Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 48
48 Lífsstíll Jólablað 20.–27. desember 2013
Parmesanspesíur
Öðruvísi smákökur
S
jónvarpskokkurinn Nigella, er
þekkt fyrir matargerð sína. Þess
ar parmesanspesíur koma úr
hennar smiðju, en þær bragðast
dásamlega volgar og henta mjög vel
með parmaskinku og góðu rauðvíni.
Það er einnig gott að bera þær fram
með hreindýrapaté og villiberjasultu.
Hráefni:
n 150 gr hveiti
n 70 gr parmesanostur, rifinn
n 100 gr smjör
n 1 eggjarauða
Aðferð:
Allt sett í hrærivél og hrært þangað til
deigið er orðið að klumpi. Því næst er
deiginu rúllað upp í tvær lengjur og
það kælt í ísskáp í um klukkustund.
Síðan er það skorið í litla bita líkt
og um smákökur sé að ræða og bakað
við 180°C í 40 mínútur eða þangað til
þær eru ljósgylltar á lit. n
Dásamlegar Kökurnar
bragðast dásamlega volgar og
henta mjög vel með parmaskin-
ku og góðu rauðvíni.
Bestu
skreytingarnar
Sælgætisstafir eru ein táknmynd
jólanna, hvítir og rauðir á lit, jafn
fallegir og þeir eru bragðgóðir.
Enda eru þeir gjarna notaðir til að
lífga upp á jólastemninguna, hvort
sem það á að skreyta heimilið eða
pakkana. Verst er að litlir fingur
eiga það til í að laumast í góðgætið,
þar sem freistingin er alltaf til stað
ar. Eftir sem áður eru sælgætis
stafirnir ódýrir og einfalt og fallegt
skraut. Hér eru nokkrar hugmyndir
sem hægt er að stela. Njóttu.
Jólagjafirnar Einfaldleikinn í öllu sínu
veldi en fallegt engu að síður.
Fallegt Sælgætisstafir og borðar í
sömu litum á brúnum pappír koma vel út.
Jólakransinn Þennan er vel hægt að
borða þegar aðventunni lýkur.
Skreyttir með
slaufu Sæl-
gætisstafir með
slaufu hanga í
lausu lofti.
Svona kemst þú
hjá því að fitna
Þ
egar of langur tími líður á
milli máltíða getur gripið
mann gríðarleg svengd
sem endar oft með því að
maður borðum það sem
hendi er næst.
Súkkulaði, samloka á bensín
stöð eða pylsa með öllu er ekki besti
kosturinn til að fá sér til þess að
seðja hungur.
Í slíkum aðstæðum virðist ógjörn
ingur að hafa sjálfsstjórn og aga á
fæðuvali. Þegar líkaminn er kominn
í þetta ástand öskrar hann yfirleitt á
óhollustu, eins og fitu og sætindi.
Með nokkrum einföldum leið
um er hægt að koma í veg fyrir að
svona ástand skapist.
Regla
Það er góð regla að borða á þriggja
tíma fresti yfir daginn til að forðast
að lenda í sykurfalli. Hafðu alltaf
eitthvað hollt viðbit, líkt og hnetur,
rúsínur eða ávexti.
Vatn
Drekktu nóg af vatni yfir daginn og
helst tvo lítra. Ekki drekka það allt
á skömmum tíma, heldur skaltu
dreifa því jafnt yfir daginn. Ef lík
aminn fær nægan vökva er hann í
betra jafnvægi.
Hvíld
Lítill svefn getur aukið svengd
og valdið tilhneigingu til
þyngdaraukningar. Svengdar
hormón eins og ghrelín og leptín
truflast þegar svefn er ekki nægur.
Mikil streita getur aukið fram
leiðslu á hormóninu kortisól, sem
er talið hafa slæm áhrif lífsstílsjúk
dóminn kviðfitu.
Af þessum ástæðum er mikil
vægt að gefa sér tíma fyr
ir gæðasvefn og forðast óþarfa
streitu.
Morgunmatur
Það hefur löngum verið sagt að
morgunmaturinn sé mikilvægasta
máltíð dagsins, það er mikið til í
því. Hver myndi reyna að koma
bílnum sínum í gang ef hann væri
án bensíns? Hvers vegna ættir þú
þá að koma þér af stað út í daginn
án þess að fylla á tankinn hjá þér?
Hafragrautur er góður kostur í
morgunsárið og heldur þér gang
andi fram eftir morgni. Hafðu fyr
ir reglu að borða alltaf á morgnana
áður en haldið er út úr húsi.
Njóta
Þegar aðalmáltíðir dagsins eru
borðaðar er góð regla að njóta
þess og taka sér góðan tíma í það.
Með því að borða hægt og tyggja
matinn vel þá kemur þú í veg fyr
ir að þú borðir meira en líkaminn
þarf á halda. Það tekur heilann um
20 mínútur að taka á móti skila
boðum um að líkaminn sé búinn
að fá nóg. n
iris@dv.is
Hollt og gott
á milli mála
Bananar Eru afar ríkir af steinefninu
kalíum. Ef efnið vantar í líkamann getur
það haft slæm áhrif á blóðþrýsting. Ban-
anar eru ríkir af kolvetnum og eru einnig
trefjaríkir
Harðfiskur Hann inniheldur omega-3
fitusýrur og er hlaðinn hágæða prótein-
um. Gott viðbit sem inniheldur fáar
hitaeiningar.
Hnetur Eru mjög auðugar af andoxunar-
efnum eins og E-vítamíni. Þær innihalda
fjölómettaðar fitusýrur sem eru afar
hollar.
Ber Fersk ber innihalda mikið magn
andoxunarefna og eru hollur kostur á
milli mála.
Rúsínur Þurrkaðir ávextir eru hita-
einingaríkir og ættu því þeir sem eru of
þungir að neyta þeirra í hófi. Þeir eru þó
afar trefjaríkir og innihalda mikið magn af
vítamínum og steinefnum.
Reglulegt og heilbrigt mataræði er sem fyrr lykilinn að bættri heilsu
Heilbrigði Pylsa og
kók er ekki hollasti
skyndibitinn.