Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Síða 28
28 Umræða Jólablað 20.–27. desember 2013
Í leit að friði
Á
hverju ári, síðastliðin 27 ár,
höfum við fjölskyldan gengið
friðargöngu niður Laugaveg á
Þorláksmessu. Það er sérstakt
að árið 2013 sé enn nauðsynlegt að
fara í friðargöngu, jafn nauðsyn-
legt og það var árið 1986 þegar við
fórum fyrst saman. Friðargangan
er alla jafna talsvert fjölmenn, en á
leið hennar frá Hlemmi og að Ing-
ólfstorgi mætir hún gjarnan forvitnu
fólki sem slæst með í för. Sumir
ganga til að minna á nauðsyn friðar
í veröldinni. Ég fer sjálf til að leita að
friði hjá sjálfri mér, enda getur friður-
inn ekki byrjað annars staðar en þar.
Við eigum rétt á friði, en þurfum
samt að leita hans. Ég held að það
fari að verða okkur nauðsynlegt, ef
við viljum, sem samfélag, þróast og
læra af umbrotatímum liðinna ára,
að við setjum kraft í leitina að friðn-
um.
Fyrir nokkrum árum var fjöl-
skylda mín þess heiðurs aðnjótandi
að pabbi minn hélt ræðuna sem er
alltaf haldin eftir friðargönguna.
Mig langar að gera orð hans að
mínum, enda eins viðeigandi nú og
þau voru árið 2011: „Þá vil ég lýsa
þeirri ósk minni heitastri að nú á
myrkasta tíma vetrarins þegar sól-
in er farin að hækka og framundan
eru vorið og birtan þá takist okkur að
rækta fræ friðar í hjörtum okkar. Ég
get ekki með orðum lýst þeirri þrá
sem með mér býr að þetta blessaða
þjóðfélag okkar búi börnum sínum
sátt og framtíð þar sem, þessi friðar-
fræ, fá að vaxa.“
Gleðilega hátíð og sjáumst í
göngunni. n
Er nauðsynlegt að bösta þá? Umsjón: Henry Þór Baldursson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
Getum við treyst honum?
Þ
að er kominn tími til að tala
um aðila sem við treystum.
Við dáum hann og upp-
hefjum og treystum hon-
um fyrir börnunum okkar.
En við hundsum öll merkin um að
eitthvað sé að.
Ef einhver gamall maður myndi
kalla sig dreng, klæða sig upp í
búning og fara fram á aðgang að
svefnherbergjum barnanna okkar
um miðja nótt, hvað myndum við
segja?
Í orðabókinni er „sveinn“ skil-
greint sem drengur, eða sveinbarn.
Önnur skilgreining er „piltur, ung-
ur maður, yngispiltur eða 14–16 ára
íþróttamaður. Það er ekki gamall
kall með skegg og bumbu í víðum
ofurhetjubúningi.
Þegar viðvörunarbjöllurnar
kvikna segir jóla-„sveinninn“ að
þetta séu bara jólabjöllur. Svo sefar
hann áhyggjur okkar með gjöfum.
Allt sem við kemur jólasveinun-
um er sveipað leynd. Hann um-
breytir réttmætri tortryggni í dulúð
og ævintýraljóma.
Það er víðþekkt að barnaþrælkun
er stunduð víða um heim. Ung börn
í þriðja heiminum eru látin þræla í
verksmiðjum við að framleiða vör-
ur fyrir Vesturlandabúa. En þegar
jólasveinninn rekur verksmiðju og
þrælar út litlum einstaklingum sem
líta út fyrir að vera börn, er tekið gilt
að þetta séu „álfar“ sem undirgeng-
ust örlög sín sjálfviljugir.
Við vitum lítið um hann. Við vit-
um bara að allt sem tengist honum
er tortryggilegt. Og þegar við efumst
fáum við gjafir.
Kjörorð rannsóknarblaða-
manna er „follow the money“, eða
„eltu peningana“. Peningaslóð jóla-
sveinsins er í meira lagi athyglis-
verð.
Jólasveinninn veltir milljörðum
á ári á Íslandi einu saman. Alger
leyndarhjúpur hylur hins vegar alla
starfsemi hans. Hann er hluti af
skuggahagkerfinu og greiðir hvorki
tekjuskatt, virðisaukaskatt né önn-
ur gjöld til samfélagsins.
Ekki eru nein ummerki um að
hann borgi skatta af gríðarlegum
tekjum hans af auglýsingum, til
dæmis fyrir gosdrykkjaframleið-
andann Coca-Cola.
