Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 16
Helgarblað 27.–30. júní 201416 Fréttir S igurður setti mig í andlegt fangelsi. Hann tók upp mynd- band af mér, fullt af nekt- armyndum. Ég er búinn að kæra hann og hann verður dæmdur fyrir það ásamt fleiri glæp- um. Líka bara fyrir andlegt ofbeldi og hótanir í garð fjölskyldu minnar,“ seg- ir ungur karlmaður í samtali við DV. Hann hefur kært Sigurð Aron Snorra Gunnarsson fyrir ærumeiðingu ásamt öðru en hann segir að Sigurður hafi sent skjáskot af samförum þeirra tveggja á núver- andi kærustu karlmannsins. Sigurður situr inni í fangelsinu á Akureyri fyr- ir ýmsa glæpi en Hæstiréttur staðfesti á dögunum átján mánaða fangelsis- dóm á hendur honum fyrir að hafa tælt ungling til kynmaka með gjöfum, fjárstuðningi og loforðum um pen- inga. Samkvæmt lögmanni manns- ins er Sigurður til rannsóknar vegna misneytingar og hótana gagnvart karlmanninum og virðist málið að mörgu leyti keimlíkt því sem hann var dæmdur fyrir í Hæstarétti. Búið er að skipa karlmanninum réttargæslu- mann, Guðrúnu Sesselju Arnar- dóttur, og segir hún í samtali við DV að málið sé enn í rannsókn. Hún var þó ekki reiðubúin til að skýra málið enn frekar. Sendi skjáskotið í reiðikasti Í samtali við DV segir Sigurður að karlmaðurinn hafi verið kærasti sinn og hann hafi sent skjáskot af kynlífs- myndbandi ásamt ástarbréfum frá karlmanninum til foreldra núverandi kærustu karlmannsins í reiðikasti. Sigurður segir sömuleiðis að hann hafi kært Baldur Frey Einarsson, einn helsta leiðtoga trúarsafnaðarins United Reykjavík, fyrir hótanir í sinn garð vegna málsins. Karlmaðurinn segir að Baldur Freyr hafi ekkert gert nema styðja við bakið á sér og hjálpa sér að verða edrú. Sigurður heldur því jafnframt fram að karlmaðurinn hafi verið „af- hommaður“ af meðlimum United Reykjavík. Ólafur Haukur Ólafsson, stofnandi United Reykjavík og for- stöðumaður Draumasetursins , segir í samtali við DV að það sé fjarri lagi að „afhommun“ eigi sér stað í Drauma- setrinu. „Það eru allir velkomnir til okkar,“ segir Ólafur. „Hann býr í sínum eigin heimi“ Ungi karlmaðurinn segir í samtali við DV að því fari víðs fjarri að hann hafi verið kærasti Sigurðar. „Nei, hann var langt frá því að vera kærasti minn. Það er bara það sem hann heldur. Hann er bara búinn að ímynda sér það í eigin haus. Hann býr í sínum eigin heimi. Ég er ekki samkynhneigður og hef aldrei verið samkynhneigður,“ segir maðurinn. Að hans sögn hafa samskipti þeirra tveggja verið skelfileg fyrir sig og fjarri lagi eðlileg. „Mín samskipti af honum í gegnum tíðina hafa verið ömurleg. Hann reyndi að einangra mig frá öllu lífinu mínu. Hann hótaði öllum ætt- leggnum mínum. Hann hótaði meira að segja fjölskyldum vina minna. Hann er raunveruleikaskertur. Hann á bara að sitja inni í fangelsi,“ segir hann. Spurður um hver aðkoma Baldurs Freys sé að málinu segir hann að Baldur Freyr hafi hjálpað sér gíf- urlega. „Eina sem Baldur Freyr hefur gert er að hjálpa mér að koma til trúar og losa mig við svona ógeðsfólk eins og hann Sigurð.“ „Andlegt fangelsi“ Karlmaðurinn segir að brot Sigurðar gegn sér séu margþætt. „Hann braut á mér, margfalt. Ég er að kæra hann fyrir brot á friðhelgi, hótanir og áreiti. Það á eftir að koma í ljós hvað hann verður kærður fyrir meira. Það er enn þá í rannsókn. Hann hótaði því að taka fjöl- skylduna mína. Hann hótaði því alltaf að senda menn á systur mína. Hann sendi menn til vina minna og foreldra vina minna. Þetta var bara geðbilun,“ segir karlmaðurinn. Hann segist ekki vita hvaða menn þetta voru en telur að Sigurður hafi greitt þeim fyrir heimsóknirnar. Nektarmyndirnar á netinu Hann segir að tilgangur Sigurðar með því að senda nektarmyndirnar hafi verið til að reyna að stía honum og kærustu hans í sundur. „Ég kom bara hreint fram við kærustuna mína og sagði henni hvernig þetta er búið að vera,“ segir maðurinn. Hann segir að auk þessa hafi Sig- urður sett skjáskot af myndbandinu á netið. „Það er búið að vera mjög erfitt síðan þessar myndir fóru á netið, hatrið frá fólki sem kom að mér út af þessu. Það er bara rosalegt. Þessi mynd er bara komin út um allt net. Löggan er með þetta allt,“ segir karl- maðurinn. Segir Baldur hafa hótað