Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 50
50 Menning Sjónvarp Helgarblað 19.–22. september 2014
Bókaflóð
É
g er alin upp á heimili þar
sem fjöldi bóka er svo mikill
að móðir mín hefur bannað
fleiri bækur inn fyrir hússins
dyr, nema maður taki þær
með sér út aftur. Mér finnst því
heimili vera ansi fátækleg ef það
eru ekki þúsund bækur í hillum. Ég
byrjaði snemma að safna bókum
um alls konar efni. Bæði voru það
kiljur og harðspjaldaútgáfur af bók-
um, fræðibækur, glæpasögur, hryll-
ingssögur, ástarsögur, Ísfólkið (ó,
já) og allt hitt líka.
Ég hef auðvitað ekki lesið helm-
inginn af þessum bókunum. Samt
hef ég lesið nokkrar bækur oftar
en einu sinni. En bókafjöldinn var
orðinn svo mikill um tíma að ég
varð að gefa um fimm kassa af alls
konar bókum í Góða hirðinn því
ég þurfti að skapa pláss fyrir aðrar
bækur.
Ég er samt ekki viss um hvort
þetta sé ólæknandi söfnunarárátta
eða hvort ég sé að reyna að uppfylla
skyldur mínar sem vel upplýstur
einstaklingur samfélagsins. Maður
er ekki maður með mönnum nema
maður eigi allt safn Halldórs Lax-
ness innbundið eða Snorra-Eddu
í þremur útgáfum. Vandamálið er
auðvitað að mér finnst Halldór Lax-
ness ekkert sérstaklega skemmti-
legur og á því ekki safnið hans. Ég
á samt Snorra-Eddu í þremur út-
gáfum.
Ég hallast frekar að því að þetta
sé ólæknandi söfnunarárátta þar
sem mér finnst ég verði að eiga
sumar bækur en svo skoða ég bara
myndirnar. Þær líta bara svo vel
út uppi í hillu. Ég mun aldrei hafa
tíma til að lesa þær allar.
Á slíkri stafrænni gervihnatta-
öld sem við lifum á nú velti ég
samt fyrir mér tilgangi slíkra safna.
Það komast margfalt fleiri bækur á
iPad-inn minn en nokkurn tíma í
íbúðina mína. Yfirfullar bókahillur
líta óneitanlega betur út en ef ég
myndi stilla spjaldtölvunni í tóma
hillu. En til hvers að eiga eitthvað ef
maður mun aldrei hafa tíma til að
njóta þess?
Það er ekki ósjaldan sem maður
sér þætti eða greinar sem kenna
manni að losa sig við dót sem mað-
ur aldrei notar. „Ef þú hefur ekki
farið í þennan kjól í ár, muntu
sennilega aldrei fara í hann aft-
ur – gefa hann“ er eitthvað sem ég
hef séð mörgum sinnum. Ætli það
eigi líka við um bækur? Ég á bækur
sem ég hef aldrei opnað en ég virka
vissulega heimsborgaralegri við að
vera með bók um sögu húsgagna
eða frumbyggjahópa Afríku í hill-
unni frekar en ekki.
En hvað um það, bókaástar-
blossinn brennur alltaf aðeins
skærar á síðustu mánuðum ársins.
Jólabókaflóðið er á næsta leiti og ég
þarf að fara að búa til pláss í hillun-
um mínum. n
„Maður er ekki
maður með
mönnum nema maður
eigi allt safn Halldórs
Laxness innbundið eða
Snorra-Eddu í þremur
útgáfum.
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
S
amkvæmt nýrri rannsókn fer
hlutur kvenna hratt minnk-
andi í bandarísku sjónvarpi,
bæði fyrir framan og aftan
myndavélarnar. Veturinn 2013–
2014 voru konur einungis um 27%
allra leikstjóra, höfunda, framleið-
enda, meðframleiðenda og klipp-
ara – sem er 3,5% minna en á fyrra
tímabili. Hlutfall kvenna á skján-
um fer einnig minnkandi á sama
tímabili, þær voru 42% leikenda á
síðasta vetri en árið þar áður var
hlutfall þeirra 43%.
Karlar halda því áfram að ráða
ríkjum í bandarísku sjónvarpi en
rannsóknin sýndi einnig fram á að
44% af þáttum á besta sýningar-
tíma í Bandaríkjunum hafa fjór-
ar eða færri konur, en einungis 1%
þátta er með fjóra eða færri karla.
