Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 12
Föstudagur 12. september 200812 Helgarblað
Kreppan Klýfur hjónaböndin
Kári Eyþórsson fjölskylduráðgjafi verður var við að fjárhagserfiðleikar nú
um stundir setji mark sitt á hjónabönd og skilnuðum fjölgi. Hann segir til-
hneigingu hjá hjónum að slíta hjónabandi mun fyrr þegar um peninga-
vandamál er að ræða en þegar vandamálin eru af öðrum
toga. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir hefur ekki orðið
vör við óvenjumikla hjónabandserfiðleika í sínu
starfi undanfarið, en segir að ef efnahagsþreng-
ingarnar taki sinn toll komi það betur í ljós
seinna í haust.
KristJán Hrafn Guðmundsson
blaðamaður skrifar: kristjanh@dv.is
„Versnandi fjárhagsstaða hjá fólki er
augljóslega að taka í. Þetta hefur gríð-
arlega smitandi áhrif út í fjölskyldur
og ýtir undir árekstra á milli hjóna,“
segir Kári Eyþórsson fjölskylduráð-
gjafi.
Kári hefur aðstoðað fólk við að
ná betri tökum á lífi sínu um árabil,
þar á meðal hjónum þegar brestir
koma í samband þeirra. Hann hef-
ur orðið var við undanfarið að slæmt
efnahagsástand hér á landi og fjár-
hagserfiðleikar fólks setji mark sitt
á hjónabönd. „Mér finnst ég finna
miklu meiri ásókn í að fá aðstoð við
að leysa úr átökum í hjónaböndum.
Og maður heyrir miklu meira af því
að fólk sé að skilja en í fyrra.“
slíta fyrr vegna
fjárhagserfiðleika
Að sögn Kára virðist til-
hneiging hjá hjónum að slíta
hjónabandi mun fyrr þegar
um peningavandamál er að
ræða en þegar vandamálin
eru af öðrum toga. „Reynsl-
an hefur líka sýnt mér að ekki
mörg hjónabönd þola fjár-
hagslega erfiðleika. Það eru oft
ákveðin átök í gangi á undan
og svo þegar fjárhagserfiðleik-
arnir bætast við eins og núna,
þá er mjög fljótt gripið til þess
að labba út,“ segir Kári. Minni
vilji sé þannig til að leysa úr mál-
um þegar þrengingar í peninga-
málum eru viðvarandi.
Skýringu á þessu telur Kári
helst vera þá að fólk vilji frekar
enda hjónabönd þar sem illa hafi
farið í peningamálunum. Reynsla
hans sem fjölskylduráðgjafi sýni
það svart á hvítu. Þegar annar að-
ilinn hefur til að mynda gengist í
ábyrgðir fyrir ættingja og svo kem-
ur það í hausinn á fólki. „Þegar svona
trúnaðarbrestur hefur átt sér stað
er fólk tregara til þess að vinna sig í
gegnum svona mál en til dæmis þeg-
ar annar einstaklingurinn hefur orð-
ið uppvís að ótryggð eins og framhjá-
haldi,“ segir Kári. Hann bætir við að
þegar hjón lendi í fjárhagserfiðleikum
virðist eiga sér stað einhvers konar
verðfall á gildismati fólks. Það fyllist
skömm og vill frekar fara frá vanda-
málinu en að reyna að leysa það.
Ekki peningasamtöl
fyrir svefninn
Ráðleggingarnar sem Kári
veitir hjónum sem koma til
hans með böggum hildar í
formi peningaleysis eru fyrst
og síðast að biðja þau að
skoða hlutina vel. Hlaupa
ekki af stað heldur reyna
að átta sig á því hvernig
manni líður og hvernig
best sé að bregðast við
því, áður en farið er að
blanda saman tilfinn-
ingum og praktískum
hlutum.
