Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 20
Helgarblað 27.–30. júní 201420 Fréttir
Afsalaði sér jörð til
fyrirtækis Kleópötru
n Staða Gunnars Majoness var traust en fyrirtækið er nú gjaldþrota n „Búið að rústa félagið“
H
elen Gunnarsdóttir Jónsson,
einn af erfingjum Gunnars
Majoness í Hafnar firði, af
salaði sér í byrjun júní jörð
og húsi á Snæfjallaströnd á
norðanverðum Vestfjörðum til nýs
móðurfélags majonessfyrirtækisins,
Gunnars ehf., en fyrrverandi móður
félag majoness framleiðandans hefur
verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta
kemur fram í afsalinu vegna viðskipt
anna sem dagsett er 2. júní 2014. Eig
andi Gunnars ehf. er Kleópatra Krist
björg Stefánsdóttir, vinkona Helenar,
sem áður var stjórnarformaður og
forstjóri Gunnars en er nú orðinn
eini eigandi fyrirtækisins.
Í afsalinu segir ekkert um kaup
verð eignanna á Snæfjallaströnd
en um er að ræða jörðina Sandeyri
þar sem meðal annars stendur tæp
lega 115 fermetra eyðibýli, byggt
árið 1929, sem nú er í niðurníðslu.
Sandeyri er einna þekktust í Ís
landssögunni vegna Spánarvíganna
svokölluðu árið 1615 en þá réðst Ari
Magnússon, sýslumaður í Ögri, að
hvalveiðimönnum frá Baskalandi,
sem komið höfðu til Íslands til veiða,
og myrti þá þar sem þeir voru við
hvalskurð. Sandeyri hefur verið eyði
jörð frá miðri síðustu öld en Gunn
ar Jónsson, stofnandi Gunnars Majo
ness, hafði keypt jörðina árið 1984.
Til stóð að gera upp húsið
DV hefur heimildir fyrir því að Helen
hafi ætlað sér að gera upp húsið á
Sandeyri fyrir nokkrum árum. Af því
varð hins vegar ekki og hefur hún
ekki nýtt jörðina með neinum hætti.
„Þetta hús er alveg ónýtt, algjörlega
ónýtt. Hugsanlega væri hægt að nota
útveggina ef maður vildi gera þetta
upp,“ segir einn af heimildarmönn
um DV um húsið á Sandeyri.
Ekki felast því mikil verðmæti
í húsinu sjálfu en jörðin er á mjög
fallegum stað utarlega á Snæfjalla
ströndinni þar sem beygt er upp
á Snæfjallaheiðina til að ganga
yfir til Grunnavíkur. Hægt væri að
reisa sumarhús á þessum fallega
en napur lega stað en fá heilsárshús
er að finna svo norðarlega á Vest
fjörðunum enda lagðist byggð af á
flestum stöðum um og eftir síðustu
aldamót.
Góð staða við fráfall Gunnars
Þegar Gunnar Jónsson féll frá árið
1998 var staða Gunnars Majoness
afar góð. Það var stofnað árið 1960 og
hafði Gunnar rekið það alla tíð. Fyrir
tækið átti mikið af peningum í lausa
fé og sömuleiðis jarðir og fasteignir,
segir einn heimildarmaður DV. „Fyr
irtækið stóð frábærlega þegar karl
inn dó. Það átti tugi ef ekki hundruð
milljóna inni á bankareikningi, fast
eignir og jarðir úti um allar grund
ir. Þetta er í grunninn æðislegt fyrir
tæki.“ Ein af eignunum sem Gunnar
átti þá persónulega var jörðin Sand
eyri á Snæfjallaströnd.
Eftir að Gunnar féll frá byrjaði
hins vegar að harðna á dalnum og
reksturinn var ekki eins góður. Eftir
lifandi eiginkona hans, Sigríður
Regína Waage, og dætur hans, Helen
Gunnarsdóttir Jónsson og Nancy
Ragnheiður Jónsson, urðu hluthafar
félagsins í kjölfarið og höfðu boð
vald yfir því. Í lok árs 2011 átti Sig
ríður Regína 32 prósent í fyrirtæk
inu, Nancy átti 40 prósent og Helen
28 prósent. Þá námu eignir félagsins
tæplega 113 milljónum króna en eig
infjárstaðan – eignir mínus skuldir –
var neikvæð um tæplega 52 milljón
ir króna. Staða félagsins leit því ekki
sérstaklega vel út þá en félagið hafði
þó skilað hagnaði upp á tæpar 11
milljónir króna það ár.
