Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 54
Jólablað 20.–27. desember 201354 Skrýtið Sakamál
Morðinginn
í rúminu
n Afbrýðisemin tók völdin af Attila Ban
H
ótelstarfsmaðurinn Attila
Ban, þá 37 ára, stakk tvo
kollega sína til bana í af-
brýðisemiskasti og tókst að
forðast verði laganna í tvo
sólarhringa í kjölfarið.
Morðæðið rann á Attila 10. ágúst
2011, en þegar þar var komið sögu
hafði hann tekið þátt í kynlífs- og
dóporgíu með kollegum sínum, Alice
Adams og Tibor Vass, sem bæði voru
um tvítugt, og hafði gleðskapur-
inn staðið yfir í hátt í sólarhring í
starfsmannaíbúð Radisson-hótels í
Lundúnum.
Attila stakk Alice og Tibor alls 24
sinnum. Að því loknu reif hann fötin
utan af líki Tibors og stillti því upp
nöktu á tvöföldum dívan.
Alice fékk ekki jafn virðingarverða
meðferð. Lík hennar lá eins og tusku-
dúkka á stofugólfinu og hafði púða
verið fleygt yfir höfuð hennar. Hún
hafði verið stungin 22 sinnum.
„Ég vil vakna upp af þessari
martröð“
Að þessu loknu tók Attila saman
ýmis legt sem nýst gæti til að komast
af í óbyggðum – frumstætt mjög. Á
meðal þess var vatnsflaska og farsími
og hnífur. Síðan lagðist hann í rúm-
fatakistu dívansins og gat fylgst með
því sem fram fór í gegnum gat sem
hann hafði gert með hnífnum.
Í tvo sólarhringa faldi hann sig
með þessum hætti og uppfærði
meira að segja Facebook-status sinn
skömmu eftir blóðbaðið: „Ég vil
vakna upp af þessari martröð.“
Í gegnum gatið fylgdist Attila með
lögreglunni safna saman sýnum og
vísbendingum öðrum, en ákvað þó á
endanum að gefa sig fram. Lögreglan
kom að honum þar sem hann lá á
grúfu, alblóðugur í öðru rúmi í íbúð-
inni.
Attila lét í það skína að hann hefði
misst minnið og gaf í skyn að hann
gæti aðeins tjáð sig á táknmáli.
Starfsmaður ársins
Attila og fórnarlömbin unnu öll á
Radisson Blu Edwardian-hótelinu
við Heathrow-flugvöll í vesturhluta
Lundúna.
Attila var vinnuþjarkur mikill og
hafði unnið í gestamóttöku annarra
hótela, meðal annars í Bandaríkjun-
um. Hálfu ári fyrr hafði Attila verið út-
nefndur Starfsmaður ársins á Radis-
son-hótelinu við Heathrow-flugvöll.
Attila, opinberlega samkyn-
hneigður, féll fyrir Tibor, sem líkt og
Attila átti rætur að rekja til Ungverja-
lands. Tibor hafði hafið störf á hót-
elinu í ágúst 2010, en hafði upphaf-
lega flutt til Bretlands eftir að hann
fékk ekki inngöngu í háskóla í heima-
landinu.
Afbrýðisemi Attila var slík að sam-
skipti Tibors við konur voru eitur í
hans beinum og lét hann Tibor oft
heyra það. Hann fékk það í gegn að
honum var úthlutuð starfsmanna-
íbúð Radisson og tókst með harðfylgi
að telja Tibor á að flytja þar inn.
En þegar Tibor fékk þau tíðindi frá
Ungverjalandi að hann hefði fengið
inngöngu í háskóla féllust Attila
hendur og afbrýðisemin heltók hann.
Tímabundið starf
Alice Adams var frá Iver Heath í Buck-
ingham-skíri og hafði mikinn áhuga á
tónlist og fleiri listformum. Hún vann
í gestamóttöku hótelsins eingöngu til
að hjálpa móður sinni sem glímdi við
fjárhagsörðugleika.
Hún var, innan örfárra daga, á leið
í frí sem hún hafði hlakkað mikið til
– til Hawaii til að vera viðstödd brúð-
kaup frænku sinnar. Það varð aldrei
úr þeirri för því hún samþykkti að
taka þátt í partíi með Attila, Tibor og
fleiri starfsmönnum hótelsins.
Í partíinu tók fólkið til óspilltra
málanna og sparaði hvorki lyf né
áfengi, en innan tíðar voru einungis
Attile, Tibor og Alice eftir.
Skiptust mennirnir á að hafa mök
við Alice og er talið að það hafi orðið
Attila um megn þegar það rann upp
fyrir honum að Tibor myndi ávallt
taka kynlíf með konum fram yfir
kynlíf með karlmönnum – og þá ekki
síst kynlíf með honum sjálfum.
Sagðist ekkert muna
Attila hélt því fram að hann myndi
ekkert eftir morðunum. „Ég viður-
kenni að ég myrti þau. Ég bara man
ekki hvað gerðist,“ sagði hann. Einnig
fullyrti hann að hann hefði reynt af
svipta sig lífi í kjölfar morðanna en
það hafi ekki tekist.
Við réttarhöldin reyndi Attila að
sýnast geðveikur með það fyrir aug-
um að verða úrskurðaður sakhæfur,
en hafði ekki erindi sem erfiði.
Hann fékk lífstíðardóm og má fyrst
sækja um reynslulausn eftir 26 ára af-
plánun. Dómarinn í málinu, Gerald
Gordon, var ómyrkur í máli þegar
hann ávarpaði Attila og sagði hann
þjást af ofsóknaræði samhliða því að
vera hégómlegur og hann hefði myrt
tvær saklausar manneskjur.
