Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 22
Jólablað 20.–27. desember 201322 Fólk 5 Lilja PálmadóttirAthafnakona og hestaræktandi Lilja Pálmadóttir er athafnakona sem hefur samfélagslegar hugsjónir. Hún hefur stuðlað að uppbyggingu í sinni heimasveit á Norðurlandi þar sem hún vinnur ötullega að hesta- rækt. Þá vildi hún bæta lífsgæði sveitunga sinna og stóð að byggingu einnar fallegustu sundlaugar lands- ins á Hofsósi. Ekki má gleyma þætti Lilju í menningarlífi landans, hún er sterkur fjárfestir í kvikmyndaiðnaði og þótt eiginmaður hennar standi jafnan í sviðsljósinu er þáttur henn- ar mikill. 6 Björk GuðmundsdóttirTónlistarmaður Björk er sá íslenski tónlistarmaður sem hefur notið mestrar alþjóðlegrar hylli. Hún hóf tónlistarferil sinn afar ung eða á barnsaldri og hefur haldið stefnu síðan. Hún öðlaðist heimsfrægð með Sykurmolunum og frægðarsólin reis sífellt hærra eftir að hún hóf eigin sólóferil. 7 Heiða Kristín HelgadóttirStjórnmálafrumkvöðull Heiða Kristín Helga- dóttir er í hópi þeirra sem eru á bak við hug- myndafræði Besta flokksins og átti stóran þátt í að koma honum til valda í Reykjavík. Heiða Kristín ögraði valdastrúktúr og við- teknum venjum í íslenskum stjórn- málum. Svo mikið að enn dregur framboð Besta flokksins dilk á eftir sér og mikil nýliðun og gerjun á sér stað í íslenskum stjórnmálum. Ný- liðarnir á þingi eru óhefðbundnir og með ólíkan bakgrunn. Heiða hefur þróað hugmyndafræði Besta flokks- ins áfram í umgjörð annars stjórn- málaflokks, Bjartrar framtíðar. 8 Vigdís HauksdóttirÞingmaður Framsóknarflokks Er annar þingmaður Reykjavíkur- kjördæmis suður fyrir Framsóknar- flokkinn. Hún er einnig ritari þingflokks framsóknarmanna og formaður Heimssýnar-hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Vigdís hefur setið í miðstjórn Fram- sóknarflokksins um árabil og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Hún átti stóran þátt í glæst- um sigri flokksins í síðustu kosn- ingum. Hún er óhefðbundin og er af mörgum talin umdeildur stjórn- málamaður. Vigdís hefur sýnt það og sannað að hún fær flest það sem hún vill, þótt hún þurfi kannski að bíða eftir ráðherrastól. En Sigmundi Davíð er hollast að vera notalegur við hana svo hún rífi ekki af honum bæði flokkinn og forsætisráðherra- stólinn. 9 Katrín JakobsdóttirFormaður Vinstri grænna Katrín er fylgin sér. Hún hefur áunnið sér traust og hylli þjóðar og sker sig úr í hópi jakkafataklæddra stjórnmálamanna. Katrínu tekst iðulega að koma málefnum sínum á framfæri án þess að niðurlægja eða vanvirða andstæðinginn. Hún nýt- ur vaxandi virðingar og ekki annað að sjá en að hún fái fjölmörg tæki- færi til að sanna sig enn betur í fram- varðarsveit stjórnarandstöðunn- ar. Hún er vel máli farin, rökföst og trú sinni sannfæringu en jafnframt mannasættir, svo hún gæti náð langt í landspólitíkinni. Katrín hefur öðlast virðingu margra, og algengt er að þeim sem eru ósammála henni líki vel við hana og tali um hana af virðingu. 