„Búið að rústa félagið“
Í viðtali við DV í ársbyrjun 2013, þar
sem fjallað var um málefni Gunnars,
sagði einn af heimildarmönnum DV.
„Það er bara búið að rústa félagið.
Það er ekkert flóknara en það.“
Í þeirri umfjöllun kom fram að
þær Helen og Nancy væru með pró
kúruumboð fyrir Gunnars Majones
sem eigendur og stjórnarmenn.
Kleópatra var hins vegar skráð fram
kvæmdastjóri. Heimildir DV á þeim
tíma hermdu að meðal þess sem
gerst hefði í rekstri Gunnars árið
2011 væri að fyrirtækið hefði skuld
að hluthöfunum háar fjárhæðir sem
teknar voru út úr félaginu á árunum
2008 til 2011.
Í ársreikningum félagsins sést að
árið 2008 námu þessar skuldir tæp
um 80 milljónum króna, tæplega 30
milljónum árið 2009 og nærri sex
milljónum árið 2010. Árið 2011 voru
skuldirnar komnar niður í núll og má
því áætla af þessu að búið hafi verið
að greiða þessar 80 milljóna króna
skuldir niður á þessum fjórum árum.
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hvernig Gunnars Majones stofnaði
til þessara skulda við hluthafana.
Nýr eigandi – ný kennitala
Gunnars Majones er orðið gjald
þrota, líkt og áður segir, og heitir í
dag GM framleiðsla ehf. Sú kennitala
er frá árinu 1969. Í staðinn er nýtt fé
lag, áðurnefnt Gunnars ehf., tekið
við rekstrinum með kennitölu frá
því í ár. Það fyrirtæki er alfarið í eigu
Kleópötru Kristbjargar Stefánsdóttur
sem áður var stjórnarformaður og
síðar forstjóri Gunnars Majoness
áður en félagið varð gjaldþrota. Nýr
forstjóri félagsins heitir Hugrún Sig
urðardóttir.
Í stjórn nýja félagsins situr enginn
af fyrrverandi hluthöfum Gunnars
Majoness heldur er Kleópatra Krist
björg stjórnarformaður og aðrir
stjórnarmenn eru Grétar Leifsson
og Loftur Már Sigurðsson. Aðkoma
Kleópötru að Gunnars Majonesi hef
ur vakið nokkra athygli síðustu ár
en hún kom inn í fyrirtækið í gegn
um vináttu sína við þær systur og
eigendur Gunnars, Nancy og Helen,
og varð stjórnarformaður og síðar
forstjóri fyrirtækisins. Meðal annars
var hún á launaskrá sem stjórnarfor
maður og síðar einnig sem forstjóri
jafnvel þótt bein aðkoma hennar að
rekstrinum væri takmörkuð. Nú er
Kleópatra orðin eini eigandinn.
Hvernig áttu eigendaskiptin
sér stað?
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hvernig eigendaskiptin á rekstrarfé
lagi Gunnars Majoness áttu sér stað.
Blaðið hefur gert árangurslausar til
raunir til að ná í þær systur, Helen
og Nancy, og eins móður þeirra, og
Kleópötru til að fá upplýsingar um
það. Ljóst má þó vera, út frá stöðu
félagsins í árslok 2011, að skuld
ir eru enn til staðar á gömlu kenni
tölunni þar sem fyrirtækið hefur nú
verið úrskurðað gjaldþrota.
Að hversu miklu leyti nýja rekstr
arfélagið, Gunnars ehf., yfirtekur
hluta þessara skulda er ekki hægt
að segja til um á þessari stundu
þar sem félagið er nýstofnað og
ársreikningur þess liggur ekki fyr
ir auk þess sem DV hefur ekki náð
tali af systrunum, móður þeirra eða
Kleópötru. Hins vegar verður að
segjast að það er nokkuð sérstakt að
forstjóri fyrirtækis eignist það fyr
ir gjaldþrot móðurfélags þess og að
fyrri eigendur séu ekki í hluthafa
hópi nýja móðurfélagsins né í stjórn
þess.
