Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 44
Jólablað 20.–27. desember 201344 Fólk
2012 Hildur Lilliendahl
Hildur Lilliendahl hefur barist fyrir jafn-
réttismálum hér á landi og gegn því að
kvenfyrirlitning og lítillækkun á konum
í orðræðu verði að eðlilegum tjáningar-
máta. Hildur fékk fjölmargar tilnefn-
ingar en hún vakti athygli landsmanna
í upphafi árs þegar hún setti saman
myndaalbúmið Karlar sem hata konur.
2011 Ólafur Karl Óskarsson
Ólafur Karl Óskarsson var þriggja ára
þegar hann var valinn hetja ársins 2011.
Ólafur Karl hefur verið veikur frá fæðingu
en hann fæddist með eitt nýra sem var
fyrir ári orðið óstarfhæft og þurfti hann
því að mæta á skilunardeild Landspít-
alans þrisvar í viku. Meðferðin var erfið
en alltaf mætti Óli með bros á vör og
dundaði sér meðan á meðferðinni stóð.
2010 Þórður Guðnason
Þórður Guðnason og félagar hans í
Björgunarfélagi Akraness unnu gífurlegt
þrekvirki þegar þeir björguðu sjö ára
dreng úr sprungu á Langjökli. Liðsmenn
Björgunarfélags Akraness voru kallaðir
út. Var sú ákvörðun tekin að Þórður
skyldi látinn síga niður í sprunguna til
mæðginanna. Í um það bil klukkutíma
hékk hann á hvolfi við afar erfiðar
aðstæður. Um fjórir tímar liðu frá því að
drengurinn féll niður um sprunguna þar
til hann náðist upp.
2009 Sigurður Betúel Andrésson
og Svava Snæberg
Lögreglumennirnir Sigurður Betúel
Andrésson og Svava Snæberg björguðu
lífi manns á gólfi bakarís í Kópavogi.
Maðurinn hneig niður og sýndi ekkert
lífsmark. Lögreglumennirnir hnoðuðu og
blésu í hann lífi. Hann var fluttur á spítala
í kjölfarið og var fljótlega útskrifaður.
2008 Þráinn Bjarnason
Farestveit
Þráinn Bjarnason Farestveit fram-
kvæmdastjóri var valinn hetja ársins
2008 en hann vann mikla hetjudáð þegar
hann bjargaði manni úr bifreið sem stóð
í ljósum logum við Reykjaveg í Reykjavík.
eftir að gas hafði lekið úr kút sem var í
aftursæti bílsins.
Þessir eru tilnefndir
sem Hetja ársins 2013
L
esendur og dómnefnd skipuð
af ritstjórn DV hafa valið þá
einstaklinga sem tilnefndir eru
sem Hetja ársins 2013. Tólf að-
ilar eru tilnefndir í ár en þetta
er í sjötta sinn sem valið fer fram.
Um tvö hundruð tilnefningar bárust
en um fimmtíu aðilar voru nefndir.
Dómnefnd fór yfir allar tilnefningarn-
ar og sigtaði út þá sem nú hafa verið
tilnefndir.
Í dag hefst kosning um Hetju
ársins 2013 á DV.is og er hægt að kjósa
á milli þeirra aðila sem tilnefndir eru.
Allir þeir sem eru með aðgang að
Facebook geta tekið þátt í valinu og er
einfalt að kjósa. Hægt er að kjósa fleiri
en einn aðila en sá sem fær flest at-
kvæði stendur uppi sem sigurvegari.
Dómnefnd mun fylgjast með fram-
kvæmd atkvæðagreiðslunnar sem og
umsjónarmenn vefjarins.
Dómnefndina skipa þau Birgir
Olgeirsson, Aðalsteinn Kjartansson,
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Ingi
Freyr Vilhjálmsson, Viktoría Her-
mannsdóttir og Hörn Heiðarsdótt-
ir. Dómnefndin hafði tök á að koma
með eigin tilnefningar. n
n Kosning hefst um Hetju ársins inn á DV.is í dag n Hver finnst þér vera hetja?
Fyrri Hetjur ársins
Stúlkan sem bjargaði móður sinni Þrettán
ára stúlka sem dró móður sína út úr brennandi íbúð í
Írabakka.
Róbert Guðmundsson Hjá Hjálparsamtökum
Íslendinga. Hugaði að manni við Esjurætur.
Erna Agnarsdóttir og María Haraldsdóttir
Aðstoðuðu Kastljós við að fá játningar frá Karli Vigni
Þorsteinssyni barnaníðingi.
Örvar Arnarson Lét lífið við að reyna að bjarga
nemanda sínum í fallhlífarstökki.
Vilborg Arna Gissurardóttir Safnaði 27
milljónum fyrir Líf með því að ganga á suðurpólinn.
Sumarstarfsfólkið á 101 leikskóla Sviptu
hulunni af ofbeldi gagnvart börnum á 101 leikskóla.
Friðþór Harðarson og Sigurður Friðþórsson
Björguðu sjö manna fjölskyldu á Austurlandi úr
brennandi húsi.
Rebekka Halldórsdóttir og Hafdís Ýr
Birgisdóttir Söfnuðu nauðsynjum fyrir útigangsfólk.
Sigríður María Egilsdóttir Hefur barist fyrir
kvenfrelsi á alþjóðavettvangi.
Örvar Þór Guðmundsson Safnaði tveimur
milljónum og gaf tíu fjölskyldum í neyð fyrir jólin.
Selma Björk Hermannsdóttir Steig fram
og talaði um eineltið sem hún varð fyrir.
Gróa Ásgeirsdóttir, Guðný Pálsdóttir og
Elísabet Sveinsdóttir Standa á bak við hina ár-
legu söfnun Á allra vörum og söfnuðu 47 milljónum í ár.