Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Síða 2
„Þótt einhver hafi fundið það út að
þyrlan væri til sölu er ekki þar með
sagt hvað ég geri,“ segir Magnús
Kristinsson spurður um lúxusþyrl-
una sem nú er auglýst til sölu hjá
bandarískri þyrlusölu.
Magnús segir að sú staðreynd að
hann hafi lagt þyrlunni tengist ekkert
efnahagsþrengingunum heldur séu
tryggingarnar dýrar og því hafi hann
ákveðið að leggja henni um stund.
„Það eru tveir mánuðir síðan
henni var lagt og það er ekki út af nú-
verandi ástandi. Þetta er dýrt tæki og
það er dýrt að hafa þyrluna á trygg-
ingum þannig að ég ákvað að taka
hana af tryggingum fyrst og fremst,
það var megintilgangurinn.“
Áhugi erlendis
Samkvæmt heimildum DV hafa átt
sér stað einhverjar þreifingar um
sölu á þyrlunni en það er íslenska
fyrirtækið Þyrluþjónustan sem sér
um rekstur hennar en fyrirtækið er
einnig með þrjár aðrar þyrlur á sín-
um snærum.
„Það kostar mikla peninga að
tryggja þyrlu. Þeir hjá Helicopter Ex-
change fréttu af því að ég hefði lagt
þyrlunni og höfðu samband við mig.
Ég sagði þeim að þeir mættu hafa
hana á sölu og við sjáum bara hvað
út úr því kann að koma. Ég keypti
hana á ákveðinn pening og ég ætla
ekki að fara að tapa á þessu dæmi.
Það á að vera mikill markaður fyrir
þyrlur en hann hefur eitthvað dvín-
að. En hún er ekki sérstaklega á sölu
út af ástandinu. Það er búið að gera
margt annað til að spara í þessu ár-
ferði,“ segir Magnús en hann hefur
tekið rækilega til í fyrirtæki sínu en
með þeim aðgerðum hefur Magnús
sloppið við að segja upp fólki.
Í gamla daga skrúfuðu menn oft
númeraplöturnar af bílum sínum og
geymdu þá þannig yfir veturinn svo
þeir þyrftu ekki að borga tryggingar.
Það má því segja að Magnús sé að
taka „númeraplöturnar“ af þyrlunni
sinni en með því sparar hann hundr-
uð þúsunda ef ekki milljónir.
Verðmæti í fólki
„Það eru miklu meiri verðmæti í fólk-
inu heldur en maður gerir sér grein
fyrir,“ segir Magnús sem hefur farið
aðrir leiðir í niðurskurði.
„Það versta sem þú gerir er að
henda fólkinu út á götu og segja: „Ertu
tilbúinn að koma þegar mér hentar?“
Það má ekki gera það þannig. Það eru
miklu meiri verðmæti í því að gæta að
hag fólksins og leyfa því að vera hjá
okkur. Þess í stað minnkum við starfs-
hlutfall og þannig höfum við farið í
gegnum allan pakkann hjá okkur. Við
erum búin að minnka allt sem hægt
er að minnka,“ segir Magnús og bend-
ir á ferðalög og gjafir.
„Eins og sagt er, þá er hægt að
skera endalaust niður í fyrirtækjum.
Það er hægt að minnka allt sem heit-
ir risnur, ferðalög, gjafir og þess hátt-
ar en það er búið að skera allt þetta
niður verulega.“
Magnús segir erfitt að átta sig á
framtíðinni en vonar að ástandið
fari að batna enda fari þetta illa með
heimilin og fyrirtækin í landinu.
„Ég á erfitt með að átta mig á
þessu. Ég bíð svolítið eftir því að
þessir gjaldeyrissjóðspeningar komi
og önnur fyrirgreiðsla til hins opin-
bera svo maður geti farið að sjá þetta
gengi stoppa einhvers staðar. Það er
náttúrlega alveg hræðilegt að sjá það
að krónan veikist dag frá degi. Þetta
fer með allar skuldir okkar í atvinnu-
rekstri og skuldir heimilanna til and-
skotans ef þetta heldur svona áfram,“
segir Magnús áhyggjufullur.
Áhugi á lúxusþyrlu
Þyrlan hans Magnúsar er af gerðinni
Bell 430 og er ein sú allra flottasta
sinnar tegundar og án efa sú allra
veglegasta hér á landi.
Þyrlan getur náð allt að 270 kíló-
metra hraða á klukkustund og getur
tekið allt að sex til sjö farþega. Allir
innviðir þyrlunnar eru eins og í lim-
ósínu og er til að mynda „limósínu-
rúða“ á milli farþegarýmis og flug-
manna. Sú rúða er að sjálfsögðu
skyggð eins og í alvöru limósínu.