sér Á sama tíma og Sigurður hefur ver- ið kærður fyrir ýmis brot hefur hann kært Baldur Frey til lögreglu fyrir hót- anir í sinn garð. DV hefur undir hönd- um Facebook-samskipti þeirra á milli þar sem Sigurður telur að hótanir í sinn garð komi fram. „Ef þú sendir mér eða [karlmann- inum innsk. blm.] eitthvað meira þá mun ég bregðast enn frekar við [...] Haltu þig í fjarlægð. Ef þú reynir að fá einhverja til að gera eitthvað við einhvern þá mun ég bregðast enn þá harðar við,“ skrifar Baldur Freyr. Þetta segist Sigurður skilja sem hótun. Outlaws-meðlimur kominn í málið Áður en leið á löngu var Kristján Hall- dór Jensson, margdæmdur ofbeldis- maður og meðlimur í Outlaws, kom- inn í málið. Í samskiptum Sigurðar og Baldurs segir hinn síðarnefndi að Elvis verði milligöngumaður, en þar á hann við Kristján. Kristján tók þátt í líkamsárás árið 2007 þar sem fingur var klipptur af fórnarlambinu. Hann var seinast dæmdur árið 2012 vegna skotárásarinnar í Bryggjuhverfi. „Ég hef þurft að standa í ströggli svo þú verðir ekki jarðsettur,“ skrif- aði Kristján hins vegar Sigurði á Face- book vegna málsins. Í upphafi sam- skipta þeirra á milli telur Kristján að Sigurður hafi haft í hótunum við Bald- ur. Sigurður biður Kristján að skoða málið betur og virðist niðurstaða vera sú að Kristján ætli að gera það. Hótaði að kæra til lögreglu Karlmaðurinn segir að þessi meinta hótun Baldurs Freys hafi eingöngu snúist um að Sigurður yrði kærður til lögreglu ef hann hætti ekki að of- sækja sig. „Baldur Freyr hjálpaði mér að opna augun og þá sá ég hvað ég var búinn að láta gera mér sjálfum, hvað ég var búinn að láta bjóða mér upp á. Hann var ekkert að hóta Sigurði neitt. Hann hótaði því að ef hann hætti þessu ekki yrði kært. Ég ætlaði ekkert að kæra en ég fann bara hvern- ig ég þurfti að gera það til að fá mitt uppgjör gagnvart lífinu,“ segir karl- maðurinn. Hræddur um öryggi sitt Í samtali við DV tekur Baldur Freyr í sama streng og karlmaðurinn. Eina hótunin sem felst í þessum orðum sé að Sigurður verði sóttur til saka. „Ég er búinn að tala við lögregluna út af þessu. Þetta fellur náttúrlega um sig sjálft. Meinta hótunin snýst náttúr- lega bara um það að [karlmaðurinn] leiti réttar síns ef hann láti hann ekki í friði,“ segir Baldur Freyr. Hann segir að karlmaðurinn hafi leitað til sín þar sem hann hafi verið hræddur um ör- yggi sitt og þannig hafi samskipti sín við Sigurð hafist. Kæran kúgunaraðferð Baldur Freyr segist ekki hafa feng- ið frið frá Sigurði frá því hann ræddi við hann fyrst. „Núna er hann bara að reyna að draga mig inn í þetta. Hann segir við mig að hann dragi kæruna á mig ekki til baka nema [karlmað- urinn] dragi til baka kæruna á hann. Það eru skilaboðin sem ég fékk. Þetta er bara kúgunaraðferð sem hann er að reyna að nota á mig. Ég ætla nú ekki að taka þátt í þessu, ég svara honum ekki lengur. Ég er búinn að tala fjórum sinnum við fangelsismálastofnun út af þessu. Það var aldrei hægt að stoppa þetta, sem mér finnst skrítið,“ segir Baldur Freyr. Hann segir auk þess skrítið að Sigurð- ur geti sent hótanir í tölvupósti innan úr fangelsi. Hótaði að senda Outlaws Hvað varðar innkomu Kristjáns Hall- dórs að málinu segir Baldur Freyr það hafa snúist um að Sigurður hafi hót- að að senda Outlaws á karlmanninn. Því hafi Baldur Freyr hringt í Kristján, sem hann þekkir frá fornu fari, og spurt hvort það væri fótur fyrir því. „Ég spurði Elvis bara hvort það væri rétt að þeir ætluðu að fara að hjálpa Sigurði að níðast á honum. Hann sagði að það væri bara tóm vitleysa. Hann notar þetta til að níðast á fólki, að byggja upp einhvern ótta sem er ekki fótur fyrir,“ segir Baldur Freyr. n n Rannsakaður vegna misneytinga og hótana n Hótaði að senda Outlaws út af örkinni Sendi myndir „Þessi mynd er bara komin út um allt net Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Ég ætlaði ekk- ert að kæra en ég fann bara hvernig ég þurfti að gera það til að fá mitt uppgjör gagnvart lífinu. af nöktu Fangi Hæsti- réttur staðfesti nýverið dóm yfir Sigurði Aroni Snorra Gunnarssyni en hann var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa tælt ungling til kynmaka. fórnarlambi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.