Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 18
Helgarblað 19.–22. september 201418 Fréttir Vilja takast á við kvíða barnanna n Stefnt að bættri geðheilsu barna og unglinga n Skimað fyrir kvíða og þunglyndi K víði barna og unglinga sem ekki er meðhöndlaður getur þróast yfir í alvarlegt þung- lyndi. Ómeðhöndlaður til- finningavandi barna og unglinga getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar svo sem áhættuhegðun, brotthvarf úr skóla og þegar fram líða stundir erfiðleika við að taka þátt í samfélaginu sem einstaklingur á vinnumarkaði. Íslendingar nota meiri geðlyf en gengur og gerist í OECD-ríkjunum. Notkun geðlyfja er mest hér á landi meðal OECD-ríkjanna, eða 106 skil- greindir dagskammtar að meðal- tali á móti 56. Þingmenn úr fjórum flokkum vilja að gripið sé til aðgerða og komið sé til móts við tilfinninga- vanda barna og unglinga til að sporna við þróuninni. Það vilja þeir að sé gert með sérstakri aðgerðaráætlun sem meðal annars er byggð á breskri áætlun sem og Breiðholtsmódelinu, verkefni sem þróað hefur verið vegna þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra á Þjónustumiðstöð Breiðholts um árabil. Markmið tillögunnar er að bæta geðheilbrigði barna og unglinga með ýmsum úrræðum í samræmi við leið- beiningar um bestu meðferð og stig- skiptri þjónustu þar sem byrjað er á vægasta úrræðinu í nærumhverfi og þjónusta aukin í takt við þarfir. Áherslan er því lögð á að efla fram- línuþjónustu sem veitt er af skóla- sálfræðingum og öðrum í góðu sam- starfi í umhverfi barnsins. Aðgerðir beinast meðal annars að auknum forvörnum, fræðslu, skimun á vanda, námskeiðum, skýrari verkaskiptingu stofnana, bættu samráði, bættu að- gengi að viðtalsmeðferð og eflingu fjölskyldumeðferðar. Í greinargerð þingsályktunartillögunnar er bent á að „geðrænn vandi fullorðinna hefst oft í barnæsku og þeim vanda hefði mögulega mátt afstýra með góðri og markvissri geðheilbrigðisþjónustu á þeim tíma.“ Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fyrsti flutn- ingsmaður þingsályktunartillögunn- ar sem lögð hefur verið fram á Al- þingi, segist fullviss um að tillagan njóti víðtæks stuðnings. Hann segist líta á verkefnið sem mikla forvarnar- aðgerð, enda sé mikill hagur í því að bregðast við tilfinningavanda snemma og stuðla þannig að betri líðan og bættri þátttöku fólks í sam- félaginu til framtíðar. Löng þróun Breiðholtsmódelið hefur verið í þróun hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts til margra ára, eða frá 2007. Í meginatriðum byggir verk- efnið á því að koma sem fyrst að málunum og veita viðeigandi úrræði í takt við þörf. Í Breiðholti eru allir grunnskólanemendur í níunda bekk skimaðir með sérstökum spurninga- listum þar sem spurt er um kvíða og þunglyndiseinkenni. Haft er sam- band við foreldra þeirra unglinga sem fara yfir viðmið í skimun og boð- ið upp á þjónustu þar á meðal við- töl, ráðgjöf eða námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) sem geng- ur undir nafninu „Mér líður eins og ég hugsa“. Námskeiðið er haldið reglulega í öllum hverfum borgar- innar og tvö önnur hverfi eru farin að skima fyrir vandanum. Námskeiðin voru innleidd í samstarfi við geðsvið Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hákon Sigursteinsson og Kristbjörg Þórisdóttir, sálfræðingar hjá þjónustumiðstöðinni, fóru yfir verkefnið með blaðamanni DV. Sálfræðingar Þjónustumiðstöðv- ar Breiðholts hafa átt veg og vanda af verkefninu og hafa haldið HAM- námskeið fyrir unglinga frá árinu 2008, alls tólf námskeið. Á þjónustu- miðstöðinni er einnig boðið upp á ýmis önnur gagnreynd námskeið fyr- ir börn og fjölskyldur þeirra allt nið- ur í þriggja ára aldur og sífelld þróun í gangi. Námskeið HAM-námskeiðið fer fram í hópi og byggist á fræðslu og heimaverkefnum, þar sem kenndar eru aðferðir til að takast á við kvíða- og depurðar tilfinningar og er kennt í sex vikur. Þetta er gert í stað þess að byrja til dæmis á lyfjagjöf eða mjög sértækum úrræðum, en klínískar leiðbeiningar kveða á um að fyrst skuli reyna hugræna atferlismeðferð. Eins og staðan er í dag á landsvísu er hins vegar fyrsta meðferð barna