Þá er veitingageymsla um borð
í þyrlunni, hljómtæki með snerti-
takkabúnaði auk tveggja síma sem
Magnús getur notað í flugi.
Handföngin inni í þyrlunni eru
heldur ekkert slor. Þau eru gulli sleg-
in eins og sést á meðfylgjandi mynd-
um.
Hvað sjálfa innréttinguna varðar,
eru sætin ljósdrapplituð leðursæti
en gólfteppið í þyrlunni er að sjálf-
sögðu í stíl.
Samkvæmt heimildum DV er
söluverðið í kringum fimm til sjö
milljónir dollara en miðað við nú-
verandi gengi erlendis gæti þyrlan
því selst á rúman milljarð króna.
Aðspurður hvort hann sakni
þyrlunnar segir Magnús: „Nei nei,
ekkert rosalega.“
Föstudagur 7. Nóvember 20082 Fréttir
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Allt fór á fullt fyrir
hrun bankanna
til að tryggja
að bankafólk
sem keypt hafði
hlutabréf með lánum
þyrfti ekki að standa við
skuldbindingar sínar.
Stjórn Kaupþings leysti
bankamenn undan per-
sónulegum ábyrgðum
sínum á lánum vegna
hlutabréfakaupa. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, hefur ver-
ið sérstaklega gagnrýndur fyrir þátttöku sína í þeim gjörningi, enda
gangi hann gegn hagsmunum almennings og þar með félagsmanna í
VR. Sumir bankamenn fluttu hlutabréf sín og skuldir í einkahlutafé-
lög. Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
segist hafa tapað ævisparnaðinum en prísar sig sælan að þau hjónin
haldi húsinu.
Leyst undan skuLdum
þriðjudagur 4. nóvember 20082
Fréttir
Milljarðarnir hverfaStjórnendur bankans sem eru á lista yfir tuttugu stærstu hluthafana.
FyrirgeF oss
vorar skuldir
Sigurður
Einarsson
1,08%
7.992.420 hlutir.
5.227 milljónir
190960-2269
Hreiðar Már
Sigurðsson ehf.
0,95%
7.047.240 hlutir.
4.609 milljónir
500506-1990
Ingvar
Vilhjálmsson ehf.
0,56%
4.118.900 hlutir.
2.694 milljónir
471008-1330
Ingólfur
Helgason
0,50%
3.724.880 hlutir.
2.436 milljónir
041067-5279
Þeir stjórnendur Kaupþings sem DV
talaði við neita að skuldir þeirra hafi
verið felldar niður. Flest bendir þó til
þess að það hafi verið gert. Í kvöld-
fréttum RÚV í gær kom fram að stjórn
Kaupþings hefði látið afskrifa skuld-
ir fjölda starfsmanna bankans áður
en hann var þjóðnýttur. Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra segir
þennan gjörning hljóma einkar sér-
kennilega. Heimildir DV herma að
ábendingar um meint misferli inn-
an Kaupþings hafi borist Fjármála-
eftirlitinu fyrir nokkrum vikum. Fyrr-
verandi og núverandi starfsmenn
bankans sem DV hafði samband við
virðast ekkert kannast við niðurfell-
ingu skuldanna. Vilhjálmur Bjarna-
son, aðjúnkt í hagfræði við Háskóla
Íslands og formaður Félags fagfjár-
festa, segir þetta vera skýlaust brot
á hlutafélagalögum. DV hefur und-
anfarið fjallað um mál Birnu Einars-
dóttur, bankastjóra Nýja Glitnis, en
það hefur vakið mikla athygli und-
anfarið að bréf hennar í Glitni hurfu
sökum tæknilegra mistaka að henn-
ar sögn.
Björgun bankamanna
Í kvöldfréttum Ríkissjónvarps-
ins í gær kom fram að stjórn Kaup-
þings hefði látið afskrifa skuldir
fjölda starfsmanna bankans áður en
hann var þjóðnýttur. Fjármálaeftir-
litið segist ekki hafa samþykkt niður-
fellingu krafna eða trygginga vegna
lánveitinga til starfsmanna bankans.
Kaupþing á að hafa afskrifað skuld-
irnar í lok september, nokkrum vik-
um áður en bankinn var þjóðnýttur.
Starfsmenn bankans og stjórnendur
höfðu sumir hverjir fjárfest í bank-
anum með lánum sem átti að greiða
af með arðgreiðslum. Þegar bankinn
var þjóðnýttur urðu bréfin verðlaus
en lánin stóðu eftir. Hafi skuldirn-
ar verið þurrkaðar út eins og fregnir
herma er líklegt að með því hafi ver-
ið reynt að bjarga bankastarfsmönn-
um. Samkvæmt lögum mega þeir
sem hafa orðið gjaldþrota á síðustu
fimm árum ekki stjórna fjármála-
stofnunum.
