Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Síða 4
Föstudagur 12. september 20084 Fréttir DV
Sandkorn
n Tónlistarmaðurinn Damien
Rice vakti heldur betur athygli
í Reykjanesbæ á dögunum
þegar hann heimsótti Ástrósu
Skúladóttur og fjölskyldu
hennar.
Kappinn
gisti hjá
þeim yfir
Ljósanæt-
urhelgina
og naut há-
tíðarinnar
en hann fór
meðal ann-
ars á körfuboltaleik og horfði
á Ástrósu spila með Keflavík.
Fjölmargir heimamenn hafa
rætt sín á milli um meint ást-
arsamband Ástrósar og Dami-
ens en fjölskylda hennar segir
þó Damien aðeins vera fjöl-
skylduvin. News of the World
hafði mikinn áhuga á sam-
bandinu og hafði samband við
Damien Rice í kjölfar fréttar
DV um Íslandsheimsókn hans
en hann þrætti fyrir allt sam-
an.
n Og meira um News of the
World því á sunnudaginn birtir
blaðið veglega umfjöllun um
Kristrúnu
Ösp Bark-
ardóttur
en hún er
fyrrverandi
kærasta
Dwight
Yorke. Um-
fjöllunin átti
að birtast
síðasta sunnudag en News of
the World ákvað að bíða með
viðtalið í eina viku og birta
það helgina eftir. Forvitnir
Íslendingar ættu að geta nælt
sér í blaðið í næstu bókabúð
en einnig verður hægt að sjá
stelpuna á vefsíðu blaðsins þar
sem hún svarar nokkrum vel
völdum spurningum.
n Laufey Erlendsdóttir, forseti
bæjarstjórnar í Garði, blotnaði
heldur betur um daginn þegar
hún vígði
nýja vatns-
rennibraut
í bæjarfé-
laginu sínu.
Vatnsrenni-
brautin
hefur slegið
í gegn hjá
krökkunum
í Garði en brautin þykir óvenju
skemmtileg. Á vefsíðu Vík-
urfrétta er hægt að sjá mynd
af Laufeyju við vígsluna en
þar sést hún skelfingu lostin
á svip í miðri rennibrautinni.
Það þætti sjálfsagt ekki síð-
ur skemmtilegt myndefni ef
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
forseti borgarstjórnar, tæki það
að sér að vígja nýjan vatns-
leikjagarð í Reykjavík en sá
garður hefur verið í umræð-
unni í nokkur ár.
n Partípinninn Ólafur Geir Jóns-
son hefur tekið veitingastaðinn
Primo í Reykjanesbæ undir sinn
verndar-
væng. Stað-
urinn hefur
átt erfitt
uppdrátt-
ar vegna
staðsetn-
ingarinnar
en Primo er
mjög ofar-
lega á Hafnargötunni í bænum
og því fjarri öðrum skemmtistöð-
um. Ólafur Geir hefur heldur
betur spýtt í lófana frá því hann
tók við en það var enginn annar
en Páll Óskar sem þeytti skífum
á Primo á Ljósanótt. Ólafur Geir
er á lausu og nýtur lífsins suður
með sjó en hann fékk sér nýlega
einkanúmerið Agent sem fer vel
á Lexus-glæsibifreiðinni sem
hann keypti sér fyrir nokkrum
árum.
EFTIRLAUNUM
FRIÐRIKS LEYNT
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, hefur upplýst að hann
hafi hug á því að hætta sem forstjóri
fyrirtækisins. Í ráðningarsamningi
sem gerður var við Friðrik árið 1998
var einnig gerður samningur um
eftirlaun forstjórans. Stjórnarmenn
Landsvirkjunar vilja lítið tjá sig um
málið og Ingimundur Sigurpáls-
son, formaður stjórnar Landsvirkj-
unar, segir það ekki til siðs að gefa
upp efni slíkra samninga. Álfhildur
Ingadóttir, stjórnarmaður í Lands-
virkjun, segir Friðrik einnig eiga
möguleika á ráðherraeftirlaunum,
ekki er víst hvort hann nýti sér það.
Ráðherraeftirlaun
„Það er viðbúið að hann sé með
mjög rík eftirlaunaréttindi,“ segir
Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmað-
ur í Landsvirkjun. Álfheiður segist
reikna með því að það séu mjög góð
eftirlaunaréttindi hjá Landsvirkj-
un en hún er ekki klár á því hvern-
ig samningur Friðriks hljómar. Hún
segir samninginn við Friðrik ekki
vera opinberan og því þurfi hvorki
hann né fyrirtækið að upplýsa hvert
innihald samningsins sé. Þó að
Landsvirkjun sé opinbert fyrirtæki
ná upplýsingalögin ekki yfir það. Álf-
heiður segir Friðrik einnig hafa rétt á
því að taka eftirlaun ráðherra en hún
veit ekki hvort hann hafi gert það eða
muni gera það. Hún segir nokkra
fyrrverandi ráðherra hafa nýtt sér
eftirlaunafrumvarpið en aldrei hafi
komið fram hverjir það séu.
Leyna innihaldi samnings
„Það hefur ekki verið til siðs að
gefa upp efni slíkra samninga,“ segir
Ingimundur Sigurpálsson, formað-
ur stjórnar Landsvirkjunar. Gerður
var ráðningarsamningur við Friðrik
áður en hann tók við störfum sem
forstjóri Landsvirkjunar og segir
Ingimundur að þar hafi verið kveð-
ið á um réttindi, skyldur og eftirlaun
sem eru partur af starfskjörum hans.
Hann segir að Landsvirkjun muni
ekki gefa upp efni samningsins.
