Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Page 13
Föstudagur 12. september 2008 13Helgarblað
Kreppan Klýfur hjónaböndin
„Erfiðleikarnir neyða fólk til að ræða
meira saman, það kynnist jafnvel
betur og þeir skapa mögulega meira
traust í sambandinu. En svo veit mað-
ur líka að svona mál geta orðið að mik-
il deiluefni. Fólk getur farið að kenna
hvort öðru um hitt og þetta: „Þú vild-
ir kaupa stærra hús, ég vildi það ekki“,
„Þú vildir taka erlend lán, ég sagði þér
að það væri óráðsía“. Þá getur hinn
sagt: „Þú samþykktir það samt. Þetta
var betra þá og það sá þetta enginn
fyrir.“ Fólk getur því farið í ýmsa svona
togstreitu sem endar í sífelldum rifr-
ildum og magnast upp.“
Guðfinna segir að það sé engin ein
lausn við svona erfiðleikum í hjóna-
bandinu. „En hjón geta reynt að kom-
ast að niðurstöðu sem báðir aðilar
sætta sig við. Það tekur broddinn úr
togstreitunni og kemur í veg fyrir að
vandamálin gangi út yfir sambandið,
ef fólk stendur saman í andstreyminu.
Og ég hvet fólk til að lesa bókina Ást í
blíðu og stríðu því hún er sálfræðibók
um sambönd og þar er komið inn á
margt sem veldur álagi og erfiðleik-
um í samböndum.“
Kemur í ljós síðar í haust
Séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir, prestur við Vídalíns-
kirkju í Garðabæ, kveðst
ekki hafa orðið vör
við óvenjumikla
hjónabandserf-
iðleika
í sínu starfi undanfarið. En ef efna-
hagsþrengingarnar taka sinn toll í
hjónaböndum komi það í ljós þegar
lengra líður á haustið.
„Mér finnst ekki óeðlilega mikið
um slíka erfiðleika núna,“ segir Jóna.
„En ég hef verið að búa mig undir
að hjón leiti meira eftir aðstoð vegna
fjárhagserfiðleika seinna í haust. Fólk
er að koma börnunum sínum af stað
í skólann og fleira þannig að það er
mikið álag á fólki. Mér finnst því lík-
legra að ef þetta verður raunin muni
það gerast þegar lengra líður á haust-
ið.“
Jóna bætir við að mjög algengt
sé eftir frí eins og sumar- og jóla-
frí að hjón leiti sér ráðgjafar eða slíti
hjónabandinu. „Frí er sá tími þar sem
brestir koma oft mjög vel í ljós. Fólk
er þá að verja miklum tíma saman og
margt kemur upp úr dúrnum. Fólk
er annaðhvort að halda út fríin barn-
anna vegna
eða það uppgötvar í fríinu að þessu er
lokið.“
Almenn vanlíðan sökum
kreppunnar
Séra Þórhallur Heimisson, prest-
ur við Hafnarfjarðarkirkju, tekur
undir með Jónu Hrönn að erfiðleik-
ar í hjónaböndum komi oft fram eft-
ir sumar- og jólafrí. Þó kveðst hann
ekki reiðubúinn að setja samasem-
merki á milli efnahagástandsins og
bresta í hjónalífi fólks nú um stundir.
„Það er erfitt að segja að niðursveifla
í efnahagslífi skapi meiri erfiðleika í
hjónaböndum en eitthvað annað. En
hún skapar kannski bara erfiðleika í
lífi fólks almennt sem kemur niður
á öllu, hvort sem það er hjónaband
eða annað. Fólk finnur fyrir almennri
vanlíðan ef því líður illa út af fjármál-
um og áhyggjurnar og kvíðinn koma
þá niður á sambandinu við makann,
börnin og fleira.“
Þórhallur bendir líka á að gríðar-
legur fjöldi fólks sækist eftir aðstoð
hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heim-
ilanna. Og nú sé það að gerast í fyrsta
sinn í mörg ár að fólk leiti til kirkj-
unnar strax í ágúst vegna matar- og
peningaleysis, aðstoð sem fólk leit-
ist aðallega eftir í kringum jólin.
„Það veldur auðvitað vanlíð-
an hjá fólki, það segir sig
sjálft.“
eins og sést á meðfylgjandi mynd hefur fjöldi skilnaða að borði sæng
rokkað nokkuð síðustu tvo áratugi. greinilegt stökk verður í upphafi
tíunda áratugarins en þá hófust einmitt miklar efnahagsþrengingar hér
á landi. aftur fjölgar svo skilnuðum upp úr 1995 og í byrjun þessarar
aldar hækkar línuritið mikið. Á þeim tíma voru einmitt margir að fara
flatt á hlutabréfakaupum og netbóluævintýrinu. Í góðærinu síðustu ár
hefur skilnaðatíðnin svo farið hríðlækkandi. Línurit yfir lögskilnaði á
sama tímabili gefur nokkuð svipaða mynd en rokkar þó aðeins meira.
Skilnaðir að borði
og Sæng 1987-2007
1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
Kári Eyþórsson fjölskylduráðgjafi
„mér finnst ég finna miklu meiri ásókn í
að fá aðstoð við að leysa úr átökum í
hjónaböndum. Og maður heyrir miklu
meira af því að fólk sé að skilja en í fyrra.“
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir Hefur
ekki orðið vör við óvenjumikla hjóna-
bandserfiðleika í sínu starfi undanfarið. ef
það er raunin kemur það frekar í ljós
þegar líður á haustið að mati Jónu.
Séra Þórhallur Heimisson „Það er erfitt að segja
að niðursveifla í efnahagslífi skapi meiri erfiðleika í
hjónaböndum en eitthvað annað.“