Sömu lögmál og um önnur lán
Á meðal þeirra sem áttu stóra hluti
í bankanum voru Sigurður Einarsson
sem átti tæpa átta milljarða. Hreiðar
Már Sigurðsson átti rúma sjö millj-
arða. Ingólfur Helgason átti rúma 2,4
milljarða. Ingvar Vilhjálmsson átti
2,7 milljarða en hann segir við DV
að skuldir hans hafi ekki verið felld-
ar niður. Í svari Fjármálaeftirlitsins
við fyrirspurn fréttastofu RÚV vegna
málsins kemur fram að í ákvörð-
un Fjármálaeftirlitsins um ráðstöf-
un eigna og skulda nýju bankanna
segi að skuldbindingar starfsmanna
lúti sömu lögmálum og önnur lán
sem fluttust yfir til nýju bankanna.
Fjármálaeftirlitið hafi ekki samþykkt
sérstaklega niðurfellingu krafna eða
trygginga vegna lánveitinga til starfs-
manna bankanna.
Sérkennilegur gjörningur
„Þessi gjörningur hljómar mjög
sérkennilega. Við munum fara ít-
arlega í gegnum það hvað er rétt og
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Á fundi með stjórnvöldum
Hreiðar már Sigurðsson og
Sigurður einarsson koma í
ráðherrabústaðinn 6. október
vegna efnahagsástandsins.
þriðjudagur 4. nóvember 2008 3
Fréttir
Kaupþing gleypti
ævisparnaðinn
Kristján Arason
Ævisparnaður Kristjáns Ara-
sonar, fyrrverandi handknatt-
leikshetju, og eiginkonu hans,
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-
ur menntamálaráðherra, fór í súg-
inn þegar ríkið tók yfir Kaupþing.
Kristján hafði keypt bréf í bank-
anum og meðal annars notað til
þess fjármuni frá því þegar hann
var atvinnumaður í handbolta. Í
febrúar í fyrra stofnaði hann eign-
arhaldsfélagið 7 hægri ehf. og yf-
irtók það félag fjárfestingarnar
í bankanum í kjölfarið. Kristján
starfaði sem framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Kaupþings
á þeim tíma. Hann segir einhver
lán hafa hvílt á félaginu en þau
hafi ekki verið strokuð út eins og
fregnir herma að hafi verið gert
hjá sumum fyrrverandi stjórnend-
um bankans.
Ævisparnaðurinn farinn
„Já, ég átti hlut, eða það var á
eignarhaldsfélag í minni eigu,“
segir Kristján aðspurður
hvort hann hafi
átt hlutabréf í
Kaupþingi.
Hann vill
ekki tjá sig
um hversu
háar upp-
hæðir sé
um að ræða
en ljóst er
að þær
séu þó
nokkr-
ar í
ljósi
þess að nær allt sparifé þeirra
hjóna hafi farið með falli bankans.
„Ævisparnaðurinn er farinn, en
við eigum þó allavega húsið,“ seg-
ir Kristján og bætir því við að þess-
um fjármunum hafi verið ætlað að
vera sparnaður til lengri tíma.
„Við höfðum mikla trú á Kaup-
þingi,“ segir hann og ítrekar að
þarna hafi verið samankomið allt
það sem þau höfðu safnað um æv-
ina. Þegar Kristján er spurður út í
hvort lán hans vegna hlutabréfa-
kaupa hafi verið felld niður eins
fregnir herma að hafi verið gert
með aðra stjórnendur segir hann
svo ekki vera. „Það hefur engin
niðurfelling átt sér stað og verður
bara farið með mitt eignarhalds-
félag eins og önnur. Það er ekkert
óheiðarlegt við neitt sem ég hef
gert í þessu máli,“ segir hann.
Stóð rétt að málum
Bréfin í Kaupþingi voru upp-
haflega á nafni Kristjáns en voru
síðar sett inn í eignarhaldsfé-
lag hans 7 hægri ehf. Spurður
um stöðu félagsins í ljósi þess
að skuldirnar falli á það svarar
hann: „Ég vil ekki tjá mig um það.“
Hann segir að eftir að hlutirn-
ir hafi verið settir inn í eignasölu
hafi gengi hlutabréfa Kaupþings
hækkað mikið en það sem síð-
an gerðist hefði enginn
getað séð fyrir.
