma
á hann sök.
Deildu um lömb
Ástæðu þess má rekja til deilna um
fé sem frístundabóndinn hafði feng-
ið að koma fyrir hjá öðrum bóndan-
um sem hann er nú ákærður fyrir
að hafa stolið frá, samkvæmt heim-
ildum DV. Sá síðarnefndi hafði boð-
ist til að vista féð og bauð frístunda-
bóndinn honum hluta sláturverðs
en bað sérstaklega um að lömb
þeirra áa sem voru í eigu barna
hans og ættingja yrðu ekki lögð inn.
Bóndinn ákvað hins vegar að marka
lömb frístundabóndans með sínu
marki og lagði þau nánast öll inn á
sínu nafni. Umræða um þetta spratt
upp meðal sveitunga mannanna
og var bóndinn orðaður við sauða-
þjófnað. Frístundabóndinn stend-
ur í þeirri trú að nú ætli bóndinn að
hefna sín með því að varpa sökinni
á hann.
Meintum þjófnaði ekki lýst í kæru
Sem fyrr segir er ákæran nokk-
uð óskýr hvað sakargiftir mannsins
varðar. Hann er sakaður um þjófn-
að, en ekki er sagt hvernig hann á
að hafa staðið að því. Annars vegar
segir að hann hafi stolið einni sauð-
kind um sumar eða haust árið 2011
en lögreglan fann hrútinn á landar-
eign hans í nóvember sama ár. Engin
nákvæmari dagsetning er gefin upp.
Hafði þá eldra fjármark manns-
ins verið sett í eyra lambsins. Sam-
kvæmt heimildum DV heldur mað-
urinn því fram að plastmerkið hafi
verið fengið af lambi sem hafi fund-
ist dautt í skurði, en hann bað þann
sem fann lambið að festa merkið á
girðingu á hans eign. Hann hafi svo
aldrei fundið merkið, því einhver
hafi tekið það og notað síðan til að
láta líta út fyrir að hann hefði stolið
lambinu.
Misdró lamb inn á tún
Hins vegar er maðurinn kærður fyr-
ir að hafa stolið tveimur sauðkind-
um frá bóndanum, sem var orðaður
við sauðaþjófnað líkt og greint er frá
fyrr í fréttinni. Það á að hafa gerst um
sumar eða haust árið 2012 en lög-
reglan fann kindurnar á landareign
mannsins í september sama ár. Sam-
kvæmt heimildum DV útskýrir mað-
urinn þetta með þeim hætti að hann
hafi misdregið lamb inn á tún hjá sér.
Þegar það hafi uppgötvast hafi hann
ætlað að hafa samband við bóndann
sem hann náði þó aldrei í. Um hitt
lambið vissi maðurinn ekkert hvern-
ig það komst á landareign hans, en
það er ekki útskýrt heldur í kærunni.
Önnur undarlega kæran
Málið er ekki hvað síst forvitni-
legt fyrir þær sakir að nýlega var
greint frá öðru dómsmáli sem kem-
ur til vegna ákæru frá sýslumann-
inum í Borgarnesi, Stefáni Skarp-
héðinssyni. Nýlega greindi DV frá
ákæru embættisins á hendur Sverri
Þór Einarssyni, sem setti upp skilti
á landareign sinni sem á stóð „No
trespassing“. Á skiltinu kom einnig
fram að óboðnir gestir yrðu skotn-
ir. Sverrir sagði þetta grín og skiltið
saklaust, en hann var engu að síð-
ur ákærður fyrir hótanir og að valda
þeim sem myndi sjá skiltið ótta um
líf, heilbrigði eða velferð sína. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Lambaeyru
Ljósrit af eyrum
lambsins sem
markið var sett
í er meðal þess
sem lögreglan
leggur fram sem
gögn í málinu.
Kindur Lögreglan fann lömbin á
landareign frístundabóndans og
ákærir hann fyrir þjófnað, án þess
að lýsa því hvernig hann á að hafa
stolið þeim. MynD SigtRygguR ARi
Sjaldan jafn bjartsýnir
Væntingavísitala Gallup ekki verið hærri síðan í febrúar 2008
Í
slendingar hafa ekki verið jafn
bjartsýnir síðan fyrir hrun ef marka
má væntingavísitölu Gallup fyrir
júnímánuð sem birt var á dögun-
um. Vísitalan hækkaði um rúm 18 stig
milli maí og júní og mælist nú 101,8
stig. Þegar vísitalan er yfir 100 stig-
um eru fleiri neytendur bjartsýnir en
svartsýnir.
