Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 4
4 Fréttir Jólablað 20.–27. desember 2013
V
ið greiðum ekki stjórnarlaun,
en þess í stað fá stjórnarmenn
120 þúsund krónur á ári sem
nota á í endurmenntun. Á
nokkurra ára fresti höfum við farið
til útlanda og sinnt endurmenntun-
inni þar,“ segir Hilmar Harðarson,
formaður Fit, Félags iðn- og tækni-
greina. Um síðastliðna helgi fór stjórn
félagsins í endur- og símenntunar-
ferð til Edinborgar og segir Hilmar
að þar hafi stjórnarmenn fundað
stíft og farið yfir skoðanakönnun
sem unnið hefur verið að meðal fé-
lagsmanna. Að auki sinnti hópurinn
endurmenntun. Ekki fóru allir stjórn-
armenn í ferðina og ekki allir makar.
„Makar þurfa að greiða fyrir sig,“
segir Hilmar en segir að ferðin hafi
verið gagnleg fyrir hópinn og reynst
vel. „Þetta er samþykkt hjá félaginu.
Á um þriggja ára fresti förum við til
útlanda og kynnum okkur helstu
nýjungar. Nú vorum við að vinna að
innra skipulagi félagsins og starfs-
þáttavinnu til næstu þriggja ára.
Mörg félög hafa sameinast okkur á
undanförnum árum og því var það
tímabært,“ segir hann.
Aðspurður um kjaraviðræður seg-
ir Hilmar að þær gangi hægt, en hann
er einnig formaður Samiðnar, sam-
bands iðnfélaga. „Við höfum ekki vís-
að þessu til sáttasemjara, en þetta
gengur mjög hægt,“ segir hann að-
spurður um gang mála. Fit er hluti af
Samiðn. n
Festir kaup á gamla
Borgarbókasafninu
n Eignarhaldið í gegnum félag í skattaskjólinu Cayman-eyjum
E
ignarhaldsfélag í eigu, aðila
sem tengdir eru samheitalyfja-
fyrirtækinu Alvogen, hefur
keypt gamla Borgarbókasafnið
í Þingholtsstræti af Ingunni
Wernersdóttur. Fjárfestirinn Ró-
bert Wessmann er stjórnarformað-
ur Alvogen. Þetta kemur fram í fast-
eignaskrá og er kaupsamningurinn
dagsettur þann 16. desember síðast-
liðinn. Félagið heitir Aztiq Pharma
ehf. Húsið heitir Esjuberg.
Eignarhaldsfélagið mun koma að
byggingu samheitalyfjafyrirtækisins
Alvogen á lyfjaverksmiðju í Vatnsmýr-
inni og kom nafn þess upp í tengslum
við umfjöllun um verksmiðjuna fyrr
á árinu. Félagið hefur meðal annars
staðið í skuldabréfaútboði á þessu ári
þar sem fjárfestingarleið Seðlabanka
Íslands var nýtt til að koma með 220
milljónir króna hingað til lands.
Fjármagnað af Arion
Fasteignamat hússins á Þingholts-
stræti er rúmlega 113 milljónir og er
það tæplega 710 fermetrar að stærð.
Í veðbókarvottorði hússins kemur
fram að tekið hafi verið 49 milljóna
króna lán hjá Arion banka til að fjár-
magna kaupin á húsinu. Það lán er
hið eina sem hvílir á húsinu.
Húsið var áður í eigu Ingunnar
Wernersdóttur, eða eignarhaldsfé-
lags í hennar eigu sem heitir Inn Fjár-
festing ehf., en hún réðst í miklar
breytingar á húsinu eftir að hún
keypti það árið 2007. Sá sem átti hús-
ið þar á undan var norski málarinn
Odd Nerdrum en hann hafði keypt
húsið af Guðjóni Guðjónssyni sem
yfirleitt er kenndur við tæknifyrir-
tækið OZ. Í ársreikningi Inn Fjár-
festingar sem hélt um húseignina
fyrir hönd Ingunnar Wernersdóttur
var fasteignamat hússins í Þingholts-
stræti sagt vera 105 milljónir króna
og byggði það á áætlun matsmanna.
Söluverðið á húsinu gæti því hafa ver-
ið í kringum það.
