Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 54
Helgarblað 27.–30. júní 201438 Lífsstíll Gullfallegir, hreinræktaðir American Cocker Spaniel hvolpar til sölu. Ættbók frá HRFÍ og örmerktir. Verð 150 þúsund krónur. Tilbúnir til afhendingar. Upplýsingar í síma 869 5405 eða á Hamratúnsræktun á Facebook. Heimsendingar­ drónar bannaðir Á síðasta ári vöktu áætlanir net- verslunarrisans Amazon um að hefja heimsendingu á vörum með hjálp svokallaðra dróna mikla athygli. Amazon hugðist koma á fót sendingarþjónustu gegnum net dróna, sem myndu fljúga með pakka viðskiptavina á áfangastað og lenda til dæmis fyrir framan hús þeirra með vöruna. Drónarnir eru litlar fljúgandi þyrlur búnar fjórum hreyflum, en slík tæki hafa notið mikilla vin- sælda síðustu ár en bandarísk flugmálayfirvöld hafa ekki beinlín- is tekið þessari tækninýjung vel. Nú er svo komið að nýr úr- skurður flugmálayfirvalda setur hreinlega blátt bann við notk- un þeirra í því skyni sem Amazon hafði áætlað. Græja sem fullkomnar sveifluna Fyrirtækið Arccos setti nýlega á markað nýja græju sem mun koma golfurum í leit að hinni full- komnu sveiflu að góðum notum. Græjan skrúfast aftan á skaft golfkylfunnar og nemur hún sveiflu kylfingsins mjög nákvæm- lega. Tækið er búið 14 skynjurum sem senda upplýsingar í snjall- síma notandans, sem getur þá skoðað upplýsingar og séð hvað mætti betur fara í högginu. Tækið birtir einnig nytsamlegar upplýsingar á borð við lengsta högg, meðalpútt per holu og fleiri upplýsingar sem gott er að skoða til að glöggva sig á hvar maður get- ur bætt sig. Tækið kostar um 300– 400 bandaríkjadali. G oogle hélt á dögunum sína árlegu I/O ráðstefnu ætl- aða þróendum og öðrum áhugasömum um framtíð fyrirtækisins. Ráðstefnunn- ar er oft beðið með eftirvæntingu, þar sem margir eru spenntir að sjá hvaða tækninýjungar fyrirtækið kynnir til sögunnar það árið. DV tók saman það helsta. Ódýrir snjallsímar Sundar Pichai, yfirmaður Andriod, kynnti á ráðstefnunni Andriod One sem er stýrikerfi eða „platform“ fyrir símaframleiðendur til þess að fram- leiða ódýrari snjallsíma fyrir lönd þar sem fólk hefur minna fé á milli handanna. Samkvæmt Pichai er 1 milljarður virkra snjallsímanotenda í heiminum, 20 milljarðar smáskila- boða eru send á hverjum degi og 93 milljónir sjálfsmynda, eða „selfie“, teknar. Til stendur að auka þennan fjölda til muna. Samræmt útlit Útlit Google á netinu og í Android- stýrikerfinu hefur ekki verið sam- bærilegt hingað til og oft nokkur munur á. Á ráðstefnunni kynntu Google og Android svokallað Mater- ial Design, sem er heiti yfir sameig- inlegt útlit á öllum vígstöðvum. Mun þetta útlit ná yfir allt sem kemur frá Google, hvort sem er tæknivörur eða forrit. Lögð er áhersla á pláss, liti og opið rými. Android L Nýjasta stýrikerfi Android mun heita L og verður það fyrir síma, bíla, spjaldtölvur og sjónvörp. Stýrikerf- ið var kynnt á ráðstefnunni og helstu eiginleikar þess en áætlað er að það verði gefið út seinna á árinu. Líkt og annað mun það falla undir Material Design-útlitið. Frekari samkeyrsla á milli forrita og mismunandi tækja líkt og Google er sífellt að þróa og auðvelda notkun. Eitt af því sem breytist er að yfirlitsmyndin yfir virk smáforrit mun núna líta út eins og spilastokkur og mun innihalda opna glugga á netvafranum líka. Ekki bara einn glugga fyrir vafrann heldur er hægt að fara beint inn í hvern glugga fyrir sig af valmyndinni. Rafhlöðuending Þegar kemur að snjallsímum og öðr- um raftækjum er rafhlöðuending eilíft vandamál. Google hefur sett á laggirnar nýja deild sem heitir Project Volta og er hlutverk henn- ar að fá sem mest út úr hverri raf- hlöðu. Því verður rafhlöðusparnað- ur innbyggður með skilvirkari hætti í Android