10 Vigdís FinnbogadóttirFyrrverandi forseti Íslands Vigdís er fyrirmynd kynslóðar kvenna sem trúði því að þeim væru allir vegir færir. Seta hennar í emb- ætti færði kynslóð kvenna trú á eig- in getu. Vigdís var óhefðbundin, einstæð móðir í virtasta embætti landsins. Hún bauð körlum byrginn og var óhrædd við að fara eigin leið- ir í embættisstörfum. Vigdís er enn ofarlega á lista yfir áhrifamestu ís- lensku konurnar og verður þar ör- ugglega áfram. Þjóðin ber enn virðingu fyrir henni og hlustar á það sem hún hefur að segja. Það er ekki slæmt eftir öll þessi ár. 11 Jóhanna SigurðardóttirFyrrverandi forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir er einn þrautseigasti jaxl íslenskrar stjórn- málasögu. Fræg eru orð hennar: „Minn tími mun koma.“ Hennar tími rann upp, hún stóð í stafni á erfiðum tíma í íslensku samfélagi í embætti forsætisráðherra. Samkynhneigð Jó- hönnu þótti fréttaefni langt út fyr- ir landsteinana. Það þótti merkilegt að samkynhneigð kona gegndi jafn veigamikilli ábyrgðarstöðu, þannig hefur hún markað brautina fyrir komandi kynslóðir. 12 Guðbjörg E. EggertsdóttirForstjóri Actavis Guðbjörg Edda tók við starfi for- stjóra Actavis haustið 2010 en hún hefur starfað hjá Actavis og forver- um þess í 30 ár. Hún var aðstoðar- forstjóri Actavis-samstæðunnar frá 2008 og framkvæmdastjóri á mark- aðssviði frá 2002. Þá var hún að- stoðarforstjóri Delta frá 1999. Guðbjörg Edda hefur gríðarlega viðamikla þekkingu á rekstri lyfja- fyrirtækis, hún situr í stjórnum fjöl- margra fyrirtækja á Íslandi og var forseti Samtaka evrópskra samheita- lyfjafyrirtækja, European Generic Medicines Association (EGA), á ár- unum 2011–2013. Þá hlaut hún fálkaorðuna árið 2012 fyrir framlag sitt til uppbyggingar atvinnulífs á heilbrigðissviði. 13 Hildur LilliendahlFemínisti Hildur hefur barist ötullega fyrir jafn- réttismálum hér á landi og gegn því að kven- fyrirlitning og lítillækkun á kon- um í orðræðu verði að eðlilegum hugsunarhætti. Hún hefur sterka rödd og eftir henni er tekið. Hún hefur einnig vakið athygli á því að konur sem taka sterklega til máls þurfa að þola persónuárásir og hótanir. 14 Nanna Bryndís HilmarsdóttirSöngkona Söngkona, laga- og textahöfundur hljóm- sveitarinnar Of Mon- sters and Men sem hefur farið sigurför um heiminn. Nanna er ung söngkona á uppleið og frábær fyrirmynd ungra kvenna sem vilja sækja fram í heimi tónlistar. 15 Agnes SigurðardóttirBiskup Biskup Íslands er fráskilin kona sem hefur sankað að sér lífsreynslu sem hún nýtir sér í störfum sínum. Hún er eins og svo margar aðrar konur á þessum lista, frávik frá hefðinni – fyrsti kvenbiskup landsins og starf- aði lengst af í litlu bæjarfélagi úti á landi, Bolungarvíkurprestakalli. Agnes hefur þegar sýnt að hún er starfinu vaxin þótt kurr hafi staðið um hana í sambandi við Dag vonar. Hún virðist þó réttsýn og á eflaust eftir að endurheimta eitthvað af þeirri virðingu sem þjóðkirkjan hef- ur glutrað niður á síðustu árum og áratugum. 16 Ragna ÁrnadóttirAðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Rögnu Árnadóttur, aðstoðarfor- stjóra Landsvirkjunar, hefur tekist að skapa sátt um hlutverk um Lands- virkjunar. Hún er ávallt málefnaleg og þykir hafa góð áhrif á vinnuand- ann innan fyrirtækisins. 17 Sigrún Ragna ÓlafsdóttirForstjóri VÍS Sigrún Ragna er með víðtæka stjórn- unar- og sérfræðireynslu og hefur unnið með fyrirtækjum úr flestum atvinnugreinum, mikil sátt var um ráðningu hennar til fyrirtækisins. Hún varð fyrsta konan í fimmt- án ár og önnur konan á heildina litið til að stýra skráðu fyrirtæki á Íslandi þegar viðskipti hófust með hlutabréf í VÍS í Kauphöllinni. 