Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 14
14 Fréttir Jólablað 20.–27. desember 2013
w w w. j a r n p ry d i . i s - i n g i@j a r n p ry d i . i s
Valið var hjá stjórn RÚV
P
áll Magnússon, fyrrverandi
útvarpsstjóri RÚV, sagði starfi
sínu lausu hjá RÚV eftir að
fengist hafði lögfræðilegt mat
á því hvort hægt væri að ráða hann
aftur í starfið. Samkvæmt lögfræði
lega matinu gat stjórn RÚV í raun
og veru ákveðið hvor leiðin yrði far
in; hvort Páll yrði endurráðinn með
nýjum samningi eða starf útvarps
stjóra auglýst.
Úr varð að ákveðið var af
meirihluta stjórnarinnar að aug
lýsa starf Páls laust til umsóknar. Páll
túlkaði þessa ákvörðun sem svo í yfir
lýsingu að hann nyti ekki trausts hjá
stjórn RÚV. Þessi túlkun Páls er ekki
alveg nákvæm í ljósi þeirra laga sem
gilda um RÚV. Í lögunum kemur
skýrt fram að útvarpsstjóri megi ekki
starfa lengur en í tvö fimm ára tímabil
sem æðsti yfirmaður stofnunarinnar.
Páll hefur nú gegnt starfinu í átta ár
og má segja að það hefði farið gegn
anda laganna að ráða hann aftur til
fimm ára en þá myndi hann sitja í alls
þrettán ár í starfinu.
Heimild er hins vegar í lögum um
RÚV að endurráða útvarpsstjóra einu
sinni til fimm ára í senn. Með því að
endurráða Pál ekki nýtti stjórn RÚV
sér ekki þetta endurráðningarákvæði
og kom þannig í veg fyrir að farið yrði
gegn anda laganna með því að Páll
gegndi starfinu í 13 ár. Þannig má
segja að ákvörðunin um að auglýsa
starfið brjóti ekki með neinum hætti
gegn anda laganna en hins vegar
hefði endurráðning á Páli gert það.
Stjórn RÚV fundaði klukkan fjög
ur á fimmtudaginn og er líklegt að á
þeim fundi hafi verið rætt um starfs
lok Páls. Eins og er vantar nokkur
hugsanlega púsl inn í myndina af
starfslokunum, til að mynda hvort
eitthvað hafi leitt til þess, umfram
lögin um RÚV, að ákveðið var að
endurráða Pál ekki til fimm ára. n
ingi@dv.is
Nýr samningur við Pál hefði farið gegn anda laganna
Valið hjá stjórn Samkvæmt lögfræðiá-
liti sem unnið var fyrir stjórn RÚV gat hún
sjálf ákveðið hvort hún vildi endurráða Pál
Magnússon eða ekki. Mynd Sigtryggur Ari
Frídagar og vænir
bónusar í pakkanum
n Rio Tinto Alcan gefur 170 þúsund króna kaupauka n Borgarstarfsmenn fá ekkert
H
já flestum fyrirtækjum tíðk
ast að færa starfsmönnum
jólagjöf síðustu vikuna fyrir
jól, en þær eru jafn mis
jafnar og þær eru margar.
Ekki öll fyrirtæki gefa þó jólagjafir
og dæmi eru um að starfsmenn
fái í staðinn vænan jólabónus.
Blaðamaður DV hafði samband
við nokkra af stærstu vinnustöð
um landsins og spurðist fyrir um
jólagjafir til starfsmanna þetta árið.
Matarkörfur vinsælar
Líkt og undanfarin ár virðist sem
matargjafir séu með vinsælli starfs
mannagjöfum þetta árið. Sú er alla
vega raunin hjá fyrirtækjum á borð
við Húsasmiðjuna, Norðurál, Sjóvá
og Icelandair.
„Hér fékk fólk kassa með góð
gæti; hamborgarhrygg og reyktum
lax og einhverjum sósum og sult
um. Þetta er eitthvað sem allir geta
notað,“ segir upplýsingafulltrúi
hjá Icelandair. Arion banki gefur
starfsmönnum einnig matarkörfu.
„Gjöfin hjá okkur er sú sama og
undanfarin ár. Það er karfa með mat
og einhverju litlu, nettu til heimilis
ins. Og svo fær starfsfólk líka gjafa
kort Arion banka,“ segir Haraldur
Guðni Eiðsson, forstöðumaður
samskiptasviðs bankans. Haraldur
var sjálfur ekki búinn að ná í sína
körfu þegar blaðamaður náði tali
af honum og gat því ekki sagt til um
nákvæmt innihald hennar en sagði
að í henni væri ávallt eitthvað kjöt
og meðlæti.
Íslensk hönnun
Nokkur fyrirtæki gefa
starfsmönnum sínum muni frá ís
lenskum hönnuðum.
