Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Síða 56
Helgarblað 27.–30. júní 201440 Sport AxArsköft suárez n Skrautlegur ferill Úrúgvæans umtalaða n Er stjórnlaus inni á vellinum 2002 Skallaði dómara Suárez var fimmtán ára þegar hann fyrst stofnaði til illinda á knattspyrnuvellinum. Í leik með Nacional skallaði hann dóm- ara. Hann var síðar staðinn að áfengisdrykkju og var veitt tiltal af þjálfara liðsins. Febrúar 2007 Rautt í fyrsta landsleiknum Luis Suárez spilaði sinn fyrsta landsleik hinn 8. febrúar 2007 í 3-1 sigri gegn Kólumbíu. Þegar 85 mínútur voru liðnar af leiknum fékk Suárez að líta rauða spjaldið. Fyrr í leiknum hafði hann fengið gult spjald og var svo verðlaunaður með öðru gulu spjaldi fyrir kjaftbrúk rétt fyrir leikslok. Mars 2009 Reifst við samherja Suárez var dæmdur í eins leiks bann eftir heiftar- legt rifrildi sem hann átti í leikhléi við liðsfélaga sinn, Albert Luque. Þá greindi á um hvor þeirra ætti að taka aukaspyrnu á hættulegum stað. Júní 2010 Varði með höndinni Þátttöku Suárez á HM í Suður-Afríku lauk fremur snögg- lega. Liðið var komið í 8 liða úrslit og atti kappi við Gana. Í framlengingu varði Suárez skot leikmanns Gana með höndinni. Fyrir það fékk hann beint rautt spjald. Asamoah Gyan skoraði ekki úr vítaspyrnunni og Suárez var vændur um óíþróttamannslega framkomu. Úrúgvæ vann leikinn að lokum, fyrir tilstilli Suárez, en liðið féll úr leik í undanúrslitum, þar sem hann var í banni. Nóvember 2010 Beit mótherja Í leik Ajax gegn PSV í Hollandi beit Suárez Otman Bakkal, liðsmann PSV, í öxlina. Hann var dæmdur í sjö leikja bann og var sektaður af félagi sínu. Hollenska dagblaðið De Telegraaf uppnefndi leikmanninn „Cannibal of Ajax“. Suárez baðst afsökunar í mynd- bandi sem hann deildi á Facebook. Október 2011 Fiskaði rautt spjald Luis Suárez hafði ekki verið lengi hjá Liver- pool þegar hann fór að eiga það til að sýna leikræna tilburði á vellinum – eða dýfa sér eins og það er kallað. Í leik gegn erkifj- endunum í Everton gerðist hann sekur um slíkt þegar hann fiskaði Jack Rodwell, miðjumann Everton, af velli. Rodwell tæklaði Úrúgvæann en á myndbandsupp- tökum sást að hann fór greinilega í bolt- ann. Suárez fleygði sér upp í loftið og lét sig falla með tilþrifum. Aganefnd enska knattspyrnu- sambandsins ákvað að Rodwell fengi ekki leikbann fyr- ir tæklinguna sem réttlætti ekki rautt spjald að hennar mati. Október 2011 Kynþáttaníð gegn Evra Suárez var af enska knattspyrnusam- bandinu fundinn sekur um kynþátt- aníð gegn Patrice Evra, leikmanni Manchester United. Hann var dæmdur í átta leikja bann frá öllum keppnum sambandsins og litaði þetta atvik alla umræðu um leikmanninn það keppn- istímabilið. Hann var sektaður um hálfa áttundu milljón króna. Desember 2011 Sendi fingurinn Luis Suárez var ákærður af enska knattspyrnusam- bandinu í desember 2011 fyrir að sýna stuðningsmönn- um Fulham fingurinn. Þá þegar hafði hann fengið ákæru frá enska knattspyrnusambandinu vegna Patrice Evra- málsins en úrskurður í málinu hafði ekki verið kveðinn upp. Svo fór að Suárez var úrskurðaður í eins leiks bann vegna atviksins. Febrúar 2012 Sendi stuðningsmönnum fingurinn Suárez sendi stuðningsmönnum Fulham fingurinn í viðureign liðanna. Fyrir vikið fékk hann eins leiks bann. Október 2012 Lét sig detta Suárez viðurkenndi að hann hefði látið sig falla í teignum í leik gegn Stoke í október 2012. Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, sagði í kjölfarið að slík hegðun væri óásættanleg og á málinu yrði tekið innanhúss hjá félaginu. Fyrir þessar sakir stillti spænski knattspyrnuvefurinn El Gol Digital Suárez upp í fimmta sæti yfir slóttugustu knattspyrnumenn heimsins. Október 2012 Dýfði sér fyrir framan Moyes Luis Suárez fagnaði marki sem hann skoraði gegn Everton með því að henda sér í jörðina fyrir framan David Moyes, stjóra Everton á þeim tíma. Áður hafði Moyes látið hafa eftir sér að margir væru komnir með nóg af leikrænum til- burðum leikmannsins. Apríl 2013 Beit mótherja – aftur Í viðureign Liverpool og Chelsea á Anfield í vor beit Suárez varnarmanninn Branislav Ivanovic, eftir við- skipti þeirra í vítateignum. Dómarinn sá ekki atvikið og Suárez skoraði jöfnunarmark í uppbótartíma. Sér- stök nefnd á vegum knattspyrnusambandsins dæmdi hann í tíu leikja bann. Hann mótmælti ákvörðuninni og hlaut bágt fyrir. Júní 2014 Beit mótherja – enn og aftur Luis Suárez sést greinilega læsa tönnunum í öxl Giorgio Chiellini, leik- manns Ítalíu, í viðureign liðanna á HM í Brasilíu. Suárez og Chiellini höfðu verið að kljást í teign- um og brást Suárez við með þessum hætti. Suárez sagði í viðtali eft- ir leik að hann hefði lent á öxlinni á honum og svona hlutir gerðust í fót- bolta. Suarez var úrskurðaður í fjögurra mánaða keppnismann af aganefnd FIFA og níu leikja bann frá lands- leikjum. baldur@dv.is / einar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.