Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Blaðsíða 40
40 Sport
H
eil umferð fer fram í enska
boltanum um helgina og
önnur á öðrum degi jóla.
Leikur fyrri umferðarinnar,
sannkallaður stórslagur,
fer fram í London á mánudag þar
sem Arsenal og Chelsea mætast á
Emirates.
Bæði lið eru í harðri baráttu á
toppi deildarinnar. Arsenal á tvö stig
á bæði Liverpool og Chelsea og því
getur Chelsea með sigri skotist upp
fyrir erkifjendurna.
Á öðrum degi jóla eigast svo við
Manchester City og Liverpool. Báðir
leikirnir eru ákaflega þýðingarmiklir,
enda spennan á toppi deildarinnar
næsta óbærileg.
Allra augu á Suárez
Liverpool á um helgina leik á heima-
velli, sem miðað við gengi liðsins, ætti
að vinnast örugglega. Liðið fær þá Ís-
lendingaliðið Cardiff í heimsókn.
Cardiff vann West Brom um síðustu
helgi en hafði þar á undan hvorki
unnið né skorað mark í þremur leikj-
um í röð. Flestra augu munu beinast
að Luis Suárez en hann hefur farið
hamförum með Liverpool á leiktíð-
inni. Suárez hefur skorað 16 mörk
í 11 leikjum og auk þess lagt upp 10
mörk til viðbótar. Hann hefur því
ýmist lagt upp eða skorað sjálfur tvo
þriðju hluta marka liðsins á leiktíð-
inni – þrátt fyrir að hafa byrjað fyrstu
fimm leikina í leikbanni.
Rankar Tottenham við sér?
Annar spennandi leikur í fyrri um-
ferðinni er viðueign Southampton
og Tottenham. André Villas-Boas var
rekinn frá Tottenham í vikunni eftir
háðulega útreið á heimavelli gegn
Liverpool um síðustu helgi. Eftir-
maður Boas hafði ekki verið ráðinn
þegar þetta var skrifað en ljóst er að
félagið hefur á að skipa ákaflega öfl-
ugum leikmönnum. Óvíst er hvern-
ig þeir munu bregðast við tapinu
en ljóst má vera að Southampton,
þremur stigum á eftir Tottenham,
mun hugsa sér gott til glóðarinn-
ar. Leikurinn gæti orðið mjög
spennandi.
Náðug jól hjá Moyes?
Manchester United hefur ekki á
gengið vel á leiktíðinni. Liðið situr
í níunda sæti deildarinnar og vann
Aston Villa sannfærandi um síðustu
helgi, eftir fjóra leiki án sigurs þar
á undan. Moyes ætti, ef allt verður
eðlilegt, að eiga nokkuð náðug jól.
West Ham heimsækir Old Trafford
um helgina, á öðrum degi jóla mæt-
ir liðið Hull á útivelli áður en það fer
til Norwich. Allt eru þetta leikir sem
stuðningsmenn United gera kröfu
um að vinna.
Everton á flugi
Forvitnilegt verður að sjá hvort
Everton blandar sé enn frekar í
toppbaráttuna yfir hátíðarnar.
Liðið, sem hefur leikið níu leiki í
röð án þess að tapa og unnið þrjá
af síðustu fjórum mætir Swansea
á útivelli um helgina. Liðið getur
með sigri skotist upp fyrir City,
Chelsea og Liverpool, misstígi þau
lið sig. Á öðrum degi jóla mætir
Everton botnliði Sunderland. Hver
veit nema Everton verði í meistara-
deildarsæti um áramótin? Það yrði
líklega saga til næsta bæjar. n
Jólablað 20.–27. desember 2013
Toppleikir yfir jólin
n Arsenal tekur á móti Chelsea á mánudag n Everton getur blandað sér í toppbaráttu
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Stórslagur Lundúnaliðin
Arsenal og Chelsea eigast
við á mánudag. MyNd REuTERS
M
arkahrókurinn Tryggvi
Guðmundsson, leikmaður
HK, telur að sínir menn í
Arsenal muni hafa betur
gegn Chelsea á Emirates á mánu-
dag, þegar liðin eigast við í stórslag
umferðarinnar. Hann hefur hins
vegar áhyggjur af viðhorfi sinna
manna, þegar á móti blæs.
