Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 30. ágúst–1. september 2013 Helgarblað
Sefur í rjóðri
3 „Ég bý ekki beint
hér, ég sef bara
hérna,“ segir
kona á sjötugs
aldri sem hefst
við í rjóðri
skammt frá
skarkala mið
bæjarins. Kon
an er heimilis
laus og hefur undanfarin 1–2 ár búið
í rjóðrinu. Konan hefur um árabil
verið haldin söfnunaráráttu sem
lýsir sér í því að hún sankar að sér
heimilissorpi. Konan er ekki fátæk
en vegna söfnunaráráttu sinnar fær
hún ekki íbúð leigða því líklega kæra
fáir sig um að láta safna heimilis
sorpi í íbúð sína.
Nauðgað í
Heiðmörk
2 28 ára karlmaður telur
að sér hafi verið
nauðgað í Heið
mörk aðfara
nótt þriðjudags
í síðustu viku.
DV fjallaði um
mál manns
ins á mánudag
en hann leit
aði eftir aðstoð lögreglunnar og var
fluttur á Neyðarmóttöku eftir hina
meintu nauðgun. Honum hefur nú
verið úthlutaður réttargæslumaður.
Manninn grunar að sér hafi verið
byrluð ólyfjan en þegar hann vakn
aði var hann aumur í rassinum og
með brunasár á öxl.
Fórnarlömb
auðlegðar
1 Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra
er meðal þeirra
sem mun losna
við að greiða
auðlegðarskatt
ef hann verður
afnuminn. Um
þetta var fjallað í
DV á mánudag og fleiri dæmi nefnd
um einstaklinga sem greitt hafa auð
legðarskatt. Auðlegðarskattur leggst
á einstaklinga sem eiga meira en
75 miljónir króna og hjón sem eiga
meira en 100 milljónir króna.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Fá milljónalán út
á gull og demanta
n Lánar allt að 10 milljónum króna n Neytendastofa fær fyrirspurnir
Þ
að er að meðaltali einn á viku
sem kemur og fær lán hjá mér.
Þetta hefur farið frekar hægt
að stað,“ segir Sverrir Einar
Eiríksson veðlánari. Sverrir
segist lána allt að tíu milljónum króna
gegn veði í gulli, silfri, demöntum,
málverkum, gömlum peningaseðl
um, vönduðum úrum eða málverk
um eftir íslenska meistara. Veðlána
starfsemin hófst í júní.
„Lægsta lánið sem ég hef veitt
hingað til er 50 þúsund krónur en það
hæsta var tvær milljónir,“ segir hann.
Fyrir hverja milljón sem fólk fær í lán
greiðir það 40 þúsund krónur í vexti
á mánuði. „Fólki sem fær lán finnst
mjög vel sloppið að borga ekki hærri
vexti,“ segir hann.
Rolex-úr og demantar
„Þetta er ekki langtímafjármögnun.
Þetta getur komið sér vel í
skamman tíma fyrir suma. Bank
arnir lána ekki gegn veði í sam
bærilegum lausamunum og ég
geri, ég er sá eini sem geri það.
Ég spyr fólk ekki í hvað það ætli
að nota peninga. Sumir segja mér
það þó. Til dæmis komu ungir
strákar til mínum daginn og voru
að fjárfesta í fyrirtæki og vantaði
peninga strax. Þeir voru að brúa
bil þangað til þeir fengju peninga
annars staðar frá.
Fólk er yfirleitt að koma með
mjög dýra gripi, Rolexúr, dem
anta fyrir tugi milljóna, gullskart
gripi og málverk. Munirnir eru oft
mun verðmætari en lánin sem það
er að biðja um og fær. Hingað til
hefur enginn lent í því að geta ekki
leyst út munina og greitt uppsetta
vexti,“ segir Sverrir. Samkvæmt
lánaskilmálum eignast Sverrir þá
gripi sem settir eru í pant ef við
skiptavinirnir geta ekki staðið í
skilum.
Neytendastofa
fær fyrirspurnir
Þeir sem fá lán hjá
Sverri út á gripi sem
þeir eiga fá lánað til
30 daga og borga
fjögurra prósenta
vexti á tímabilinu,
það jafngild
ir 48 prósenta
ársvöxtum. Kerf
ið virkar þannig
að sá sem telur
sig vanta fé kemur
með verðmæti til
Sverris sem hann
tekur í pant og fær
viðkomandi lán út
á. Þegar lánstím
inn er útrunnin
kemur fólk og leysir gripinn út og
greiðir vextina um leið.
Samkvæmt upplýsingum Neyt
endastofu hafa ekki borist kvartan
ir vegna veðlánastarfsemi Sverris en
stofunni hafa borist nokkrar fyrir
spurnir um hvort að
starfsemin sé lög
leg.
Neytendastofa
segir að lánastarf
semi Sverris falli
ekki undir núgild
andi lög um neyt
endalán en í þeim
segir að undanþegn
ir lögunum séu láns
samningar sem gilda
í skemmri tíma en
þrjá mánuði. Þetta
breytist hins vegar
fyrsta nóvember
næstkomandi þegar
ný lög um neytenda
lán taka gildi. Í 26.
grein þeirra laga segir
að ársvext ir neytendalána megi
ekki vera hærri en 50 prósent að við
bættum stýrivöxtum Seðlabankans á
hverjum tíma. Sverrir er innan þeirra
marka þar sem ársvextir sem hann
býður upp á nema 48 prósentum. n
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
Einn á viku Sverrir segir að
veðlánastarfsemin hafi farið
frekar rólega af stað.
Veðlán
Sverrir Einar
Eiríksson
lánar fólki út
á listaverk,
gull og gim-
steina sem
það setur í
pant.
Þögul vegna
Facebook-
upplýsinga
„Ég get ekkert sagt til um það.
Það er væntanlega í tengslum
við rannsókn máls. Það er ekk
ert hægt að gefa nánari upp
lýsingar um það,“ sagði Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri á höfuð
borgarsvæðinu, í samtali við DV
á fimmtudag þegar hann var
spurður af hvaða tilefni lögreglan
ákvað að óska eftir upplýsingum
frá samfélagsmiðlinum Facebook
um einn notanda hans.
Í gagnsæisskýrslu Facebook
kom fram að lögreglan hér á
landi hefði óskað eftir þessum
upplýsingum og fengið. Stefán
gat ekki svarað því hvort lög
reglan hefði áður óskað eftir upp
lýsingum frá Facebook en ekki
fengið.
„Ég er bara er ekki með þær
upplýsingar. Þetta er allt í tengsl
um við rannsóknir mála og
byggir á heimildum í lögum eða
samkvæmt úrskurði dómara eins
og aðrar beiðnir um gögn,“ segir
Stefán sem segist heldur ekki
geta svarað því hvort þessar upp
lýsingar hafi nýst lögreglu vel við
rannsókn þessa tiltekna máls.
Leiðrétting
Í DV á mánudaginn kom fram
að Bjarni Benediktsson, fjár
málaráðherra og formaður
Sjálstæðisflokksins, hefði greitt
auðlegðarskatt upp á tæpar
tvær milljónir. Þetta er ekki rétt
að hans sögn, líkt og útskýrt er
í blaðinu í dag. Þetta leiðréttist
hér með.