Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Page 53
Lífsstíll 37Helgarblað 27.–30. júní 2014
Hætt að drekka
vatn með mat
Samkvæmt breskum sérfræðing-
um ættu börn að drekka vatn
með mat. Í niðurstöðum hóps
næringarsérfæðinga sem vinn-
ur að lausn á offituvanda barna
kemur fram að sykraðir drykk-
ir veita börnum aðeins tómar
kaloríur og að fólk hafi vanist
af því að drekka vatn með mat.
Samkvæmt núverandi staðli
ættu aðeins 11 prósent kaloría
að koma úr sykri en í niðurstöð-
um vinnuhópsins kemur fram
að allir aldurshópar innbyrða
mun meiri sykur. Breski sykur-
framleiðandinn AB Suger gagn-
rýnir niðurstöðurnar og segir
hópinn gera sykur að djöflinum
sjálfum.
Eldri mömm-
ur lifa lengur
Konur sem fæða börn sín eft-
ir þrítugt eru líklegri til að
lifa lengur en aðrar konur ef
þungunin var náttúruleg. Þetta
kemur fram í rannsókn vísinda-
manna í Boston og fjallað er um
í Medical Daily. Þar kemur fram
að konur sem fæða eftir 33 ára
eru tvöfalt líklegri til að ná 95
ára aldri en konur sem eignuð-
ust sín börn fyrir 29 ára. Vísinda-
maður sem stóð að rannsókn-
inni vill ekki að niðurstöðurnar
verði til þess að konur seinki
barnseignum en vonast til þess
að þær verði til þess að samfé-
lagið hætti að gagnrýna konur
sem velji að eignast börn seinna
á ævinni.
Læknar
timburmenn
Með hjálp The IV Doctor geta
íbúar New York djammað fram
á nótt án þess að hafa of mikl-
ar áhyggjur af timburmönnum
morgundagsins. Það er að segja
ef þeir eru tilbúnir til að borga
réttu upphæðina fyrir. Þvagfæra-
fræðingurinn dr. Elliot Nadelson
mætir heim til viðskiptavina og
gefur þeim vökva í æð og lyfja-
kokteil að drekka. Nadelson seg-
ir kúnnahóp sinn samanstanda
af evrópskum prinsessum og
afreksíþróttamönnum en þó að-
allega fólki úr fjármálageiran-
um. „Þetta er engin kraftaverka-
meðferð en ég lofa að þér líður
betur,“ sagði Nadelson við CNN
Money.
Söltuðu lánin og
byggðu sér smáhús
H
jónin Andrew og Gabriella
Morrison fengu leiða af því
að setja þorra ráðstöfunar-
tekna sinna í afborganir af
húsnæði. Þau ákváðu því að
selja og byggja sér færanlegt heimili.
Í kjölfarið stofnuðu þau fyrirtækið og
vefsíðuna tinyhousebuild.com. Þar
er að finna myndir af heimili þeirra
hjóna auk þess sem þau bjóða upp á
kennsluefni um hvernig á að byggja,
einangra og framkvæma hina ýmsu
daglegu hluti í heimili af þessari
stærðargráðu.
Með góðri hönnun, vönduðu
handverki og nægjusemi er hægt að
ná ótrúlega miklu út úr minnstu kof-
um. Kofann keyptu þau á 2,5 milljón-
ir og eyddu um milljón í innréttingar
og innbú. Það tók parið um fjóra
mánuði að byggja heimilið. Parið er
með reynslu af hönnun og smíðum
og því gátu þau leyst verkið sjálf. n
asgeir@dv.is
n Andrew og Gabriellu leiddist afborganir n Veita ráðgjöf á netinu
Skildi og byggði draumahúsið
M
arcy Miller frá Idaho-ríki í
Bandaríkjunum ákvað að
byggja sér draumaheimilið
eftir erfitt uppgjör á húsnæð-
isláni. Marcy skildi við eiginmann
sinn en húsnæðislán þeirra sem var
í vanskilum var gert upp í leiðinni.
Draumaheimli Marcy er heilir 18 fer-
metrar og er auk þess á hjólum.
Það tók Marcy um eitt ár að byggja heimilið
eins og hún vildi hafa það. Hún fékk hjálp frá fag-
fólki en allur efniviðurinn í klæðningar og inn-
réttingar eru endurunnið eða endurnýtt efni.
Marcy Miller notaði aðeins endurnýtt eða notað efni Glæsilegt smáhús Húsið er ekki nema 18 fermetrar.
Baðherbergið Rúmar sturtu, vask og klósett.
Vel nýtt rými Á myndinni má sjá sjónvarps- og afþreyingarhorn, legubekk, borðstofuborð
fyrir tvo, kamínu og inn á baðherbergi.
Litla húsið Það tók hjónin fjóra mánuði að byggja húsið en það
kostaði um fimm milljónir með öllu.
Eldhúsið Þótt húsið sé pínulítið er þar
merkilega rúmgott eldhús að finna.
Allt pláss vel nýtt Húsið er vel hannað og hvert hólf hefur
hlutverk. Þarna má sjá stiga sem liggur upp í hjónaherbergi en hann
er einnig fatahirsla.
Hjónarúmið Er einnig nýtt til afþreyingar
og afslöppunar.
Andrew og Gabriella
Byggðu sitt eigið
draumaheimili og hjálpa
öðrum að gera slíkt hið
sama í gegnum vefsíð-
una tinyhousebuild.com.