Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Qupperneq 15
Faxafen 12, 108 reykjavík
opið mán. föst. 11-18
Út-Rýmingarsala
Rýmum fyrir
nýjum vörum
Allt að 60%
afsláttur út október!
V
erktakafyrirtækið Jarðbor-
anir, sem sérhæfir sig í að
bora eftir jarðhita, var lækk-
að í verði um rúmlega 1,5
milljarða króna í fyrra vegna
erfiðleika í rekstri þess á síðasta ári.
Fjárfestingarfélag útgerðarrisans Sam-
herja, Kaldbakur hf., keypti Jarðboranir
í fyrra ásamt Stefni – íslenska athafna-
sjóðnum, lífeyrissjóðnum Gildi, Festa,
Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og
fleiri aðilum. Fyrirtækið var keypt í
gegnum sjóð sem heitir SF III slhf.
Þetta kemur fram í ársreikningi SF III
slhf. sem skilað var til ársreikninga-
skrár ríkisskattstjóra þann 23. septem-
ber síðastliðinn.
Baldvin Þorsteinsson, sonur Þor-
steins Más Baldvinssonar, stærsta
eiganda Samherja, er forstjóri Jarðbor-
ana um þessar mundir og jafnframt
stjórnarformaður SF III slhf. Kaldbakur
er í dag næst stærsti eiganda SF III slhf.
með tæplega 20 prósenta eignarhlut í
félaginu en Gildi er stærsti hluthafinn
með 43 prósent. Félagið á allt hlutafé í
Jarðborunum eftir að hafa keypt þau 20
prósent sem voru útistandandi í byrjun
þessa árs. Það kaupverð miðaðist við
stöðu Jarðborana í árslok í fyrra.
Lækkað niður í milljarð
Þessir aðilar keyptu Jarðboranir á rúm-
lega 2,5 milljarða í ársbyrjun í fyrra en í
ársreikningnum er búið að lækka bók-
fært verðmæti félagsins niður í tæpan
milljarð króna. Fyrir vikið tapaði félag-
ið sem nemur þessari upphæð í fyrra.
Hlutaféð var greitt inn í félagið og not-
að til að kaupa eignarhlutinn í Jarðbor-
unum og því virðist vera um talsvert
bókfært tap að ræða. Um þetta segir í
skýringu í ársreikningi fyrirtækisins:
„Bókfært verð eignarhlutar er lækkað
um 1.544 millj. kr. á árinu 2012 vegna
erfiðleika í rekstri dótturfélags og lakari
stöðu þess en gert var ráð fyrir við kaup
á því.“ Á móti kemur að félagið skuldar
eigin lega ekki neitt.
Ástæðurnar fyrir þessari niður-
færslu eru að Jarðboranir töpuðu 649
milljónum króna í fyrra og 994 millj-
ónum árið þar á undan. Heimildir DV
herma að ástæðurnar fyrir þessu tapi
séu meðal annars tap hjá dótturfélög-
um Jarðborana í Þýskalandi og á Nýja-
Sjálandi. DV hefur heimildir fyrir því að
í samningnum um kaupin á Jarðbor-
unum hafi ekki verið ákvæði um lækk-
un kaupverðs vegna væntanlegs taps.
Þessi niðurfærsla lendir því í Samherja,
Gildi og öðrum eigendum félagsins.
Samstarf lífeyrissjóða
og einkaaðila
Fjárfesting Samherja, Stefnis og lífeyris-
sjóðanna er eitt dæmi um þróun sem
sést hefur í auknum mæli á Íslandi frá
hruninu 2008. Í ljósi gjaldeyrishaftanna
eru lífeyrissjóðirnir nauðbeygðir til
að fjárfesta á Íslandi að mestu og leita
logandi ljósi að fjárfestingartækifær-
um: Allt frá hlutabréfum í skráðum og
óskráðum félögum til fasteigna. Margir
einkaaðilar vilja ólmir taka þátt í fjár-
festingum með lífeyrissjóðunum þar
sem þeir eru fjársterkir og veðja yfir-
leitt á traustar fjárfestingar þar sem
ávöxtunarkrafa þeirra er há. Í tilfelli
Jarðborana virðist þetta hafa klikkað,
að minnsta kosti á fyrsta rekstrarári fyr-
irtækisins eftir eigendaskiptin, þar sem
bókfært tap er hjá félaginu.
Út spurðist fyrr á árinu að nokkrir
lífeyrissjóðir væru að skoða kaup á Ís-
landsbanka ásamt Skúla Mogensen
eiganda MP banka og öðrum í fjár-
festahópi MP. Vitað er að Skúli og að-
ilar á vegum MP komu að máli við líf-
eyrissjóðina um möguleikann á slíkri
fjárfestingu en opinberir aðilar, sér-
staklega Seðlabanki Íslands, voru ekki
hrifnir af þeirri hugmynd að einkaað-
ilar væru að kaupa fjármálafyrirtæki
ásamt lífeyrissjóðunum og hugsanlega
hagnast vel á því. Slíkt samkrull lífeyris-
sjóða og einkaaðila er þó staðreynd í ís-
lensku viðskiptalífi í dag og munum við
örugglega sjá fjölmörg dæmi um aðrar
slíkar fjárfestingar áður en gjaldeyris-
höftin verða afnumin. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Bókfært verð
eignarhlutar er lækk-
að um 1.544 millj. kr. á ár-
inu 2012 vegna erfiðleika í
rekstri dótturfélags.
n Verðmæti Jarðborana fært niður um rúmlega 1.500 milljónir króna
Tap á fyrsta ári
Þorsteinn Már Baldvinsson og
Samherji keyptu Jarðboranir á
síðasta ári og var tap á rekstrinum.
Verðmæti fyrirtækisins lækkaði
um 1.500 milljónir.
Fréttir 15Helgarblað 25.–27. október 2013
Samherji og lífeyrissjóðir töpuðu