Ingimundur segir Landsvirkjun ekki
vera hefðbundið opinbert fyriræki,
það starfi á samkeppnismarkaði og
því gildi aðrar reglur þar en hjá öðr-
um opinberum fyrirtækjum.
Stjórnin tjáir sig ekki
„Þetta hefur ekki verið rætt í
stjórninni þannig að ég hef ekk-
ert um það að segja,“ segir Brynd-
ís Hlöðversdóttir, stjórnarmaður í
Landsvirkjun. Hún segir samning
Friðriks ekki hafa verið uppi á borð-
um stjórnarinnar og þess vegna vilji
hún ekkert tjá sig um málið. Ekki er
ennþá komið á hreint hvenær Frið-
rik hættir störfum en samningur
hans nær til 1. nóvember. Í samn-
ingnum er jafnframt heimild til þess
að framlengja setu Friðriks sem
forstjóra um tvö ár en Ingimund-
ur Sigurpálsson, formaður stjórnar
Landsvirkjunar, segir að ólíklegt sé
að það gerist, Friðrik hafi lýst því yfir
að hann vilji hætta. DV
hafði samband við
fleiri stjórnar-
menn en þeir
vildu ekki tjá
sig um mál-
ið. Ekki náð-
ist samband
við Friðrik
Sophusson
varðandi mál-
ið.
Hálfur skammtur fyrir hálfa þjóð
Skáldið Skrifar
ð gefnu tilefni vil ég taka það hér fram
að ég tilheyri engum stjórnmálaflokki.
Mér er sagt að flokkseigendafélög þau
sem hér öllu ráða myndu aldrei vilja
mann eins og mig. Ég er ábyggilega alltof heið-
arlegur og of sjálfstætt þenkjandi til að falla í fer-
hyrnda ramma flokkanna.
Stjórnmálaflokkar á Íslandi eru ein heljarinnar
sálnasala, þar hafa menn hug á því að vernda eig-
ið skinn og þeim er yfirleitt skítsama um þá sem á
eftir koma. Stjórnmálamenn og embættismanna-
kerfi halda við sálrænum niðurgangi þjóðarinn-
ar. Þessi einfalda opinberun lýðræðisins spegl-
ast í augum þeirra barna sem fæðast í verkfalli
ljósmæðra eða í þeim börnum sem þurfa að þola
andlegt ofbeldi, til dæmis vegna þess að ráða-
menn geta ekki ákveðið hvernig lögum um nálg-
unarbann skuli háttað. Og auðvitað finnst spegl-
unin einnig í því að við sendum hvorki ráðherra
né Dorrit til að fagna með fötluðu fólki sem á Ól-
ympíuleikum keppir.
Stundum finnst mér engu líkara en stjórnmála-
menn Íslands... stjórnmálamenn allra landa –
ef því er að skipta – séu á einu allsherjar fylliríi.
Hvar í sólkerfunum ætli maður heyri til dæmis
af því að eftir að fellibylur rústar mannlífi í borg
eins og Havana ætli ein af stofnunum Samein-
uðu þjóðanna að einbeita sér að því að leggja fé í
uppbyggingu húsa sem hafa menningarsögulegt
verðmæti? Jú, slíkt gerðist áðan – hérna á Jörð-
inni. Og á þessari sömu plánetu er að finna Ísland
og Reykjavík, þar sem menn hugsa frekar um að
bjarga húskofum en mannslífum, þar sem millj-
arðar á milljarða ofan fara í sukk og svínarí; orlof
og eftirlaun stjórnmálamanna, stöðuveitingar og
titlatog fólks sem ekkert kann og peningaaustur
til ofvirkra fjárglæframanna sem titra eins og ví-
bratorar ef þeir komast of nærri sannleikanum.
Skelþunnir titrarar hinnar taumlausu ofneyslu
yfirvalda og bruðlið með sameiginlega brunna
þegnanna hafa í dag fengið á sig mynd sem vel
er þess virði að á hana sé ráðist. Því er nefnilega
haldið að okkur – sauðsvörtum almúganum – að
hér sé kreppa og sagt er að heillavænlegast sé fyr-
ir okkur að taka þátt í kreppunni af fullum krafti.
En svo gerist það hjá okkur sem erum nægju-
söm að okkur eru allar bjargir bannaðar. Yf-
irleitt er allt staðlað þannig að bruðl sé besta
leiðin. Hvers vegna er til dæmis ekki hægt að fá
hálfan skammt af mat á veitingahúsum? Ég er
að meina hálfan skammt fyrir þjóð sem er hvort
eð er alltaf hálf!
Hér þykjumst við vera þæg og góð
þótt þjóðin sé oftast hálf.
Og hver á að skilja skrítna þjóð
sem skilur sig ekki sjálf?
A
Kristján Hreinsson sKáld sKrifar. „Stjórnmálaflokkar á Íslandi eru ein heljarinnar sálnasala.“
„Það er viðbúið að
hann sé með mjög rík
eftirlaunaréttindi.“
Friðrik Sophusson hættir brátt
störfum sem forstjóri Landsvirkj-
unar. Stjórn fyrirtækisins vill
ekki upplýsa hver eftirlauna-
kjör hans verða. Hann fær eft-
irlaun fyrir þingstörf og ráð-
herradóm ásamt því að fá
sérstök eftirlaun hjá Lands-
virkjun. Stjórnarmenn vilja
sem minnst tjá sig um málið.
Leynd Formaður
stjórnar Landsvirkjunar
segir það ekki til siðs að
gefa upplýsingar um
eftirlaunasamning
forstjóra Landsvirkjunar.
Rík eftirlaunaréttindi „Það er við-
búið að hann sé með mjög rík eftir-
launaréttindi,“ segir Álfheiður Inga-
dóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun.
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is