Fjallað er um málið á vef Grein-
ingar Íslandsbanka en þar segir að
þetta sé hæsta gildi væntingavísi-
tölunnar síðan í febrúar 2008. Í vísi-
tölunni er tekið tillit til þátta eins og
væntinga neytenda til efnahags- og
atvinnuástands þjóðarinnar.
Í frétt á vef Greiningar kemur fram
að allar undirvísitölur hækki í júní
frá fyrri mánuði. Mest hækkar mat
neytenda á efnahagslífinu, eða um
33 stig, en sú vísitala mælist nú 96,8
stig sem er hæsta gildi þeirrar vísi-
tölu frá því í janúar 2008. Næstmest
hækkar undirvísitalan sem mælir
mat neytenda á núverandi ástandi,
eða 26 stig, og mælist sú vísitala nú
65,6 stig sem er hæsta gildi henn-
ar frá því í september 2008. Mat á at-
vinnuástandinu hækkar einnig tölu-
vert, um 18 stig, sem og væntingar til
aðstæðna eftir 6 mánuði, um 13 stig.
Mælist fyrrnefnda vísitalan 103,9 stig
og sú síðarnefnda 126,0 stig.
Þá birtir Capacent Gallup einnig
samhliða væntingavísitölunni niður-
stöður úr ársfjórðungslegum mæling-
um sínum á fyrirhuguðum stórkaup-
um neytenda. Hækkar vísitalan fyrir
fyrirhuguð stórkaup lítillega á milli
mælinga, eða um eitt stig, og mælist
nú 59,1 stig. Um er að ræða hæsta
gildi hennar frá því í september 2008.
Þetta þýðir að íslenskir neytendur eru
líklegri til þess að ráðast í stórkaup nú
en þeir hafa verið frá hruni, en stór-
kaupavísitalan mælir hversu líklegir
neytendur eru til þess að festa kaup
á húsnæði eða bifreið á næstu sex
mánuðum, eða ferðast til útlanda á
næstu tólf mánuðum. n
Bjartsýni eykst Landinn er bjartsýnni en
oft áður ef marka má væntingavísitölu Gallup.
Lamdi konu
og hús
Stuttu eftir miðnætti, aðfaranótt
fimmtudags, var lögreglunni til-
kynnt um líkamsárás sem varð
við Hverfisgötu. Þar veittist mað-
ur í mjög annarlegu ástandi að
ungri konu.
Maðurinn lamdi í hús við
Hverfisgötu að utan. Er konan,
sem er íbúi í húsinu, fór til dyra
sagðist maðurinn vera að leita að
einhverjum sem hafi búið í hús-
inu. Er honum var tjáð að við-
komandi búi ekki þar brást hann
ókvæða við og réðst að henni. Í
kjölfarið hljóp hann í burtu.
Maðurinn var handtekinn
skammt frá og vistaður í fanga-
geymslu á meðan ástand hans
lagast. Maðurinn var einnig með
ætluð fíkniefni í vasanum.
Endurráðinn
bæjarstjóri
Ný bæjarstjórn tók við stjórnar-
taumunum í Grindavík hinn 19.
júní síðastliðinn en á fyrsta fund-
inum var ákveðið að endurráða
Róbert Ragnarsson sem bæj-
arstjóra Grindavíkur. Róbert er
því annar faglegi bæjarstjórinn
sem ráðinn er í sveitarfélagi á
Suðurnesjum á þessu nýja kjör-
tímabili. Ráðningarsamning-
ur við Róbert var lagður fram til
staðfestingar og hann samþykkt-
ur af öllum bæjarfulltrúum. Þetta
er annað kjörtímabilið sem Ró-
bert verður bæjarstjóri í Grinda-
vík en þar áður gegndi hann
sömu stöðu í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Á sama bæjarstjórn-
arfundi var kosið í ráð og nefndir
auk þess sem bæjarstjórn skipti
með sér verkum.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Flísasagir og -skerar
Drive LG3-70A
1800W flísasög
86x57cm borð
kr. 139.900
Drive LG4-570A
800W flísasög
79x39cm borð
kr. 39.900
Drive DIY 430mm flísaskeri
kr. 3.990
Drive DIY 500mm flísaskeri
kr. 8.990
Drive Pro
600mm flísaskeri í tösku
kr. 21.990
Drive Pro
600mm flísaskeri
kr. 14.990