Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2008, Page 50
Fyrir tíu árum höfðu félagarnir Larry Page og Sergey Brin, stofnend- ur Google, úr litlu öðru að spila en hugvitinu, fjórum tölvum og hundr- að þúsund dollurum frá fjárfesti sem hafði veðjað á þá hugmynd þeirra að netleitarvél gæti breytt heiminum. Þetta hljómaði hálfótrúlega þá – en nú, tíu árum síðar, hefur Google á að skipa tuttugu þúsund starfsmönn- um og markaðsvirði þess er talið vera um hundrað og fimmtíu millj- arðar dollara. Helstu vandamál vefrisans næsta áratuginn verða líklega þau að feta þá grýttu slóð að koma áætlunum sínum í framkvæmd án þess að stjórnvöld grípi inn í eða almenn- ingur verði fráhverfur fyrirtækinu. Fyrst má þar nefna áhyggjur sam- keppnisyfirvalda af síaukinni hlut- deild fyrirtækisins í auglýsingasölu á netinu en einnig hafa ýmsir aðilar gert alvarlegar athugasemdir varð- andi það gífurlega magn persónu- upplýsinga sem fyrirtækið hefur yfir að ráða. Um 650 milljónir manna nota að jafnaði leitarvél Google og aðrar netþjónustur fyrirtækisins svo sem YouTube, Maps eða Gmail. Google á farsímamarkað Vettvangur fyrirtækisins tek- ur sífelldum breytingum eins og kom berlega í ljós í síðastliðinni viku þegar Chrome-vafrinn leit dagsins ljós. Þá má gera ráð fyr- ir innreið Google á farsíma- og lófatölvumarkaðinn verði helsta verkefni næstu ára en af öðrum áætlunum má nefna: n Allar bækur heimsins á stafrænu sniði n Dagblöð síðustu áratuga á stafrænu sniði n Gagnabanki fyrir heilsufars- skýrslur almennings n Vera leiðandi í að finna raun- hæfa orkugjafa í stað olíu n Sala forrita til fyrirtækja gegnum netið n Þróun leitarvélar sem skilur fyrirspurnir á venjulegu tal- máli Eins og sjá má er Google alls- endis óhrætt við að hrinda í fram- kvæmd metnaðarfullum áætlun- um. Aðrir risar kikna í hnjánum þegar fyrirtækið teygir anga sína inn á þeirra svið líkt og í vor þeg- ar Microsoft tilkynnti skyndilega að fyrirtækið hefði hætt við þá áætlun að skanna allar bækur heimsins og byggja gagnabanka fyrir leitarvél á þeim grunni. Tilraunir Microsoft til að styrkja sína leitarvél og vefauglýs- ingasölu hafa vægast sagt gengið brösuglega og framtíð Google er áfram björt. palli@dv.is Google-netrisinn varð tíu ára á dögunum og líklega hefur ekkert fyrirtæki náð því- líkum vexti og viðurkenningu á jafn stuttum tíma. Vörumerki fyrirtækisins er það þekktasta í heiminum í dag og framtíðaráætlanir Google teygja anga sína víða. Glens oG Gam- an á netinu Seth McFarlane, höfundur hinna vinsælu sjónvarpsþátta Family Guy, hefur sett í loftið nýja vefsíðu; sethcomedy.com. Á síðunni má skoða stutta sketsa í teiknimyndaformi sem aðdáend- um Family Guy ætti að hugnast. Síðan sem er hluti af Google’s Content Network er kostuð af stuttum auglýsingum í upphafi hverrar teiknimyndar en sem betur fer eru þær einnig settar fram í teiknimyndastíl McFar- lanes og fara því síður í pirrurnar á fólki. Föstudagur 12. september 200850 Helgarblað DV Tækni umsjón: pÁLL sVanssOn palli@dv.is MeiStaradeildiN í Pro ueFa og Konami hafa náð samkomulagi um að meistaradeild evrópu verði aðeins í pro evolution soccer-seríunni næstu 4 árin. nýjasti leikurinn, eða pro evolution soccer 2009, kemur út 16. október á pLaYstatIOn®3, Xbox 360 og pC-dVd, svo í byrjun árs 2009 á Wii. samningurinn um meistaradeild evr- ópu gerir Konami kleift að nota allt efni keppninnar til að búa til sérstakan „ueFa Champions League“-möguleika í leikn- um. Þessi samningur sýnir ákveðni Konami í að gera seríuna fremsta í gerð fótboltaleikja. Hlutdeild CHrome eftir eina viku Fyrirtækið Net applications hefur fylgst með hlutdeild Chrome- vafrans meðal vafranotenda eftir að hann kom á markaðinn í síðastliðinni viku. Hæsta skor vafrans var 1,7 prósent 5. september en hefur svo rokkað kringum eitt prósentið. Þetta er alls ekki slæm niðurstaða fyrir fyrstu betaútgáfu og þess má geta að gamalgrónir vafrar eins og Netscape og opera hafa ekki nema 0,75 hlutdeild. Risinn ekki á bR uðfótum Heimabíó í sól- GlerauGum Þetta er svo sannarlega flottur búnaður fyrir alla kvikmynda- sjúklinga. Heimabíó sem þú getur virkilega horft á hvar og hvenær sem er. Sólgleraugna- heimabíóið svokallaða er heimabíó byggt inn í sólgleraugu sem varpa fjörutíu og tveggja tommu skjá beint fyrir framan augun á þér. Gleraugun eru tengd við vídeó-iPod, dVd- spilara eða hvaða vídeóspilara sem er. ekki nóg með það heldur hefur þessi rosalega græja líka innbyggð stereo-heyrnartól og virkar batteríið í fimm tíma samfleytt. einnig er gert ráð fyrir því að viðkomandi geti verið með sín eigin gleraugu innan undir sólgleraugunum sé þess þörf. Gripinn má nálgast á hamm- acher.com fyrir einungis tuttugu og tvö þúsund krónur. Stungið í samband google hefur mikinn áhuga á raunhæfum orkugjöfum í stað olíu. Hér má sjá sergey brin stinga Hybrid-bíl frá toyota í samband. larry Page og Sergei Brin stórhuga fyrirætlanir hafa einkennt google-fyrirtækið frá fyrstu tíð og það er ekkert að breytast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.