Fasteignir í öðru félagi
Landsbankinn hefur í gegnum tíð
ina verið helsti viðskiptabanki
Gunnars. Afar ólíklegt verður að
teljast að nýr eigandi hefði getað
tekið við rekstri Gunnars Majoness
án samþykkis Landsbankans.
Landsbankinn á meðal annars
veð í fasteignunum þar sem starf
semi Gunnars fer fram, nánar til
tekið húsnæðinu að Dalshrauni 7 í
Hafnarfirði og einnig í skrifstofuhús
næði í Borgartúni 28. Þessar eignir,
sem eru tugmilljóna virði, eru hins
vegar ekki hluti af eignasafni rekstr
arfélags Gunnars Majoness, hvorki
kennitölunni sem farin er í þrot né
kennitölu félagsins sem tekið er við
rekstrinum, heldur eru þær inni í fé
laginu Sandeyri ehf. Athygli vekur
að félagið ber sama nafn og jörðin
á Snæfjallaströnd sem Helen afsal
aði sér til nýja rekstrarfélags Gunn
ar Majoness.
Eigendur þessa fasteignafélags
eru enn þá erfingjar Gunnars Jóns
sonar, þær Sigríður Regína, Nancy
og Helen. Eftirlifandi eiginkona
Gunnars Jónssonar á hins vegar að
eins tíu prósent í félaginu á móti 90
prósentum sem skiptast jafnt á milli
þeirra systra.
Rekstrarfélag Gunnars Majoness,
sem er í eigu Kleópötru Kristbjargar,
er því leigutaki hjá fasteignafélagi í
eigu fyrrverandi eigenda félagsins.
Systurnar hafa hins vegar eigenda
vald til að skuldbinda Sandeyri ehf.
og eftir atvikum selja eignir félags
ins.
Einbýlishús og sveitabær
til Helenar
Samkvæmt skjali sem DV hefur und
ir höndum um eignastöðu Gunnars
Jónssonar þegar hann féll frá, sem
aðgengilegt er í gegnum vef Láns
trausts þar sem um opinbert skjal
frá Ríkisskattstjóra er að ræða, skildi
hann eftir sig umtalsverðar eignir,
líkt og áður segir.
Í skjalinu, sem er frá sýslu
manninum í Hafnarfirði og er leyfi
til handa Sigríði Regínu til setu í
óskiptu búi Gunnars Jónssonar, eru
taldar upp eignir eins og tæplega
300 fermetra einbýlishús í Garðabæ,
jörðin Sandeyri, íbúð á Njálsgötu 60
í Reykjavík og sveitabærinn Heiðar
bær í Villingaholtshreppi í Árnes
sýslu auk auðvitað hluta í Gunnars
Majonesi.
Allar þessar eignir eru nú bún
ar að skipta um hendur: Helen er
skráð fyrir einbýlishúsinu og sveita
bænum í Árnessýslu og jörðin á
Snæfjallaströnd og öll hlutabréf í
rekstri Gunnars Majoness eru nú
í eigu Kleópötru Kristbjargar, eft
ir að hafa áður verið í eigu ættingja
Gunnars.
Hvernig stendur á þessum við
skiptum fjölskyldunnar við Kleópötru
Kristbjörgu er enn óljóst. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Dularfull eignaskipti Eignaskiptin á Gunnars Majonesi eru nokkuð dularfull í ljósi þess
að nýi eigandinn er fyrrverandi forstjóri félagsins, Kleópatra Kristbjörg Stefánsdóttir, sem
hefur verið vinkona tveggja fyrrverandi eigenda um árabil.
Nýja fyrirtækið eignaðist jörðina
Nýja móðurfélag Gunnars Majoness, sem er
í eigu Kleópötru Kristbjargar Stefánsdóttur,
eignaðist jörðina Sandeyri á Snæfjalla-
strönd fyrr í þessum mánuði. Helen
Gunnarsdóttir var áður eigandi hennar.