Hlutabréf Kristjáns
voru færð yfir í 7 hægri
ehf. um mánaðamót-
in febrúar, mars en
félagið var stofnað í
febrúar. Kristján er
stjórnarformaður
í 7 hægri ehf.
og Þor-
gils
Óttar Mathiesen er varamaður.
Þegar Kristján er spurður hversu
miklar skuldir liggi á 7 hægri ehf.
vill hann ekki tjá sig um það. „Það
voru einhver lán og líka eigið fé,“
segir hann. „Þetta var gert með
samþykki forstjóra og regluvarð-
ar Kaupþings,“ segir Kristján sem
vill ítreka að rétt hafi verið staðið
að málum.
Leikkerfið klikkaði
Kristján er eins og alþjóð veit
þekktastur fyrir mikla handknatt-
leikshæfileika en hann var kosinn
fjórði besti handknattleiksmað-
ur í heimi árið 1989. Eftir að hann
lagði boltann á hilluna varð hann
umsvifamikill í fjármálalífinu
hér á landi. Kristján hefur áður
sagt að nafnið 7 hægri hafi ver-
ið fengið beint úr handboltanum
en bæði Kristján og Þorgils Óttar
eru meðal bestu handknattleiks-
manna Íslandssögunnar. Kristján
hefur áður lýst 7 hægri sem „prív-
at“ eignarhaldsfélagi. „Það veitir
kannski ekki af góðum
leikkerfum eins og
staðan er í dag,“
sagði Kristján
við Vísi síðasta
vetur, rétt eft-
ir að hann
hafði stofnað 7
hægri ehf.
jonbjarki@dv.is
„Ævisparnaðurinn er
farinn, en við eigum þó
allavega húsið.“
Eignarhaldsfélagið situr í
súpunni Kristján arason stofnaði
eignarhaldsfélagið 7 hægri ehf. í
febrúar og það yfirtók allar
fjárfestingar hans í Kaupþingi.
óvíst er um framtíð félagsins.
Húsið stendur Kristján segir sig
og þorgerði hafa tapað tapað
miklum fjárhæðum en eftir standi
húsið sem þau eigi ennþá.
Trúðu á Kaupþing Ævisparnað-
ur Kristjáns arasonar og þorgerðar
Katrínar varð að engu þegar ríkið
tók bankann yfir.
rangt. Fjármálaeftirlitið fer nú í gegn-
um allan rekstur allra bankanna fyr-
ir hrunið. Þar er allt sem orkar tví-
mælis skoðað sérstaklega. Ef um er
að ræða óeðlilega hluti verða mögu-
leikar á riftun kannaðir,“ segir Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Heimildir DV herma að ábend-
ingar um meint misferli innan Kaup-
þings hafi borist Fjármálaeftirlitinu
fyrir nokkrum vikum. Þær grun-
semdir hafi orðið til þess að áhersla
var lögð á að fá utanaðkomandi og
óháðan bankastjóra en ekki inn-
anhússmann. Þar með var Finnur
Hjörleifsson ráðinn.
Skýlaust brot
Benedikt Sigurðsson, upplýs-
ingafulltrúi Kaupþings, kannaðist
ekki við að lán starfsmanna bank-
ans hefðu verið felld niður þegar DV
hafði samband við hann. Hann seg-
ir einnig að honum sé alveg ókunn-
ugt um að einstaklingar innan bank-
ans hafi fjármagnað hlutabréfakaup
með lánum. Vilhjálmur Bjarnason,
aðjúnkt í hagfræði við Háskóla Ís-
lands og formaður Félags fagfjár-
festa, segir þetta vera skýlaust brot
á hlutafélagalögum. „Þessar bless-
uðu skilanefndir eiga náttúrulega að
horfa á þetta,“ segir hann en tekur
fram að hann eigi eftir að kynna sér
málið til hlítar.
Þögn Kaupþings
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
um tugi milljarða sé að ræða. Fregn-
irnar eru sláandi í ljósi þess að hinn
almenni borgari fær skuldir sínar
ekki felldar niður. Fram hefur komið
í fjölmiðlum að skuldir þjóðarbúsins
séu 9.400 milljarðar króna en það eru
7,7 milljónir á hvert einasta manns-
barn. Kaupþing hefur ekki gefið frá
sér neina yfirlýsingu í kjölfar þessara
fregna en Landsbankinn sendi frá
sér yfirlýsingu í kjölfar fréttarinnar.
Þar kemur fram að Landsbanki Ís-
lands hf. hafi ekki veitt starfsmönn-
um sínum lán fyrir hlutabréfakaup-
um sem hluta af starfskjörum. Því sé
ekki um neinar niðurfellingar skulda
starfsmanna eða félaga þeirra að
ræða hjá bankanum.