og unglinga oftar en ekki lyfjameðferð vegna skorts á úrræðum og takmörk- uðu aðgengi að sálfræðimeðferð. Kristbjörg bendir á að langir biðlist- ar og skortur á aðgengi að sálfræði- þjónustu valdi því að í sumum tilfell- um leiti foreldrar með börn sín beint í sértæk úrræði og því sé mikilvægt að skilgreina vel hverju eigi að sinna á hverjum stað með þrepaskiptum hætti og koma á meiri samvinnu milli stofnana og nærsamfélags barnanna. Bregðast við strax Hákon og Kristbjörg benda á að í mörgum tilfellum hefði verið hægt að bregðast við fyrr með vægum inn- gripum í nærumhverfinu áður en mál barnsins og líðan voru komin í óefni. „Kostnaður foreldra við lyfja- gjöf er oftar en ekki lægri en kostn- aður við sálfræðitíma, enda eru lyfin niðurgreidd en þjónusta sál- fræðings á stofu ekki. Lyfjagjöf er stundum rétta skrefið, en ekki alltaf og klínískar leiðbeiningar segja okk- ur að það eigi að byrja á því að reyna hugræna atferlismeðferð,“ segir Há- kon. Kristbjörg tekur undir þetta og bendir á að kostnaður foreldra við stakan sálfræðitíma hjá sálfræðingi á stofu sé oft tíu til fimmtán þúsund krónur. Tímabært er að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Í Breiðholtsmódelinu svonefnda er lögð áhersla á að greina vandann eins fljótt og hægt er og veita síðan bestu mögulegu þjónustu á sem hag- kvæmastan hátt. „Okkar sýn er sú að það þurfi að færa þungann á framlínuna, það er að segja það þarf að grípa inn í áður en vandamálið er orðið of stórt. Eins og staðan er núna erum við oftar en ekki að vinna að málunum eftir að tilfinningavandinn er orðinn að stóru vandamáli hjá fólki, í stað þess að byrja vinnuna þegar það þarf ekki mjög sértæk úrræði. En til þess þurf- um við mannafla og fjármagn. Það þarf að vera með fjölbreytta þjónustu og grípa strax inn í,“ segir Kristbjörg. „Þetta er gríðarlegur samfélagsleg- ur kostnaður. Ef við náum að veita einu barni viðeigandi þjónustu, áður en það þróar alvarlegan tilfinninga- vanda sem hefur í för með sér skerta samfélagsþátttöku og örorku, þá sparar það samfélaginu mikla pen- inga og hefur mikinn samfélagslegan ávinning,“ segir hún. Árið 2020 er því spáð að þung- lyndi verði önnur mesta orsök ör- orku. Í dag eru 38 prósent þeirra sem eru öryrkjar í þeirri stöðu vegna geð- raskana. „Tillagan gengur út á það að setja fjármagn í verkefnið núna en spara margfalt þegar fram líða stund- ir. Við setjum krónu í það núna, en spörum kannski tíu í framtíðinni. Með því að veita bestu mögulegu meðferð núna aukast líkur á að þessi börn geti blómstrað sem fullorðnir einstaklingar í samfélaginu.“ Meiri vandi meðal stúlkna Þar sem verkefnið hefur verið í vinnslu frá 2008 eru sterkar vís- bendingar um árangur komnar fram. Samkvæmt skimunarlistun- um í Breiðholti jókst tilfinningavandi mikið á milli ára hjá nemendum í ní- unda bekk á árunum eftir hrun og má leiða líkur að því að það tengist. Í ljós kom að tilfinningavandi hefur aukist verulega, sér í lagi hafði algengi kvíða aukist meðal stúlkna eða úr 7,2 pró- sentum árið 2009 í 26,2 prósent árið 2012. Árið 2013 höfðu sömu tölur far- ið niður í 15,5 prósent sem Kristbjörg og Hákon segja gefa tilefni til bjart- sýni. Skimun, aðgengi að fræðslu og meðferðarþjónustu dragi úr vanda þessara barna sem skili sér aftur til samfélagsins þegar þau vaxa og dafna með minni líkum á að vandinn flytjist á milli kynslóða. Þannig sé hægt að vinna að heilbrigðara samfé- lagi með bættri geðheilbrigðisþjón- ustu fyrir börn, unglinga og fjölskyld- ur þeirra. n „Ef við náum að veita einu barni viðeigandi þjónustu, áður en það þróar alvar- legan tilfinningavanda sem hefur í för með sér skerta samfélagsþátt- töku og örorku, þá spar- ar það samfélaginu mikla peninga og hefur mikinn samfélagslegan ávinning. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Vill bæta geðheilsu barna Karl er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem ætlað er að setja af stað verkefni til að bæta geðheilsu barna á Íslandi. MyNd Sigtryggur Ari Ná til unglinganna Hákon og Kristbjörg eru sálfræðingar hjá Reykja- víkurborg. MyNd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.