Eignarhaldið á húsinu í Þingholts-
stræti og Aztiq Pharma er í gegnum
félag í skattaskjólinu Cayman-eyjum
sem heitir Aztiq Cayman L.P. Fjár-
magnið sem Aztiq Pharma flytur til
Íslands í gegnum fjárfestingarleiðina
kemur því væntanlega þaðan.
Sögufrægt hús
Ármi Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Aztiz, seg-
ir að félaginu hafi boðist
að kaupa húsið. ,,Hús-
ið á sér mikla sögu sem
við viljum varðveita. Við
munum halda áfram
uppbyggingu hússins,
endurgera það í sínum
gamla stíl og varðveita
þannig sögugildi þess,"
segir Árni. Til stend-
ur að Aztiq verði með
skrifstofuaðstöðu í hús-
inu.
Húsið í niðurníðslu
Saga hússins síðast liðin ár er nokkuð
merkileg. Ingunn Wernersdóttir lenti
í basli með framkvæmdir við húsið
og lagði Reykjavíkurborg dagsektir á
hana vegna þess hversu langan tíma
framkvæmdirnar tóku. Framkvæmd-
ir lágu að mestu niðri við húsið frá ár-
inu 2009 en Ingunn ákvað að stækka
húsið umtalsvert, um 250 fermetra.
Ingunn hafði keypt húsið með láni
frá Landsbanka Íslands en hún virð-
ist hafa lent í vandræðum með að
ljúka fjármögnuninni á húsinu og
því lágu framkvæmdirnar niðri. Hús-
ið var yfirveðsett undir það síðasta
en nú hvílir aðeins á því umrætt veð
frá Arion banka upp á 49 milljón-
ir króna.
Odd Nerdrum hafði selt
Ingunni húsið þegar hann
ákvað að flytja til Noregs eftir
að hafa átt húsið frá árinu 2002.
Nerdrum hafði keypt húsið af
Guðjóni í OZ sem keypt hafði
gamla Borgar bókasafnið af
Reykjavíkurborg árið 2000 eft-
ir að ákveðið var að flytja safnið
niður á Tryggvagötu.
Nú hefur húsið lent hjá fjórða
eigandanum á síðastliðnum
áratug. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Stjórnarfundurinn í Edinborg
Stjórnarmenn Félags iðn- og tæknigreina fá 120 þúsund til endurmenntunar
Sinna endurmenntun „Makar þurfa að greiða fyrir sig,“ segir Hilmar um ferðalög
stjórnar Fit.
Býður fíklum
í jólaveislu
Grímur Wilhelmsson opnaði
fyrir tveimur mánuðum
veitingastaðinn Sjöboden í
Sollefteå í Svíþjóð. Veitinga-
staðurinn sérhæfir sig í fisk-
réttum og flytur Grímur fisk
inn frá Noregi sérstaklega fyrir
veitingastaðinn. Veitingastað-
urinn er lokaður yfir jólin en
Grímur hefur þó ákveðið að
bjóða fíklum og þeim sem eiga
um sárt að binda að koma í
fiskveislu á Þorláksmessu. Í
samtali við Allemanda sagði
Grímur þetta kærleiksverk
kosta sitt en það væri þó þess
virði. „Ég vil frekar gera þetta
en að kaupa dýrt koníak fyrir
sjálfan mig,“ sagði Grímur.
Bjartsýn þrátt
fyrir skemmdir
„Við erum ennþá að bíða eftir
þessum fingraförum,“ segir
Thelma Ólafsdóttir, eigandi
verslunarinnar Monró, í sam-
tali við BB.is. Brotist var inn í
verslunina fyrir tæpum fjórum
vikum og miklar skemmdir
unnar á varningi. Eigandi versl-
unarinnar hefur ekki geta feng-
ið nýjar vörur í stað þeirra sem
skemmdust og tryggingar ná
ekki nema að litlu leyti yfir þær.
Hún segist engu að síður vera
jákvæð í samtali við BB. „Mað-
ur kemst langt með bjartsýn-
inni,“ segir hún. Málið mun
vera í vinnslu hjá lögreglunni á
Vestfjörðum.
„Húsið
á sér
mikla sögu
Áralöng vandræðasaga Húsið í Þing-
holtsstræti hefur skipt fjórum sinnum um
hendur síðastliðin áratug. Mynd SIgtryggur ArI
Eignast Esjuberg Félag í eigu
Alvogen, sem stýrt er af Róberti
Wessman, hefur eignast Esjuberg,
gamla Borgarbókasafnið.