Eins og fyrr segir hefur mál
Birnu Einarsdóttur, bankastjóra
Nýja Glitnis, verið mikið í fjölmiðl-
um undanfarið. Þegar Árni Tómas-
son, skiptastjóri Glitnis, var spurð-
ur hvort ekki væri óheppilegt að
stjórnendur gömlu bankanna hefðu
tekið við stjórn þeirra nýju sagð-
ist hann í rauninni ekki skilja slíkan
málflutning. Það væri mikil þekking
sem fylgdi starfsmönnum bankanna
og í raun ómögulegt að byggja nýju
bankana upp á fólki af atvinnuleys-
isskrá.
„Kemur engum við nema mér“
Birgir Örn Arnarson, yfirmaður
áhættustýringar Kaupþings, kann-
aðist ekki við að skuldir hans hefðu
verið afskrifaðar þegar DV náði tali
af honum. „Ég veit ekki til þess að
það sé búið að gera neitt í því, þær
eru ennþá bara eins og þær eru,“
sagði hann. Hann vildi ekkert tjá sig
um hversu miklar upphæðir væru í
bréfum hans. Né heldur vildi hann
segja hvort hann hefði tekið lán fyrir
kaupunum á sínum tíma. „Það kem-
ur engum við nema mér,“ sagði hann
við blaðamann DV.
Þegar Birgir var spurður hvern-
ig fjárhagsstaða hans væri nú þegar
hlutirnir í bankanum væru orðnir
verðlausir sagðist hann ekkert vilja
fara út í það. Hann ítrekaði að verið
væri að rugla honum saman við ein-
hvern annan, hann hefði ekki keypt
bréf fyrir tvo milljarða.
„Þessi gjörningur
hljómar mjög sér-
kennilega. Við mun-
um fara ítarlega í
gegnum það hvað er
rétt og rangt.“
Glæsivilla Sigurðar Stjórnarformaður Kaupþings byggir nú tæplega 900 fermetra glæsivillu í borgarfirð-inum, með 50 fermetra vínkjallara. Hann keypti nýverið hús í Lundúnum á tvo milljarða króna.
DV greindi frá því í byrjun
vikunnar að hætta væri
á að fólk festist í skulda-
fjötrum vegna lækkandi
húsnæðisverðs og vax-
andi verðbólgu. Í gær birti
Seðlabankinn svo peningamála-
rit sitt um þróun og horfur í efna-
hagsmálum. Þar kom fram að
fasteignaverð hefur þegar lækkað
um 14 prósent að teknu tilliti til
verðbólgu og að eftir tvö ár kunni
fasteignaverð að hafa lækkað um
fjórðung í viðbót að nafnvirði.
Það þýðir, gangi spáin eftir, að
húsnæði verði helmingi ódýrara
að raunvirði en það var á síðasta
ári. Þá er bæði búið að reikna
inn í dæmið verðlækkun í krón-
um talið og verðbólgu.
aLmenningur í vanda
Vertu
Hannes
í einn
dag
heimilin
hrynja
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ár
sinsmánuda
gur 3. nóvember 2008 dagblaðið vísir
204. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
neytendur
rændi ragnHeiði
gröndal
Hörmungar yfirvofandi Hjá Húsnæðiseigendum:
Húsnæðismarkað-
urinn „í klessu“
„Þetta er lognið
á undan storminum“
„Fólk festist í skulda-
og eignafjötrum“
Minnst 16 prósenta
hækkun fasteignalána
Fréttir
Fólk
Fréttir
sjálFstæðisFlokkurinn
í sjálFHeldu
Framsókn og Vg vilja ekki
fara í stjórn með flokknum
„krossleggur
bara fingur“
25-45% hrun!
lára ómarsdóttir
missti vinnuna
Fritzl læsti
MöMMu
sína inni
góðæriskvöld
í verðlaun
allt að
75%
Munur
Fólk
ódýrustu dekkjaskiptin
síbrotamaður í
þriggja ára fangelsi
listamenn
vilja ekki
konu geirs
Fréttir
Fréttir
Fréttir 2
„Fram undan
er löng leið.
Það er á bratt-
ann að sækja.
