Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Side 36
Helgarblað 27.–30. júní 20148 Sumarhátíðir 6 ráð fyrir útihátíðina Ertu að fara í fyrsta skiptið á úti- hátíð? Njóttu lífsreynslunnar til hins ýtrasta og komdu örugglega heil/l heim aftur með þessum ráðum: Engir miðar = engin útihátíð Þetta hljómar einfalt en stað- reyndin er sú að ótrúlegur fjöldi klikkar á þessu ár hvert. Keyptu miða á hátíðina í tíma. Þú kemst ekki inn á svæðið nema með inn- göngumiða. Pakkaðu létt og pakkaðu rétt Það er freistandi að pakka öllu sem þú gætir mögulega þurft að nota í töskuna en það er hent- ugra að taka að- eins það sem þú nauðsynlega þarft. Mundu eftir lyfjum, blautklútum, tannburstan- um, vatnsflösku, myndavél, eyrnatappa svo þú getir sofið almennilega, svitalyktareyði og sólarvörn. Alls ekki taka eitthvað dýrt með þér eða eitthvað sem má ekki týnast eða skemmast. Svo er alltaf snið- ugt að setja lás á tjaldið. Undirbúðu þig Ef þú ert að fara í fyrsta skipti skaltu lesa þig til um hátíðina, svæðið, reglur og dagskrá. Engar tvær hátíðir eru eins. Þú vilt ekki eyða tíman- um í að þurfa að reka þig á þegar inn er komið. Margir halda því fram að eina reglan á tónlist- arhátíðum sé sú að það séu engar reglur en raunveruleikinn er allt annar. Vertu með löggæslu í liði Gæslan er þarna til að passa upp á öryggi þitt. Virtu reglurnar. Mundu að nærast Hátíð sem haldin er yfir hásum- arið fylgir hætta á sólbruna. Mundu að bera á þig sólarvörn. Annað mikilvægt atriði er að drekka mikið vatn. Merki um ofþorn- un er þreyta, pirringur og hausverkur. Ef þú pissar ekki þrisvar sinnum á dag gæti það verið merki um ofþornun. Þekktu takmörkin Þú átt aldrei eftir að geta séð allt og prófað allt sem er í boði. Fáðu þér kort og dagskrána og merktu það sem þú vilt alls ekki missa af og sjáðu svo til með allt hitt. Ef þú ætlar þér of mikið muntu klára orkuna fljótt. Sama regla á við um áfengisneyslu. Ekki missa af upp- áhaldsbandinu þínu af því að þú drakkst of mikið. V ið teljum ekki fjölda, enda er allt frítt hérna, það er ekkert selt inn á svæð- ið. Við teljum bara bros og erum æðislega ánægð með það,“ segir Davíð Rúnar Gunnars- son, framkvæmdastjóri fjölskyldu- hátíðarinnar Einnar með öllu, sem haldin hefur verið á Akureyri um verslunarmannahelgina frá árinu 2001 en á árunum 1993 til 1999 var haldin hátíðin Halló Akureyri. Eina með öllu sækja ungir sem aldnir ár hvert en að sögn Davíðs er áber- andi hversu margir brottfluttir Akur- eyringar kjósa að leggja leið sína til gamla heimabæjarins þessa helgi. Ein með öllu hefst á svokölluð- um Fimmtudagsfíling, sem eru tón- leikar í umsjón norðlensku sjón- varpsstöðvarinnar N4, sem haldnir eru á sviði við botn Skátagilsins á göngugötunni á Akureyri. Tónleik- arnir eru sýndir í beinni dagskrá á N4. „Það skapast ofboðsleg stemn- ing þar. Þetta eru mörg þúsund manns sem koma og horfa og fylgj- ast með,“ segir Davíð Rúnar um tónleikana. Stjórnin á Sparitón­ leikum Sviðið er síðan fært þaðan yfir á Ráðhústorg, þar sem aðaldagskrá hátíðarinnar fer fram þangað til á sunnu- dag, þegar sviðið er fært á þriðja staðinn í bænum – á flötina fyrir neðan leikhúsið á Akureyri. Þar eru haldn- ir svokallaðir sparitónleik- ar en hljómsveitin Stjórn- in er meðal þeirra sem treður upp á tónleikun- um og ætla meðlimir sveitarinnar að rifja upp gamla Sjallastemningu, að sögn Davíðs Rúnars. Fyrir nokkrum árum var lokahátíðin alltaf haldin á Akureyrarvelli en Davíð segir að gestir hafi verið orðnir það margir að þeir hafi ekki rúmast á vellin- um lengur. Möffins og spyrna Líkt og flestar hátíðir af þessu tagi er markmiðið að þessa helgi geti flest- ir fundið eitthvað við sitt hæfi. Á hátíðinni verður allt frá söngkeppni unga fólksins