Martha Lauzen, sem fór fyr-
ir rannsókninni fyrir hönd Mið-
stöðvar rannsókna á konum í sjón-
varpi og kvikmyndum, segir að
hlutfall kvenna hafi vaxið hægt
en stöðugt á síðustu áratugum
en á síðustu árum hafi vöxturinn
staðnað. Þá bendi ýmislegt til að
ákveðið bakslag eigi sér stað um
þessar mundir. n
aslaug@dv.is
Einungis 1% þátta með 4 eða færri karla – en 44% þátta hafa 4 eða færri konur
Hlutur kvenna í sjónvarpi fer versnandi
Sunnudagur 21. september
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
07.00 Morgunstundin okkar
07.01 Smælki (19:26)
07.04 Kalli og Lóla (11:26)
07.15 Tillý og vinir (21:52)
07.26 Kioka (38:52)
07.32 Ævintýri Berta og Árna
07.38 Sebbi (26:28)
07.49 Pósturinn Páll (10:13)
08.04 Ólivía (23:52)
08.15 Kúlugúbbarnir (3:26)
08.38 Tré-Fú Tom (20:26)
09.00 Disneystundin (37:52)
09.01 Finnbogi og Felix (7:13)
09.24 Sígildar teiknimyndir
09.30 Nýi skólinn keisarans
09.53 Millý spyr (58:78)
10.00 Chaplin (6:50)
10.06 Undraveröld Gúnda
10.20 Tvíburasystur e
11.20 Nautnir norðursins 888
e (Færeyjar - fyrri hluti)
11.50 Hljóðverið Sound City e
(Sound City) Rokkstjarnan
David Grohl rekur sögu
upptökuversins Sound City í
Los Angeles þar sem nokkr-
ar af bestu hljómplötum
sögunnar voru teknar upp.
13.40 Skotar kjósa; já eða nei. e
14.10 Lygarinn (Liar, Liar) Aðal-
hlutverk: Jim Carrey, Maura
Tierney og Justin Cooper.
15.35 Mótorkross
16.05 Hraðafíkn (Speedomania)
16.35 Dýraspítalinn e
(Animal Practice)
16.55 Fum og fát
(Town called Panic)
17.00 Táknmálsfréttir (21:365)
17.10 Vísindahorn Ævars e
17.20 Stella og Steinn (14:42)
17.32 Hrúturinn Hreinn (3:5)
17.39 Stundarkorn (3:4)
17.50 Angelo ræður
18.00 Stundin okkar 888 e
18.25 Bokprogrammet:
Jon Fosse
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir
19.40 Landinn 888
20.10 Vesturfarar (5:10) (Nýja
Ísland, Árborg og Heklu-
eyja) Egill Helgason ferðast
á Íslendingaslóðir í Kanada
og Bandaríkjum og skoðar
mannlíf, menningu og sögu.
20.50 Stóra lestarránið 7,8 (2:2)
(The Great Train Robbery)
Spennumynd í tveimur hlut-
um byggð á sannsögulegum
atburðum frá árinu 1963
þegar lestarrán var framið
nærri London. Sagan greinir
frá sjónarhorni bæði gerenda
og þolenda.Seinni hluti. Að-
alhlutverk: Robert Glenister,
Jack Roth og Paul Anderson.
22.20 Hamarinn 888 e (4:4)
Leikin íslensk þáttaröð.
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi ungra barna.
23.15 Alvöru fólk (10:10)
(Äkta människor II)
00.15 Fuglasöngur (1:2) (Bird-
song) Bresk sjónvarpsmynd
í tveimur hlutum byggð á
skáldsögu eftir Sebastian
Faulks.
01.40 Útvarpsfréttir
08:05 Spænski boltinn 14/15
09:45 UEFA Europa League
11:30 Formula 1 2014
14:40 NBA
15:05 NBA
15:45 Pepsí deildin 2014
18:00 Meistaradeildin
18:50 Spænski boltinn 14/15
21:00 Pepsímörkin 2014
22:15 Pepsí deildin 2014
00:05 Pepsímörkin 2014
09:00 Premier League
14:45 Premier League
(Man. City - Chelsea)
17:00 Premier League
(Tottenham - WBA)
18:40 Premier League
(West Ham - Liverpool)
20:20 Premier League
(Everton - Crystal Palace)
22:00 Premier League
(Leicester - Man. Utd.)