Laugardagur
Liverpool - Cardiff
Spá: 3–0
„Það er alveg klárt að Liverpool mun vinna
þennan leik. Við getum orðað það þannig
að ég ætla að hafa Suárez sem fyrirliða í
fantasy-liðinu mínu. Það fer allt í gegnum
hann, hvort sem hann skorar sjálfur eða
leggur mörkin upp.“
Crystal Palace - Newcastle
Spá: 1–2
„Það er komið aðeins meira líf í Palace
eftir stjóraskiptin – allavega fá þeir fleiri
stig. Það sama má svo sem segja um
Newcastle, þeir eru öflugir. Ég held að
Newcastle hafi þetta.
Fulham - Manchester City
Spá: 1–3
„Fulham er svolítið eins og búningar
liðsins; litlaust. City er á bullandi skriði þó
liðið þurfi nú að leika án Agüero. En það er
af nógu að taka í leikmannahópi City.
Man. United - West Ham
Spá: 2–0
„Þó það hafi gengið illa hjá United eru þeir
allan tímann að fara að vinna West Ham.
Welbeck er byrjaður að skora. Hann setur
eitt og ég er viss um að Rooney skorar
annað – það hlýtur að vera.“
Stoke City - Aston Villa
Spá: 2–0
„Ég þoli ekki markalaus jafntefli og ætla
að splæsa á heimasigur þarna. Þetta Villa-
lið er alls ekki spennandi.“
Sunderland - Norwich
Spá: 2–1
„Nú fara áhrif stjóraskiptanna hjá Sunder-
land að koma í ljós. Þetta er tilvalinn leikur
fyrir þá að minna á sig. Þeir hljóta á nýta
tækifærið á móti lala-liði Norwich.“
West Brom - Hull
Spá: 2–0
„Þetta er svolítið spurningarmerki. Ef
það verður enginn tekinn við liði West
Brom – og einhver aðstoðarmaður stýrir
því – þá tapar það. En ef það kemur ein-
hver kanóna inn og stýrir þeim, þá munu
leikmennirnir sýna sig og sanna.“
Sunnudagur
Southampton - Tottenham
Spá: 2–2
„Southampton var á fínu róli þar til pólski
markvörðurinn meiddist. Nú er kominn
einhver vitleysingur í markið, einhver
Argentínumaður. Það gæti orðið þeim
dýrkeypt í þessum leik. Tottenham skeit
upp á bak á móti Liverpool og hlýtur að
mæta tvíeflt í þennan leik. Ef það verður
kominn nýr stjóri þá hlýtur hann að átta
sig á að Gylfi Þór stendur sig alltaf vel
þegar hann spilar.“
Swansea - Everton
Spá: 1–2
„Everton er flott. Það höfðu nú ekki
allir trú á að Martínez gæti náð þessum
árangri, eftir brotthvarf Moyes. Hann
hefur troðið sokkum upp í ansi marga.
Það hefur verið gaman að fylgjast með
Everton. Þeir eru flottir.“
Mánudagur
Arsenal - Chelsea
Spá: 2–1
„Þetta var ákveðinn skellur á móti
City, um síðustu helgi. Ég átti svo sem
ekki von á sigri þar. Það veldur mér
hins vegar áhyggjum hvernig tapið fór
í leikmennina. Özil var fúll og Wilshere
sýndi fingurinn. Vonandi rífa þeir sig upp
aftur. Það er jafnteflisfnykur af þessu en
ég ætla að tippa með hjartanu. Hjartað
fær að ráða.“
„Vonandi rífa þeir sig upp“ Vissir þú …… að Jose Mourinho verður á mánudag
fimmti stjóri
Chelsea sem
Arsene Wenger
mætir á Emirates
í síðustu sex viður-
eignum.
… að Luis Suárez
hefur skorað 27
mörk í 25 leikjum
í ensku úrvals-
deildinni á þessu
ári.
… að André Villas-
Boas er sá stjóri
Tottenham í
sögu ensku úr-
valsdeildarinnar,
sem hefur haft
hæst vinningshlut-
fall, eða 54%. Hann er
nú horfinn á braut.
… að um síðustu
helgi gerðist það
í fyrsta sinn, í að
minnsta kosti sjö
ár, að Tottenham
kom í heilum leik
ekki skoti að marki á
heimavelli sínum.
… að Aston Villa er eina liðið í efstu deild
sem ekki hefur skorað mark á heimavelli
í fyrri hálfleik á þessari leiktíð.
Leikir á
öðrum degi jóla
Hull City - Manchester United
Aston Villa - Crystal Palace
Cardiff City - Southampton
Chelsea - Swansea
Everton - Sunderland
Newcastle - Stoke City
Tottenham - West Brom
West Ham - Arsenal
Manchester City - Liverpool