Glufan sem hann fann, var að
skrá heimilisfesti á Norðurpóln-
um – hinu fullkomna skatta-
skjóli. Ríki á norðurslóðum hafa
ekki náð samstöðu um skipt-
ingu norðurskautsins, og því
hefur reynst ómögulegt að inn-
heimta skatta af umfangsmikl-
um viðskiptum hans. Eða
var það kannski tilviljun,
að hann skráði heimil-
isfesti á óbyggilegri ís-
breiðu sem flýtur ofan á
Norður-Íshafi og er að
leysast upp?
Eina leiðin til að
útskýra starfsemi
jólasveinsins er
að hann feli slóð
sína í hagkerf-
inu með flóknu
neti skúffu-
fyrirtækja
á Tortóla.
„Hó, hó, hó.“
Jólasveinninn hefur náð fram
undraverðum tækniframförum og
er annað talið ómögulegt en að það
hafi verið í samstarfi við fremstu
sérfræðinga á þessu sviði í heim-
inum. Í Víetnam-stríðinu var byrj-
að að nota nýstárlegar sprengjur,
sem nefndust „Cluster bombs“, eða
klasasprengjur. Sprengjunum var
varpað úr lofti. Jólasveinninn hefur
verið kallaður Santa Claus, en hann
hefur einnig þekkst undir gælu-
nafninu „the clauster“, eða „klasar-
inn“ á íslensku. Í bandarískri menn-
ingu er algengt að bæta viðskeytinu
„ster“ við eiginnöfn til að undir-
strika vinsemd. Til að mynda var
sonur Mitch Buchannan, aðal-
hetjunnar í sjónvarpsþáttunum
Strandvörðum, gjarnan kall-
aður Hobester af föður sínum,
þótt hann héti Hobie. Talið er
að jólasveinninn hafi geng-
ið undir viðkomandi
gælunafni hjá banda-
rískum hernaðar-
yfirvöldum þegar
hann hann-
aði og kom að
vörpun klasa-
sprengja í Ví-
etnam. Einnig
er talið að
tæknin sem
notuð var
til að knýja
áfram
jólasleð-
ann hafi
undan-
farið
verið nýtt
í svokall-
aðar dróna-
árásir með
ómönnuðum
flugvélum, enda er
talið útilokað að dreifa
gjöfum á hundruð
milljóna áfangastaða
á einni nóttu án
þess að hafa yfir
að ráða dróna-
tækni og um-
talsverðum
flota dróna.
Gleðileg jól!
Svarthöfði
„Hann
umbreyt-
ir réttmætri
tortryggni í
dulúð og
ævintýra-
ljóma
Mynd ShUtterStock
„Sjálfstæðis-
menn voru
ansi hrifnir af
nasismanum áður fyrr og
hleyptu nasistum með
opnum örmum inn í sínar
raðir, björguðu einum
þeirra undan dóm fyrir
glæpi erlendis eftir stríð
sem þakkaði þeim fyrir
með því að berja fólk sem
Hvítliði 1949 og settu þá í
áhrifastöður innan flokks
sem utan eftir stríð …“
„Við göngum með
börnin og fæðum
þau … Ef kk eru
ósáttir farið þá bara og látið
stækka á ykkur typpið !!! Við
gerum alveg nóg annað en
þið !!!“
„Nú, er hann líka
skrifandi? hélt að
hann væri bara
berjandi.“
„Geta menn ekki
líka endurvakið
Lúkasarmálið
fyrst verið er að hita upp
þessa vitleysu?“
„Hverjum
dettur í hug að
Hanna Birna
axli ábyrgð? Það er enginn
íslenskur stjórnmálamaður
fær um, og hún er eiginlega
holdgervingur hrokans …
svo það mun ekkert gerast
annað en það, að hún snýr
upp á sig og þykist yfir
þetta alltsaman hafin …“
104
24
23
29
22
Agnar kristján Þorsteinsson
gagnrýni skrif Brynjars Níels-
sonar þar sem hann hæðist
að Ragnari Kjartanssyni listamanni.
Brynjar segir listamenn tuttugustu aldar
ekki hafa verið skarpskyggna þegar þeir
töluðu fyrir sósíalísku samfélagi.
kristín Gunnarsdóttir um
frétt þess efnis að þrýst sé á
konur að þrengja leggöng sín.
Ljósmæður segja lýtaaðgerðina fallast
undir umskurð kvenna.
haukur Brynjólfsson gerir
gys að Stefáni Loga Sívarssyni
sem laumast á Facebook á
Litla-Hrauni.
egill helgason svarar
gagnrýni Bjarna Randvers
guðfræðikennara sem segir
Egil hafa tekið þátt í rógsherferð og
einelti gegn sér.
Simonpatrekur haraldsson
er svartsýnn á að Hanna Birna
segi af sér. Paul Fontaine,
innflytjandi og blaðamaður á Grapevine,
krafðist afsagnar hennar.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Pistill