„Það er yfirleitt
hægt að vinna úr
praktískum aðstæðum ef maður nær
tilfinningalegu jafnvægi. Maður er því
fyrst og síðast að reyna að fá fólk til að
ná andlegu jafnvægi áður en teknar
eru ákvarðanir um hvort fara eigi leið
a eða b.“
Eitt af þeim ráðum sem Kári veit-
ir hjónum sem glíma við sífellt létt-
ari pyngju og aukna greiðslubyrði er
að ræða ekki fjárhagserfiðleika eft-
ir klukkan átta á kvöldin. „Þegar við
erum orðin þreytt höfum við yfirleitt
svo lítið jafnvægi til að takast á við
hluti sem eru tilfinningalega óþægi-
legir eins og peningar og peninga-
skortur er. Það er því miklu betra að
ræða slíka hluti fyrripart dags en rétt
fyrir svefninn.“
tengslin skipta máli
„Það hafa verið uppsagnir og ýmis
teikn á lofti og ég hef orðið vör við erf-
iðleika hjá hjónum út af ástandinu í
einstaka viðtölum. Það er þó ekki af
miklum þunga enn sem komið er en
getur vissulega orðið það,“ segir Guð-
finna Eydal sálfræðingur. Guðfinna
hefur einblínt mikið á ástina og hjóna-
bönd í starfi sínu og meðal annars rit-
að bækur um efnið í samstarfi við Álf-
heiði Steinþórsdóttur. Þar á meðal er
bókin Ást í blíðu og stríðu.
„Þar komum við inn á margt af
því sem veldur álagi í samböndum
og hvernig fólk tekst á við erfiðleika,“
segir Guðfinna. „Það fer til dæmis eft-
ir því hversu tengt fólk er og hvernig
samskiptahæfni þess er. Svo skiptir
einnig máli hinar mismunandi skoð-
anir fólks á því hvað það vill gera í
hlutunum.“
fara í tvö hlutverk
Og Guðfinna segir að þegar fjár-
hagserfiðleikar ógna hjónabandinu
fari hjón stundum í tvö hlutverk. Ann-
ar aðilinn fer í hlutverk hins ábyrga
en hinn í hlutverk hins óábyrga.
„Sá ábyrgi tekur þá sjálfkrafa að sér
stjórnina á meðan hinn eyðir jafnvel
um efni fram. Stundum geta spunnist
af þessu endalausar þrætur. Sá ábyrgi
ávítar hinn sem stundum hlýðir til-
mælunum en hefur þau að engu þess
á milli,“ segir Guðfinna. Hún bætir við
að málin geti tekið þá stefnu að annar
aðilinn hafi stöðugar áhyggjur af því
hvernig eigi að láta enda ná saman og
ráða við skuldir. Hinn kærir sig aftur
á móti ekki um, eða treystir sér ekki,
til að hafa yfirsýn svo sá áhyggjufulli
kvartar þá yfir því að hann sé einn um
allt saman.
„Þegar annað hjónanna aflar
meiri tekna en hitt vill tekjuhærri að-
ilinn stundum stjórna með skömmt-
unum og minnir iðulega á að sá sem
aflar fjárins þurfi að gefa leyfi sitt áður
en því er ráðstafað. Við þetta finnst
hinum hann vera settur skör lægra og
stundum tekur hann jafnvel upp á því
að eyða ótæpilega í mótmælaskyni,“
segir Guðfinna. Í þessum aðstæð-
um getur skipt miklu máli hverju fólk
hefur vanist í uppvextinum varðandi
meðferð fjármuna.
Getur styrkt sambandið
Að sögn Guðfinnu geta erfiðleikar
hjóna í peningamálum, líkt og í erf-
iðleikum af öðrum toga, styrkt sam-
bandið í stað þess að sigla því í strand.
Hjónabönd í upplausn slæmt
efnahagsástand veldur ekki einungis
hærra bensínverði og lækkandi verðmæti
hlutabréfa. Fjölskylduráðgjafi segir að það
ýti einnig undir árekstra á milli hjóna.