Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 56
Jólablað 20.–27. desember 201356 Skrýtið Sagðist vinna fyrir CIA til að fá frí frá vinnu John Beale þykir gríðarlega latur en með mikið og gott hugmyndaflug Þ egar þú nennir ekki að mæta í vinnuna lengur en færð of góð laun til að vilja hætta, hvað er þá til ráða? Bandaríkja- maðurinn John Beale fékk, að hon- um fannst, frábæra hugmynd. Hann vann hjá Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna og var launahæsti starfsmaðurinn, en hann sérhæfði sig í geislun og loftslagsbreytingum. Hann er hins vegar afar latur en um leið með gott hugmyndaflug. Hann sagði yfirmönnum sínum að hann hefði verið beðinn um að vinna fyrir CIA og mætti síðan ekki í vinnu svo mánuðum skiptir. Í eitt skiptið mætti hann ekki í átján mánuði samfleytt. Eyddi peningum í glæsihótel Beale sagðist oftast vera að vinna fyrir CIA í Pakistan. Eitt skiptið sagð- ist hann þurfa að fara í skyndi vegna þess að starfsmanni sem gegndi sömu stöðu hjá CIA hefði ver- ið rænt af talibönum, og að hann þyrfti að taka við skyldum hans. Yfir- menn hans fengu þessi skilaboð frá honum: „Vegna nýlegra atburða sem þið hafið væntanlega lesið um, er ég kominn til Pakistan. Ég fékk símtal á fimmtudegi og fór á föstudegi. Von- andi verð ég kominn til baka fyrir jól … hó,hó,hó.“ Beale lét þó ekki þar við sitja, heldur eyddi peningum sem hann fékk frá ríkinu vegna meintra CIA ferða, í ferðir til Lundúna þar sem hann gisti á glæsihótelum. Hann sagðist einnig hafa smitast af malaríu þegar hann gegndi herþjón- ustu í Víetnam, en hann hafði hvorki sinnt herþjónustu né smitast af sjúk- dómnum. Vann samviskusamlega í 25 ár Þegar Beale sagðist vera í Pakistan var hann í raun í heima hjá sér að lesa, hjóla eða í sumarhúsi sínu við Cape Cod í Massachusetts. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa stolið 900.000 dollurum frá ríkinu með því að ljúga að yfirmönnum sínum og á yfir höfði sér fangelsis- vist í allt að þrjátíu mánuði. Verjandi hans bað dómarann um að taka til greina að hann hefði unnið sam- viskusamlega fyrir ríkið í 25 ár og að það ætti að milda refsingu Beale. n rognvaldur@dv.is John Beale Sagðist þurfa að vinna fyrir CIA svo hann gæti verið í fríi heima hjá sér. James Bond líklega getulaus alkóhólisti Læknar myndu ráðleggja njósnara hennar hátignar að leita sér hjálpar vegna drykkju M argir vilja vera hann og aðrir vilja vera með honum. Hinn sívinsæli njósnari hennar hátign- ar, James Bond, hefur verið dáður um víða veröld í rúm- lega fimmtíu ár þar sem sex leikar- ar hafa leikið hann í 23 kvikmynd- um. Sean Connery gerði línuna „shaken, not stirred“ ódauðlega þegar hann pantaði Vodka-Martini- drykkinn í hlutverki Bonds í Gold- finger árið 1964. Þetta var ekki fyrsti drykkurinn Bonds og alls ekki sá síðasti. Reyndar eru þeir svo margir að læknar óttast að ef einhver tæki upp drykkjusiði njósnarans þá myndi hann enda uppi sem fár- sjúkur alkóhólisti. Ætti að leita sér hjálpar Greint var frá niðurstöðu þriggja lækna í breska læknatímaritinu British Medical Jorunal um áhrif drykkju á líkama Bonds og sögðust þeir hafa miklar áhyggjur af þessu líferni njósnarans. Sögðust þeir hafa ákveðinn skilning á drykkju Bonds, sem þarf iðulega að fást við stórhættulega hryðjuverkamenn, en myndu þó ráð- leggja honum að leita sér hjálpar. Fer yfir öll mörk Læknarnir ákváðu að lesa tólf af bókum rithöfundarins Ians Fleming og komust að því að á meðan Bond var í erinda- gjörðum fyrir land sitt og þjóð drakk hann 65 til 95 einingar af áfengi á