Við náum
kannski ekki á
áfangastað á einu ári,
jafnvel ekki einu kjör-
tímabili. En, Banda-
ríkjamenn, ég hef
aldrei verið eins bjart-
sýnn og í kvöld á að
við komumst þangað,“ sagði öld-
ungadeildarþingmaðurinn Barack Obama þegar hann hafði tryggt
sér sigur í bandarísku forsetakosningunum. Sigur Obamas er sögu-
legur. Hann er fyrsti þeldökki maðurinn sem nær kjöri til þessa æðsta
embættis Bandaríkjanna. Nú liggur fyrir honum að leiða Bandaríkin
og umheiminn út úr þeirri kreppu sem hefur umlukið heiminn. Jafn-
framt þarf hann að takast á við að Bandaríkin standa í stríðsrekstri
bæði í Írak og Afganistan, Obama hefur heitið því að fækka her-
mönnum í Írak en ætlar að styrkja Bandaríkjaher í Afganistan.
Obama fagnar sigri
fimmtudagur 6. nóvember 200812
Fréttir
Verðandi forseti Bandaríkjanna, Bar-ack Obama, getur vænst harkalegrar stefnu frá rússneskum starfsbróður sínum, Dmitry Medvedev.
Í sínu fyrsta ávarpi til rússnesku þjóðarinnar, síðan hann tók við for-setaembættinu af Vladimír Pútín, hót-aði Medvedev að sett yrði upp Iskand-er-eldflaugakerfi í Kalíningrad, sem liggur við Eystrasaltið, á milli tveggja Natóþjóða, Litháens og Póllands. Hlutverk flugskeytanna væri að mynda mótvægi við það eldflaugavarnakerfi sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Póllandi og Tékklandi.
Að sögn Medvedevs yrði eldflauga-varnarveggur Bandaríkjanna í Pól-landi og Tékklandi bein ógn við ör-yggi Rússlands og hefur hann meðal annars fallið frá hugmyndum um að
leggja niður herdeildir á skotpallaher-stöðvum. Rússar virðast gefa lítið fyr-ir útskýringar Bandaríkamanna um að fyrirhuguð eldflaugakerfi í Póllandi og Tékklandi séu hugsuð sem vörn gegn „óútreiknanlegum“ þjóðum á borð við Íran og Norður-Kóreu.
Í ávarpi sínu í gær gagnrýndi Med-vedev Bandaríkin einnig fyrir að hafa átt afgerandi þátt í því stutta stríði sem geisaði á milli Rússa og Georgíumanna í ágústmánuði, og segir ábyrgðina liggja hjá „sjálfsbirgingslegri“ banda-rískri ríkisstjórn. Medvedev sagði að Rússar myndu aldrei gefa eftir á Kák-asussvæðinu. Dmitry Medvedev sagði einnig að Bandaríkin bæru ábyrgð á efnahagskreppunni, en að Rússar myndu standast þá raun.
Margir telja að hlutverk Medved-
evs sé aðeins að vera staðgengill fyr-ir Pútín, þar til Pútín getur sest aftur í forsetastól. Medvedev hefur tjáð rúss-
neskum þingmönnum að hann vilji lengja kjörtímabil forseta landsins úr fjórum árum í sex ár.
rússlandsforseti hótar bandaríkjunum
„Ef enn fyrirfinnst einhver, sem efast um að Bandaríkin séu staður þar sem allt er mögulegt, sem enn veltir fyrir sér hvort draumur stofnenda okkar sé enn á lífi, sem enn ber brigður á styrk lýðræðis okkar, þá er kvöldið í kvöld svarið.
Það er svar ungra og aldinna, ríkra og fátækra, demókrata og repúblik-
ana, þeldökkra, hvítra, spænskætt-
aðra, asískra, frumbyggja, samkyn-
hneigðra, gagnkynhneigðra, fatlaðra og ófatlaðra, Bandaríkjamanna sem hafa sent umheiminum þau skilaboð að við höfum aldrei verið eingöngu samsafn einstaklinga eða safn rauðra og blárra ríkja.
Við erum, og munum ávallt vera, Bandaríki Norður-Ameríku.
McCain öldungadeildarþingmað-
ur barðist lengi og vel í þessum slag. Og hann hefur barist lengur og bet-
ur fyrir þjóðina sem hann elskar. Fórn hans fyrir Bandaríkin er meiri en flest okkar geta ímyndað sér. Sak-
ir þjónustu þessa hugrakka og ósér-
hlífna leiðtoga erum við betur sett. Ég óska honum til hamingju; ég óska Palin ríkisstjóra til hamingju vegna þess sem þau hafa áorkað. Og ég hlakka til að starfa með þeim á kom-
andi mánuðum að því að endurnýja fyrirheit þessarar þjóðar.
Barátta okkar hófst ekki í sölum Washingtonborgar. Hún hófst í bak-
görðum Des Moines og stofum í Con-
cord og á veröndum í Charleston.
Hún byggðist á vinnandi körlum og konum sem gáfu af takmörkuðu sparifé sínu til málstaðarins, 5 og 10 og 20 [dollara].