„Þú segist – þá og nú – ekki muna,“
sagði dómarinn og bætti við: „Það
kann vel að vera satt.“ n
„Ég vil vakna
upp af
þessari martröð
Attila Ban, beddinn og fórn-
arlömbin Attila myrti Tibor Vass og
Alice Adams og faldi sig, í tvo sólarhringa,
fyrir lögreglu inni í dívani undir líki Tibors.
Lögga heillaði
þjóf á netinu
Varðstjóri í bandarísku borginni
Richmond ákvað að beita óvenju-
legri aðferð við að handsama
þjóf sem mætti ekki fyrir dóm-
ara. Lögreglan ákvað að lýsa eftir
þjófinum, Ryan Covington, eftir
að leit að honum hafði engan
árangur borið. Varðstjórinn,
Daniel Minton, ákvað að stofna
aðgang á stefnumótasíðunni
OkCupid undir nafninu Sasha
þar sem hann komst í samband
við Covington. Sasha heillaði eft-
irlýsta manninn upp úr skónum
og ákváðu „þau“ að hittast. Þegar
Covington mætti á svæðið mætti
honum Daniel Minton sem
handtók hann. Covington grát-
bað Minton að gefa sér tækifæri
því hann væri að hitta undurfagr-
an kvenmann á stefnumóti og
varð að vonum svekktur þegar
hann komst að því að hann hafði
verið blekktur af lögreglunni.
Árás á nunnu
Táningur frá Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum hefur verið
ákærður fyrir hrottalega nauð-
gun á 85 ára nunnu. Atvikið
átti sér stað fyrir utan kirkju, en
Andrew Bullock, 18 ára að aldri,
hafði boðist til að rétta nunnunni
hjálparhönd þegar hún var að
leggja bílnum sínum. Eftir að
hann hafði gert það beraði hann
sig. Að sögn lögreglunnar reyndi
þá nunnan að hlaupa á brott, en
drengurinn greip um háls henn-
ar, barði hana í andlitið og niður-
lægði hana svo kynferðislega.
Konan gat ekki tjáð sig við lög-
reglu vegna þess að tanngómur
hennar hafði farið úr skorðum,
en hún skrifaði á blað að maður-
inn hefði nauðgað henni.
Fjöldamorð
jólasveins
Á aðfangadag verða liðin fimm ár
síðan hörmulegur atburður átti
sér stað í Covina í Los Angeles.
Hinn 45 ára
gamli Jeffrey
Pardo hafði
átt í hjóna-
bandserjum
og misst end-
anlega vitið í
aðdraganda
jóla. Að
kvöldi að-
fangadags
dúkkaði hann upp á heimili fyrr-
verandi eiginkonu sinnar, vopn-
aður og í jólasveinabúningi.
Hann myrti níu manns, meðal
annars átta ára stúlku, og kveikti
í húsinu. Pardo flúði og faldi sig í
húsi bróður síns. Þar svipti hann
sig lífi og fannst daginn eftir.
Harmleikurinn er kenndur við
borgina og er vísað til hans sem
Covina-fjöldamorðanna.
Stakk litlu frændsystkin sín hundrað sinnum
Valentino Bagola nauðgaði litlu frænku sinni og myrti svo frændsystkinin
V
alentino Bagola hefur
verið dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir að myrða
ung frændsystkin sín á
hrottafenginn hátt árið 2011. Hann
var að passa hina níu ára Destiny
Shaw og hinn sex ára Travis DuBois á
Spirit Lake-verndarsvæðinu í Norð-
ur-Dakóta í Bandaríkjunum þegar
hann framdi ódæðin. Hann stakk
börnin meira en hundrað sinnum.
Lík barnanna fundust þann 21.
maí 2011 og voru morðin óleyst saka-
mál í rúmt ár. Á þeim tíma mætti
Bagola í jarðarför frændsystkinanna
og var kistuberi þeirra. Hann lét sem
ekkert hefði í skorist. Bagola viður-
kenndi síðar í yfirheyrslu lögreglu að
hafa nauðgað litlu frænku sinni og
myrt síðan hana og frænda sinn.
Þessa játningu dró hann þó til
baka meðan á réttarhöldunum stóð.
„Ótrúleg villimennska“
Bagola er nú tvítugur en saksóknar-
inn í málinu – Chris Myers – fór fram
á að hann fengi tvo lífstíðardóma.
„Þessi börn voru saklaus, saklaus
fórnarlömb kynferðisofbeldismanns,“
sagði Myers.
Dómarinn í málinu sagði að
hrottafengnar árásir Bagola á
frændsystkinin séu það alvarlegar að
hann eigi aldrei að verða frjáls maður
aftur. „Það var ótrúleg villimennska
sem fólst í þessum árásum,“ sagði
dómarinn Ralph Erickson. Ljóst væri
að Bagola glímdi við „óstjórnlega
reiði“.
Dæmdi Erickson Bagola í lífstíðar-
fangelsi en kaus að verða ekki við
kröfu ákæruvaldsins um tvo lífstíðar-
dóma. „Það er nánast óhugsandi að
þú losnir úr fangelsi. Þegar þú hefur
verið dæmdur til þess að deyja í fang-
elsi, þá deyrðu í fangelsi,“ sagði hann,
og bætti við að því væri óþarft að
dæma hann í tvöfalt lífstíðarfangelsi.
Bagola hefur nú tvær vikur til þess að
áfrýja dómnum en hann fór fram á
sýknu í málinu. n
ritstjon@dv.is
Hrottafengin árás
Valention Bagola
stakk frændsystkin sín
hundrað sinnum. Litlu
frænku sinni nauðgaði
hann áður en hann
myrti hana.