Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 10
Jólablað 20.–27. desember 201310 Fréttir
Tíu mál hjá
EFTA-
dómstólnum
Sex málum gegn íslenska ríkinu
hefur verið vísað til EFTA-dóm-
stólsins af ESA, eftirlitsstofnun
EFTA. Núverandi
staða er áhyggju-
efni að sögn Odu
Helen Sletnes, for-
seta stjórnar ESA.
Hún segir erfitt
að þurfa að velja
þessa leið, þ.e.
dómsmál gegn ís-
lenska ríkinu. Mál-
in snúast um álagningu vegatolla á
ökutæki sem ætluð eru til þunga-
flutninga, rekjanleika sprengiefna,
flokkunarkerfi fyrir flugeldavörur,
mengun frá skipum, meðhöndlun
úrgangs sem og réttur starfsmanna
til upplýsinga og samráðs.
Fyrir liggja fjögur mál sem vís-
að hefur verið til dómstólsins, en
þau snúa að skattareglum, vá-
tryggingamiðlurum, stöðu kynja á
vinnumarkaði og fjórða málið snýr
að eiginfjárkröfum banka. Þeim
var vísað til dómstólsins í maí.
Stór
mál
eftir í
þinginu
n Minnihlutinn hafði betur þegar samið var um þinglok
S
tjórnarandstaðan náði
mörgum af kröfum sínum
í gegn í samningum við
stjórnarmeirihlutann um
þinglok en þingstörf hafa
verið í uppnámi síðustu daga
vegna vandræða með fjárlagafrum-
varp næsta árs sem átti, samkvæmt
áætlun þingsins, að vera löngu af-
greitt. Minnihlutinn á þingi hefur
sjaldan verið í jafn góðri samnings-
stöðu gagnvart meirihlutanum og
nú. Önnur umræða um frumvarpið
hefur staðið í vikunni en breytingar
hafa verið gerðar á frumvarpinu
nær daglega. Forsendur þinglok-
anna voru meðal annars þær að at-
vinnulausir fái greidda desember-
uppbót og að fallið sé frá áformum
um legugjald á sjúkrahúsum.
Vildu meira
Bæði Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, og Birgitta
Jónsdóttir, oddviti Pírata, hafa lýst
yfir ánægju sinni með breytingarn-
ar en hafa á sama tíma kall-
að eftir frekari breytingum. Enn
stendur til að mynda til að skera
niður þróunaraðstoð og hækka
skráningargjöld í háskólann en
þessar aðgerðir hafa verið gagn-
rýndar harðlega. Árni Páll sagði
á þriðjudagskvöld að þrátt fyrir
breytingarnar sem samið var um
þurfi nýja stjórn til að breyta um
stefnu.
Breytingarnar sem gerðar eru á
fjárlögunum á milli umræðna þýða
að tekjuafgangurinn sem áætlaður
var 600 milljónir verður ekki nema
300 milljónir. Lítið þarf því út af
bregða til að afgangurinn hverfi.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár-
laganefndar, hefur staðið hörð
gegn kalli stjórnarandstæðinga eft-
ir auknum útgjöldum en ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks hefur mikið lagt upp úr því
að stöðva skuldasöfnun ríkis sjóðs.
Risabreytingar enn eftir
Þetta þýðir þó ekki að næstu
dagar verði auðveld sigling fyrir
stjórnar meirihlutann. Enn á eftir
að koma fram með risabreytingar
á bankaskattinum til að auka
tekjurnar af honum um 20 millj-
arða króna. Þegar hafa verið lagð-
ar til breytingar á bankaskattinum
frá því sem kynnt var þegar fjár-
lögin voru lögð fram til að koma til
móts við athugasemdir sem gestir
efnahags- og viðskiptanefndar
gerðu við framkvæmd skattheimt-
unnar sem nú nær í fyrsta sinn
til fjármálafyrirtækja í slitameð-
ferð. Skattprósentan á að hækka úr
0,145 prósentum í 0,151 prósent.
Það er þó ekki hluti af skuldaniður-
fellingunni.
Fyrirhugaðar skuldaniður-
fellingar upp á áðurnefnda 20
milljarða eru því með öllu ófjár-
magnaðir eins og staðan er í dag.
