Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2013, Page 36
Jólablað 20.–27. desember 201336 Fólk Viðtal V igdís er klædd gráum fal- legum pels þar sem hún kemur til fundar við blaða- mann á kaffihús við höfn- ina í Reykjavík. Það er mikið frost en fallegt veður. Hunds- lappadrífa gefur hafnarsvæðinu draumkennt yfirbragð. Annríkið er mikið hjá henni þessa dagana, hún situr fundi þétt allan liðlangan daginn og rétt nær að fá sér heita og kjarngóða súpu með blaðamanni á meðan hún ræð- ir stuttlega um störf sín og ævi. „Svona er líf óbreytts þingmanns,“ segir hún glettin. „En ég kvarta ekki, mér finnst lífið skemmtilegt.“ Jafningi karlmanna Vigdís er þekkt fyrir að vera orkumik- il. Hún hefur ávallt verið hávær og at- orkusöm. Alin upp í stórum systkina- hópi í Árnessýslu. Móðir Vigdísar er Sigurbjörg Geirsdóttir og faðir henn- ar Haukur Gíslason frá Stóru-Reykj- um í Hraungerðishreppi í Árnes- sýslu. „Ég er alin upp í þessum stóra systkinahóp í sveit. Við erum fimm systurnar og svo á ég einn bróður. Ég hef unnið síðan ég man eftir mér og þar sem við vorum margar systurn- ar gengum við í öll verk, ég lærði til dæmis að keyra traktor mjög ung. Maður býr að þessu alla ævi, þessum jöfnuði sem gildir í sveit. Þar sem all- ir hjálpast að við vinnu, strákar jafnt og stelpur. Við gerðum allt saman og hvergi var gerður greinarmunur á kynjum hvort sem um var að ræða fótbolta eða að keyra traktor. Vegna þessa lít ég á mig sem jafningja karl- manna og hef alltaf gert. Ég lít á alla jafnt og vil ekki gera upp á milli fólks. Ég er bara manneskja og hef gengið í þau störf sem til falla. Guðni einn af fjölskyldunni Foreldrar Vigdísar eru tengda- foreldrar Guðna Ágústssonar, fyrr- verandi landbúnaðarráðherra. Vig- dís var rétt átta ára þegar Guðni trúlofaðist næstelstu systur henn- ar og hún álítur hann einn af fjöl- skyldunni, nánast eins og bróður. „Guðni er mágur minn, kvæntur næstelstu systur minni. Það er langt á milli okkar systra og því var ég bara átta eða níu ára gömul þegar Guðni var orðinn tengdasonur fjöl- skyldunnar. Hann er eins og bróð- ir minn, hefur verið í fjölskyldunni síðan ég man eftir mér,“ segir hún og nefnir að þeim sé einstaklega vel til vina og hún finni stuðning í honum á erfiðum stundum. Fór ung að heiman Vigdís vildi ekki búa í sveit og vera bóndi, hún stefndi ung á að læra garðyrkju. Það gerði hún og varð garðyrkjufræðingur. Hún flutti ung að heiman og til höfuðborgarinnar þar sem hún fékk vinnu í verslun Blómavals. „Ég átti áhyggjulaust og gott líf í sveit. Ég var mjög ung þegar ég ákvað að fara í Garðyrkjuskólann og verða garðyrkjufræðingur og ég stóð við það. Ég var aðeins sautján ára. Mig langaði aldrei að verða bóndi og var ákveðin í því. Ég flutti síðan tveimur árum síðar að loknu námi til Reykja- víkur. Ég fékk strax vinnu við garð- yrkjuna í Blómavali. Ég var ofsalega ánægð í Reykjavík og fann mig hér í borginni. Ég fór í framhaldsnám til Danmerkur og fór í framhaldsnám í blómaskreytingum. Vann Íslandsmeistaratitil í blómaskreytingum Vigdís fékk mikinn áhuga á blómaskreytingum í starfi sínu í Blómavali. Hún lýsir sér sem mikilli keppnismanneskju, flest það sem hún tekur sér fyrir hendur vill hún gera með afbrigðum vel. Hún átti blómaverslun um árabil og það kemur ekki á óvart að hún hafi í far- sælu starfi unnið til Íslandsmeistara- titils í blóma skreytingum sem hún hlaut árið 2002. Hún sló í gegn ný- verið á árlegu jólaskreytingakvöldi Blómavals þar sem hún kom fram sem gestaskreytir og fór yfir strauma og stefnur fyrir jólin. „Ég tek það sem ég geri hverju sinni alvarlega og það gerði ég á þessum tíma. Ég er mikil keppnis- manneskja og get ekkert að því gert. Ef ég er að gera eitthvað, taka til eða hvað sem er þá er ég í keppni við sjálfa mig. Ef ég er að prjóna, til dæmis, þá keppist ég við að klára hnykilinn. Ef ég fer í göngutúr þá líð- ur ekki á löngu áður en ég er kom- in á fulla ferð. Svona hefur líf mitt Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar- flokks, lætur ekki knésetja sig. Hún segir hverja ásókn styrkja sig. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Vigdísi um uppvöxtinn og keppnisskapið, erfið- asta tímabil ævi hennar, þegar barnsfaðir hennar lést í miðri kosningabaráttu og meiðandi ummæli sem hún tekst á við með æðruleysi. „Við köllum okkur stundum mafíuna“ Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is „Svo var þetta allt í einu búið og börnin mín orðin föðurlaus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.