„Háskólinn í Reykjavík gefur sín
um starfsmönnum sitt lítið af hverju
í poka. Í honum er stór „thermo“
kaffi eða tebolli frá Sveinbjörgu
ásamt viskastykki eftir sama hönnuð
sem er mjög praktískt. Svo keyptum
við súkkulaðistykki frá ABC Barna
hjálp, sem var sett í pokann líka,
ásamt þrjú þúsund króna gjafakorti
í Nóatúni fyrir jólamatinn,“ segir Ýr
Gunnlaugsdóttir í samtali við DV,
en hún sá um jólagjafir HR til starfs
manna. Spurð hvort þetta sé svipað
og verið hefur undanfarin ár segir
Ýr svo ekki vera.
„Við erum svolítið að breyta til.
Síðustu tvö ár var matarpakki en
þessi gjöf höfðar kannski til fleiri.“
Íslensk hönnun var einnig í jóla
pakka starfsmanna Alcoa Fjarðaáls.
„Við erum með matarkörfu og
smá auka glaðning með. Við höfum
oft reynt að vera með íslenska
hönnun eða eitthvað svoleiðis og í
ár skiptum við til dæmis
við Laufabrauðssetur
Íslands svo það
fylgir glaðningur
frá þeim með
matarkörfunni,“ segir
upplýsingafulltrúi
fyrir tækisins.
Landsbankinn gaf
starfsfólki sínu hanska
frá 66°Norður og auk
þess 35 þúsund króna
gjafabréf frá versluninni.
Engar jólagjafir
„Það eru engar jólagjaf
ir gefnar af Reykjavíkur
borg. Þær voru afnumdar
árið 2008,“ segir Bjarni
Brynjólfsson, upplýs
ingastjóri borgarinnar.
Svipaða sögu er að segja
hjá Hafnarfjarðarbæ sem
ekki gefur jólagjafir í ár
en samkvæmt Guðfinnu
B. Kristjánsdóttur, upplýs
ingafulltrúa Garðabæjar, fær
starfsfólk bæjarskrifstofunnar frí í
jólagjöf.
„Hér hjá okkur gefur bæjarstjór
inn okkur á bæjarskrifstofunni tvo
auka frídaga og síðan er það bara
undir forstöðumanni hverrar stofn
unar komið hvað hann gerir fyrir
sitt starfsfólk.“
Svipaða sögu
er að segja af Rio
Tinto Alcan sem
hefur ekki gefið
jólagjafir undanfarin ár,
en samkvæmt Ólafi Teiti Guðna
syni, framkvæmdastjóra sam
skiptasviðs fyrirtækisins, fær starfs
fólk í staðinn 170 þúsunda króna
jólabónus, sem er talsvert hærra en
gengur og gerist hjá flestum fyrir
tækjum.
Veglegri gjöf í ár
„Við gefum öllu starfsfólkinu okk
ar, 1.500 manns, safndiskinn með
Páli Óskari, fimm þúsund króna
gjafabréf í Krónunni og svo styrkj
um við ABC Barnahjálp með því
að gefa hverjum starfsmanni eitt
súkkulaðistykki frá þeim sem gefur
fimm bágstöddum börnum mál
tíð. Þannig að þetta er margþættur
pakki,“ segir Guðríður Hjördís
Baldursdóttir, starfsþróunarstjóri
BYKO. Hún segir meiri verð
mæti í gjöfinni sem starfs
menn fyrirtækisins fá þetta
árið en verið hefur.
„Við erum að gefa veg
legri gjöf núna en síðustu
ár. En markmið okkar er að
styrkja alltaf íslenskt tón
listarfólk þannig að síðast
liðin þrjú ár erum við búin
að gefa íslenska tónlist og
gjafakort.“
Starfsmenn HB Granda
fá bankagjafakort en sam
kvæmt upplýsingum frá skrifstofu
fyrirtækisins er þetta í annað skipti
sem slíkt er gefið. Sá sem blaða
maður ræddi við vildi ekki greina
frá upphæð gjafakortsins en bætti
þó við að fleira hefði leynst í pakk
anum.
„Við gáfum líka fiskikrydd og
viskastykki með mynd af fiski. Það
er bara svona til að fylgja með svo
að starfsfólk fái einhvern lítinn
pakka.“ n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is „Það eru engar jólagjafir gefnar
af Reykjavíkurborg. Þær
voru afnumdar árið 2008.
Jólagjöf Jólagjafir
til starfsmanna eru
afar misjafnar eftir
fyrirtækjum, en al-
gengt er að fyrirtæki
gefi matarkörfur.
Súkkulaði til styrktar ABC Sum
fyrirtæki styrkja góð málefni með
kaupum á jólagjöfum starfsmanna.
thermo-bolli Starfs-
menn Háskólans í Reykjavík
fengu bolla og viskastykki
frá Sveinbjörgu í jólagjöf.