18 Hanna Birna KristjánsdóttirInnanríkisráðherra Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráð- herra. Hanna Birna nýtur trausts og jafnan er mikil sátt í kringum hana og hún lætur verkin tala, segir einn ráðgjafa. Ann- ar segir hana ganga hart fram, vera gríðarlega ákveðna og einbeitta. Enginn efist um valdsvið hennar. 19 Eygló HarðardóttirFélagsmálaráðherra Eygló tók sæti á Alþingi fyrir hönd Framsóknarflokksins þegar Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður flokksins, sagði af sér þingmennsku. Hún vakti strax athygli og þótti bera með sér ferska vinda á þing. Hún tal- ar beint til fólks og þykir bæði greind og hafa góða hæfileika í mannlegum samskiptum. Henni er lagið að ná til fólks af tilgerðarleysi. 20 Sóley TómasdóttirBorgarfulltrúi Vinstri grænna Sóley er reynslumikill og þraut- seigur jaxl sem er óþreytandi við að vekja máls á ójafnri stöðu kynjanna. Hún talar hátt, tekur sér pláss en er á sama tíma hlý, brosmild og gefandi í samstarfi. 21 Tinna GunnlaugsdóttirÞjóðleikhússtjóri Tinna hefur setið í stól þjóðleikhús- stjóra í nokkur ár og vakið kon- um von í brjósti. Leikhúsheimur- inn er karllægur og fá hlutverk skrifuð fyrir konur. Tinna er kraftmikil og ákveðin og lætur engan segja sér fyrir verk- um. Oft hefur blásið um Tinnu en hún lætur engan bilbug á sér finna. 22 Ragnheiður ÁrnadóttirFormaður þingflokks sjálfstæðismanna Ragnheiður Elín er með mörg járn í eldinum, hún á sæti í utanríkis- málanefnd Alþingis og er vara- formaður Íslandsdeildar NATO- þingsins. Hún er ákveðin og fylgin sér með eindæmum og þykir hrein jarðýta í að koma málum sínum áfram. Enginn vill hafa Ragnheiði á móti sér, það er ekki vænlegt til ár- angurs. 23 Sigríður I. IngadóttirÞingmaður Samfylkingar Sigríður Ingibjörg hefur metnað sem eftir er tekið. Fræg urðu ummæli hennar um ríka pabbadrengi í póli- tík. Bakgrunnur Sigríðar Ingibjargar er úr Kvennalistanum og hún er öfl- ugur talsmaður kvenna í Samfylk- ingunni. Mörgum hefur þótt hún eiga meira inni en hún hefur upp- skorið. 24 Vigdís GrímsdóttirRithöfundur Vigdís sker sig úr hópi rithöfunda á Ís- landi. Efnistökin vekja ávallt mikla athygli, hún er ósérhlífin og ein- læg og frásagnir hennar ávallt máttugar þess vegna. Hún virðist hafa áhrif langt umfram aðra höfunda og ef til vill er það vegna efnistakanna sem varða oft hlutskipti og örlög kvenna í heimi karla. 25 Jóhanna Vigdís HjaltadóttirFjölmiðlakona Jóhanna Vigdís er ein reynslumesta fjölmiðlakona landsins og í þunga- vigt hvað varðar greiningu á stjórn- málaumræðu landsins. Hún er skelegg og vinnur vel und- ir álagi, þá þykir hún afar fagmann- leg og vanda til verka. 26 Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum Guðrún Jónsdóttir hefur hjálpað fjölda fólks sem hefur átt í fá hús að venda. Hún hefur um árabil barist gegn kynferðisofbeldi og hlúð að þeim sem fyrir því verða. Hún hefur verið í fararbroddi þeirra sem vekja athygli á og sporna gegn slíku of- beldi og tekið þátt í alþjóðlegu sam- starfi fyrir hönd Íslands. Hún hefur vakið athygli á ofbeldi og grófu mis- rétti sem lengi fór hljótt. 