Hún fékk styrk frá ungu fólki sem hafnaði goðsögninni um áhugaleysi kynslóðar sinnar, og yfirgaf heimili sitt og fjölskyldu vegna verkefna sem buðu upp á lág laun og lítinn svefn.
Hún fékk styrk frá ekki svo ungu fólki sem bauð birginn brunagaddi og brennandi hita, við að banka á hurð-
ir hjá ókunnugu fólki, og frá milljón-
um Bandaríkjamanna sem buðu sig fram og skipulögðu og færðu sönnur á að eftir tvær aldir var enn að finna ríkisstjórn fólksins, skipaða af fólki og fyrir fólkið.
Sigurinn er ykkar.
Og mér er vel kunnugt að tilgang
urinn var ekki eingöngu að vinna kosningarnar. Og ég veit að þið gerð
uð þetta ekki fyrir mig.
Þið gerðuð þetta því þið skiljið umfang þess verkefnis sem framund
an er. Því þrátt fyrir að við fögnum í kvöld vitum við að áskoranir morg
undagsins er þær stærstu á okkar tímum – tvö stríð, pláneta í háska, versta efnahagskreppa aldarinnar.
Framundan er löng leið. Það er á brattann að sækja. Við náum kannski ekki á áfangastað á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. En, Banda
ríkjamenn, ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og í kvöld á að við kom
umst þangað.
Ég lofa ykkur, við sem þjóð kom
umst þangað.
Það verða hindranir og mistök. Margir munu ekki vera samþykkir öllum ákvörðunum sem ég tek sem forseti. Og við vitum að ríkisstjórn
in getur ekki leyst öll vandamál. En ég verð ávallt ærlegur gagnvart ykk
ur hvað varðar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ég mun hlusta á ykkur, sérstaklega þegar okkur greinir á. Og, umfram allt, mun ég biðja ykkur að sameinast í því verki að endurbyggja þjóðina, á þann eina máta sem það hefur verið gert í 221 ár – með einum klossa í einu, einum múrsteini í einu, handlönguðum af sigggrónum höndum.
Í þessu landi stöndum við eða föllum sem þjóð, sem einn. Föllum ekki í þá freistni að hverfa til gamalla flokkadrátta og smámunasemi og vanþroska sem litað hafa stjórnmál okkar í langan tíma.
Gleymum ekki að það var maður úr þessu fylki sem fyrstur manna bar fána Repúblikanaflokksins í Hvíta húsið, flokks sem byggður er á gild
um sjálfstrausts og frelsi einstakl
ingsins og einingu þjóðarinnar.
Öll deilum við þessum gildum. Og þrátt fyrir að Demókrataflokkur
inn hafi unnið frækinn sigur í kvöld, þá gerum við það með auðmýkt og ákveðni í að brúa það bil sem haml
að hefur árangri okkar.
Eins og Lincoln sagði við þjóð sem var mun sundraðri en við, við erum ekki óvinir heldur vinir. Þó þær séu teygðar vegna ástríðna mega taugar kærleiksþels okkar ekki rofna.“
Barack Obama ræddi um þær miklu áskoranir sem þjóðin stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að hún stæði saman að þeim verkefnum sem fram undan eru.
„Sigurinn er ykkar
KOlBeinn þOrsteinssOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
rússneskt flugskeyti
rússar hóta að svara
bandaríkjamönnum í
sömu mynt.
Baracks Obama
John McCain
Tilboð á
barnamyndatökum
Góð mynd er falleg jólagjöf!
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
fimmtudagur 6. nóvember 2008 29
Fréttir
neskum þingmönnum að hann vilji lengja kjörtímabil forseta landsins úr
Og mér er vel kunnugt að tilgang-
urinn var ekki eingöngu að vinna kosningarnar. Og ég veit að þið gerð-
Þið gerðuð þet a því þið skiljið umfang þes verkefnis sem framund-
an er. Því þrát fyrir að við fögnum í kvöld vitum við að áskoranir morg-
undagsins er þær stærstu á okkar tímum – tvö stríð, pláneta í háska, versta efnahagskreppa aldarinnar.