Skuldaniðurfellingarnar eru óum-
deilanlega stærsta mál stjórnar-
innar en hún var forsenda stjórnar-
samstarfsins og ljóst að tryggja
þarf fjármögnun þeirra núna svo
að henni seinki ekki um heilt ár. n
Erfið staða
Ríkisstjórnar-
meirihlutinn
undir forystu Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar
er í erfiðri stöðu
vegna fjárlaga-
frumvarpsins.
Minnihlutinn
hefur sjaldan
verið í jafn góðri
samningsstöðu.
Mynd SigtRygguR ARi
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is Þetta var
samþykkt
n Brothættar byggðir fá 50 milljónir
n Rannsóknarsjóður fær 50 milljónir
n Fallið frá legugjaldi á sjúkrahúsum
n Desemberuppbót til atvinnulausra
n Fallið frá hámarki endurgreiðslu
nýsköpunarverkefna
n Hönnunarsjóður settur aftur á fjárlög
n Myndlistarsjóður settur aftur á fjárlög
n Unnið að stefnumörkun um lengingu
fæðingarorlofs
n Unnið að stefnumótun í rannsókna-
og vísindamálum
n Vinna við Þjóðaröryggisstefnu kláruð
Umfjöllunin ærumeiðandi
D
V var dæmt til að greiða
miskabætur fyrir meiðyrði
vegna umfjöllunar blaðsins
um Hans Aðalstein Helga-
son. Hans Aðalsteinn kærði DV fyrir
meiðyrði, en fjallað var um hann
í tengslum við úttekt DV á skatt-
greiðslum aðila í undirheimum.
Hans Aðalsteinn hefur hlotið þrjá
refsidóma frá árinu 2009, meðal
annars fyrir fjársvik og sérstaklega
hættulega líkamsárás.
Í umfjöllun DV voru laun Hans
Aðalsteins samkvæmt álagningar-
skrá ríkisskattstjóra sett í samhengi
við fjársvikamálið í Íbúðalánasjóði.
Hans Aðalsteinn hlaut níu mánaða
skilorðsbundinn dóm fyrir aðild sína
að því máli. Fullyrt var að Hans Að-
alsteinn tengdist Hells Angels en
Íbúðalánasjóðsmálið tengdist inn-
göngu Fáfnis í Vítisengla. Hans Aðal-
steinn sagði fyrir dómi að hann hafi
þurft að útskýra fyrir aðstandend-
um að hann væri ekki tengdur Hells
Angels og að hann hafi verið tekinn
á teppið í vinnunni vegna fréttaflutn-
ingsins.
Í öðrum fjölmiðlum var fjársvika-
málið í Íbúðalánasjóði einnig tengt
við Vítisengla. Dómurinn mat það
sem svo að ekki hafi verið sýnt fram
á eiginleg tengsl á milli Hans Aðal-
steins og Vítisengla. Fyrir umfjöllun
sína um Hans Aðalstein er DV gert
að greiða 100 þúsund króna sekt í
ríkissjóð, 200 þúsund króna miska-
bætur til Hans og 500 þúsund krónur
í málskostnað. n
Hans Aðalsteinn hefur hlotið þrjá refsidóma frá árinu 2009
1.171 þúsund
krónur í laun
Laun forstjóra Íbúðalánasjóðs
hækka um rúmlega 79 þúsund
krónur á mánuði, eða um
7,2 prósent, í kjölfar nýlegrar
ákvörðunar kjararáðs.
Árið 2012 voru laun Sigurðar
Erlingssonar, forstjóra sjóðsins,
hækkuð úr 982
þúsund krónum
á mánuði í 1.092
þúsund krónur
mánaðarlega.
Þetta taldi Sig-
urður ekki endur-
spegla auknar
kröfur sem til
hans voru gerðar
í starfi og undir
þetta tekur kjararáð. Ákveðið var
að hækka laun hans í 1.171 þús-
und krónur á mánuði. Með þessu
hafa launin hækkað um 189 þús-
und krónur, 19,3 prósent, frá ár-
inu 2010. Það vekur athygli að
þrátt fyrir þessa ákvörðun kjara-
ráðs hafnaði velferðarráðuneytið
þessum kröfum í umsögn sinni
og taldi sig ekki hafa lagt auknar
kröfur á herðar forstjórans.
Sigurður
Erlingsson
Sigmundur
davíð