til mamma og möffins, þar sem seld eru heimagerð möffins til styrktar góðu málefni, til Íslands- meistaramóts í götuspyrnu og Ís- landsmeistaramóts í sandspyrnu, sem Bílaklúbbur Akureyrar heldur. Mikið hefur farið fyrir bílamenningu á Akureyri og þekkja landsmenn allir eflaust til Bíladaga, sem haldnir eru árlega á Akureyri dagana fyrir 17. júní, þar sem fram fara bílasýningar og ýmsar keppnir. Má segja að Akur- eyri sé bílabær Íslands? „Já. Ég segi já, án þess að hökta,“ svarar Davíð Rúnar blaðamanni. „Franskar á milli“ Athygli vekur að á vegg- spjaldi sem er komið út á vegum Einnar með öllu má sjá frasa á borð við „gott veður“, „kók í bauk“, „ein með öllu og rauðkáli“, „franskar á milli“, „berness“, „hér er alltaf sól“ og „sæll vinur“. Spurð- ur segir Davíð ekki um að ræða hljómsveitir eða atriði. „Þetta eru skemmtilegir frasar, akureyrsk- ir frasar sem eru settir þarna inn á milli í djóki,“ en áberandi er hversu margt innfætt tónlistarfólk treð- ur upp yfir helgina. Má þar nefna Óskar Pétursson, Heimi Ingimars- son og Hvanndalsbræður. Leggi fólk leið sína til Akureyrar um versl- unarmannahelgina má því búast við skemmtun að sönnum akur- eyrskum sið. n erlak@dv.is Fimmtudagsfílingur Gestir tylla sér í Skátagilinu og hlusta á ljúfa tóna á opn- unarhátíð Einnar með öllu. Bílabær Íslands n Ein með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgi n Bílamenning einkennir bæinn „Við teljum bara bros Lokahátíð Eins og sannri sumarhátíð á Íslandi sæmir lýkur hátíðardagskrá með veglegri flugeldasýningu. Margmenni Bæjarbúar og gestir fjölmenna á flötina fyrir neðan leikhúsið til þess að hlýða á sparitónleika á sunnudagskvöldinu. Stemning Það er alltaf skemmtilegt að rölta í gegnum miðbæinn og sjá mann og annan á Einni með öllu. E kkert rugl! Annars held ég aldrei aftur Eistnaflug,“ seg- ir Stefán Magnússon, fram- kvæmdastjóri og upphafsmað- ur rokkhátíðarinnar Eistnaflugs, sem haldin verður helgina 10.–12. júlí. Hátíðin er tíu ára í ár og þegar Stef- án horfir yfir farinn veg finnst hon- um hálf ótrúlegt að á fyrstu hátíðinni hafi verið um fimmtíu manns, en að í fyrra hafi tæplega tvö þúsund manns mætt. „Þetta byrjaði allt þegar ég var íþróttakennari í Neskaupstað fyrir tíu árum og mér fannst vanta allt rokk,“ segir hann. Úr varð fyrsta Eistnaflugið sem ár frá ári hefur not- ið vaxandi vinsælda. Það tekur á að skipuleggja hátíð sem þessa og seg- ist Stefán hefja undirbúninginn í ágúst, nokkrum vikum eftir síðustu hátíð. „Akkúrat núna, nokkrum vik- um fyrir hátíðina, þá velti ég því fyr- ir mér hvers vegna ég er eiginlega að þessu,“ segir Stefán en hlær og bæt- ir því við að þetta sé einfaldlega of skemmtileg hátíð til þess að sleppa henni. Augljóst er að spennan magn- ast dag frá degi fyrir hátíðinni. Eistnaflug er samkomuhátíð rokkara og annarra tónlistarunn- enda. Hátíðin vekur ár frá ári mikla athygli vegna þess að gestir henn- ar eru iðulega og upp til hópa bæði dagfarsprúðir og með lítið vesen. Stefán segist brýna það fyrir gestum alla hátíðina að það sé einfaldlega ekki í boði að vera með vesen á há- tíðinni, gestirnir verði að gjöra svo vel og vera til friðs og njóta þess að vera á hátíðinni. „Það verður bara að vera þannig,“ segir hann. Með- al gesta í ár er sveitin Retro Stefson, sem eru gamlir nemendur Stefáns. „Við erum miklir vinir og þau ætla að koma og vera með,“ segir hann. Þá verður hálfgert landslið rokkara á svæðinu, þar á meðal Mammút, Ham, Skálmöld og Brain Police auk rapparanna í Reykjavíkurdætrum. n astasigrun@dv.is „Ekkert rugl“ Eistnaflug verður tíu ára í ár Brjálað en fallegt fjör Það skemmta sér allir fallega á Eistnaflugi, annars verður hátíðin slegin af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.