L en áður hefur verið. Google-snjallúr Samsung og LG hafa sent frá sér snjallúr en núna hefur Google bæst í hópinn og vefmiðlar hafa lofað út- lit og hönnun þess mikið. Google- úrið heitir Moto 360 og er hringlaga, ólíkt hinum tveimur. Það lítur í raun út eins og klassískt úr og þykir létt og meðfærilegt. Úrið kemur á mark- að ytra seinna í sumar en hin tvö eru þegar fáanleg. Andriod í bílinn Andriod L verður einnig fáanlegt fyrir tölvur í bílum og callast Andri- od Auto. Hægt verður að varpa síma- skjánum upp á skjá bíltölvunnar, svara símanum í hátalarakerfinu auk þess sem boðið er upp á GPS- leiðsögn, tónlist og samskipti við Google-forrit. Kerfið er raddstýrt og getur fundið tónlist og heimilisföng eftir raddskipunum. Þessi tækni er ekki beint ný af nálinni en Apple og Microsoft bjóða nú þegar upp á sams konar tækni. Google ætlar sér engu að síður stóra hluti með sínu forriti og hefur gert samninga við Dodge, Chevrolet, Chrysler, Audi og Bentley. Þá hefur Google gert samning við fyrirtæki eins og Spoti- fy, Songza, Pandora og Pocket Casts. Andriod TV Andriod TV er tilraun Google til að ná sjónvarpsstofunni á sitt vald. Um er að ræða svipað kerfi og Apple TV eða Smart TV hjá Samsung. Google býður nú þegar upp á Chromecast sem margir hafa notað með Apple TV. Í gegnum Andriod TV er hægt að streyma efni í sjónvarpið og notast við þekkt smáforrit eins og YouTube og Netflix. Þá verður hægt að spila hina ýmsu leiki einnig í Android TV. Þá mun Google einnig uppfæra Chromecast sem er á stærð við USB- lykil. Í gegnum Chromecast verð- ur til dæmis hægt að varpa öllu úr farsíma eða spjaldtölvu á sjónvarp- ið. Google Fit Google Fit er svarið við Apple Healt- hKit. Um er að ræða smáforrit sem heldur utan um alla líkamsrækt og önnur smáforrit sem því tengjast. Allt saman á einum stað, öll tölfræði og æfingar. Fyrirtæki á borð við Nike vinna með Google að Google Fit. Sýndarveruleiki úr pappír Ein skemmtilegasta tilkynningin, en kannski jafnframt sú furðuleg- asta, var líklega verkefnið Google Cardboard. Verkefnið Cardboard er tilraun Google til að bjóða not- endum upp á ódýra lausn á sýndar- veruleikatækni, sem er mjög vin- sæl um þessar mundir. Til dæmis hefur fyrirtækið Oculus Rift feng- ið mikla umfjöllun, en Facebook keypti það fyrir stuttu á tvo millj- arða bandaríkjadala. Sony kynnti líka nýja vöru sem er í þróun þar, sem kallast Morpheus. Morpheus er tæki líkt og Oculus Rift sem mað- ur setur á höfuðið. Bæði tækin kosta þó skildinginn, að lágmarki 3–400 bandaríkjadali. Að auki þarf að tengja þau við dýran tölvubúnað. En Cardboard-verkefni Google er held- ur annars eðlis. Cardboard byggir á, eins og nafnið gefur til kynna, bylgjupappa sem brotinn er saman og gerður að gleraugum sem svipar til Oculus-tækisins. Í pappann eru svo settar tvær linsur og að lokum er snjallsími notandans festur framan á. Google þróaði svo snjallsímafor- rit sem notandinn ræsir og getur þannig stigið inn í sýndarheim. For- ritið býður upp á útsýnisflug í gegn- um Google earth, þú gætir skoðað Versailles-safnið í Frakklandi eða horft á myndbönd á Youtube líkt og þau væru á risaskjá fyrir framan þig. Hægt er að nálgast leiðbeiningar á vefsíðu Cardboard og búa til sín eig- in sýndarveruleikagleraugu fyrir lít- inn pening – að því gefnu að not- andinn eigi góðan snjallsíma. n Margt nýtt frá Google n Allt það helsta frá Google I/O 2014 n Sýndarveruleikagleraugu úr pappa Moto 360 Er fallegasta snjallúrið hingað til að margra mati. Android TV Stefnir að því að slá út Apple TV, Samsung Smart TV og annað í þeim dúr. Einfalt Sýndarveruleikatæknin þarf ekki að vera dýr eins og pappagleraugun bera með sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.