viku. Karl- mönnum er ráðlagt að drekka ekki meira en þrjár til fjórar ein- ingar af áfengi á dag. Læknarnir komust að því að Bond ók ítrekað ölvaður en þeir leiða að því líkur að Bond hafi drukkið svo mikið vegna álags í vinnunni. „Í Goldfinger til dæmis, drakk hann átján einingar á meðan hann snæddi kvöldverð með Auric Gold- finger. Eftir kvöldverðinn keyrði hann heim,“ segja læknarnir í grein- inni. „Í Casino Royale drakk hann 39 einingar af áfengi áður en hann lagði af stað í glæfralega eftirför á bíl sínum. Hann þurfti að liggja á sjúkrahúsi í tvær vikur eftir þessa eftirför.“ Edrú í 36 daga Af þeim rúmu 123 sólarhringum sem þessar tólf bækur ná yfir var Bond aðeins allsgáður í 36 daga. Var það vegna ytri aðstæðna þar sem Bond var meðal annars á sjúkra- húsi og haldið föngnum. Mest drakk hann 49,8 einingar af áfengi á ein- um degi í bókinni From Russia With Love. Líklega getulaus Læknarnir segja þetta líferni Bonds vera honum afar skaðlegt. Til að mynda eru miklar líkur á að hann eigi eftir að þjást af lifrarsjúkdóm- um tengdum drykkjunni og þá get- ur drykkjan einnig valdið getuleysi. Svo ekki sé minnst á hættuna á því að valda sjálfum sér skaða sökum ölvunar. „Við erum á því að það væri ólíklegt að James Bond gæti hrært í drykkjum sínum sökum áfengis- skjálfta.“ n „Það væri ólíklegt að James Bond gæti hrært í drykkjum sínum sökum áfengis- skjálfta. Birgir Olgeirsson birgir@dv.is Einum of mikið? Hér fær James Bond, leikinn af Pierce Brosnan, sér vænan sopa af áfeng- um drykk. Læknar óttast að breski njósnarinn muni í raun drekka sig í hel með þessu áframhaldi. „Shaken, not stirred“ Sean Connery sagði fyrstur þessa frægu línu í kvikmyndinni Goldfinger sem kom út árið 1964. Óléttar hreinar meyjar Ein af hverjum 200 ungum konum segjast hafa orðið óléttar án þess að hafa stundað kynlíf. Þetta kemur fram í rannsókn sem framkvæmd var í Bandaríkjunum yfir 14 ára tímabil. Tekin voru viðtöl við 7.870 unglingsstúlkur, en rannsóknin var á vegum há- skólans í Norður-Karólínu. Ein af hverjum þúsund stúlkum sagðist hafa orðið ólétt sem hrein mey og án þess að nota tæknifrjóvgun. Þá hafði 31 prósent þeirra sem urðu óléttar, skrifað undir skuld- bindingu um skírlífi. Einnig kom fram að þær sem höfðu stundað kynlíf áttu í betri samskiptum við foreldra sína um kynlíf almennt, en þær sem voru hreinar meyjar. Stálu hnetum drottningar Elísabet Bretadrottning var svo óánægð með að konunglegir lögregluþjónar tækju sér hnetur úr skálum á göngum Bucking- ham-hallar að hún sendi út sér- staka tilkynningu til þeirra. Hún merkti skálarnar sérstaklega svo hægt væri að sjá hvort búið væri að taka af hnetunum og fylgdist því greinilega vel með. Þetta kom fram í málaferlum vegna sím- hlerana News of the World, en fréttamaðurinn sem fylgdist með konungsfjölskyldunni greindi frá þessu fyrir dómi. Flintstones- bílnum stolið Fyrir utan teiknimyndasögubúð í Sacramento hefur Flintstone-bif- reið vakið mikla lukku. Þeir sem þekkja til vita að Flintstone vísar til Steinaldarmannanna svokölluðu, teiknimyndaþáttaraðar sem var afar vinsæl á síðustu öld. Bifreiðin var þó aðeins eftirlíking og því ekki gangfær, hvorki með eldsneyti eða á fæti. Kom það því eiganda versl- unarinnar mikið á óvart þegar bifreiðin var horfin á sunnu- daginn þegar hann mætti til vinnu. Þjófarnir hafa þurft að hafa talsvert fyrir því að nappa bifreiðinni, en eigandinn, Dave Downey, segist tilbúinn til þess að kæra málið ekki til lögreglu ef bílnum verði skilað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.