Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 15
Fréttir 15Jólablað 20.–27. desember 2013
Í
aðdraganda jóla voru fjöl-
margir sem létu sitt ekki eft-
ir liggja til að aðstoða þá sem
þurftu á aðstoð að halda. Fjöl-
margar safnanir voru settar af
stað, sumar fyrir heimilislausa,
aðrar fyrir fjölskyldur sem eiga í
fjárhagserfiðleikum. Ljóst var að
fólk var tilbúið að láta sitt ekki eftir
liggja og styrktu margir safnanirn-
ar ríkulega, sem kom sér mjög vel.
Á sama tíma á næsta ári
Örvar Þór Guðmundsson, við-
skiptastjóri hjá Prentmeti, hélt
árlega söfnun sína fyrir jólin.
Að þessu sinni urðu fjölskyldur
langveikra barna fyrir valinu, alls
tíu fjölskyldur. Þær deildu með sér
1.674.000 krónum. Í fyrstu ætlaði
Örvar að aðstoða tvær fjölskyldur,
en vegna mikillar þátttöku tókst
honum að hjálpa fleirum. „Í fyrra
safnaði ég fyrir einstæða móður
sem vann jólatré í einhverjum leik
á FM957. Hún sagði að hún væri
voða þakklát fyrir það því hún
ætti bara tvö þúsund krónur til að
halda jólin og lifa út desember.
Það hreif mig svolítið, ég þekkti
hana ekki neitt og ég setti söfnun
í gang á Facebook-síðu minni. Það
voru svo fleiri sem hrifust með og
ég safnaði um tvö hundruð þús-
und krónum fyrir hana,“ sagði Örv-
ar í samtali við DV, en hann ætlar
að endurtaka söfnunina aftur
næstu jól.
Hálf klikkuð hugmynd
„Fyrir nokkrum dögum fékk ég
hugmynd. Hálf klikkaða hug-
mynd, en það hefur ekki stopp-
að mig áður svo ég leyfði mér
að dvelja aðeins við hana,“ sagði
Styrmir Barkarson, grunnskóla-
kennari í Reykjanesbæ. Hann
safnaði þúsund jólagjöfum handa
börnum sem ekki höfðu kost á því
að fá í skóinn frá jólasveininum.
„Ég var nýbúinn að lesa fréttir um
hræðilegt ástand fjölmargra fjöl-
skyldna hér á Suðurnesjum sem
lifa við sára fátækt og mér varð
hugsað til barnanna. Þeirra sem
jólasveinarnir sneiða hjá þegar
þeir dreifa gjöfum í skó á aðvent-
unni,“ sagði Styrmir. Fjöldi fyrir-
tækja tók þátt í söfnuninni og fékk
Styrmir Keflavíkurkirkju til að að-
stoða sig við að deila út gjöfunum.
„Ég á afmæli aftur á næsta ári“
Hafdís Ýr Birgisdóttir, 10 ára, stóð
fyrir umfangsmikilli söfnun fyrir
útigangsmenn í byrjun nóvember.
„Það á enginn að vera heimilis-
laus,“ sagði Hafdís Ýr þegar blaða-
maður ræddi við hana. Hún lagðist
í söfnunina eftir að hún hafði séð
útigangsfólk ganga um á Granda.
Faðir hennar vinnur á Granda og
var Hafdís forvitin um hópinn sem
hún sá þar oft á gangi. Hún fékk
þau svör frá foreldrum sínum það
væri fólk á Íslandi, sem hvergi ætti
heima. „Hún spurði mig þá, veit
fullorðna fólkið ekki af þessu?“
sagði Gunnþóra Ingvadóttir, móðir
Hafdísar. Í kjölfarið vildi Hafdís Ýr
færa fólkinu eitthvað. Úr varð stór
söfnun fyrir Gistiskýlið við Þing-
holtsstræti, Dagsetrið á Granda
og Konukot. Hafdís gerði meðal
annars uppskriftabók, bakaði með
mömmu sinni og safnaði styrkj-
um hjá fyrirtækjum. Hafdís lét líka
andvirði afmælisgjafanna sinna
renna í söfnunina, en þegar blaða-
maður spurði hana hvort það hefði
ekki verið erfitt sagði hún: „Ég á af-
mæli aftur á næsta ári.“ n
Þau hjálpuðu öðrum
Ótrúlega margir héldu söfnun fyrir þá sem minna mega sín
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Árleg Söfnun Örvars er árleg.
Hjálpaði Styrmir aðstoðaði þau börn sem
jólasveinninn náði ekki til.
Í Dagsetrinu Hafdís
fór með mikið magn
af gjöfum í Dagsetrið.
MynD KriStinn MagnúSSon