Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Qupperneq 48
Helgarblað 27.–30. júní 201432 Fólk Viðtal Óttast ekki dauðann V ið Salmann höfum aldrei hist áður en hann heilsar mér í dyragætt sinni af yf- irþyrmandi innileik. Hann slær mig í raun alveg út af laginu. Ég reyni að halda mér svöl- um og formlegum – eins og ég hafði lagt upp með – en hlýlegt viðmót Salmanns bræðir þá grímu af mér á örskotsstundu. Þegar kaffið er tilbú- ið og komið á borðið líður mér eins og við höfum þekkst allt lífið. Við byrjum á byrjuninni. „Hinn 3. júní 1971, þá kom ég hingað til lands. Ég var á leiðinni til Bandaríkjanna til að læra læknisfræði. Ég var búinn með menntaskólann og kominn inn í háskólann í Pennsylvaníu. Það var ódýrast að fljúga hingað með gömlu Loftleiðum og halda síðan áfram til Bandaríkjanna. Svo frétti ég að á Ís- landi væri næga vinnu að fá þannig að ég hugsaði að það væri góð leið til að safna peningum að vera hérna yfir sumartímann,“ segir Salmann og hyggst halda áfram með ævisöguna en er truflaður af eigin síma. „Það er læknirinn, ef ég má svara.“ Hljóðið í símanum er svo hátt stillt að ég heyri samskiptin við lækninn skýrt og greinilega. Hann er að spyrja um tilbeiðslutíma, föstu og aðra tilhögun ramadan-mánað- arins. Salmann er með öll svörin á takteinum en bendir jafnframt á heimasíðu múslima á Íslandi, Islam. is. „Þetta var reyndar bara einhver maður frá Keflavík. Það fer að stytt- ast í ramadan og þá verður maður náttúrulega að fasta 18 tíma á dag.“ Maðurinn í Keflavík er einn fjöl- margra sem tilheyra sístækkandi samfélagi múslima á Íslandi. Í dag eru þeir í kringum 1.500 talsins en þegar Loftleiðaflugvél Salmanns lenti hér fyrir rúmlega 40 árum voru þeir teljandi á fingrum annarrar handar. Enn í sumarfríi Fregnir af vinnuframboði reynd- ust ekki ýktar og það var eins gott því Salmann var einungis með 1.800 krónur í vasanum og enga tryggingu um eitt starf né neitt. „Ég var bara röltandi um á bryggj- unni, nýkominn til landsins, þegar einhver skipstjóri bauð mér vinnu. Ég hafði aldrei séð skip áður. Ég er frá Jerúsalem og við erum langt frá hafinu.“ Sjómannslífið heillaði þenn- an 16 ára strák frá Palestínu upp úr skónum – og borgarlífið líka. „Þetta var mjög gaman þótt þetta hafi vissulega verið erfitt. Reykja- vík var eiginlega alveg eins og Jer- úsalem þegar ég var að alast upp þar. Hér voru í kringum 80 til 90 þúsund manns og allir þekktu alla. Mér fannst þetta mjög kunnugleg og sjarmerandi stemning hér.“ Svo góð var stemningin að sum- ardvölin lengdist örlítið. „Ég hef aldrei komið til Bandaríkjanna“ – um hálfa öld eða svo. „Svona er líf- ið bara. Maður veit ekki hvar maður fæðist eða hvar maður deyr.“ Þetta voru aðrir tímar. Þarna var hann ekki vírus sem holaði samfé- lagið að innan heldur sérvitringur- inn Salmann sem fór vísvitandi á mis við lífsins gæði. „Það var ekk- ert sem heitir fordómar. Ég var til dæmis aldrei hrifinn af svínakjöti eða brennivínsdrykkju. En vinnu- félagar mínir tóku þessu bara vel. Bentu mér reyndar stundum á í gríni að ég væri að fara á mis við gæðafæði og eðalvímu en þeir virtu mína afstöðu. Ef þú ert góður mað- ur þá ert þú góður maður, það var þeirra afstaða og annarra sem ég umgekkst.“ Síðan þá hefur hann fengist við ótalmargt: Unnið sem gröfustjóri, klárað háskólanám í tölvunarfræð- um, eignast vini, kvænst, kennt, opnað verslun, eignast börn, skil- ið, kvænst aftur, eignast fleiri börn og síðar barnabörn, verið trúarleið- Salmann Tamimi kom ekki hingað til lands í leit að betra lífi. Þann draum ætlaði hann að sækja til Bandaríkjanna en fann hann óvart um borð í íslenskum netabát. Eftir fundinn festi hann rætur og hér hefur hann blómstrað í rösk 40 ár. Í vor reið hins vegar fordómaalda yfir Reykjavík – og raunar landið allt – eftir frægt moskuútspil Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur í kosningabarátt- unni í borginni. Að sögn Salmanns skall sú alda af slíkum fítonskrafti á samfélag múslima að margir úr þeirra hópi eru við það að brotna saman. Baldur Eiríksson baldure@dv.is „Það fer að styttast í ramadan og þá verður maður nátt- úrulega að fasta 18 tíma á dag Sjómaðurinn síkáti Salmann Tamimi fann drauminn á Íslandsmiðum. Myndir Sigtryggur Ari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.