27 Unnur GunnarsdóttirForstjóri Fjármálaeftirlitsins Unnur hefur víðtæka reynslu af störfum við fjármálatengd verkefni, opinbera stjórnsýslu og í dómskerf- inu. Hún starfaði meðal annars í sjö ár hjá bankaeftirliti Seðlabanka Ís- lands og í fimm ár sem sérfræðing- ur í fjármálaþjónustu hjá skrifstofu EFTA í Brussel. Þá var hún fram- kvæmdastjóri Fjölgreiðslumiðlunar í tvö ár. Innan opinberrar stjórnsýslu hefur Unnur meðal annars reynslu sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í sjö ár og sem settur héraðsdómari við Héraðs- dóm Reykjavíkur. Unnur hefur flekk- lausa fortíð og því hefur ákveðin sátt myndast um hana í stóli forstjóra. 28 Kristín IngólfsdóttirRektor HÍ Kristín er síður en svo óumdeild og það blæs ekki byrlega í menntamál- um þjóðarinnar þessa dagana. Hún á þó eflaust eftir að taka þau mál sem snúa að Háskóla Íslands föstum tök- um og verja hagsmuni skólans með kjafti og klóm. Hvað sem mönn- um kann að finnast um hana getur enginn neitað því að háskólarektor er ævinlega áhrifamaður í samfélaginu. 29 Brynja ÞorgeirsdóttirFjölmiðlakona Hún er fjölhæf, skemmtileg, hlý og afburðagáfuð. Stjórnar vinsælasta sjónvarpsþætti á landinu um þessar mundir, Orðbragði. 30 Sigríður D. AuðunsdóttirRitstjóri Fréttatímans Sigríður situr ein kvenna í stóli að- alritstjóra íslenskra dagblaða. Hún hefur margþætta reynslu af blaða- mannstörfum og er frumleg í efn- istökum. Hún skrifar sjálf mikið í blaðið, tekur viðtöl og gerir úttekt- ir. Það aflar henni fylgis meðal sam- starfsmanna. 31 Auður JónsdóttirRithöfundur Auður er hæfileikaríkur rithöfundur en hún hefur einnig látið til sín taka í þjóðfélagsumræðunni og eru pistlar hennar mjög vinsælir. 32 María Lilja ÞrastardóttirBlaðamaður Skelegg og femínísk blaðakona og lætur taka eftir sér. Skemmtileg fyr- irmynd ungra kvenna, óhrædd við að taka að sér ný verkefni. Mar- ía Lilja er annar umsjónarmanna útvarpsþáttar sem vekur sérstaka athygli á þætti kvenna í tónlistar- sögunni, Barmageddon. Þá er hún einn stofnenda nýs kvenfélags fjöl- miðlakvenna á 365-samsteypunni. 33 Helga ValfellsFramkvæmdastjóri Helga hefur skemmtilegan bakgrunn sem nýtist henni í að gefa öðrum góð ráð. Hún hef- ur m.a. sinnt störfum fyrir Estée Lauder UK, Merrill Lynch International Europe, Útflutnings- ráð Íslands, verið sjálfstætt starf- andi ráðgjafi og aðstoðarmaður við- skiptaráðherra. Helga er feikilega dugleg við það að ýta öðrum úr vör. 34 Högna SigurðardóttirArkitekt Högna er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi. Hún hefur með verkum sínum haft mik- il áhrif á sjónrænt umhverfi okkar og þróun íslenskrar byggingarlist- ar. Hún var fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis, og hefur ver- ið óhrædd við að fara frumlegar leið- ir að verkum sínum. 35 Sigríður FriðjónsdóttirRíkissaksóknari Því var fagnað þegar Sigríður J. Friðjónsdóttir var ráðin í emb- ætti ríkis saksóknara. Hún er ná- kvæm og réttsýn og lætur lítið fyrir sér fara. Hún stendur keik og lætur ekki rót trufla störf sín. Hún var t.d. ekki meðal þeirra sjö sem lýstu yfir fullum stuðningi við Valtý þegar öll spjót stóðu á honum eftir hrakyrði hans í garð þolenda nauðgana. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.