Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2014, Blaðsíða 58
Helgarblað 27.–30. júní 201442 Skrýtið
Indland er næstfjölmennasta ríki heims
og eru íbúar þar hvorki meira né minna
en 3.800 sinnum fleiri en íbúar Íslands,
litlu eyjunnar í ballarhafi. Á dögunum
tók DV saman nokkrar mjög svo
athyglisverðar staðreyndir um Kína, en
núna er röðin komin að Indlandi. Rétt
eins og átti við um Kína er allt miklu
stærra og meira í Indlandi en gengur og
gerist á byggðu bóli. Vefritið Business
Insider á heiðurinn af samantektinni og
birtir DV hér brot af því besta.
einar@dv.is
Umhverfis jörðina – 117 sinnum
Vegakerfi Indlands er gríðarstórt og raunar það næstlengsta
í heimi. Samanlögð lengd allra vega í Indlandi er talin vera
4,7 milljónir kílómetra. Til að setja þetta í samhengi þá er
ummál jarðar við miðbaug um 40.075 kílómetrar. Þetta þýð-
ir að ef gerð yrði bein lína úr öllum þessum vegum á Ind-
landi gæti sú lína náð 117 hringi umhverfis jörðina.
Breytist í eyðimörk Stór landsvæði á Indlandi eru hægt
og bítandi að breytast í eyðimerkur. Ástæðan er ofnotkun á landi og
breytingar sem orðið hafa í veðurfari á stórum svæðum. Eyðimerkur-
myndun á sér stað á 81 milljón hekturum lands. Þetta hefur vakið
áhyggjur af matvælaöryggi í landinu af skiljanlegum ástæðum.
Yngstu íbúarnir árið 2020
Indverjum hefur fjölgað mikið á undanförnum
árum og nú er svo komið að meðalaldurinn er
einn sá lægsti í heimi. Áætlað er að árið 2020 verði
miðgildi aldurs 29 ár sem þýðir að helmingur
íbúanna verður yngri en 29 ára. Talið er að Indverj-
um í aldurshópnum 15 til 34 ára muni fjölga úr 430
milljónum árið 2011 í 464 milljónir árið 2021.
Mesta mengunin Nýja-Delí er að mörgu
leyti glæsileg borg en líkt og svo margar stórborgir
á hún sér sínar skuggahliðar. Þannig er borgin sú
mengaðasta í heimi ef tekið er tillit til loftmengunar.
Loftmengun þar er að jafnaði þrisvar sinnum meiri
en í stórborginni Peking í Kína – borg sem ekki
hefur verið þekkt fyrir loftgæði í seinni tíð.
Ríkir eru mjög ríkir
Eignir tuttugu og fimm ríkustu
Indverjanna eru metnar á sam-
tals 175 milljarða Bandaríkja-
dala. Þetta er um það bil jafn
mikið og verg landsframleiðsla
Úkraínu á ári. Ríkastur allra á
Indlandi er Mukesh Ambani en
eignir hans eru metnar á 24,2
milljarða dala.
Lækningaferðamennska Sífellt
fleiri sjá hag í því að ferðast til Indlands vegna
ódýrrar en mjög góðrar læknisþjónustu sem þar má
finna. Hér er ekki verið að tala um skottulæknana
sem finna má í skúmaskotum í stærstu borgum
landsins. Á Indlandi starfa margir mjög hæfir lækn-
ar. Fjölmargir hafa ferðast til Indlands til að gangast
undir bæklunar- og hjartaskurðaðgerðir með
góðum árangri. Þannig hefur Wockhardt-sjúkrahús-
ið í Mumbai framkvæmt meira en tuttugu þúsund
hjartaaðgerðir með fínum árangri.
Blautasti staður jarðar
Yfirvöld í bænum Cherrapunji í austur-
hluta Indlands leggja mikið upp úr því
að hann sé kynntur fyrir ferðamönnum
sem votviðrasamasti staður jarðar.
Meðalúrkoma þar á ári er hvorki meira
né minna en 11.770 millímetrar en til
samanburðar var úrkoma á Akureyri
árið 2012 – allt árið – 578 millímetrar,
samkvæmt gögnum á vef Veðurstofu
Íslands. En staðreyndin er sú að Cherra-
punji er ekki votviðrasamasti staður
Indlands heldur er það nágrannabær-
inn Mawsynram þar sem meðalúrkoma á ári slagar upp í 12 þúsund millí-
metra. Þar rignir nánast látlaust allan daginn, allt árið.
Banaslys á þriggja mínútna fresti Árið 2012 létust
138.258 manns í umferðarslysum árið 2012. Þetta jafngildir því að einn hafi
dáið á um það bil þriggja mínútna fresti að meðaltali. Á Indlandi létust 18,9
einstaklingar fyrir hverja hundrað þúsund íbúa í umferðarslysum. Þó svo að
þetta sé ógnarmikill fjöldi fólks var meðaltalið á heimsvísu árið 2012 aðeins
örlítið lægra, eða 18 á hverja hundrað þúsund íbúa.
Einkaneysla vex og vex Áætlanir gera ráð fyrir að einkaneysla í Indlandi muni
vaxa gríðarlega á næstu árum og verða 3,6 billjónir Bandaríkjadala (milljón milljónir) árið 2020. Ef
þessar spár rætast er um að ræða gríðarlega aukningu frá árinu 2010 þegar einkaneysla nam 991
milljarði dala.
Elska viskí
Indverjar drekka mikið
magn af viskíi á hverju
ári. Árið 2012 nam
neyslan 1,2 milljörðum
lítra sem samsvaraði
helmingi allrar neyslu
í heiminum það árið.
Þrátt fyrir þetta gríðar-
mikla magn eru Indverj-
ar ekki mestu viskí-
drykkjumenn heims sé
litið á höfðatölu. Þann
heiður eiga Frakkar.
Dýrasta heimilið Í Mumbai stendur dýrasta
heimili heims, Antilia-byggingin, sem er í eigu Mukesh
Ambani sem fjallað er um hér að framan. Talið er að
kostnaður við bygginguna hafi numið um einum millj-
arði Bandaríkjadala, en til samanburðar er landsfram-
leiðsla Sómalíu um 1,3 milljarðar dala á ári.
Nokkrar staðreyndir
um ótrúlega Indland