Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Side 37
Föstudagur 12. september 2008 37Sport Suðurlandsbraut 10 - ff@simnet.is - sími: 568 3920 - fax: 568 3922 Dómarar í fínu formi Það er ótrúlegt að hugsa til þess að Liverpool hefur ekki unnið Manchest- er United á sínum heimavelli, Anfield, í tæp sjö ár í deildinni. Síðasta mark- ið kom fyrir tæpum fimm árum og þá er talað um hvorn völlinn sem er. Liverpool fær enn eitt tækifærið til að laga þetta og loks bera sigur úr býtum gegn erkifjendum sínum þegar liðin mætast á laugardaginn. Lítill undirbúningur Leikurinn fer fram klukkan 11.30 eins og eðlilegt er orðið í ensku úr- valsdeildinni. Þegar svona stórleiki ber að garði vilja yfirvöld á Englandi hafa alla með stírurnar í augunum svo síður verði slagsmál og læti. Auð- vitað hefur Rupert Murdoch sitt að segja með sjónvarpsréttinn en það breytir því ekki að svona á auðvitað að byrja allar helgar. Æfingasvæði liðanna hafa verið tómleg að undanförnu enda allir leik- mennirnir að leika með sínum lands- liðum. Ein stórstjarna hefur þó mætt til æfinga síðustu tvær vikur upp á dag því eins ótrúlega og það hljómar er hann ekki í landsliðinu. Það er þó hans eigið val. Paul Scholes hefur æft stíft með fjórum öðrum síðustu vikur hjá Englandmeisturunum. Kemur jafnt niður á öllum „Við höfum verið fjórir til fimm að æfa og þetta truflar allan undirbúning mjög mikið, sérstaklega þegar leikur- inn er svona snemma um helgina,“ segir Scholes en bætir við að auð- vitað þurfi öll lið að ganga í gegnum það sama. „Við náum ekki öllu liðinu saman fyrr en á föstudegi eftir svona landsleikjahrynur. Stundum hjálpar það til og stundum ekki. Við sjáum hvað setur. Lætur kjúklingana hlaupa Scholes verður án efa í byrjunar- liði United að vanda með sínar eitr- uðu sendingar. Hann lætur aðra um hlaupin. „Það er gott að vera með þessa kjúklinga í kringum sig til að hlaupa. Ég sit bara rólegur í minni stöðu, sendi á þá boltann og þeir hlaupa eitthvað með hann,“ segir Scholes sem er ekki allt of mikið í því að tæma viskubrunn sinn yfir ungvið- ið. „Ég reyni að leiðbeina þeim að- eins en ekki of mikið. Það þarf ekk- ert að segja mikið við þessa stráka. Ég segi bara við þá að gera nákvæmlega það sem hefur dugað þeim hingað til. Ferguson sér eitthvað í þeim þannig að af hverju ættu þeir að breyta sín- um leik eitthvað núna?“ Skuldum stuðningsmönnum sigur Síðustu tveir sigrar United á Anfi- eld hafa verið það sem kallað er gegn gangi leiksins. Liverpool hefur spil- að mun betur, haldið boltanum en ekki tekist að skora frekar en í öðrum leikjum þar sem Rio Ferdinand og Nemanja Vidic standa í vörninni. Al- varo Arbeloa, leikmaður Liverpool, býst við svipuðum leik en segir liðs- menn Liverpool skulda stuðnings- mönnunum sigur. „Leikurinn á Anfield í fyrra var erfið reynsla. Ég veit hversu miklu þessi leikur skiptir stuðningsmenn- ina og við vorum allir mjög von- sviknir í fyrra. Þessi leikur skiptir mig alveg jafnmiklu máli og við skuldum stuðningsmönnum okkar sigur á Un- ited,“ segir Arbeloa og bætir við. „Ég held að þessi leikur sé mun meira virði en bara þrjú stig. Ef við vinnum Manchester United verð- um við komnir með 10 stig og miklu meira sjálfstraust í liðið. En það sem meira er, allir yrðu virkilega ánægð- ir.“ tomas@dv.is Annar af tveimur skemmtilegustu leikjum á Englandi fer fram á laugardagsmorguninn þegar Liverpool tekur á móti Manchester United. Hinn leikurinn er auðvitað þegar Manchester United tekur á móti Liverpool. Leik- irnir sem slíkir hafa undanfarin ár verið skelfing á að horfa en undirbúningurinn og hjartað sem er lagt í þessa leiki er alltaf jafnmagnað. Liverpool hefur ekki unnið United á Anfield í tæp sjö ár. nÆSTum fimm Ár frÁ SíÐaSTa marKi Sárt Carlos tevez fagnar eina markinu sem skorað var í leik united og Liverpool á anfield í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.