Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 27.–30. júní 20142 Sumarhátíðir Tólf ára strákar dansa við ömmur n Humarhátíðin á Höfn er um helgina n Snýst um fleira en humarinn V ið erum með fjölskyldur sem bjóða heim í garðinn til sín og bjóða upp á súpu,“ segir Kristín Kristjánsdótt- ir, verkefnastýra Humarhá- tíðar á Höfn í Hornafirði, um humar- súpukvöld sem haldið er áður en formleg dagskrá hátíðarinnar hefst. Þar gefst bæjarbúum og gestum tækifæri á að ganga í hús sex fjöl- skyldna og smakka humarsúpu og sækja síðan formlega setningar- athöfn á hátíðarsvæðinu. Óform- leg dagskrá hátíðarinnar hófst í gær, fimmtudag. Humarhátíð er haldin um helgina, 27. til 29. júní, og hefur hún verið haldin frá árinu 1993 und- ir merkjum humars, enda Höfn verið þekkt fyrir veiðar og vinnslu á humri. „Við erum með sérstaka humarrétti á höfninni og svo erum við með sölu- bása með humri á hátíðarsvæðinu,“ segir Kristín sem dæmi um dagskrár- liði tengda humri. Kristín segir markhóp fyr- ir Humarhátíð vera fjölskyld- ur. „Já, við miðum eiginlega allt, nema dansleikina sem eru seint, við að öll fjölskyld- an sé saman til svona ellefu á kvöldin,“ segir Kristín. Frítt er í sund fyrir hádegi, þang- að til dagskrá hefst á daginn, og mælir Kristín með tjald- stæðinu í bænum. Tólf ára strákar að dansa við ömmur Kristín segist fyrst hafa kom- ið til Hafnar frá Reykjavík fyrir þremur árum síðan til þess að vinna á Humarhátíð. Hún segir að henni hafi liðið svo vel í bæn- um að hún hafi ekki farið þaðan síðan. Hún lýsir hrifningu sinni þegar hún fór fyrst á gömludansaball sem er haldið á föstudagskvöldi á há- tíðinni, en á því syngur karlakór með hljómsveit. „Þegar ég sá þetta í fyrsta skipti þá fannst mér þetta yndislegt. Þarna eru tólf ára strákar að dansa við ömmur og karlakór syngur og hljómsveit. Þannig að þetta er alveg ekta gömlu, gömlu,“ segir Kristín. Humarlitaðar gardínur Spurð hvort allir íbúar séu sér- fræðingar í allri matargerð sem snýr að humri er svarið einfalt. „Auðvit- að,“ segir Kristín. Hún segir mikinn samhug ríkja meðal bæjarbúa gagn- vart því að standa vel að skipulagi og umgjörð hátíðarinnar. „Það er búið að skreyta bæinn alveg æðislega og svo er keppni á milli hverfa og veitt verðlaun. Ég var að horfa út um gluggann og það var æðislegt. Það var hús hérna beint hinum megin við skrifstofuna hjá mér og það eru komnar humarlitaðar gardínur fyrir allt. Það heitir að fara alla leið,“ segir Kristín. n erlak@dv.is Skrúðganga Einhverjir mættu klæddir sem humr- ar í skrúðgönguna í fyrra en skrúðgangan er farin á föstudagskvöldi, áður en hátíðardagskrá hefst. Mynd Facebook-Síða HuMarHáTíðar Við höfnina Dagskráin fer með- al annars fram við höfnina á Höfn. Mynd Facebook-Síða HuMarHáTíðar á HöFn Slógu heimsmet Heimsmet í humarloku var slegið í fyrra með 20 metra langri loku. Mynd aðSend Mynd Pottormar Keppt er í kassabílarallíi og má hér sjá afar frum- legan kassabíl. Mynd aðSend Mynd Humarþema Íbúar á Höfn leggja mikinn metnað í að skreyta í humarlitum. Mynd aðSend Mynd „Þannig að þetta er alveg ekta gömlu, gömlu Vinir halda saman partí Rauðasandur Festival er haldin á býlinu Melanesi, en um er að ræða litla tónlistar- og upplif- unarhátíð sem haldin er í nátt- úruperlunni Rauðasandi á Vest- fjörðum dagana 3.–6. júlí. „Við erum nokkrir vinir sem langaði að halda partí úti í sveit. Eftir vel heppnaða prufukeyrslu 2011 var ákveðið að gera Rauðasand Festi- val að árvissum viðburði,“ segja aðstandendur hátíðarinnar. Gestir hátíðarinnar koma með nesti og tjöld og þurfa að búa sig vel enda er allra veðra von á svæðinu. Í fyrra þurfti að aflýsa hátíðinni vegna óveðurs á föstu- deginum, öðrum degi hátíðar- innar. Lögregla og björgunar- sveitir lýstu yfir neyðarástandi en komu öllum sem vildu fyrir í góðri aðstöðu á Patreksfirði þar sem gleðinni var haldið áfram. Var tónleikagestum einnig boðið á tónleika í Reykjavík stuttu síðar og segja má að há- tíðin hafi verið flutt hálfgerð- um hreppaflutningum í borgina. „Það er uppselt á hátíðina og mikil stemning,“ segir Björn Þór Björnsson, einn aðstandenda, en í ár koma meðal annars fram Em- ilíana Torrini, Ylja, Moses High Tower og Lay Low. „Við skiptum tjaldsvæðinu í tvennt, fjölskyldu- svæði og meira stuðsvæði. All- ir sem kunna að meta tónlistina og uppákomurnar sem boðið er upp á og kunna að skemmta sér á fjölskylduvænni hátíð og virða náttúruperluna Rauðasand eru velkomnir,“ segja aðstandendur hátíðarinnar. Þá verður einnig sandkastala- keppni, sem er viðeigandi miðað við staðsetningu, auk þess sem boðið verður upp á jóga, hug- leiðslu á sjálfum sandinum og reipitog enda er hátíðin upplif- unarhátíð í takt við tónlistina. Mynd Hörður SVeinSSon/rauðiSandurFeSTiVal Mynd Hörður SVeinSSon/rauðiSandurFeSTiVal Mynd Hörður SVeinSSon/rauðiSandurFeSTiVal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.