Framundan er löng leið. Það er á brat ann að sækja. Við náum kannski ekki á áfangastað á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. En, Banda-
ríkjamenn, ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og í kvöld á að við kom-
Ég lofa ykkur, við sem þjóð kom-
Það verða hindranir og mistök. Margir munu ekki vera samþykkir öl um ákvörðunum sem ég tek sem forseti. Og við vitum að ríkis tjórn-
in getur ekki leyst öl vandamál. En ég verð ával t ærlegur gagnvart ykk-
ur hvað varðar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ég mun hlusta á ykkur, sérstaklega þegar okkur greinir á. Og, umfram al t, mun ég biðja ykkur að sameinast í því verki að endurbyggja þjóðina, á þann eina máta sem það hefur verið gert í 221 ár – með einum klos a í einu, einum múrsteini í einu, handlönguðum af
Í þes u landi stöndum við eða föl um sem þjóð, sem einn. Föl um ekki í þá freistni að hverfa til gamal a flokkadrát a og smámunasemi og vanþroska sem litað hafa stjórnmál
Gleymum ekki að það var maður úr þes u fylki sem fyrstur manna bar fána Repúblikanaflokksins í Hvíta húsið, flokks sem byggður er á gild-
um sjálfstrausts og frelsi einstakl-
Öl deilum við þes um gildum. Og þrát fyrir að Demókrataflokkur-
inn hafi unnið frækinn sigur í kvöld, þá gerum við það með auðmýkt og ákveðni í að brúa það bil sem haml-
Eins og Lincoln sagði við þjóð sem var mun sundraðri en við, við erum ekki óvinir heldur vinir. Þó þær séu teygðar vegna ástríðna mega taugar
“
Barack Obama
Um tvö hundruð þúsund manns höfðu safnast saman í, og við, Grant-garðinn í Chicago, heimaborg Baracks Obama, og allt ætlaði um koll að keyra í fagn-aðarlátunum þegar ljóst var að hann fengi það verkefni að binda endi á tímabil Bush í Hvíta húsinu.
Á miðnætti á staðartíma steig hinn
fjörutíu og sjö ára öldungadeildar-þingmaður frá Illinois, sonur ken-ísks föður og móður frá Kansas, á svið ásamt eiginkonu sinni, Michelle, og dætrum þeirra, Maliu og Söshu, und-ir taktföstu klappi og lofaði heiminum að „dögun nýrrar bandarískrar forystu væri runnin upp“.
Kynþáttamúrarnir féllu Stuðnings-menn Obama brustu í grát þegar þeir heyrðu fyrstu spár um að þeldökkur
maður væri fast að því búinn að tryggja sér forsetastólinn.
Fögnuður í Frakklandi Það
var víðar en í bandaríkjunum
sem sigri Obama var fagnað.
tilfinningarnar leyna sér ekki
hjá þessari konu í París.
Sorgartár á hvarmi Þau voru ekki öll gleðitár, tárin sem vættu hvarma þegar úrslit kosninganna lágu ljós fyrir. Hér tárast stuðningskona Johns mcCain
þegar hann viðurkennir ósigur sinn.
Tilfinningaþrunginn léttir
eftir tuttugu og eins mánaðar óvissu eru málalyktir ljósar og sumir varpa
öndinni léttar en aðrir ekki.
John McCain játar sig sigraðan
Það er mat margra að ræða mcCains, þegar hann viðurkenndi ósigur sinn
og óskaði barack Obama til
hamingju, hafi verið ein sú besta
sem hann hefur flutt á meðan
kosningaslagurinn stóð yfir.
Í Washington DC barack Obama
hefur brotið blað í sögu bandaríkj-
anna. Hér fagna stuðningsmenn
hans í Washington úrslitum sem
víða um heim voru álitin óhugsandi.
3
Atli MÁr GylfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Eyjapeyinn og auðmaðurinn Magnús Kristinsson flaug eitt
sinn á milli lands og eyja á glæsilegri lúxusþyrlu en nú hefur
henni verið lagt. Magnús, sem er eigandi Toyota-umboðsins á
Íslandi, segir það kosta mikla peninga að tryggja þyrluna og því
hafi hann ákveðið að geyma hana um stund. Magnús hefur ekki
ákveðið hvort hann selji þyrluna.
AuðmAður
leggur þyrlu
Alvöru gripur
Þyrlan er ein sú fullkomnasta og flottasta
hér á landi en það er fyrirtækið
Þyrluþjónustan sem sér um rekstur
hennar og viðhald fyrir magnús.
Gulli slegin
Handföngin og beltin í
þyrlunni eru slegin gulli.
Magnús Kristinsson
Útgerðarmaður og eigandi toyota-
umboðsins á Íslandi hefur lagt þessari
glæsilegu þyrlu sem hann eitt sinn
kallaði sína eigin samgönguáætlun.
hitt málið
Einstök bók um mann
sem mætt hefur meiri
mótbyr en gengur og
gerist, en býr þó yfir
fádæma lífsgleði og
baráttuþreki og horfir
ávallt fram á veginn.
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
-lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar
-í senn hugljúf og skemmtileg bók