23:40 Premier League
(Man. City - Chelsea)
07:25 Fever Pitch
09:10 Say Anything
10:50 Jack the Giant Slayer
12:45 There's Something About
Mary
14:40 Fever Pitch
16:25 Say Anything
18:05 Jack the Giant Slayer
20:00 There's Something
About Mary
22:00 White House Down
00:10 Wanderlust
01:50 Immortals
03:40 White House Down
16:00 Top 20 Funniest (17:18)
16:45 The Amazing Race (11:12)
17:30 Friends With Benefits (5:13)
17:50 Silicon Valley (4:8)
18:15 Guys With Kids (11:17)
18:40 Last Man Standing (7:18)
19:00 Man vs. Wild (13:15)
19:40 Bob's Burgers (10:23)
20:05 American Dad (18:19)
20:30 The Cleveland Show (12:22)
20:55 Chozen (13:13)
21:20 Eastbound & Down 4 (3:8)
21:50 The League (4:13)
22:15 Almost Human (4:13)
23:00 Graceland (3:13)
23:40 The Vampire Diaries (10:23)
00:20 Man vs. Wild (13:15)
01:05 Bob's Burgers (10:23)
01:25 American Dad (18:19)
01:50 The Cleveland Show (12:22)
02:10 Chozen (13:13)
02:30 Eastbound & Down 4 (3:8)
02:55 The League (4:13)
03:15 Almost Human (4:13)
07:15 Tónlistarmyndbönd
17:00 Strákarnir
17:25 Frasier (1:24)
17:50 Friends (6:24)
18:10 Seinfeld (3:13)
18:35 Modern Family
19:00 Two and a Half Men (24:24)
19:20 Viltu vinna milljón?
20:15 Suits (2:12)
21:00 Homeland (2:12)
21:50 Crossing Lines (7:10)
22:40 Shameless (2:12)
23:35 Sisters (17:22)
00:20 Viltu vinna milljón?
01:25 Suits (2:12)
02:10 Homeland (2:12)
02:55 Crossing Lines (7:10)
03:45 Shameless (2:12)
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:01 Strumparnir
07:25 Waybuloo
07:45 Ævintýraferðin
08:00 Algjör Sveppi
08:05 Mamma Mu
08:15 Doddi litli og Eyrnastór
08:25 Könnuðurinn Dóra
08:50 Grallararnir
09:10 Tommi og Jenni
09:30 Villingarnir
09:55 Ben 10
10:20 Hundagengið
10:45 Kalli kanína og félagar
10:50 Scooby-Doo!
11:10 Lukku láki
11:35 iCarly (16:25)
12:00 Nágrannar
12:20 Nágrannar
12:40 Nágrannar
13:00 Nágrannar
13:20 Nágrannar
13:45 Mr. Selfridge (10:10)
14:30 Veistu hver ég var ? (4:10)
15:05 Léttir sprettir (6:0)
15:25 Gatan mín
15:50 Louis Theroux: The Ultra
Zionists 7,3 Magnaður
heimildarþáttur frá 2011
með Louie Theroux.
16:45 60 mínútur (50:52)
17:30 Eyjan (4:16)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (56:60)
19:10 Ástríður (6:12)
19:35 Fókus (6:6)
20:00 Neyðarlínan
20:30 Rizzoli & Isles (10:16)
21:15 The Knick 8,4 (6:10) Glæný
þáttaröð með Clive Owen
í aðalhlutverki. Hún fjallar
um lækna og hjúkrunarkon-
ur á Knickerbocker sjúkra-
húsinu í New York í upphafi
tuttugustu aldar. Á þeim
tíma voru læknavísindin
ekki langt á veg komin og
dánartíðnin í aðgerðum var
há. Skurðlæknirinn John W.
Thackery er bráðsnjall og
metnaðarfullur en hann er
háður eiturlyfjum og fíknin
getur haft áhrif á hæfni
hans.
22:00 The Killing (3:6) Bandarísk
spennuþáttaröð sem byggð
er á hinum vinsælu dönsku
þáttum, Forbrydelsen.
Sögusviðið er Seattle í
Bandaríkjunum þar sem
lögreglukonan Sarah
Linden og félagi hennar,
Stephen Holder, rannsaka
flóknar morðgátur.
22:55 60 mínútur (51:52)
23:40 Eyjan (4:16) Vandaður
þjóðmála- og fréttaskýr-
ingaþáttur um pólitík
og efnahagsmál í opinni
dagskrá í umsjón Björns
Inga Hrafnssonar og
blaðamanna Eyjunnar. Í
þættinum verður leitast við
að skýra helstu fréttamál
samtímans með málefna-
legum og upplýsandi hætti.
00:30 Daily Show: Global
Edition
00:55 Suits (7:16)
01:40 Legends (1:10)
02:25 Boardwalk Empire (2:8)
03:15 Miss Conception
04:55 Afterwards
06:40 Fréttir
06:00 Pepsi MAX tónlist
12:00 The Talk
12:40 The Talk
13:20 Dr. Phil
14:00 Dr. Phil
14:40 Dr. Phil
15:20 Kirstie (10:12)
15:40 Growing Up Fisher (1:13)
16:05 The Royal Family (1:10)
16:30 Welcome to Sweden
(1:10) Welcome to Sweden
er glæný sænsk grínþátta-
röð, en þættirnir slógu
rækilega í gegn í Svíþjóð
fyrr á þessu ári.
16:55 America's Next Top
Model (14:16) Bandarísk
raunveruleikaþáttaröð þar
sem Tyra Banks leitar að
næstu ofurfyrirsætu. Þetta
er í fyrsta sinn sem fleiri en 14
þátttakendur fá að spreyta
sig í keppninni enda taka
piltar líka þátt í þetta sinn.
17:40 Reckless (3:13) Bandarísk
þáttaröð um tvo lög-
fræðinga sem laðast að
hvort öðru um leið og þau
þurfa að takast á sem and-
stæðingar í réttarsalnum.
18:25 King & Maxwell 7,2
(10:10) Sean King og
Michelle Maxwell eru ekki
hefðbundnir einkaspæjarar.
Bæði eru fyrrum leynilög-
reglustarfsmenn en vegna
mistaka í starfi misstu þau
vinnuna og hófu nýjan feril
sem einkaspæjarar. Að því
undanskildu að það er
blússandi aðdráttarafl á
milli þeirra tveggja, sem þau
reyna að hunsa eftir fremsta
megni, eru hæfileikar þeirra
sem fyrrum leynilögreglu-
menn einstakir sem veitir
þeim aukið forskot í að leysa
þær ráðgátur sem fyrir þeim
liggja. Sean heldur áfram
rannsókn sinni á morðinu á
Ritter og Michelle íhugar að
snúa aftur til leyniþjón-
ustunnar svo ef til vill
heyrir King&Maxwell teymið
sögunni til.
19:10 Minute To Win
It Ísland (1:10)
20:00 Gordon Ramsay
Ultimate Cookery Course
(12:20) Frábærir þættir þar
sem Gordon Ramsey snýr
aftur í heimaeldhúsið og
kennir áhorfendum einfald-
ar aðferðir við heiðarlega
heimaeldamennsku.
20:25 Top Gear Special: James
May's Cars of the People
(1:3)
21:15 Law & Order: SVU (6:24)
22:00 Revelations - LOKA-
ÞÁTTUR 6,5 (6:6)
Undarlegt mál um stúlku
sem liggur í dái á spítala en
muldrar vers úr Biblíunni
kemur Dr. Richard Massey,
stjarneðlisfræðingi frá
Harvard, í kynni við
nunnuna Josepha Montafi-
ore. Hún telur að stúlkan
og ofskynjanir hennar séu
verk Guðs og vill rannsaka
þetta mál nánar með hjálp
Richards.
22:45 Ray Donovan (3:12) .
23:35 Scandal (13:18)
00:20 Fleming - The Making Of
00:50 Revelations (6:6)
01:35 The Tonight Show
02:15 Pepsi MAX tónlist
Eiga á brattann að sækja Leikkonurnar
í bandarísku gamanþáttunum Modern
Family. MyND REUTERS
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
Helgarpistill
Gerir heimilda-
mynd um transfólk
The T Word verður frumsýnd í Bandaríkjunum
L
eikkonan Laverne Cox vekur
athygli á veruleika transfólks
í heimildamyndinni Laverne
Cox Presents: The T Word
sem frumsýnd verður í Bandaríkj-
unum um miðjan október. Cox
skrifaði nýlega undir samning við
bandarísku sjónvarpsstöðvarn-
ar MTV og Logo TV sem munu
frumsýna myndina samtímis, 17.
október næstkomandi.
Í myndinni er horft til sjö ungra
transeinstaklinga víðs vegar um
Bandaríkin og ákvörðunar þeirra
um að lifa lífinu í því kyngervi
sem þeim var ætlað en ekki sam-
kvæmt líffræðilegu kyni. Myndin
fjallar meðal annars um ákvörðun-
ina um að koma út úr skápnum
sem transeinstaklingur, einelti sem
þessir einstaklingar hafa orðið fyr-
ir og jafnvel gróft ofbeldi. Viðmæl-
endur Cox eru á aldrinum 12 til 24
ára og hafa allir mjög áhugaverða
sögu að segja.
Cox er best þekkt fyrir hlutverk
sitt sem transkonan Sophia í sjón-
varpsþáttaröðinni Orange is the
New Black en hún berst opinber-
lega fyrir réttindum transfólks í
Bandaríkjunum. n
Fyrirmynd Laverne Cox berst fyrir
réttindum transfólks í Bandaríkjunum.